Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1991, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 1991.
Fréttir
Þrír kassar af sprengiefni geymdir í ólæstum gámi:
Unglingar f undu 70 kíló
af dínamíti á sorphaugum
- íslendingar kærulausir 1 þessum málum, segir sprengjusérfræðingur
Um 70 kíló af sprengiefni fundust
í þremur kössum í ólæstum gámi á
geymslusvæði sorphauganna í Gufu-
nesi á föstudag. Það voru unglings-
piltar er leið áttu um svæðið sem
komu auga á sprengiefnið í gámin-
um. Létu þeir lögreglu vita sem fór
á staðinn ásamt sprengjusérfræðingi
frá Landhelgisgæslunni.
Hér var mest um að ræöa dínamít
en eitthvaö af svokölluðu gelatíni.
Sprengiefnið var fjarlægt úr gámin-
um og sett í sérstaka geymslu sem
Landhelgisgæslan hefur yfir að ráöa.
Jón Bjartmars, hjá lögreglunni í
Reykjavík, sagði í samtali við DV að
vítavert væri að geyma sprengiefni í
ólæstum hirslum. Sprengjusérfræð-
ingur Landhelgisgæslunnar tók í
sama streng og segir íslendinga
skera sig úr á Vesturlöndum hvað
snertir kæruleysi í meðferð og
geymslu sprengiefna:
„Það hefur oft komið fyrir að
sprengiefni fmnist eða sé stohð hér
á landi. Þetta er alveg fráleitt aö
geyma sprengiefni með þessum
hætti. Þessi mál eru fyrir neðan allar
hellur hér á landi,“ sagði sprengju-
sérfræöingur Landhelgisgæslunnar.
Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur
verið gert viðvart vegna málsins. í
lögum um sprengiefni eru skýr
ákvæöi um að þeir sem leyfi fá hjá
yfirvöldum um meðferð slíkra efna
skuh ábyrgjast að þeim sé komið
tryggilega fyrir á stöðum þar sem
óviðkomandi ná ekki til þeirra. Sam-
kvæmt lögunum er refsivert aö
brjóta ákvæði þeirra.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
hefur fengið, mun lögregla gera ráð-
stafanir til að ná í þá aðila sem áttu
framangreint sprengiefni. Ekki er
ljóst hvort mál þetta veröur sent til
ríkissaksóknara.
-ÓTT
Eldur kviknaði i einbýlishúsi við Stigahlið iaust fyrir klukkan tiu í gærmorgun. Einn maður er í haldi lögreglunnar
grunaður um að hafa kveikt í. Þegar slökkviliðið kom á vettvang lagði mikinn reyk út um glugga og rúður voru
farnar að springa. Fimm reykkafarar fóru inn og ieituðu að fólki en enginn reyndist heima. Töluverður eldur logaöi
í stofunni en greiðlega tókst að slökkva hann. Miklar skemmdir urðu í húsinu, bæði vegna elds og reyks.
DV-mynd S
Lögreglan upplýsti þjófnaðarmál á ísafirði:
Fjórir piltar játuðu á
sig tíu innbrot
- höfðu farið 1 verslanir og fyrirtæki frá því í nóvember
Lögreglan hefur upplýst níu inn-
brot og eina innbrotstilraun sem
framin hefur verið á ísafirði á und-
anförnum mánuðum. Fjórir 15 ára
piltar hafa með mismunandi hætti
gengist við innbrotunum.
Innbrotin voru framin í verslun-
um og öðrum fyrirtækjum á
ísafirði frá því í nóvember. Teknir
hafa verið peningar, sælgæti, síga-
rettur og fleira. Að sögn lögreglu
er um umtalsverðar fjárhæðir að
ræða. Innbrotin hafa verið framin
með mismunandi mihibih frá því í
nóvember en á aöfaranótt fimmtu-
dagsins í síðustu viku var bæði
brotist inn í sjoppu menntaskólans
og á videoleigu. Grunur beindist
síðan að ákveðnum aðhum.
Fjórir piltar voru yfirheyrðir fyr-
ir helgina vegna málsins. Þeir hafa
gengist við þvi að hafa framið öll
ofangreind innbrot. Einn þeirra
átti þátt í þeim öllum, annar var í
öllum nema einu, sá þriðji var í
tveimur innbrotum en fjórði piltur-
inn var aðeins viöriðinn eitt þeirra.
Lögreglan á ísafiröi vinnur nú aö
lokafrágangi vegna þessa máls.
Að sögn fulltrúa í rannsóknadeild
lögreglunnar á enn eftir að upplýsa
þjófnað á fjórum koparkrossum,
sem teknir voru af leiöum í kirkju-
garðinum á ísafiröi. Krossamir
voru fastir við legsteina. Hér er um
að ræða rúmlega lófastóra kopar-
krossa. Þjófnaðurinn uppgötvaðist
11. febrúar. Lögreglan segir að allar
upplýsingar almennings sem hugs-
anlega geta leitt til aö þess að þjófn-
aöirnir upplýsist séu vel þegnar.
-ÓTT
Dánarorsök Færeyingsins var af völdum brunasára:
Ekki Ijóst af hverju maðurinn lést
Endanleg niðurstaða Rannsóknar-
lögreglu ríkisins vegna láts Færey-
ingsins, sem lést fyrir skömmu við
Faxamarkaö, liggur ekki fyrir. Þó er
Ijóst að dánarorsök mannsins var af
völdum brunasára.
Niðurstaða réttarkrufningar liggur
ekki fyrir en hún er væntanleg bráð-
lega. Að sögn Sigurbjöms Víðis Egg-
ertssonar hjá Rannsóknarlögregl-
unni mun hún leiöa í ljós hvort maö-
urinn var undir áhrifum áfengis eða
lyfja. Rannsókn málsins hefur ekki
leitt í ljós hvort um var aö ræða slýs
eða hvort dauða Færeyingsins bar
að höndum meö öömm hætti.
Sigurbjöm Víðir sagði að á undan-
fórnum misserum heföu engin óupp-
lýst dauðsföll ko.miö fram eins og í
framangreindu tilfehi.
-ÓTT
Hætt að endurvarpa
fréttatímum Sky
-óvístmeð CNN
íslenska ríkissjónvarpið hefur
hætt beinu endurvarpi á sendingum
Skyfréttastöövarinnar. Að sögn
Markúsar Arnar Antonssonar út-
varpsstjóra var alla tíð litið á útsend-
ingar Sky sem tímabundnar á meðan
stríðsástand ríkti við Persaflóa. Því
hafi RÚV einungis gert bráðbirgða-
samning við Sky, það hafi aldrei ver-
ið ætlunin að halda þessum sending-
um áfram eftir að búið yrði að semja
um vopnahlé í Persaflóadeilunni.
„Það er svo í verkahring fréttastofu
Sjónvarps að gera grein fyrir eftir-
málum stríðsins í fréttatímum sínum
sem em tveir flesta daga vikunnar,"
segir Markús Örn.
Að sögn Páls Magnússonar, sjón-
varpsstjóra á Stöð 2, hefur enn ekki
verið tekin ákvörðun um hvort send-
ingum CNN verði hætt. Ákvörðun
um það mun liggja fyrir síðar í vik-
unni. Þangað til verða útsendingar
GNN með óbreyttum hætti.
-J.Mar
Grímuklæddir ræningjar
ógnuðu afgreiðslukonu
- strokufangar liggja undir grun
Tveir dökkklæddir menn með
grímur fyrir andhti réðust inn í sö-
lutum við Hjarðarhaga 49 í fyrra-
kvöld og stálu peningum úr kassa
verslunarinnar. Tahð er að þeir hafi
náð 7-10 þúsund krónum. Málið er
óupplýst en tveir fangar sem struku
af Litla-Hrauni síðdegis í fyrradag
hggja undir grun um verknaðinn.
Fangamir voru handteknir við Amt-
manstíg síðdegis í gær.
Afgreiðslukona var í versluninni
rétt fyrir lokun þegar mennimir réð-
ust til inngöngu. Annar þeirra ógnaði
konunni með barefli. Afgreiðslukon-
an tók þá kúst og bar hann fyrir sig.
Ekki kom þó til þess að ráðist yrði á
hana. Annar mannanna gekk rak-
leiðis að peningakassanum og tók
peninga úr honum.
. Fangarnir sem handteknir voru í
gær voru færðir í fangelsið i Síðum-
úla. Yfirheyrslur vegna þeirra fara
fram í dag.
-ÓTT
Samstarf viö Eystrasaltstríkin:
Engin umsókn
frá íslendingum
- segir JúIíusSólnes
„Ég gagnrýndi það nokkuð í hópi
íslendinganna, sem sóttu Norður-
landaráðsþingið, að það skyldi ekki
berast ein einasta umsókn frá íslandi
til Norrænu ráðherranefndarinnar
um samstarfsverkefni við Eystra-
saltsríkin," segir Júhus Sólnes um-
hverfisráðherra en hann situr fyrir
hönd íslands í nefndinni.
„Ráðherranefndinni bárust alls 72
umsóknir, meðal annars tvær frá
Færeyjum, en það kom engin frá ís-
landi. Þessar umsóknir vom af ýms-
um toga, eiginlega má segja að þær
hafi fjallað um aht milli himins og
jarðar.
Mér finnst það skjóta dálítið
skökku við þar sem við höfum áhtiö
okkur í fararbroddi í umræðunni um
samvinnu við þessi ríki að það skyldi
ekki berast ein ein einasta umsókn
héðan. Kannski tölum við of mikið
en framkvæmum of lítiö.
Það var einnig ákveðið að þaö yrðu
opnaðar skrifstofur í höfuðborgum
Eystrasaltsríkjanna sem myndu sjá
um upplýsingaflæði og menningar-
samskipti Norðurlandanna og þess-
ara ríkja. Þar var sömu sögu að
segja. Það barst engin umsókn frá
Islendingum um að veita einhverri
þessara skrifstofa forstöðu."
-J.Mar