Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Qupperneq 16
VI
.ieei íiAúHaai .ss huoaqumám
16 MÁNUDÁGUR 25. FEBRÚAR 199l!
f fll OCEANIC 1 Hagnýt lögfræði DV
Mælar og Afþrýstitölvur.
M Lungu, Gleraugu, Þurrbúningar, 1100g/m2.
fit og snorkur. Atvinnuköfunarbúnaður.
auk A.P. Valves, Wenoka, Sea Pearls (blý),
Oban, Apeks og Subemsible Systems Inc.
Köfunarbúnaður og Þjónusta
Skeifan 19, 108 Reykjavík,
sími 67 92 34, fax 67 83 77.
Laust starf
Byggingarfulltrúi - Húsnæðisfulltrúi
Húsavíkurkaupstaður auglýsir laust til umsóknar starf
byggingarfulltrúa og húsnæðisfulltrúa. Um er að
ræða eina stöðu.
Um starfssvið, menntun og reynslu vísast til bygging-
arreglugerðar, laga um húsnæðisnefndir og starfs-
lýsingar.
Allar frekari upplýsingar veitir undirritaður í síma
96-41222. Umsóknarfrestur er til 15. mars 1991.
Bæjarstjórinn Húsavík
FJARFESTINGARFELAG ÍSIANDS HF.
Aðalfundur
Aðalfundur Fjárfestingarfélags Islands hf. árið 1991
verður haldinn á Hótel Holiday Inn þriðjudaginn 26.
febrúar nk. kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til aukningar á hlutafé með
útgáfu nýrra hluta um allt að 30 milljónir króna.
Tilgangur hlutafjáraukningarinnar er sá að tryggja
næga dreifingu hlutafjár samanber reglur Verð-
bréfaþings Islands þar um.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á fundinum,
skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir fundardag. Fundargögn
verða afhent á skrifstofu Fjárfestingarfélagsins að
Hafnarstræti 7, 4. hæð, Reykjavík, þrjá síðustu daga
fyrir aðalfund og á fundardegi.
Stjórnin
LÓÐAUTHLUTUN
í REYKJAVÍK
Á næstunni verður úthlutað til byggingameistara og
byggingarfyrirtækja lóðum undir þriggja hæða fjöl-
býlishús í Engjahverfi í Borgarholti II. Annars vegar
lóðum við Gullengi fyrir 7 hús með 10-12 íbúðum
hvert og fyrir 9 hús með 6 íbúðum hvert og hins
vegar við Fróðengi fyrir 3 hús með 9 íbúðum hvert.
Lóðirnar verða byggingarhæfar næsta sumar.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borgar-
verkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 18000. Þar
fást einnig afhent umsóknareyðublöð, skipulagsskil-
málar og uppdrættir.
Umsóknum skal skila til skrifstofu borgarverkfræð-
ings fyrir 8. mars nk. Athygli er vakin á því, að stað-
festa þarf skriflega eldri umsóknir, eða ieggja inn
nýjar í þeirra stað.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Umboðsmaðurinn er trúnaðarmaður Alþingis og hefur í umboði þess eftirlit með framkvæmdarvaldinu.
Umboðsmað-
ur Alþingis
Inngangur
Með lögum nr. 13/1987 var emb-
ætti umboðsmanns Alþingis stofn-
að. Með því komst Island í hóp
þeirra ríkja sem státað geta af
umboðsmannsfyrirkomulagi til að
tryggja þegnum sínum aukið rétt-
aröryggi. Það réttaröryggi felst í
því að fólk sem telur sig vera órétti
beitt af opinberum aðilum (kerf-
inu) getur leitaö til umboðsmanns-
ins og fengið álit hans á réttarstöðu
sinni.
Heiti þessa embættis er í raun
villandi þar sem umboðsmaðurinn
á fyrst og fremst að gæta hagsmuna
almennings. Nafngiftin helgast
hins vegar af því að umboðsmaður-
inn er trúnaðarmaður Alþingis og
hefur í umboði þess eftirlit með
framkvæmdarvaldinu.
Hlutverk umboðsmanns
Hlutverk umboðsmannsins er i
meginatriðum að hafa eftirlit með
stjómsýslu ríkis og sveitarfélaga
og tryggja rétt borgaranna gagn-
vart þeim. Skal hann gæta þess að
jafnræði sé í heiðri haft í stjómsýsl-
unni og að hún fari að öðm leyti
fram í samræmi við lög og góða
starfshætti.
Upphaf máls
Afskipti umboðsmanns geta
komið til með tvennum hætti:
1. Umboðsmaður getur tekið til
rannsóknar að eigin frumkvæöi
einstakt mál eða ákveðið ástand
hjá hinu opinbera sem hann hefur
fengið upplýsingar um t.d. í gegn-
um fjölmiðla. Þá ber honum einnig
að huga að méinbugum á lögum
og reglugerðum.
2. Þá getur umboðsmaður einnig
tekið mál til athugunar í kjölfar
kvörtunar. Hana getur hver sá bor-
ið fram sem telur sig hafa verið
beittan rangindum af hálfu opin-
bers aðila og skal það gert innan
árs frá þeim tíma. Kvörtun þarf að
vera skrifleg og vel rökstudd. Það
er og skilyröi aö allra leiöa til úr-
lausnar kvörtunarmálinu hafi ver-
ið leitað hjá framkvæmdarvaldinu.
Ljóst er af framansögðu að ef fólk
vill fá leiðréttingu mála sinna og
veit ekki hver réttur þess er eða
hvert skal leita er þessi leið því
aðeins fær að þessum skOyrðum
sé fullnægt. Ef svo er hefst hin eig-
inlega meðferð hjá umboðsmanni.
Afgreiðsla máls
Hugsanlegt er að við nánari skoð-
un umboðsmanns komi fullnaðar-
skýring máls fram og er það þá fellt
niður. Gerist slíkt ekki lætur um-
boðsmaður í ljós áht í formi skrif-
legrar greinargerðar og þótt það sé
ekki bindandi eins og dómsúr-
skuröur er ætlast til að eftir því sé
farið. Tii að komast að niðurstöðu
sinni getur hann krafið stjórnvöld
um þær upplýsingar sem hann
þarfnast vegna starfs síns, þ. á m.
150 kvartanir frá einstaklingum
eða samtökum árið 1989, auk þess
sem hann tók sjálfur upp fjögur
mál að eigin frumkvæði.
í upphafi ársins var 35 málum
ólokið hjá umboðsmanni og fjallaði
hann því um 189 mál ahs á árinu.
Afgreiðsla 122 mála lauk á árinu.
Auk kvartana, sem skrifstofu um-
boðsmanns bárust, hefur verið
Umboðsmaöur Alþingis á fyrst og
fremst að gæta hagsmuna almennn-
ings.
Umsjón
ORATOR
- félag laganema
getur hann krafist afhendingar á
skýrslum, skjölum og bókum sem
mál varða. Umboðsmaður getur þó
ekki krafist upplýsinga er varða
öryggi ríkisins inn á við eða út á
viö eða utanríkismál sem leynt
skulu fara, nema með leyfi þess
ráðherra sem í hlut á. Umboðsmað-
ur getur óskað þess aö dómari
kveðji mann fyrir dóm til aö bera
vitni um atvik sem máh þykja
skipta. Umboðsmanni ber að gæta
þagnarskyldu um atvik sem hon-
um verða kunn í starfinu og leynt
eiga að fara vegna lögmætra al-
manna- eða einkahagsmuna.
„Vald“ umboðsmannsins
Öfugt viö dóma hefur niðurstaða
umboðsmanns enga formlega þýð-
ingu og ekki er hægt að framfylgja
úrskurði hans með valdi. Hins veg-
ar njóta sambærileg embætti er-
lendis mikhlar virðingar og yfir-
leitt er tekið mark á úrskurðum
umboösmanns og breytt í samræmi
við þá. Ef stjómvöld hunsa um-
boðsmann þá er þaö Alþingis aö
grípa til sinna ráða telji það ástæðu
til.
Hérlendis hafa stjórnvöld verið
mjög treg til að taka tUlit til álita
umboösmanns Alþingis og er shkt
í engu samræmi við stofnun og tU-
gang þessa embættis.
Upplýsingar um störf um-
boðsmanns1989
Umboðsmanni Alþingis bárust
leyst úr fjölda fyrirspurna með
leiðbeiningum.
Þrettán kvartanir bámst vegna
framkvæmdar skattamála. Ellefu
fjöhuðu um ákvörðum stjórnvalda
um skipan forsjár barna, um-
gengnisrétt foreldra og meðferð
slíkra mála. í níu tilvikum var
kvartað yfir meðferð og afgreiðsl-
um í málum er varða atvinnurétt-
indi og atvinnuleyfi. Einnig má
nefna málefni opinberra starfs-
manna, málefni fanga og annað er
lýtur að fangelsum og meðferð
ákæruvalds.
Af þeim 122 málum, sem umboðs-
maður lauk á síðasta ári, urðu
málalyktir í 29 málum þær að um-
boðsmaður lét uppi álit sitt á því
hvort tiltekin athöfn opinbers aðha
bryti í bága við lög eða vandaða
starfshætti. í 23 málum kom ekki
til frekari afskipta umboðsmanns,
þar sem aðhar höfðu ekki skotiö
málum til æðra stjómvalds áður
en kvörtun var borin fram. í 29
málum var fahið frá kvörtun eða
kvörtun gaf ekki tilefni th frekari
meðferðar að lokinni frumathug-
un. í sumum tilvikum höfðu þeir,
sem báru fram kvörtun fengið leið-
réttingu sinna mála eftir að um-
boösmaður hafði beint fyrirspurn
til hlutaðeigandi stjórnvalds um
kvörtunarefnið.
Almennar upplýsingar
Umboðsmaður Alþingis:
Gaukur Jörundsson.
Skrifstofa:
Rauöarárstíg 27-29, 101 Reykja-
vík.
Sími: 91-621450.
Auk umboðsmanns starfa á skrif-
stofunni þrír starfsmenn, þar af
tveir lögfræöingar.