Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1991, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Riistjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991.
Vonskuveður nyrðra:
Fjallvegir
Víöa er ófært á Norðurlandi og
fjallvegir tepptir vegna skafrennings.
Hólmavíkurvegur er ófær, lokað
er til Siglufjarðar og allar heiðar á
Vestfjörðum eru ófærar. í Vík í
Mýrdal er vonskuveður og ekki hægt
að komast austur úr.. Fært er til
Akureyrar og Snæfellsnesið er fært.
Hins vegar er ekki hægt að fljúga
til Akureyrar og einnig er ófært til
- Vestmannaeyja. Ófært var til Egils-
staða í morgun en það var að birta.
til og búist var við að flug hæfist!
þangað. -ns
AUra veðra von:
7 Ekkisíðasta
hretvorsins
Þó páskar séu um garð gengmr þa
tekur veðrið lítt mið af því. Sannkall-
að páskahret gengur nú yfir landið
og í morgun var mikil snjókoma og
lélegt skyggni um nánast allt land.
Skást var veðrið á Vesturlandi en við
suðurströndina voru um 9 vindstig
og á Norðurlandi um 6 vindstig.
Að sögn Ásdísar Auðunsdóttur
veðurfræðings gengur veðrið niður
•*“-? dag og á morgun. Vænta megi mjög
ióðs veðurs á sunnanverðu og vest-
anveröu landinu en hætt sé viö ein-
hverri slyddu á Norður- og Austur-
landi. Hún segir veðrið verða breyti-
legt út vikuna og að á flmmtudag
megi búast við ámóta veðri og í dag
en þó verði trúlega eitthvað hlýrra.
„Þó senn vori getum við átt von á
alls konar veðri á næstunni. Ég stór-
efa aö hér sé um síðasta hretið að
ræða. En hvernig það verður í næstu
viku eða á kjördag þori ég ekkert að
spá fyrir um,“ sagði Ásdís. -kaa
Gjaldkeri Dagsbrúnar:
Líktogaðdrepa
bestu kýrnar
Hlutabréf Dagsbrúnar í Eignar-
haldsfélagi Alþýðubankans hf. að
nafnverði 35 milljónir króna voru í
gær seld sex aðilum á samtals 68
milljónir, sem er rétt tæplega tvöfalt
nafnverð. Ekki hefur fengist upp-
gefið hverjir keyptu.
„Þessi sala staðfestir það sem ég
hef haldið fram að mjög vitlaust er
aö selja bréfin. Þetta er líkt og bóndi
sem fækkar í fjósinu hjá sér og drep-
ur bestu kýrnar," segir Ólafur Ólafs-
son, gjaldkeri Dagsbrúnar.
„Stjórnin hefur haldið furðulega á
þessu máli. Ég er gjaldkeri félagsins
en stjórnin hefur skipulega haldið
mér fyrir utan það vegna þess að ég
hef barist á móti því að selja.“ -JGH
LOK!
Vetur kailinn erfarinn
að ruglast í dagatalinu!
Áhugamenn um vatnsútflutning undirbúa stofnun fyrirtækis:
Flytja út vatn
i tankskipum?
- þjóðhagsiegt glapræði, segir Davíð Scheving Thorsteinsson
Ahugamannahópm- um útflutn-
ing á fersku íslensku vatni hugar
að stofnun fyrirtækis með það fy rir
augum aö flytja vatnið út í risa-
tankskipum. Þórhallur Arason er
skrifaöur fyrir hópnum í bréfi sem
hann hefur sent út þar sem auglýst
er eftir hluthöfum í hið nýja fyrir-
tæki. Lágmarkshlutur verður hálf
milljón. Er sérstaklega hugað að
útflutningi til Bandaríkjanna.
í bréfinu segir að Hafnarfjarðar-
bær hafi veitt áhugamannahópn-
um sex mánaða frest til að und-
irbúa og stofhsetja fyrirtæki sem
myndi sjá um útflutning á fersku
vatni úr landi Straumsvíkur, nánar
tiltekíð undan Kapelluhrauni.
„Við höfum lýst yflr skilyrðis-
bundnum vilja okkar gagnvart
þessum hópi og öðrum að útvega
vatn á viðeigandi kjörum þegar og
ef þessi fyrirtæki geta sýnt fram á
að hafa aflað sér markaða. Það er
gífúrlegt vatn til í Kapelluhraun-
inu. Ef aðilamir hafa kaupendur
að vatninu erum við tilbúnir aö
ganga til samninga um útvegun
vatnsins," sagði Guðmundur Árni
Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnar-
flrði, við DV.
Davið Scheving Thorsteinsson,
sem flytur út vatn til Bandaríkj-
anna, sagðist ekki eiga aðild að
þessum hópi.
„Það er fráleitt að hleypa útlend-
um aðilum beint i þá auðlind okkar
sem vatnið er. Það er eins og að éta
útsæðið. Það á að fullvinna vatnið
hérlendis, i íslenskar umbúðir og
skapa þannig atvinnu. Vatn frá mér
kostar mun meira en bensín í New
York en erlendir aðilar vflja varla
borga nema brotabrot af þvi verðí
fyrir vatnið í tankavís. Slíkur út-
flutningur yrði þjóðhagslegt glap-
ræði,“ sagði Davíð Scheving.
Guðmundur Árni sagði að ekki
hefði verið mótuð afstaöa til við-
horfa eins og þeirra sem Davíð set-
urfram. -hlh
Neskaupstaður:
Sjómenn hafna
samningunum
frá Akureyri
Sjómenn á togaranum Bjarti NK
121 frá Neskaupstað hafa sent Síldar-
vi'nnslunni hf. skeyti þar sem þeir
segja upp störfum. Sjómenn hinna
togaranna frá Neskaupstað hafa ekki
sagt upp störfum enn sem komið.
Jóhann K. Sigurðsson, útgerðar-
stjóri Síldarvinnslunnar hf„ sagði í
morgun að áður en togararnir fóru
til veiða hafi sjómönnunum verið
boðið Akureyrarsamkomulagið eins
og það kemur fyrir. Þeir höfnuðu því
nema þeir fengju líka af ísfiskútflutn-
ingnum, en hann var á milli 10 og
15 prósent af aflanum í fyrra.
„Þetta vildum við ekki og buðum
þeim þá 30 prósent heimalöndunará-
lag, en það hefur verið 20 prósent frá
1. október síðastliðnum, og útflutn-
ingsbæturnar. Þeir héldu með sér
fund áður en þeir fóru út, en við
heyrðum ekkert af honum. Síðan
kom þetta skeyti frá sjómönnum á
Bjarti í gær þar sem þeir segja upp.
Meira vitum við ekki fyrr en þeir
koma aftur inn,“ sagði Jóhann.
-S.dór
Eldur kom upp í sumarbústað í Grafarvogi í gærkvöldi. Bústaðurinn, sem var að mestu ónýtur, varð alelda á
skömmum tíma. Slökkviliðið segir að um íkveikju hafi verið að ræða. Mikill reykur varð en enginn var í hættu
vegna eldsins. DV-mynd S
Fangarnir ófundnir:
Hafa stundað
strok áður
Þrír fangar um tvítugt struku úr
fangelsinu að Litla-Hrauni síðdegis í
gær. Þegar DV fór í prentun leitaði
lögreglan þeirra enn. Tveir af fóng-
unum hafa nokkrum sinnum strokið
áöur úr fangelsinu en sá þriöji strauk
nýlega frá Litla-Hrauni. Þessir ungu
menn hafa verið dæmdir fyrir auðg-
unarbrot, svo sem innbrot, bílstuld
og fieira. Þeir eru hins vegar ekki
þekktir fyrir ofbeldisverk.
Þeir tveir sem hafa stundað strok
áður hófu afbrot mjög snemma og
voru vistaðir á unglingaheimili ríkis-
ins. Þaðan lá leið þeirra nánast beint
í fangelsi þegar þeir urðu 16 ára.
Lögreglan hefur setið fyrir fóngun-
um við vegi sem liggja að höfuð-
borgarsvæðinu en án árangurs. Um-
gjörö og útisvæði fangelsisins á
Litla-Hrauni er þannig úr garði gert
að þaðan er ekki erfitt að strjúka, séu
menn á annað borð í þeim hugleið-
ingum. Refsing liggur við agabrot-
um. Sannist á fanga að þeir hafi sam-.
mælst við strok varðar það við al-
menn hegningarlög og hljóta menn
þá refsingu samkvæmt því. Ef fangar
hins vegar eru einir á ferð við strok
eru reglur fangelsins á þá leið að
þeir fá agarefsingu. -ÓTT
Veörið á morgun:
Enn svalt
íveðri
Á morgun verður norðlæg átt,
kaldi eða stinningskaldi norð-
austanlands fram eftir degi en
annars hægari. É1 norðanlands
en léttskýjað syðra. Svalt veður
áfram.
NEYDARHNAPPUR
FRÁ VARA
fyrir heimabúandi sjúklinga
og aldraða
Í® 91-29399
KS Alhliða
öryggisþjónusta
VARI slðan 1 969