Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1991, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
DV
Lundakarlar urðu fyrir skaða
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum;
Enn eru að koma í ljós skemmdir
eftir óveðrið sem gekk yfir landið 3.
þ.m. Lundakarlar í Eyjum urðu sum-
ir hveijir fyrir miklu tjóni í óveðrinu
og eru a.m.k. þrjú hús ónýt og eitt
stórskemmt. Þessi hús eru í Snæ-
felli, Álsey, Dalfjalli og gamla húsið
í Bjarnarey fór veg allrar verald-
ar.
í Álsey skreið húsið fram undan
skriðu og að sögn Haraldar Gunnars-
sonar er það ónýtt ásamt öllu sem í
því var. Húsið stendur í brattri
brekku og hafði jarðvegur ofan við
það skriðið fram og tekið húsið með
sér. Gekk það fram um eina 2 metra
og er allt skakkt, bjagað og brotið.
Ekki sagðist hann vita hvað tjón er
mikið en allt er þetta tryggt.
Bragi Steingrímsson og fleiri eiga
hús vestur á Dalfjalli og fauk þakið
af. Ekki sagði Bragi húsið ónýtt og
verður nýtt þak sett á með hækkandi
sól.
Lítill kofi í Snæfelli er horfmn og
gamla veiðihúsið í Bjarnarey hlaut
sömu örlög. Fór þar mikið af búnaði
Bjamareyinga, veiðiháfar, sigbúnað-
ur og fleira og er tjón þeirra mikið.
Hekla eykur
viðskiptin
Regina Thorarensen, DV, Selfosá:
Við hjónin fórum nýlega í Grillið í
Fossnesti hér á Selfossi, sem er með
15 rétti af þorramat. Það er nýbúið
að stækka Grillið og tekur staðurinn
nú 100 manns í mat.
Mikiö hefur verið um að ferðafólk
nýti sér þjónustuna þarna. Hinn ungi
kokkur þar Ásbjörn Jónsson og
starfsstúlkan Lóa Hallsdóttir sögðu
mér að Heklugosið hefði aukið mjög
viðskiptin, fólk komið við á leið aust-
ur eða að austan frá Heklu.
BÍLAMARKAÐCRINN
v/REYKJANESBRAUT
__SMIÐJUVEGI 46 E, KÓPAVOGI_
<ff 67 18 00 FAX
7 52 10
Vantar nýlega
bíla á staðinn
Daihatsu Charade TS '89, rauður,
ekinn aðeins 7 þús. km, 2 dekkja-
gangar o.fl., sem nýr. Verð 620
þús.
Toyota Corolla XL 1300 ’88, hvít-
ur, ekinn 70 þús. km, 4ra dyra.
Verð 690 þús.
M. Benz 190 ’88, blár, beinsk., ek.
aðeins 36.000, ýmsir aukahl. V.
1.580.000, sk. á nýl. minni bíl.
Ford Bronco XLT ’89, grár, 4
ek. 23.000, rafm. í rúðum o.fl.
aukahl. V. 2.300.000.
GMC Jimmy Sierra Grande dísil
'84, 6,2 i, sjálfsk., ekinn 70 þús.
km, allur nýyfirfarinn. Úrvals
jeppi. Verö 1450 þús.
Breyttu býl-
inu í veit-
ingastað
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Toyota 4Runner 4x4 ’90, rauður,
V-6, 5 gíra, álfelgur, sóllúga,
rafm. í öllu. Verð kr. 2,2 m.
Toyota Corolla 4x4 LX Touring
’89, hvítur, ekinn 35 þús. km, sem
nýr.
Básinn í Ölfushreppi er vinsæll
veitingastaður og þar er mikið um
veislur allan ársins hring. Hjónin
Svava Gunnarsdóttir og Björn Kristj-
ánsson komu staðnum upp fyrir
nokkrum árum. Þar er mjög vistlegt,
góður matur og gaman að sitja þar
úti í góðu veðri á sumrin eða ganga
um iðjagræn túnin.
Ungu hjónin Svava og Björn höfðu
ofnæmi fyrir grasinu, sérstaklega
bóndinn, og þá voru þau búin að
byggja þar glæsileg peningshús
ásamt hlöðu. Þau brugðu á það
heillaráð að innrétta þessi húsa-
kynni og breyta þeim í veitingastað
sem þau kalla Básinn.
Ég hef verið í veislum þar, meira
að segja í brúðkaupi hjá Vottum Je-
hóva. Þar eru strangar reglur fyrir
brúðhjón og þau áminnt mjög. Guð-
mundur Guðmundsson, ættaður úr
Ámeshreppi, gaf hjónin saman,
kynnti brúðhjónunum reglurnar og
talaði í rúman hálftíma. Þau vissu
því að hveiju þau gengu. Skilnaður
hjóna er nær óþekktur hjá Vottum
Jehóva, aðeins um eitt prósent.
Félag eldri
borgara 10
ára í vetur
Regina Thorarensen, DV, Selfosá:
Félag eldri borgara á Selfossi, sem
verður 10 ára í vetur, heilsaði þorra
með virktum og bauð til mannfagn-
aðar á Hótel Selfossi laugardaginn
9. febrúar. Þar mættu rétt rúmlega
200 manns víða af Suðurlandi og úr
Reykjavík.
Formaður félagsins, Einar Sigur-
jónsson, setti skemmtunina og á dag-
skrá var margt til skemmtunar.
Fluttur var ferðaannáll úr sumar-
ferðum félagsins eftir Ingimund Ein-
arsson, tveir nemendur frá tónlistar-
skólanum léku á hljóðfæri og skóla-
meistari Fjölbrautaskólans, Þór Vig-
fússon, sagði skemmtilega frá. Kór
aldraðra söng undir stjórn Sigur-
veigar Hjaltested, einsöngvari var
Guðmunda Jónsdóttir. Mikið líf og
fjör var í fjöldasöng við undirleik
Hjcdta Þórðarsonar. Þorramaturinn
var sérstaklega góður og öll þjónusta
á hótehnu til fyrirmyndar. Dans var
svo stiginn fram eftir nóttu af miklu
fiöri.
Starfsfólk Landsbankans á Sauðárkróki og fulltrúar bankans við opnun útibúsins. Fremri röð frá vinstri: Eva Sigurð-
ardóttir, Þórunn Jónasdóttir, Hrefna Þórarinsdóttir, María Friðjónsdóttir, afgreiðslustúlkur útibúsins og Jóhann
Olafsson, fuiitrúi Samvinnubankans. Efri röð: Gunnlaugur Sigmarsson, Landsbankanum Skagaströnd, Pétur Er-
lendsson, fyrrv. aðstoðarbankastjóri Samvinnubankans, Sigmundur Guðmundsson, útibússtjóri Landsbankans á
Sauðárkróki, Geir Magnússon, fyrrv. bankastjóri Samvinnubankans í Reykjavík, og Guðjón Guðjónsson fulltrúi
Samvinnubankans. DV-mynd Þórhallur
Landsbankinn á Sauðárkróki:
Gaf kirkjunni milljón
ÞórhaJlur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
í hófi í tilefni opnunar Lands-
bankans á Sauðárkróki mánudaginn
18. febrúar sl. afhenti Sverrir Her-
mannsson bankastjóri höfðinglega
gjöf til byggingarsjóðs Sauðárkróks-
kirkju, eina milljón króna. Jón
Karlsson, formaður safnaðarstjórn-
ar, færði bankanum þakkir.
Þegar bankinn opnaði á mánudags-
morgun var aðalbankastjórinn,
Sverrir, þar mættur með tvö málverk
eftir skagflrska málara sem prýða
nú veggi útibúsins, þá Jóhannes Geir
Jónsson, Björnssonar, fyrrum skóla-
stjóra, og Sigurð Sigurðsson, Sig-
urðssonar, sýslumanns. Fjöldi fólks
kom í útibúið að Ártorgi 1, Skagfirð-
ingabúð, á opnunardaginn og þáði
þar veitingar í boði bankans. Hóf var
síðan í Hótel Mælifelli síðdegis og
margt manna samankomið.
Mazda 626 2000 ’85, grásans., 5
dyra, beinsk., 5 gíra, ekinn 86
þús., nýskoðaður. Verð 490 þús.
NÝrr-\«NDAÐ
SÓFASETT í ELGSLEÐRI
545-? Nappaieder Gavaiíy flö
Vorum að fá þessí glæsílegu og vönduðu sófasett klædd elgsleðrí frá Krauss +
Weínber í Þýskalandi sem þekktir eru fyrir gæðí. Elgsleður er vandað og fallegt
Ieður sem nú býðst með 30% afsl. frá framleiðanda á aðeíns örfáum sófasettum.
Ath., nýjar sendíngar af sófasettum í Ieðurlux eða áklæðí.
_ VAUIÚSGÖOSr
■m ÁRMÚLA 8, SÍMI 82275 OG 685375 M