Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1991, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1991. CCD Hringið ogfáiö &crí“ upplýsingar TILBOÐ ÍAPBÍL BILALEIGA ARNARFLUGS á Reykjavíkurflugvelli - gegnt Slökkvistöðinni #BIACKSlDECKER LIMGERÐIS KLIPPUR 40 cm kambur 400W, verð kr. 8,215,- 60 cm kambur 400W, verð kr. 10,846,- SINDRI - sterkur í verki Matgæðingur dv í frai tal tisl Isl ki ki u ir ] rog natur - Guimhildur Úlfarsdóttir matgæðingur DV „Ég er mikið erlendis vegna starfsins og fæ oft góðar hugmynd- ir á veitingastöðum erlendis og punkta oft hjá mér hvað er í matn- um og reyni síðan við það þegar heim er komið. Ég dvaldi ár í Bandaríkjunum og ár í Frakklandi og kynntist þar margvíslegri mat- argerð. Ég er mun hrifnari af franskri og ítalskri matargerð en amerískri," segir Gunnhildur Úlf- arsdóttir flugfreyja sem tók áskor- un um vera matgæðingur vikunn-' ar hjá DV. Gunnhildur er orðlagður snill- ingur í eldhúsinu í sínum kunn- ingjahópi og býður einatt upp á sjaldfengið góðgæti en vegna starfsins á hún auðvelt með að verða sér úti um hráefni í framandi rétti. Hún býður lesendum DV upp á sniglaragú. Sniglaragú að hætti Gunnhildar 1 dós (2 dúsín) sniglar 2 msk. smjör 2 hvítlauksgeirar 1 charlottulaukur Gunnhildur Úlfarsdóttir. DV-mynd BG /i dós rjómakryddostur 2 msk. söxuð rauð paprika 2 msk. söxuð græn paprika !4 bolli ijómi !4 bolh hvítvín /i bikar sýrður rjómi /i moli fiskikraftur 1 msk. þurrkuð steinselja 2. msk ný steinselja Hvítlaukurinn marinn og hitaður í smjörinu og grænmetinu bætt í og steikt í 2-3 mínútur. Rjómaost- urinn settur út í og bræddur og sýrðum ijóma og hvítvíni bætt í. Hlutföllum má breyta eftir smekk. Fiskikrafti og kryddi bætt í og sniglamir settir síðast og aðeins hitaðir í sósunni. Rétturinn er borinn fram í smjör- deigsformum með ristuðu brauði eða pastaskrúfum. Þessi réttur dugir fjórum til sex og er tilvalinn fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og framandi. „Ég ætla að skora á Lindu Urban- cic að vera næsti matgæðingur vik- unnar. Hún er mikill og frábær kokkur." -Pá BORGARTÚNI 31 • 105 REYKJAVÍK • 62 72 22 Hinhliðm íslandsmeistaramótið IFBB > í VAXTARRÆKT1991 verður haldið á HOTEL Ij'LANDI 14. apríl Enginn gerir það betur HREYSTI Forkeppni byijar kl. 14.00 Verð aðgöngumíða kr. 500 Úrslítakeppní byijar kl. 20.00 GYM Verð aðgöngumíða kr. 1300 Happdrætti! Dregið verður úr seldum miðum á úrslitakeppni Borðhald byrjar kl. 18.30 Verð á mat kr. 2000 Jón Páll kynnír Óvænt skemmtíatríðí Borðapantanír á Hótel Íslandí Forsala aðgöngumíða á líkamsræktarstöðvum Glæsílegasta vaxtarræktarmót frá upphafí Langar að hitta höfund Völuspár - Ágúst Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður sýnir á sér hina hliðina Agúst Guðmundsson kvik- myndagerðarmaður er samlöndum sínum að góðu kunnur. Fram- leiðsla hans hefur birst á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi um árabil. Nægir að minna á kvikmyndir eins og Útlagann, Land og syni, Með allt á hreinu, Gullsand og sjón- varpsseríuna um Nonna og Manna. Nú síðast skemmti þjóðin sér yflr Litbrigðum jarðarinnar sem var páskaleikrit Sjónvarpsins. Þar þótti takast með eindæmum vel að færa viðkvæman andblæ sögu Ól- afs Jóhanns Sigurðssonar í trú- verðugan og lifandi búning. í sam- tali við DV sagðist Ágúst ekki vita hvað væri næst á dagskrá hjá hon- um en kvaðst vona að það yrði vönduð, íslensk kvikmynd og geta trúlega flestir tekið undir það. DV fékk Ágúst til þess að sýna á sér hina hliðina. Fullt nafn: Ágúst Guðmundsson. Fæðingardagur og ár: 29. júní 1947. Maki: Enginn. Börn: Guðmundur ísar, 5 ára. Bifreið: Citroén GSA Pallas árgerð 1981. Starf: Kvikmyndastjóri. Laun: Stopul. Áhugamál: Bókmenntir, einkum ljóð. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Eg fékk 3 réttar í fyrsta sinn sem var spilað. Síðan hef ég ekki tekið þátt í því. Ég er of svartsýnn til að trúa á stóra happdrættisvinniriga. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Horfa á góða bíómynd. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Horfa á vonda bíómynd. Úppáhaldsmatur: Rjúpur, steiktar Ágúst Guðmundsson. á klassískan, íslenskan húsmæðra- hátt. Uppáhaldsdrykkur: Kampavín. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Vegna þess að í þessum efnum er þekkingar- leysi mitt algjört verö ég að sleppa því að svara. Uppáhaldstímarit: Sight and So- und. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Það var ca 17 ára gömul múlattastúlka frá eynni Mart- inique sem gisti á City Hotel þegar ég var næturvörður þar á mennta- skólaárum mínum. Hún var óskap- lega falleg og ég hef enga séö síðan sem jafnast á við hana. Ertu hlynntur eða andvígur ríkis- stjórninni? Ég er hlynntur henni fyrir hádegi en andvígur eftir há- degi. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Höfund Völuspár, hver sem hann eða hún er. Uppáhaldsleikari: Hjálmar Hjálm- arsson. Uppáhaldsleikkona: Franska leik- konan Jean Moreau. Uppáhaldssöngvari: Franski vísna- söngvarinn George Brassens. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ma- hatma Gandhi. Uppáhaldsteiknimyndapersónur: Tommi og Jenni. Uppáhaldssjónvarpsefni: Leiknar, islenskar kvikmyndir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Mér tókst að gera eitt sjónvarpsleikrit (Skóla- ferð) og eina kvikmynd (Gullsand- ur) um þetta mál án þess að afstaða mín kæmi fram og mér finnst enn síður ástæða til þess nú. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hlusta lítið á útvarp en einna mest á Aðalstöðina. Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjami Dagur Jónsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar Ragnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Há- skólabíó. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Glímu- félagið Armann. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Að næsta bíómynd sem ég geri verði ótrúlega góð. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Vinna aö gerð kvikmynda- handrits. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.