Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Page 9
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1991.
9
Utlönd
Miklar óeirðir í Albaníu um helgina:
Tugir lýðræðissinna
handteknir í kjölfarið
- búist við valdaráni hersins
Haft er eftir heimildum innan
stjórnarandstööunnar í Albaníu aö
yfirvöld haíi handtekiö tugi manna
í stærstu borgum landsins, þar á
meðal félaga í Lýðræðisflokknum,
eftir þriggja daga mótmælaaögeröir
gegn kommúnistastjórninni þar sem
fjórir létust. Engar skýringar munu
hafa veriö gefnar á handtökunum.
Lýöræöisflokkurinn hefur enn
ekki brugöist við handtökunum en
talsmenn hans hafa boðað frekari
mótmælaaðgerðir í helstu borgum
Albaníu næstu daga. Spá þeir aö um
ein milljón manns, af 3,2 milljón íbú-
um landins, muni taka þátt í þeim.
Gramoz Pashko, einn af stofnend-
um flokksins, varar „hin myrku öfl“
við aö berjast gegn fólkinu í landinu
þar sem fólkið muni eyöa þeim.
Lítiö var um óeirðir í höfuðborg-
inni Tirana í gær en eftir harðorða
ræðu Ramiz Aha eftir óeirðirnar á
laugardag óttast lýðræðissinnar ein-
ræðisstjórn hersins. í ræðunni
kenndi Aha óvinum Albaníu heima
og erlendis um óeirðirnar. Hótaði
hann að lýsa yfir neyðarástandi ef
lög og regla kæmust ekki á í landinu.
Lofaði Aha að standa vörð um arf-
leifð Enver Hoxha sem stjómaði Al-
baníu með harðri hendi í 45 ár að
stahnskri fyrirmynd.
Aha hefur rekið ríkisstjórnina, sem
Carcani leiddi, og skipað nýja ríkis-
stjórn sem í eru embættismenn. .
Risastórri styttu af Hoxha var velt
í óeirðunum um helgina. Bændum
hliðhollum stjómvöldum var ekið th
höfuðborgarinnar þar sem endur-
reisa átti styttuna. Lentu þeir í átök-
um við borgarbúa og varð lögregla
að skjóta til að dreifa mannfjöldan-
um. Ekki var thkynnt um meiðsl en
heimildir telja þó að 20 hafi látist og
50 særst í átökunum. Á fundi í fæð-
ingarbæ Hoxha í gær kröföust 2 þús-
und manns að ahar styttur af Enver
Hoxha skyldu endurreistar, aö Lýð-
ræðisflokkurinn skyldi bannaður og
leiðtogar hans hengdir.
Pashko sagði að valdarán hersins,
sem einhveijir vestrænir fjölmiðlar
hefðu sagt frá, væri ekki enn orðið
að veruleika en að fjöldi albanskra
hershöfðingja óskaði sér slíks. „Þeir
hafa lýst sig óháða stjórnarskránni
og kommúnistaflokknum."
Fjölflokkakosningar verða í Alban-
íu 31. mars en lýðræðissinnar óttast
að stjórnvöld reki harðan hræðsluá-
róður fram að þeim og reyni þannig
að eyðheggja forsendur réttmætra
kosninga.
Reuter
Mirian Krzaklewsky, námamaður (rá Slésiu, hefur verið kjörinn leiðtogi Samstöðu i Póllandi. Simamynd Reuter
Lítt þekktur námamað-
ur valinn í stað Walesa
Félagar í verkalýðssamtökunum
Samstöðu í Póllandi hafa vahð lítt
þekktan leiðtoga námamanna til að
taka við formennsku af Lech Walesa.
Hinn nýi leiðtogi heitir Mirian
Krzaklewsky, 41 ára gamall vélstjóri
og hefur unnið í námum í Slesíu.
Á fundi samstöðu var Krzaklewsky
kjörinn meö 222 atkvæðum en helsti
keppinautur hans, þingmaðurinn
Leszek Kaczynski, fékk 174 atkvæði.
„Ég fylgi þeirri stefnu að samstaða
eigi að vera verkalýðssamtök ein-
göngu og skipta sér ekki af stjóm-
málum,“ sagði Krzaklewsky við
fréttamenn eftir að hann var kjörinn.
Hann tók þó fram að Samstaða hlyti
nú eins og áður standa vörö um efna-
hagslegar umbætur í landinu.
Margir Samstöðumenn telja að
samtökin eigi að veita stjórn landsins
aðhald og að hlutverk þeirra hljóti
að breytast þegar stjórn kommúnista
er farin frá völdum. Kjör Krzaklew-
skys bendir til að þessi skoðun hafi
orðið ofan á því keppinautur hans,
Kaczynski, hefur undanfarin áratug
verið helsti ráðgjafi Walesa og studd-
ur af honum.
Innan Samstöðu er vaxandi óá-
nægja með stefnu stjórnarinnar í
efnahagsmálum enda hafa lífskjör
farið versnandi í Póllandi undanfar-
iðj Ein óvinsælast aðgerð stjórnar-
innar er að skattlegja þau fyrirtæki
sérstaklega sem hækka launin mest.
Þetta er gert th að stemma stigu við
verðbólgu en Samstöðumenn segja
að kjör launafólks versni jafnt og
þétt meðan skatturinn er við lýði.
Reuter
Valdaránið í Tælandi:
Ný stjórn tekur við á næstu dögum
Herinn í Tælandi hefur lofað að
koma á fót bráðabirgöastjórn í
landinu innan viku og að efna til
kosninga svo fljótt sem auðið verður.
Herforingjum er ekki ætlað að leiða
nýju stjórnina sem hefur undirbún-
ing kosninga að aðalverkefni.
Herinn rændi völdum í Tælandi á
laugardaginn og tók þá í sínar hend-
ur helstu stjórnarbyggingar í höfuð-
borginni Bangkok og hneppti ráð-
herra í löglega kjörinni stjóm í varð-
hald. Valdarániö fór átakalaust fram
og hefur ekki borið á óróa í landinu
um helgina. í morgun voru hermenn
kallaðir í herbúðir sínar þar sem
ekki var tahn þörf á að þeir gættu
opinberra bygginga lengur.
Reuter
100 kr.
Stíft hár-gel
hentar fyrir allar
hártegundir
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG
SÍMI 12725
SKJÓLGARÐUR
HÖFN HORNAFIRÐI
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR- LJÓSMÆÐUR
Okkur vantar Ijósmóður til starfa á fæðingardeild
heimilisins frá og með 1. mars nk. eða aíðar ef óskaó
er. Fæðingar eru á bilinu 12-20 á ári að jafnaði.
Einnig er laus staða hjúkrunarfræðings frá og með
1. apríl. í Skjólgarði er 31 hjúkrunarsjúklingur auk
vistdeildar með 14 plássum.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Ásmundur Gíslason framkvstj., s. 97-81118.
Vilborg Einarsdóttir héraðsljósm., s. 97-81400.
Þóra Ingimarsdóttir hjúkrforstjóri, s. 97-81221.
j--------------------------------1
MIKILVÆGI MANNLEGA
ÞÁTTARINS í STJÓRNUN
- Má bæta þennan stjórnunarþátt?
- Hver er vandi nýs stjórnanda?
er umræduefniö á
MORGUNVERÐARFUNDI
Félags viðskipta- og hagfræðinga
þriðjudaginn 26. febrúar
kl. 8.00-9.30 á Holiday Inn.
Erindi flytja og svara fyrirspurnum:
Jón Sigurður Karlsson,
viðskipta- og sálfræðingur, og
Þráinn Þorvaldsson,
rekstrarhagfræðingur og ráðgjafi.
Félagar í FVH og aðrir áhugamenn um
stjórnun og starfsmannamál á tímum mikilla
breytinga í rekstri, fjölmennið.
Gestir velkomnir.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA