Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991. 17 Iþróttir Úrskurður aganefndar vegna kæru frá dómurum í leik UMFN og ÍBK: Njarðvíkingamir sluppu fyrir hom - fengu áminningu og halda því heimaleiknum ef 5. leikurinn fer fram istri: Ingi Gunnarsson, form. körfuknattleiks- ar Jónsson, form. UMFN. DV-myndS Aganefnd Körfuknattleikssam- bands íslands kom saman til fund- ar í gær og dæmdi í kærumáli sem dómarar leiks Njarðvíkur og Kefla- víkur sl. laugardag sendu inn til nefndarinnar. Njarðvíkingar sluppu fyrir horn. Nefndin ákvað að áminna Njarðvíkinga og var þeim gert skylt að hafa öfluga gæslu á heimaleikjum sínum. Þrátt fyrir að Njarðvíkingar hafi í gær sloppið með áminningu mega þeir og þeirra áhangendur vara sig. Aganefndin ákvað nefnilega að áminningin hefði þau áhrif að ef Njarðvíkingar fengu á ný á sig svip- aða kæru næstu tvö árin yrði tekið mjög strangt á málum og liðið dæmt til að missa heimaleiki. „Þetta fór allt saman mjög frið- samlega fram og það var ekkert um kýlingar eða þess háttar. Það er skammt eftir af keppnistímabilinu og við vildum ekki ganga harðar fram í þessu máli en við gerðum. En Njarðvíkingar verða að passa sig og sína vel næstu tvö árin. Þetta var eins konar salómonsdómur," sagði Hrafn G. Johnsen, sem sæti á í aganefnd KKÍ, í samtali við DV í gærkvöldi. Þeir sem tóku málið fyrir í gær voru auk Hrafns þeir Þorgeir Ingi Njálsson, formaður nefndarinnar, og Jón Eysteinsson. Forsaga málsins er sú, eins og fram kom í DV í gær, að eftir leik Njarðvíkinga og Keílvíkinga í Njarðvík á laugardag veittust stuðningsmenn Njarðvíkinga að öðrum dómara leiksins og kærði hann framkomuna til aganefndar sem tók síðan málið fyrir í gær- kvöldi. í starfsreglum aganefndar um brot félagsliða segir: „Ef áhangend- ur gerast sekir um vítaverða eða hættulega framkomu gagnvart leikmönnum, dómurum eða starfs- mönnum leiks, er heimilt að svipta það lið, sem leikurinn var leikinn hjá, næsta eða næstu heimaleikj- um, þar til öryggi leikmanna og starfsmanna leiksins telst tryggt.“ Njarðvíkingar geta því varpað öndinni léttar og hreinn úrslita- leikur um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik fer því fram í Njarð- vík, vinni Njarðvíkingar fjórða leikinn gegn Keflavík í Keflavík í kvöld. 'Að öðrum kosti verða Kefl- víkingar íslandsmeistarar. -SK n berjast um boltann í leik Njarðvikinga og Hvað segja þeir um leik ÍBK og UMFN í kvöld: „Pressan mun verða á Keflvíkingunum“ Keflvíkingar geta tryggt sér ís- landsmeistaratitilinn í körfuknatt- leik á heimavelli sínum í Keflavík er þeir leika fjórða úrslitaleikinn gegn , Njarðvíkingum klukkan átta. Við leituðum í gær til nokkurra lands- kunnra íþróttamanna og áhuga- manna um íþróttir á Suðurnesjum og báðum þá að spá í spilin. Hilmar Hafsteinsson „Ég held að pressan muni verða á ÍBK og þeir verða að teljast líklegri til sigurs enda leika Keflvíkingar á heimavelli. Við töpuðum orrustu á laugardag en ekki stríðinu. Njarðvík- ingar þurfa að útfæra varnarleikinn öðruvísi en þeir hafa gert en Keflvík- ingar eru með sterkt lið og í liði þeirra eru sterkar skyttur. Þetta verður mjögfjörugur leikur og mikið taugastríð. Ég spái aö Njarðvík vinni 93-94 eftir framlengingu. Annars held ég að vendipunkturinn í kvöld verði hvernig Teitur Örlygsson leik- ur í hði Njarðvíkinga. Hann er lang- besti framvörðurinn á landinu í dag,“ sagði Hilmar Hafsteinsson, fyrrum þjálfari Njarðvíkinga. Hafsteinn Guðmundsson „Ég hef trú á að þetta verði hörku- leikur. ÍBK-hðið hefur vaxið í síð- ustu leikjum en Njarðvíkurliðið ver- ið að dala. Mér finnst strákarnir í ÍBK hafa staðið sig frábærlega í síð- ustu leikjum og þetta er þeirra síö- asti séns til að vinna titilinn á heima- velli sínum. Ef til vill hefur það hjálp- að að tapa fyrsta leiknum meö mjög miklum mun. Það verður mjög mikil stemmning og ég spái að ÍBK vinni 88-80,“ sagði Hafsteinn en hann er fyrrverandi landsliðseinvaldur í knattspymu og íþróttafrömuður í Keflavík. Stefán Bjarkason „í fyrra slógu Keflvíkingar Njarðvík- inga út úr undanúrslitum úrslita- keppninnar í Keflavík og Njarðvík- ingar munu örugglega minnast þessa leiks. Þessi leikur verður mjög erf- iður fyrir Njarðvíkinga og spennandi en ef mínir menn spila eðhlegan leik þá vinna þeir. Njarðvíkingar þurfa að leggja allt í sölurnar enda hafa þeir engu að tapa. Sérstaklega þurfa Njarðvíkingar að eflast í varnarfrá- köstunum. Ég spái því að Njarðvík vinni 89-80,“ sagði, Stefán Bjarkason sem um árabil gerði garðinn frægan með liði UMFN. Rúnar Júlíusson „Keflvikingar vinna þennan leik og ég treysti því að þeir vinni titilinn í kvöld. Þessi leikur verður rosalega spennandi. Njarðvíkurliðið verður erfitt viðureignar og þurfa mínir menn að ná toppleik til að sigra þá. Keflvíkingar virðast hafa meira út- hald þessa dagana en helsti veikleiki ÍBK-liðsins er að það vantar meiri stöðugleika í leik liðsins. Ég spái aö ÍBK vinni 84-82 á síðustu sekúndum leiksins," sagði Rúnar Júlíusson, fyrrverandi knattspyrnuhetja og nú- verandi poppari. -SK/ÆMK • Hilmar Hafsteins- • Hafsteinn Guð- • Stefán Bjarka- • Rúnar Júlíusson, son, 93-94 fyrir mundson, ÍBK vinn- son, Njarðvik sigrar ÍBK vinnur 84-82 i Njarðvik. ur 88-80. 80-89. blálokin. Fyrsta verkef ni Braga Dómaranefnd UEFA hefur tilnefnt íslenska dómara til eftirfarandi verkefna starfa erlendis á næstunni: Bragi Bergmann er tilnefndur dómari í leik Svíþjóðar og Kýpur í Evrópu- keppni landsliða U-21 en leikurinn fer fram 1. maí. Þetta er fyrsta verkefni Braga á vegum UEFA. Þá er Eyjólfur Ólafsson tilnefndur f úrshtakeppni landsliða U-16 ára en keppnin verður haldin í Sviss 6. til 19. maí. Einn dóm- ari er frá hverju þeirra landa sem þar eiga lið. Dómaranefnd KSl hefur einn- ig tilnefnd línuverði í leikinn með Braga Bergmann, þá Óla P. Ölsen og Gísla Guðmundsson. -GH Leikið með höndum og fótum Keppiii í 1. deild kvenna í handknattleik hefst á ný í kvöld eftir nokkurt hlé. Það eru Fram og FH sem mætast í Laugardalshölhnni og byrjar leikurinn klukkan 18.30. Staðan í deildinni er nú þannig á toppnum að Stjarnan er með 42 stig eftir 25 leiki og Fram er með 41 stig eftir 24 leiki. í kvöld verður haldið áfram keppni á Reykjavíkurmótinu í knatt- spymu. Það em Þróttur og Víkingur sem mætast í A-riðh og hefst leikurinn klukkan 20. Víkingar unnu Leikni, 2-0, í sínum fyrsta leik en Þróttur byrjar keppni í kvöld. • Teitur örlygsson hefurskorað 72 stig i leikjunum þremur gegn ÍBK - 24 stig að meðaltali i leik. Hvað gerir hann i kvöld í Kefla- vík? Einvígiðíkörfu: Þegar úrslitin í þremur fyrstu leíkjunum era skoðuð kemur í ljós að þrátt fyrir tvo sigra Kefl- víkmga er stigatalan mjög svo Njarövíkingum í hag, 247 stig gegn 216, enda unnu þeir fyrsta leikinn með 37 stiga mun. Að auki á Njarðvík þrjá stigahæstu leikmennina í leikjunum þremur. Til þessa hafa 16 leikmenn skor- að fyrir liðin tvö i þessum þremur úrslitaleikjum. Níu Keflvíkingar og sjö Njarövíkingar. Teitur Órl- ygsson hefur veriö drýgstur, skorað 72 sti'g, eða 24 stig að með- altali í leik. Stigin hafa skipst þannig: Keflavík: Falur Harðarson.............49 Tairone Thomton.............46 Jón Kr. Gíslason............34 Sigurðurlngimundarson.......26 Guöjón Skúlason.............26 Albert Óskarsson............25 HjörturHarðarson.............6 EgillViðarsson...............2 JúlíusFriöriksson............2 Njarðvík: TeiturÖrlygsson.............72 Rondey Robinson.............65 Friðrik Ragnarsson..........53 ■ Kris*inn Einarsson........3» ísakTómasson...............,12 GunnarÖrlygsson.............11 Hreiöai'Hreiðai'sson....... 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.