Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Qupperneq 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1991.
DV
Andspyrnumenn í Kúvætborg
segja aö hermenn iraka hafi myrt
fjölda manna (borginni slöustu
dagana fyrir innrásina og stundaö
skipu- lagöa skemmdarstarfsemi.
Herstjórn bandamanna hefur staö-
fest þessar fréttir. Framkoma iraka
hefur orðið til að hraða sókninni (
átt aö borginni.
KUVÆTBÖRG
Liðlega 30 tfmum eftir aö inn-
rásin hófst er fjölþjóðaherinn
kominn aö borgarmörkum
Kúvætborgar. Fram til þessa
hefur fraski herinn ekki veitt
mikið viðnám og hafa þús-
undir (raskra hermanna lagt
niöur vopn og gefist upp.
í fyrstu fróttum var sagt að fjölþjóðaherinn
hafi tekið Faylakaheyju. Það hefur síðar verið
borið til baka. Eyjan er mikilvægur hlekkur (
sókn fjölþjóðahersins til Kúvætborgar og inn I
Suöur-irak ( átt til Basra. Því er búist við að
eyjan verði hertekin við upphaf landgöngu.
Sókn fjölþjóöahersins inn I Kúvæt og írak hófst aðfarar-
nótt sunnudags. Klukkan var fimm að morgni við Persa-
flóa þegar Norman Schwarzkopf, yfirmaður herafla
bandamanna, gaf skipun um að hefla sókn. Aö okkar tlma
var klukkan eitt eftir miðnætti.
Auk sóknar á landi og úr lofti hófu flotadeildir fjölþjóða-
hers fallbyssuskothrlö á hersveitir Iraka við strönd
Kúvæt.
Þegar á fyrstu klukkustundunum var byrjaö að ryðja jarð-
sprengjusvæði á ströndinni til að undirbúa landgöngu.
Um eitt hundrað herskip eru við botn Persaflóa og þar á
meöal eru bandarlsku orrustuskipin Wisconsin og Miss-
ouri. Þá hafa bandarikjamenn þar sex flugmóöurskip.
Þarna er nú saman kominn mesti innrásarfloti ( sögunni
allt frá þvl að innrásin var gerð I Normandí sumariö 1944.
Fátt hefur orðið til aö stöðva framsókn herja bandamanna
og hafa þúsundir (raskra hermanna gefist upp eftir litla
mótspyrnu.
Á fyrstu klukkustundum bardaganna sögðust bandarlskir
hermann aðeins einu sinni hafa orðið að svara skothrfð
íraka. Þá var flugherinn kallaður til að eyðileggja fallbyss-
ur iraka. Herlið frá átta þjóðum var með (sókninni fyrsta
sólarhringinn.
DVJRJ, GK
Friðartilraunir
breyttu engu um
sókn á landi
1,3 milljónir
hermanna við
Persaflóa
Um 1,3 milljónir manna eru nú
undir vopnum við Persaílóa. ír-
akar hafa fjölmennasta herliðið
eða um 550 þúsund hermenn.
Bandaríkjamenn eru með nærri
jafníjölmennt lið. Þá eru Bretar
með 43 þúsndu hermenn undir
vopnum og í liði Frakka eru um
16 þúsund menn.
Alls hafa 28 þjóðir sent her-
menn til átakasvæðisins en
fyrstu daga hafa bardagar eink-
umhvílt á liði Bnadaríkjamanna,
Breta, Frakka, Saudi-Araba og
Kúv;eta. Stór hluti af liði íraka
er litt þjálfaður og hefur ekki náð
að siandast bandamönnum snún-
ig. Úr þessu Uði eru þegar mikill
Qöldi verið tekinn höndum.
Þjóövarðliðar íraka hafa hins
vegar lítið látið á sér kræla enn
sem komið er. Talið er aö Saddam
Hussein ætli sér að beita því liði
síöar ef bandamenn ætla sér aö
sækja lengra inn i írak en oröiö
er.
írakar eru enn með umtalsvert
lið í Kúvæt þótt nokkur hluti þess
sé nú einangraður og úr tengslum
við herstjómina í Bagdad. Ljóst
er þó að her íraka i Kúvætborg
ætlar sér að verjast raeðan kostur
er.
Reuter
Bandarískir embættismenn segja
að friðartilraunir Sovétmanna, allt
fram á síðustu stundu, hafi ekki tafið
áætlanir um að heíja hernað á landi
aöfaranótt sunnudagsins.
Þeir segja að endanleg ákvörðun
um atlögu við herlið íraka hafi verið
teWn fyrir hálfum mánuði þegar
Colin Powell, forseti bandaríska
herráðsins, og Dick Cheney vamar-
málaráðherra komu heim til Banda-
ríkjanna úr kynnisför til Saudi-
Arabíu.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, segir að yflrmenn
hersins hafi fastlega gert ráð fyrir
að þurfa að berjast á landi þegar
írökum voru settir úrslitakostir á
föstudaginn. Hins vegar þótt rétt að
gefa frest í síðasta sinn. Kæmu engin
viðbrögð frá Saddam Hussein þegar
fresturinn rynni út voru Norman
Schwarzkopf, yfirmanni herafla
bandamanna í Kúvæt, gefnar frjálsar
hendur um hvenær og hvernig hann
legði til atlögu við íraka.
Fitzwater segir að Schwarzkopf
hafi nefnt nokkrar stundir sem hann
teldi líklegastar til aö hefja hernað-
inn á landi. Efst á blaði hjá honum
var að leggja af stað síðla nætur þann
23. febrúar.
Mikhail Gorbatsjov Sovétforseta
var ekki sagt hvenær ætlunin væri
að hefja sóknina þótt hann hefði þrí-
vegis talað við George Bush í síma
síðustu dagana áður en stundin rann
upp.
Komið hefur fram að upphaflega
ætluðu Bandaríkjamenn að ráðast til
atlögu á landi fyrr en raunin varö
á. Ákveðið var að lengja það tímabil
sem lofthemaðurinn stæði vegna
þess að meiri ógn stóð af Scud-flaug-
um íraka en reiknað var með í fyrstu.
Hernaðarsérfræðingar segja að við
sóknina gegn íraksher séu notaðar
sömu aðferðir og notaðar voru í síö-
ari heimsstyrjöldinni. Stjórnendur
hersins setja allt traust á að ná skjót-
um árangri með leiftursókn.
Schwarzkopf sagði fljótlega eftir að
sóknin hófst að hún gengi framar
vonum og mótspyrna væri lítil. Þó
er fastleg gert ráð fyrir að írakar
hiW enn við að kalla bestu hersveitir
sínar til bardaga.
Til þessa hafa flestir hermenn ír-
aka gefist upp án bardaga. Tölur um
fjölda stríðsfanga em þó mjög á reiW.
Herstjórnin segir að þeir séu um 10
þúsund en Kúvætar halda því fram
að 100 þúsund menn hafi ýmist lagt
á flótta eða gefist upp.
Reuter
ÞinghúsiðíKú-
vætborgsprengt
íloftupp
Andspymumenn í Kúvæt segja
að íraska hermámsliðiö hafi ráð-
ist gegn byggnigum 1 Kúvætborg
og þegar sprengt í loft upp þing-
húsið og nokkrar aðrar stórbygg-
ingar.
Fljótlega eftir að innrásin hófst
sögðu Kúvætar að fallhlífasveitir
Bandaríkjamanna hefðu náð
borginni á sitt vald. Þessar fréttir
voru sxðar bornar til baka en vit-
að er að fallhlífasveitirnar lentu
fyrir utan borgina og búa síg und-
ir að ráðast til atlögu viö
hernámsliö íraka.
Sagt er að fjögur hótel í borg-
inni hafi verið eyðilögð og Kú-
vætar sögðu að í það minnsta 180
aðrar byggingar væru ónýtar eft-
ir að írakar ákváöu að valda sem
mestir eyðileggingu áður en þeir
væri hraktir frá Kúvæt.
Fróttabann yfirmanna herafla
bandamanna veldur því að allar
fréttir af bardögum eru mjög
óljósar og stangast oft á. Kúvætar
hafa verið iðnastir við að senda
frá sér fréttir en illa hefur gengið
að fá þær staðfestar.
Talið er að bandmenn ætli sér
aö taka Kúvætborg á næstu
klukkustundum. í dag er þjóö-
hátíðardagur Kúvæts og því yrði
það mikil livatning fyrir liðs-
menn bandamanna að ná áfanga-
sigriáþeim degi. Rcuter