Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Síða 4
?
■iGði ííAUHaay m fluoAauMÁi/.
' MÁNUDAGUR 25. FEBRÚÁR 1991.
Fréttir
Saksóknari úrskurðar Steingrím Njálsson í gæsluvarðhald og geðrannsókn:
A sér enga lagastoð
- segir Ragnar Aðalsteinsson réttargæslumaður Steingríms
Saksóknari ríkisins kvaö upp á
laugardag aö framlengt skyldi varö-
hald Steingríms Njálssonar um tvo
mánuöi og ætti hann aö sæta geö-
rannsókn á tímabilinu og dæmdur í
öryggisgæslu eða áfengismeðferð á
þeim forsendum aö hann væri
hættulegur sér og umhverfi sínu.
Steingrímur átti aö vera laus í gær.
Réttargæslumaöur hans, Ragnar
Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaöur,
kæröi úrskuröinn til Hæstaréttar og
er búist viö niöurstöðum þaðan á
morgun.
„Það var gefin út ákæra aö hann
yrði settur í öryggisgæslu um óá-
kveöinn tíma eöa til vara í áfer.gis-
meðferð og sæta geðrannsókn til aö
undirbyggja aö hann veröi inni,“
sagöi Ragnar i samtali við DV í gær.
Ekkert húsnæði er til sem hýst getur
vanheila sakamenn og sagðist Ragn-
ar hafa staðfest bréf frá dómsmála-
ráðuneytinu um aö svo sé. Stein-
grímur hefur dvalið undanfarna
mánuöi til skiptist á Litla-Hrauni og
í Hegningarhúsinu viö Skólavörðu-
stíg.
„Málið er í dag nákvæmlega eins
og þegar Hæstiréttur vísaöi því frá í
nóvember á síöasta ári. Það liggur
fyrir geðrannsókn frá því í maí svo
augsýnilega er þetta eitthvert yfir-
varp,“ sagöi Ragnar. „Þeir vilja
halda manninum inni lengur án þess
að hafa til þess lagaskilyrði eða
praktískar ástæöur.“
Ragnar segir aö Steingrími hafi
verið sleppt 26. desember sl. og gekk
þá laus í tólf daga en síöan var hann
settur aftur í refsingu. Ragnari er
ekki kunnugt um hvers vegna það
var.
Ragnar gagnrýndi hve seint hann
fékk viðtneskju um ákæruna og aö
hann hefði ekki fengiö tækifæri til
aö afla þeirra gagna sem þurfti aö
hans mati.
„Aö formi til var þetta ákveðið á
fostudag. Bréf bárust til sakadóms
seint á fostudag, rétt fyrir lokun.
Máliö var. síðan tekiö fyrir klukkan
fjögur á laugardegi þegar mjög litlar
líkur eru á aö það náist í nokkra
menn nema dómara. Samt er aug-
ljóst aö aðdragandi þessa er miklu
lengri," segir Ragnar sem var skipað-
ur réttargæslumaöur á laugardag.
„Það var hringt í mig á fóstudags-
kvöldiö og ég kraföist þess að fá að
sjá skjölin, sem bárust um hádegi á
laugardag. Ég býst ekki við neinu
ööru en að Hæstiréttur muni hafna
þessari kröfu enda á hún sér enga
lagastoð í íslenskum lögum og þeim
þjóöarsáttmálum sem við erum aðil-
ar að,“ sagði Ragnar Aöalsteinsson.
-ELA
- segir Ejóla Pálmadóttir
Ungfrú Norðurland kjörin um helgina:
Olýsanleg
tiHinning
að sigra
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Það er ólýsanleg tilfinning að hafa
sigrað í þessari keppni. Það kom mér
líka mjög á óvart því ég var alveg
viss um að ein ákveðin stelpa í hópn-
um myndi sigra," sagði Fjóla Pálma-
dóttir eftir að hún hafði verið kjörin
ungfrú Norðurland í Sjallanum á
Akureyri um helgina.
Fjóla, sem er Akureyringur, stund-
ar matreiðslunám og starfar á veit-
ingastaðnum Mömmu Rósu í Kópa-
vogi. Hún sagði í samtali við DV að
henni litist bara vel á að taka þátt í
keppninni um titilinn ungfrú island
sem haldin verður í vor. „Þaö verður
án efa erfitt en ég reyni bara að
standa mig sem best,“ sagði þessi
nýja fegurðardrottning Norðurlands
sem er tvítug og ólofuð.
Sveindís Benediktsdóttir var kjörin
besta ljósmyndafyrirsæta keppninn-
ar, en stúlkumar, sem tóku þátt í
keppninni, kusu sjálfar Maríu Sif
Sævarsdóttur vinsælustu stúlkuna
úr sínum hópi.
DV-mynd GK
Fjóla Pálmadóttir kjörin ungfrú Norðurland 1991.
Heyrnleysingjaskólinn:
Innbrot og
þjófnaður
Innbrot var framið í Heyrnleys-
ingjaskólanum aðfaranótt
sunnudagsins og þaðan stolið
25.000 krónum í peningum. Einn-
ig voru unnin talsverð spjöll á
húsakynnum skólans.
Lögreglunni var tilkynnt um
innbrotið um miðjan dag í gær
og var RLR kölluð út til frekari
rannsóknar. Ekki er vitað hverjir
sökudólgar em.
-ELA
Vestmannaeyjar:
Skemmdarvargar gengu ber-
serksgang um mið- og vesturbæ
í Vestmannaeyjum aðfaranótt
laugardagsins, brutu þrjár rúöur
í verslunum og skemmdu fimm
bifreiðar. Einn rúðubrjóturinn
náðist en aörir sökudólgar voru
ófundnir í gær.
Bílarnir vom talsvert skemmd-
ir bæði utan sem innan og stolið
úr þeim öllu, verömætu. Málið er
í rannsókn.
-ELA
Óvenju ró-
leg helgi
Helgin var óvenju róleg um alit
land og muna lögreglumenn vart
eftir öðru eins. Til marks um ró-
legheit fólks þessa helgi varð að
aflýsa dansleik á Eskifirði á laug-
ardagskvöld þar sera einungjs
tveir menn vora mættir fyrir
miönætti.
Ekki átti lögreglan skýringu á
þessum rólegheitum í lok þorra
nema ef vera skyldi að menn
vildu vera vel upplagðir á konu-
daginn sem var í gær.
-ELA
í dag mælir Dagfari
Hvar kaupir Davíð ölið?
Sjálfstæðismenn bíða spenntir
eftir því að heyra hvað Davíð ætlar
að gera við flokkinn og formann-
inn. Davíð hefur tilkynnt að hann
muni allra náðarsamlegast láta
flokksmenn vita í dag hvort hann
ætli að gefa Þorsteini grið eða leiöa
hann til slátrunar á landsfundin-
um. Sjálfstæðismenn bíða eftir
erkibiskups boðskap, rétt eins og
írakar bíða í ofvæni eftir því að
hlusta á Saddam Hussein tilkynna
þeim hvort þjóðin eigi að lifa eða
deyja. Smápeðin ráða engu, hvorki
í írak né Sjálfstæöisflokknum. Það
eru kóngarnir sem tala og ráða og
ákveða örlög þegnanna.
Davíð veit sem er að Þorsteinn
er ómögulegur formaður. Flokks-
menn hafa sagt honum það, hann
sjálfur er þeirrar skoðunar og kjós-
endur era því sammála. Davíð veit
líka að hann einn getur tekið við
af Þorsteini. Hann einn getur leitt
Sjálfstæöisflokkinn til hins mikla
sigurs í kosningunum í vor. Þetta
veit Davið og þetta veit flokkurinn
og það er í sjálfu sér furðulegt að
sjáifstæðismenn skuli ekki hrópa
ferfalt húrra fyrir formannsfram-
boði Davíðs þegar hann á annað
borð ljær máls á því að.gefa kost á
sér. Menn á borð við Davíð Odds-
son fæðast ekki nema einu sinni á
öld og þeir lifa ekki nema einu sinni
og eru ekki ódauölegir þótt ein-
kennilegt kunni að virðast.
Þess vegna liggur á að Davíð
komist til valda og hann nennir
ekki að vera varaformaöur til ævi-
loka. Davið er varaformaður í
flokknum og er búinn að vera það
mjög lengi eða allt frá því í hitti-
fyrra og hann má ekki vera að því
að bíða lengur eftir formenns-
kunni. Þetta á Þorsteinn aö skiija
og draga sig í hlé og í rauninni er
það hlægilegt að hann skuh ekki
átta sig á því hvað flokkurinn verði
miklu, miklu sterkari, ef hann
dregur sig í hlé.
Það sem hefur hins vegar vafist
fyrir Davíð er sá misskilningur
Þorsteins að hann eigi að vera for-
maður áfram. Þorsteinn tilkynnti
meira að segja opinberlega fram-
boð sitt fyrir helgi. Fyrir vikið hafa
nokkrir sáttasemjarar í flokknum
talið að ekki mætti fella Þorstein
og segja um leið að það sé Sjálf
stæðisflokknum til mikils skaöa ef
sá maður verður kosinn formaður
í flokknum sem er best til þess fall-
inn að vera formaður. Menn sem
sagt styðja Davíð til formennsku
og segja að hann sé besti formaður-
inn en vilja samt ekki gera Þor-
steini þann óleik að fella hann úr
formennskunni því það sé flokkn-
um fyrir bestu að hafa frið um for-
mann sem ekki er besti formaður-
inn.
Þessa hundalógik á Davíð bágt
með að skilja en það getur svo sem
vel verið að hann geri það fyrir
flokkinn í dag að tilkynna að hann
muni styðja Þorstein í formennsk-
una til að standa með flokknum.
Er þá komin upp sú staða að besti
formaðurinn gerir flokknum þann
greiða að veröa ekki formaöur,
vegna þess að flokkurinn sjálfur
telur að það sé honum fyrir bestu
aö annar maður sé formaður en sá
sem er sterkastur sem formaður.
Ef Davíð hættir við að bjóða sig
fram er þar fyrst og fremst um
drengskaparbragð að ræða gagn-
vart veslings Þorsteini sem hefur
átt bágt að undanfórnu og vefður
að sitja undir því að vera formaður
þegar flokksmenn telja að annar
betri sé hæfari til að vera formað-
ur. Þorsteinn getur stolts síns
vegna ekki hætt þegar slíkt er fuli-
yrt. Hann getur því aðeins hætt
sem formaður að ljóst sé að sá sem
taki við af honum sé ekki eins og
góður formaður og hann er sjálfur.
Það er greinilega best fyrir flokk-
inn og báðir eru þessir menn fyrst
og fremst að hugsa um flokkinn
sinn og hvað honum er fyrir bestu.
Ef svo fer aftur á móti að Davíð
lýsir yfir framboði í dag kemur upp
sú staða að besti maðurinn í for-
mennskuna veröur að heyja kosn-
ingabaráttu um formennskuna og
þá getur auðvitað farið svo að Þor-
steinn falli. Þá er voðinn vís fyrir
flokkinn, vegna þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn er á móti því að fella
formenn og kjósa í stað þeirra for-
menn, sem eru að vísu best til þess
fallnir að vera formenn en geta
spillt fyrir flokknum með því að
verða formenn.
Þetta er klemman sem Davíð er
í. Hann spillir fyrir sjálfum sér með
því að spilla fyrir flokknum með
því að fella formann sem er verri
formaður en hann sjálfur.
Dagfari