Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Side 18
18
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1991.
Menning
Kvikmynda-
klúbburinn
færstyrk
Eins og flestum er kunnugt er
Kvikmyndasjóður búinn aö út-
hluta 57.500.000 kr. til þrettán
umsækjenda af sjötíu og tveimur
sem sóttu um. Méöal þeirra sem
fengu styrk var Kvikmyndaklúb-
bur íslands sem fékk 1.000.000 kr.
í sinn hlut. Starfsemi klúbbsins
hefur verið frekar stopul aö und-
anfómu, meðal annars vegna fjár-
skorts. Styrkurinn ætti að koma
klúbbnum til góða þegar fram i
sækir. Næsta stóra verkeM hjá
Kvikmyndaklúbbnum er sýning-
ar á fimm svissneskum rayndum,
meðal annars er ein sem tilnefhd
er til óskarsverölauna í ár sem
besta erlenda kvikmyndin.
Franskurbók-
menntafræð-
ingurheldur
fyrirlestra
Jean-Pierre Salgas, sem er sér-
fræðingur í listasögu og listahug-
myndafræði, heldur fyrirlestur í
kvöld og annað kvöld í Háskóla
íslands. Fyrirlesturinn í kvöld er
á ensku og ber yfirskriftina Saga
franskra nútimabókmennta en
fyrirlesturinn annað kvöld er á
frönsku og fjallar hann um
franskar nútímaskáldsögur.
Jean-Pierre Salgas er sérfræðing-
ur í listasögu og listahugmynda-
fræði. Hann kenndi heimspeki
áður en hann gerðlst bókmennta-
gagnrýnandi. Hann er nú ráðgjafi
hjá frönsku útgáfufyrirtæki og
vinnur aö bók um sögu franskra
bókmennta. Koma Salgas hingað
til lands er liöur i samstarfi sem
komið hefur verið á milli Frakka
og íslendinga um þýöingar á bók-
menntaverkum landanna.
Egermeistarinn:
Leikritið gef ið út á bðk
- sýningum haldið áfram
- Bryndís Petra Bragadóttir tekur við hlutverki Elvu Ósk Ólafsdóttur
Leikritið, Ég er meistarinn, eftir
Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur
hefur notið mikilla vinsælda og hefur
veriö uppselt á allar sýningar allt frá
því verkið var frumsýnt síðastliðið
haust.
Ákveðið hafði verið að hætta sýn-
ingum 1. mars þótt hundruð manna
væru á biðlista vegna þess að að Elva
Ósk Ólafsdóttir, sem leikur eina
kvenhlutverkið í leikritinu, á von á
barni og getur ekki haldið áfram.
Eins er að Ingvar E. Sigurðsson, sem
leikur annað tvéggja karlhlutverka,
á eiginlega að vera byrjaður að leika
Pétur Gaut í endurbyggðum stóra sal
Þjóðleikhússins en seinkun á fram-
kvæmdum hefur tafið fyrir frumsýn-
ingu á verkinu. Þriðji leikarinn í Ég
er meistarinn er Þorsteinn Gunnars-
son.
Vegna þessarar miklu aðsóknar á
Ég er meistarinn hefur verið ákveðiö
að æfa aöra leikkonu upp í hlutverk
Hildar. Sú sem varð fyrir valinu er
Bryndís Petra Bragadóttir og hefur
hún hafið æfingar. Áætlað er að sýna
Ég er meistarinn tvisvar í viku til
að byija með, á laugardögum og
sunnudögum, og er fyrsta sýningin
með nýrri leikkonu 2. mars.
Síðastliðinn fimmtudag voru
Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur
veitt Menningarverðlaun DV fyrir
Ég er meistarinn. Ekki gat hún verið
viðstödd verölaunaafhendinguna. Á
móti verðlaununum fyrir hennar
hönd tók móðir hennar, Sigríður
Hagalín. í þakkarávarpi minntist
Sigríður á aö leikritið væri tileinkað
látnum fóður Hrafnhildar og eigin-
manni hennar, Guðmundi Pálssyni
leikara. Um sama leyti kom Ég er
meistarinn út hjá Máli og menningu
Ingvar E. Sigurðsson leikur eitt þriggja hlutverka i Eg er meistarinn. Hann
æfir einnig af kappi í Pétri Gaut en leikritið verður sýnt í Þjóðleikhúsinu.
Er hann annar tveggja leikara sem leikur titilhlutverkið.
í innbundinni bók og kilju. Er þetta
fyrsta verkið sem kemur út á bók
eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmunds-
dóttur.
í Ég er meistarinn er lýst tveimur
ungum nemum í klassískum gítar-
leik og lærifoður þeirra sem gengur
aöeins undir nafninu Meistarinn í
leikritinu. í samleik þessara þriggja
persóna er tekist á, oft á tíðum í mikl-
um tilfmningahita, um snilld, meðal-
mennsku, hugsjónir, sjálfsblekkingu
og ást. Hrafnhildur stundaði lengi
gítarnám á Spáni áður en hún sneri
sér að ritstörfum. Hún nemur nú
leikhúsfræði í París.
-HK
Gispheldur
áfram
Seint á síðasta ári kom út
myndasögublaðaið Gisp seminn-
heldur teiknimyndasögur eftir
islenska myndlistarmenn. Blaðið
vakti mikla og veröskuldaða at-
hygli enda mjög nýstárlegt. Nú
er annað heftið komið út og á það
væntanlega eftir að vekja jafn-
mikla athygli. Þeir tíu myndlist-
armenn sera eiga efni í blaðinu
eru Freydís Kristjánsdóttir, Þorri
Hringsson, Þórarinn B. Leifsson,
Sigurður Ingólfsson, Halldór
Baldursson, Ölaíúr J. Engilberts,
Jóhann I. Torfason, Helgi Þ. Frið-
jónsson, Bjarni Hinriksson og
Helena Guttormsdóttir. Nöfnin á
myndasögunum eru meöal ann-
ars Teddy Transformer, Sæt-
astaaa sjálfsmorð samtímans, Að
vekja leðurblöku og Aumingja
Reynir og hundurinn hans Joe
Kill.
Bréffrá
Sylvíu á
litla sviðið
Á meðan ekki er enn búið aö
taka stóra sviöið í notkun notast
Þjóðleikhúsið við litla sviðið og
er næsta leikrit, sem þar verður
frumsýnt, Bréf frá Sylvlu eftir
Rose Leiman Goldenberg. Byggir
hún leikritið á fjölda sendibréfa
sem skáldkonan Sylvia Plath
skrifaöí Qölskyldu sinni, allt frá
menntaskólaárum til dauöadags.
Sylvia Plath fæddist í Boston
1932, hélt til framhaldsnáms í
Bretlandi og giftist þar Ted Hug-
hes sem nú er lárviðarskáld
Breta. Hún svipti sig lífi 1963. Það
eru Helga Baehmann og Guð-
björg Thoroddsen sem leika einu
hlutverkin í leikritinu. Leikstjóri
er Edda Þórarinsdóttir og er þetta
í fyrsta sinn sem hún leikstýrir í
Þjóðleikhúsinu.
«m‘si
/ /
/ f
/
I -
Sfcop_
ZTnnandi*«»»n.......
?s£3?=S
-
®óW"geslsaugaaömamÍnum?.
■ f Hussun > oröum
Niður tn kókg .
óðverju
rainwfe....
1 íreYstandi?,
Liusn
/ /
i L
I >&. 37
altrosst ölugéta........
Jarðskjá/rti ~hrvJ ' . ....
Svipir oghulduro!k*“'° hr^Bramnni
CeíaÞ aufaj^,, ?ugan*firSi....
......::
FWiðóhrædd ................
^vWmun? ......................
^tóíugátan.. ................
Kr.425
15
... 20
.. 25
32
.. 37
•• 40
-■ 46
■ 48
•• 56
65
68
73
79
J- REFti -
s». ÁR _
IANÚAR ■ FRWvkr
... 80
.. 107
: 115
121
■ 127
• 132
• 137
141
150
157
160
i 991
NYTT
STJERRA
ÚRVAL
Nú er fyrsta hefti ársins komið út, með breyttu út-
liti og helmingi stærra en áður.
Framvegis kemur Úrval út annan hvern mánuð. Nú
er í boði tilboðsáskrift fyrir árið 1991. Þú greiðir
aðeins kr. 2.125,- fyrir 6 hefti og færð 6 eldri
hefti að auki.
Hringdu og pantaðu áskrift í síma 626010.
A næsta blaðsölustað