Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991.
Ullönd
LosAngeles:
Fyrsta lögreglu-
konanfellur
í fyrsta sinn í sögu lögreglunnar
í Los Angeles féll lögreglukona
fyrir kúlum byssumanna í gær.
Lögreglan var stofnuö fyrir 138
árum og hin síðari ár hafa konur
verið íjölmennar í lögregluliðinu
en ávallt sloppið lifandi frá störf-
um sínum. Alvarlegir giæpir eru
tíðir í borginni og lögreglumenn
í stöðugri' hættu.
Konan, sem féll nú, hét Tina
Kerbrat og var 34 ára gömul,
tveggja barna móðir. Hún varð
fyrir skotum úr öflugri skamm-
byssu þegar hún þurfti að hafa
afskipti af tveimur drukkunum
mönnum.
Lögreglumenn í Los Angeles
hafa brugðist harkalega við þessu
atviki og segja að félagi þeirra
hafx verið myrtur í fullkomnu til-
gangsleysi. Tilræðismaðurínn
hét Jose Amaya, ólöglegur inn-
flytjandi frá E1 Salvador. Hann
var skotinn til bana eftir tilræðið.
Reutcr
Umsóknum
EB-aðildfyrir
sumarfrí
Utanríkisráðherra Svíþjóðar,
Sten Andersson, staðfesti í gær
að sænska stjórnin hefði í hyggju
að sækja um aðild að Evrópu-
bandalaginu, EB, fyrir sumar-
leyfi eða þegar ljóst væri hvernig
samningar EB og EFTA um sam-
eiginiegt evrópskt efnahagssvæði
litu út.
Andersson lagði á það áherslu
að undirritun slíkra samninga
þyrfti ekki að vera lokið þegar
Svíar sæktu um EB-aðild. Hann
vísaði á bug hugmyndinni um
sameiginlega umsókn Norður-
landanna að aðild að EB en mælti
jafnframt með því að Norðurlönd
sameinuðust í afstöðu sinni til
bandalagsins. tt
Sovétmenn
reknirfráSví-
þjóðvegna
meintranjósna
Nokkrir sovéskir ríkisborgarar
verða innan skamms reknir frá
Svíþjóð. Þeir eru sakaðir um
njósnir fyrir GRU, leyniþjónustu
sovéska hersins, að því er sænska
ríkisútvarpið greindi frá í gær.
Meðal þeirra sem reknir verða
eru nokkrír stjórnarerindrekar.
Sænsk yfirvöld hafa ekki viljað
tjá sig um málið. í utanríkisráðu-
neytinu og hjá lögreglunni segj-
ast menn aldrei hafa heyrt talað
um málið en haft er eftir embætt-
ismanni að þó svo að fréttin væri
rétt myndu menn ekki tjá sig um
hana vegna þess aö enn hefði
ekki verið gripið til aðgerða gegn
Sqvétmönnunum.
í desember síðastliðnum voru'
þrír sovéskir ríkisborgarar rekn-
ir frá Svíþjóð vegna meintra
njósna. TT
Fomleifafræðingar:
Fundu millj-
arðaíjörðu
ETreskir fornleifafræðingar hafa
fundið guU- og silfursjóð sem þeir
segja að sé um tvö þúsund ára
gamall. Þeir segja að verðmæti
sjóðsins geti munið um 20 milljón
pundum. Það er vel á annan millj-
arö af íslenskum krónum.
Fomleifafræðingarnir hafa
þegar hreinsað um 50 skartgripi
úr sjóðnum. Samtals vega þeir
um 25 kíló. Sjóöurinn fannst á
ónefndum stað nærri Norfolk á
Austur-Englandi.
Jarð-
skjálftar
tóku þung
an toll á síð
asta ári
Nærri lætur að jafnmargir hafi
farist á síðasta ári vegna jarð-
skjálfta á okkar hvikulu jörð og
fórust næstu tíu ár á undan. Mest
munar um að 50 þúsund menn
létust þegar jörð skalf í Iran.
Þegar búiö er að gera upp
dauðsfóll vegna jarðskjálfta á síð-
asta ári hafa 52 menn látist þá en
ríflega 57 þúsund á árunum 1980
ti 1989. Mannfellir i jaröskjálftum
nú er þó hvergi nærri sambæri-
legur við það sem varð árið 1976
í Kína þegar nokkur hundruð
þúsund menn létu lífið.
Þrátt fyrir að margir létu lífið
á síðasta ári þá voru jarðskjálftar
ekki til muna fleiri en áður.
Skráðir voru sextíu og átta stórir
skjálftar á síöasta ári, átta fleiri
en árið áöur.
Reuter
Sovétmenn í greiðslu
þrot fyrir lok ársins
Sovétmenn lenda í vandræðum
með að greiða erlendar skuldir sínar
þegar á þessu ári að mati embætt-
ismanna í bandaríska utanríkisráðu-
neytinu. Ástæðan er að efnahag
landsins hnignar jafnt og þétt þrátt
fyrir tilraunir til að auka framleiðsl-
una.
„Við gerum fastlega ráð fyrir að
Sovétmenn lendi í erfiðleikum á
þessu ári vegna erlendra skulda.
Miklar skuldir falla á gjalddaga síðar
á árinu og enda í vanskilum ef þeim
tekst ekki að fá gjaldfrest," sagði einn
embættismaðurinn í ráöuneytinu.
í nýgerðum fjárlögum í Sovétríkj-
unum er gert ráö fyrir að erlendar
skuldir fari ekki fram úr 70 milljörð-
um Bandaríkjadala. Hjá Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum er sagt að Sovét-
menn hafi þegar á síðasta ári veriö
með um 60 milljarða dala af erlend-
um skuldum á herðunum og þörfin
fyrir lánsfé er mikil og fer vaxandi.
Á síðasta ári fóru Sovétmenn að
tefla greiðslur á skuldum til fyrir-
tækja og sjóða í Evrópu. Þetta virðist
gert samkvæmt skipulagi og nú eru
um 10 milljarðar dala í vanskilum.
Nokkrir bankar í Evrópu neita að
lána sovéskum fyrirtækjum meira fé
nema til komi ábyrgðir frá ríkinu.
Efnahagsvandræöin valda því að
samningsstaða Sovétríkjanna í ýms-
um alþjóðamálum fer mjög versnadi.
Þeir eru efnahagslega háðir við-
skiptavinum sínum og verða að
semja um vangoldnar skuldir á sama
tíma og þeir reyna að halda samn-
ingsstöðu sinni á öðrum sviöum.
Dick Cheney, varnarmálaráöherra
Bandaríkjanna, hefur síðustu daga
minnt á hve erfitt efnahagsástandið
sé í Sovétríkjunum og sagt að það
hafi ekki verið verra síöustu 50 árin
og fari versnandi.
„Mér er ljóst aö efnahagur Sovét-
ríkjanna er að hruni kominn. Spurn-
ingin er aðeins um hve ör samdrátt-
urinn verður,“ sagði Cheney í
skýrslu sem hann gaf bandarískri
þingnefnd fyrir helgi.
Reuter
John Major forsætisráðherra
gæti boðaó til kosninga í vor.
Símamyhd Reuter
Boðar
Major til
kosninga í
vor?
í Bretlandi eru taldar miklar
likur á að John Major forsætis-
ráðherra boði til kosninga í vor,
árið áður en kjörtímabilið rennxu-
út. Mjaor nýtur nú mikilla vin-
sælda vegna einarðrar afstöðu í
Persaflóadeilxmni og vegna ró-
semi í kjölfar tilræðis við hann
og breska stríðsráðuneytið í síð-
ustu viku.
Major hetúr þó ekkert látið uppi
um áform sín og í nýlegu útvarps-
viðtali sagðist hann ekki hafa
hugleitt málið, hvað þá að ákveð-
iö væri að boða til kosninga.
Stjómmálaskýrendur hafa þó
fengiö augastaö á maímánuði
sem væntanlegum kosningamán-
uði.
Það er einkum slakur efnahag-
ur Breta sem rekur á eftir Major
að boða til kosninga. Hann verð-
ur að treysta á vinsældirnar
vegna Persaflóadeilunnar til aö
ná kjöri. Verði deilunni lokiö
löngu fyrir kosningar er eins víst
að Verkamannaflokkurinn fari
með sigur af hólmi.
Reuter
Breska konungsfl ölskyldan svarar gagnrýni:
Heimsótti
fjöldaher-
„Allir í konungsljölskyldunni eru
mjög stoltir af því sem hermenn okk-
ar eru að gera við Persaflóann. Eng-
inn ætti að efast um heilindi þeirra,“
sagði John Major, forsætisráðherra
Breta, í ávarpi til breskar herdeildar
í kjölfar mikillar gagnrýni sem
kóngafólkið hefur hlotið þar síðustu
daga fyrir léttúð á stríðstímum.
Major tók þegar í stað upp hansk-
ann fyrir konungsfjölskylduna á
sama tíma og þau konungbornu
þustu til og tóku að heimsækja her-
bækistöðvar og hergagnaverksmiðj-
ur. Bretar virðast hafa tekið sitt fólk
í sátt en áður höfðu skoðanakannan-
ir sýnt að um 80% þjóðarinnar höfðu
megnustu fyrirlitningu á ábyrgðar-
leysi aðalsins.
Dagana áður en gagnrýnin braust
út höfðu birst rnyndir af fólki úr kon-
ungsfjölskyndunni í golfi eða á skíð-
um og nokkir karlanna höfðu ekki
annað betra að gera en að stunda
skotveiðar. Ritstjóri The Sunday
Times reið á vaðið og gagnrýndi fjöl-
skylduna harkálega í leiðara og slúð-
urblöðin fylgu í kjölfarið með ítarleg-
um lýsingum á áhyggjulausu lífi
unglinganna í fjölskyldunni meðan
jafnaldrar þeirra voru að berjast fyr-
ir föðurlandið.
í kjölfarið lét Elísabet drottning út
ganga lista um heimsóknir ættingja
hennar til ýmissa staða þar sem her-
menn voru að verki. Sagt var að þess-
ar heimsóknir væru lögnu ákveðnar
en fáir leggja trúnað á það.
Karl prins og Díana, kona hans,
heimsóttu flotastöðina í Plymouth.
Anna, systir Karls, heilsaði upp á
breska hermenn í Þýskalandi og
Filippus, faðir þeirra, lagði á sig
hættuför til Norður-írlands.
Díana prinsessa lék á als oddi í herstöðinni í Plymouth. Hún kom þar ásamt
Karli, manni sínurn. Simamynd Reuter
Blöðin í Bretlandi hafa tekið „sókn
konungsherdeildarinnar" vel. Her-
mennirnir gerðu líka heimsóknir
kóngafólksins góðar og sjóliði nokk-
ur í Plymouth sögðu að það væri
heiður að fá að heilsa upp á prinsinn
og konu hans.
Reuter
stöðva í skyndi