Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
17
um í gærkvöldi. Júlíus lék veikur en skoraði samt fjögur mörk.
ðuleg framkoma Ungverja vakti athygli
íþróttamenn. Þeir hótuöu því að kalla
ungverska liðið af leikvelli vegna
frammistöðu hollensku dómaranna og
varð nokkur töf á leiknum. Eftir að einn
forráöamanna ungverska hðsins hafði
hellt úr skálum reiði sinnar við annan
dómarann hélt leikurinn áfram. Langt
er síðan erlent landslið hefur sýnt slíka
framkomu. í raun ætti að senda ung-
verska liðið heim. Svona lið hefur ekk-
ert hér að gera og farið hefur fé betra.
Hollensku dómararnir dæmdu ekki
vel og voru hliðhollir íslenska liðinu
allan tímann. Frammistaða þeirra var
þó alls ekki tilefni til þeirrar framkomu
sem Ungverjar buðu fólki upp á í Höll-
inni í gærkvöldi.
• Mörk íslands: Stefán Kristjánsson
5/1, Júlíus Jónasson 4, Jakob Sigurðs-
son 4, Bjarki Sigurðsson 3, Geir Sveins-
son 2, Valdimar Grímsson 2, Sigurður
Bjarnason 1 og Skúli Gunnsteinsson 1.
• Markahæstir í liði Ungverja voru
þeir Jakob Sibalin og Gábor Fekete með
5 mörk hvor.
• Liðin leika að nýju klukkan átta í
Laugardalshöll í kvöld.
-SK
Héðinn skoraði fjögur
Lið Hameln styrkti stöðu sína í 2. deild þýska handboltans um helgina. Þá sigr-
aði liðið Dussledorf á heimavelli sínum, 24-19, i toppslag deildarínnar. Það má
segja að Hameln hafi gert út um leikinn á fyrstu 15 mínútunum en þá komst liðið
í 7-1, og í leikhléi var munurinn fjögur mörk, 13-9. í síðari hálfleik náði Dussel-
dorf aö minnka muninn í tvö mörk en heimaliöiö hafði betur undir lokin, leik-
menn liðsins vel hvattir af 3 þúsund áhorfendum, og það sigraði með 5 marka
mun.
Héðinn Gilsson átti góðan leik með Dusseldorf, hann skoraði 4 mörk, fiskaði
þrjú vítaköst og átti nokkrar hnusendingar sem gáfu mörk. Hameln og Dussel-
dorf eru efst og jöfn í deildinni en lið Hameln á einn leik til góða og stendur
því betur að vígi.
-GH
Iþróttir
- fór í gær fram á sölu frá Tottenham
Venables tók beiðni Guðna vel
Guðni Bergsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu og leikmaður með enska félaginu
Tottenham undanfarin tvö ár, gekk í gær
á fund Terry Venables, framkvæmda-
stjóra liðsins, og fór fram á það að verða settur
á sölulista.
Eftir því sem DV kemst næst
skildi Venables vel þessa afstöðu
Guðna og sagði að hann myndi
ekki standa í vegi fyrir þessari
beiðni hans. Venables mun á
stjórnarfundi Tottenham bera upp
þessa ósk Guðna en það er formsat-
riði-í málum sem þessu.
DV sló á þráðinn til Guðna Bergs-
sonar í London í gær en þá var
hann nýkominn af fundi með Terry
Venables. Guðni vildi sem minnst
tjá sig um þetta mál á þessari
stundu en sagði þó orðrétt í samtal-
inu við blaðið:
leiki í deild og bikarkeppninni.
Guðni verðlagður
á 40-50 milljónir
Telja má víst að Tottenham vilji fá
á milli 400-500 þúsund sterlings-
pund fyrir Guðna en í íslenskum
krónum er það á bilinu 40-50 millj-
ónir. Á dögunum gerði breska dag-
blaðið Today úttekt á Tottenham-
liðinu og verðlagði þá blaðið Guðna
á um 400 þúsund sterhngspund.
Ekki er loku fyrir það skotið að
Guðni Bergsson horfi björtum aug-
um til að leika knattspyrnu á meg-
inlandinu. Félög þar verða þó
kannski ekki ýkja hrifin af verðinu
sem sett er upp enda ganga leik-
menn kaupum og sölum í Englandi
á mun hærra verði en gengur og
gerist á meginlandi Evrópu.
-JKS
„Ekki verið ánægður
meðtækifæri mín“
„Ég hef ekki verið ánægður með
tækifæri mín undanfarna mánuöi
og er það reyndar ekki í fyrsta sinn
sem shkt gerist. Ég ræddi því máhn
við Venables og tjáði honum að ég
vildi komast í burtu og þá helst
eitthvað þangað sem ég fengi að
spila mína stöðu sem aftasti maður
í vörn (sveeper)" sagði Guðni
Bergsson, í samtali við DV í gær.
Guðni Bergsson gerði í janúar
1989 þriggja ára samning við Tott-
enham og hefði samningurinn með
réttu átt að renna út í janúar 1992.
Guðni hefur lítið fengið að spreyta'
sig með liðinu á þessu keppnistíma-
bili. í upphafi tímabilsins virtist
sem hann væri að festa sig í sessi
og lék hann fyrstu átta leikina í 1.
deildar keppninni. Síöan þá hefur
hann átt erfitt uppdráttar sem hef-
ur valdið því að hann fer fram á
það að verða settur á sölulista.
Guðni lék með Tottenham um 40
Guðni Bergsson á örugglega ekki eftir að leika oftar með liði Totten-
ham. Hann hefur farið fram á sölu frá félaginu.