Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Side 6
6
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1991.
Fréttir
Francesco Cossiga í opinberri heimsókn á íslandi um helgina:
ítalir mættu margt
af íslendingum læra
Cossiga var mjög hrifinn af náttúrufegurðinni á Þingvöllum. Hér er hann
ásamt frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrir utan Þingvallakirkju.
DV-myndir GVA
Veður var hlýtt og milt þegar Fran-
cesco Cossiga, forseti Italíu, kom
hingað til lands á laugardagsmorg-
un. Þota forsetans, sem er í eigu ít-
alska hersins, lenti nákvæmlega
klukkan ellefu á Reykjavíkurflug-
velh. Frú Vigdís Finnbogadóttir tók
á móti forsetanum og kynnti hann
fyrir ríkisstjórn íslands og embætt-
ismonnum. Með forsetanum kom
utanríkisráðherra Ítalíu, Gianni de
Michehs, og stór hópur ítalskra emb-
ættismanna. Þá biðu hérlendis fjöru-
tíu ítalskir blaða- og fréttamenn sem
fylgdust með heimsókninni.
Eftir stutta en virðulega athöfn á
flugvehinum, þar sem Lúðrasveit
Reykjavíkur lék þjóðsöngva land-
anna, var haldið að Hótel Sögu, þar
sem forsetinn bjó meðan á heimsókn
hans stóð, en síðan brunað th Bessa-
staða. Þar tók forseti íslands á móti
ítalska forsetanum og snæddu þeir
hádegisverð saman.
Vigdís bauð Cossiga upp á hangi-
kjötsveiju með rjómaosti í forrétt,
soðinn lax með appelsínusósu í aðal-
rétt og ávaxtaís á eftir. Vigdís færði
gestinum góðar gjaíir en þær voru
Islandskort frá árinu 1631, tvær bæk-
ur eftir Halldór Laxness, Sagan af
brauðinu dýra og Ungfrúin góða og
húsið. Forsetinn fékk einnig Lax-
dælu og Eghssögu, Eddas and Sagas
eftir Jónas Kristjánsson og Iceland
more than Sagas eftir ýmsa höfunda.
Meðan forsetamir snæddu saman
sátu utanríkisráðherrar landanna að
svoköhuðum vinnuhádegisverði á
Hótel Sögu.
Cossiga sæmdur heiðurs-
doktorsnafnbót
Að loknum blaðamannafundi skoð-
uðu Cossiga og fylgdarmenn gömul
handrit í Arnastofnun. Að því loknu
var haldið í Háskólabíó þar sem lagá-
áeild Háskóla íslands sæmdi Ítalíu-
forseta heiðursdoktorsnafnbót. Sig-
mundur Guðbjarnason sagði við það
tækifæri að með því að veita forseta
Ítalíu heiðursdoktorsnafnbót sýndu
íslendingar ítölsku þjóðinni þakk-
læti sitt og virðingu. Arnljótur
Björnsson prófessor, forseti laga-
deildar, afhenti forsetanum doktors-
bréf.
Að lokinni athöfninni í Háskólabíói
heimsótti forsetinn Davíö Oddsson
borgarstjóra og frú Ástríði Thorar-
ensen í Höfða.
Glæsileg veisla Vigdísar
Á laugardagskvöld hélt forseti ís-
lands kvöldverðarboð í Súlnasal Hót-
el Sögu til heiðurs forseta Ítalíu.
Þangað var boöið tæplega tvö hundr-
uö manns. Á matseðli kvöldsins var
bleikjufrauð og reyktur lax, fram-
reitt með piparrótarsósu, rauð-
sprettuvafningur meö möndlum,
glóðuðum kryddjurtum og sítrónu-
sósu, lambakambur með bökuðu
Premier cru og Veuve Clicquot Brut.
"grænmeti og kartöflurós og súkku-
laðiborðar með expressórjóma og
angosturakúlum. Gestir dnikku með
þessum kræsingum Montagny Les
Chagnots 1987, Beaune du Chateau
Frú Vigdís Finnbogadóttir bauð
forsetann velkominn í sína fyrstu
heimsókn th íslands sem jafnframt
er fyrsta opinbera heimsókn ítalsks
þjóöhöfðingja hingað th lands. Vigdís
þakkaöi fyrir ánægjulega heimsókn
th Ítalíu fyrir íjórum árum. Vigdís
sagði að hún hefði komið til Ítalíu
ári eftir leiðtogafundinn í Reykjavík
en mikh umræða var um frið í heim-
inum á þeim tíma. Eins og ávaht í
ræðum sínum tengdi Vigdís land
gestsins við sögu íslands.
Snemma í gærmorgun hlýddi
Fransesco Cossiga messu í Landa-
kotskirkju hjá biskupi kaþólskra, dr.
Alfred Jolson. Að því loknu var hald-
ið th Þingvaha þar sem forsetarnir
gróðursettu tré í Vinaskógi við Kára-
staði. Forsetinn skoðaði minnisstein
í gróðurreitnum þar sem áletruðum
plötum hefur verið komið fyrir með
nöfnum þeirra þjóðhöfðingja sem
gróðursett hafa tré í Vinarskóginum.
Hugfanginn af
fegurð Þingvalla
Séra Heimir Steinsson tók á móti
forsetunum við útsýnisskífuna í gær
og var gengið að brún Almannagjár.
ítalski forsetinn var hugfanginn af
náttúrufeguröinni, enda var veðrið
afar hagstætt og mátti heyra fugla-
söng óma í morgunkyrrðinni. Loks
var ekið að litlu kirkjunni á Þingvöll-
um en þar inni dvöldu forsetarnir
um hálfa klukkustund. Francesco er
ny ög trúaður maður og þó Þingvalla-
kirkja sé ekki stór í sniðum og jafn-
vel örsmá miðað við kirkjur í heima-
landi hans varð hann yfir sig hrifinn.
Þegar forsetinn gekk út þustu að
honum ítölsku fréttamennirnir og
spurðu hann spjörunum úr. Forset-
inn gaf sér góðan tíma til að spjalla
við þá og talaöi meðal annars um
kommúnisma og kapítahsma og
minnti menn á orð páfa þegar hann
sagöi að menn þyrftu að vara sig á
hruni kommúnismans. Þá ræddi for-
setinn um náttúrufegurðina á íslandi
og að ítalir mættu margt læra af ís-
lendingum, m.a. ættu þeir að sjá
hversu streitulaust andrúmsloftið er
á íslandi. Einnig fannst forsetanum
hann hafa fengið innblástur í þessu
hreina lofti og fahega umhverfi.
Hádegisverður beið forsetans á
Hótel Holti sem forsætisráðherra-
hjónin buðu th en að honum loknum
hélt forsetinn að Hótel Sögu. Síöan
var ekið til Keflavíkur en forsetinn
hélt af landi brott um hálfiimm í
gærdag. Ferðinni var heitið til
Bandaríkjanna en þangað fer forset-
inn einnig í opinbera heimsókn.
-ELA
Ákveöiö aö opna ítalskt sendiráö á íslandi:
Stóraukið samstarf þjóðanna
„Þaö hefur verið ákveðið að opna
ítalskt sendiráö á íslandi,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra á blaöamannafundi á laugar-
dag. ísland er eina landið í Evrópu
sem ekki hefur ítalskt söndiráð. Meö
Jóni Baldvin á fundinum voru for-
seti Ítalíu, Francesco Cossiga, og ít-
alski utanríkisráðherrann, Gianni
de Michehs. Utanríkisráðherrar
landanna höfðu áður rætt saman og
kom meðal annars fram á þeim fundi
að þjóðimar tvær myndu stórauka
samstarf sitt á sviöi umhverfismála,
menningar og vísinda.
Á blaðamannafundinum lýsti
Michehs yfir stuðningi við íslend-
Francesco Cossiga, íorseti Ítalíu.
DV-mynd GVA
inga í viðræðum um evrópskt efna-
hagssvæði um sjávarútvegsmál. Á
fundi með Jóni Baldvin hafði ítalski
utanríkisráðherrann einnig lýst yfir
stuðningi við ísland. Þaö sama gerði
Mitterrand Frakklandsforseti er
hann var hér fyrir skömmu. Bæði
Ítalía og Frakkland eru atkvæðamik-
il í Evrópubandalaginu. Stuðningur
frá þeim þjóðum e'r því mikilvægur
fyrir íslendinga. Samningum um
evrópskt efnahagssvæöi munu þó
ekki ljúka fyrr en í haust. ítalski ut-
anríkisráðherrann taldi mjög mikh-
vægt að ágreiningsefni í samningum
EFTA og EB leystust með einhvers
konar málamiðlunum.
Cossiga sagði á fundinum að Evr-
ópubandalagið væri opið öhum sem
sæktu um aðild og hann vildi gjarnan
sjá íslendinga meðal þjóða í banda-
laginu. Utanríkisráðherra Ítalíu og
Jón Baldvin eru vel kunnugir þar
sem þeir tveir hafa setið á fundum í
Brussel. Vegna stafrófsraðar eru ráð-
herrar landanna sessunautar.
Áður en blaöamannafundurinn
hófst var óskað eftir aö spurningar
blaðamanna, sérstaklega ítalskra,
væru um ísland en ekki innanríkis-
pólitík á Ítalíu. Forsetinn hefur aö
undanfomu átt erfitt vegna stööugra
hneykslismála er tengjast honum.
-ELA
Sigmundur Guðbjarnason háskóla-
rektor ásamt ítalska forsetanum
sem fékk heiðursdoktorsnafnbót hjá
lagadeild.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
innlAn Overðtr.
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6 mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar.alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar 4,5-5 Lb
VÍSITÖLUB. REIKN.
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Nema Ib
15-24mán. 6-6,5 Ib.Sp
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisb. reikningar í SDR6,8-8 Lb
Gengisb. reikningar í ECU 8.1 -9 Lb
ÖBUNDNIR SÉRKJARAR.
Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir
överðtr. kjör, hreyfðir 10,25-10,5 Nema íb
BUNDNIR SKIPTIKJARAR.
Vísitölubundin kjör 5,25-5,75 Bb
óverötr. kjör 12,25-13 Bb
INNL. GJALDEYRISR.
Bandaríkjadalir 5-5,25 Bb
Sterlingspund 11-11,1 SP
Vestur-þýsk mörk 7,75-7,8 Sp
Danskarkrónur 8-8,6 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLÁN ÓVERÐTR.
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25-15,75 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) ÚTLAN VERÐTR. 18,75-19 Bb
7.75-8.25
AFURÐALÁN
Isl.krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 9.75-9.9 Nema Sp
Bandarikjadalir 8-8,5 Lb
Sterlingspund 14-14,25 Lb
Vestur-þýsk mörk 10.75-10,8 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. apríl 91 15,5
Verðtr. apríl 91 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala maí 3070 stig
Lánskjaravísitala apríl 3035 stig
Byggingavísitala maí 581,1 stig
Byggingavísitala maí 181,6 stig
Framfærsluvísitala apríl 151 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun . apríl
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5.560
Einingabréf 2 2,998
Einingabréf 3 3,646
Skammtímabréf 1,861
Kjarabréf 5,462
Markbréf 2,918
Tekjubréf 2,094
Skyndibréf 1,623
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,668
Sjóðsbréf 2 1,866
Sjóðsbréf 3 1.848
Sjóðsbréf 4 1,605
Sjóðsbréf 5 1,114
Vaxtarbréf 1,8852
Valbréf 1,7613
Islandsbréf 1.158
Fjórðungsbréf 1.087
Þingbréf 1,157
Öndvegisbréf 1,144
Sýslubréf 1.168
Reiðubréf 1.130
Heimsbréf 1.063
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6.10 6,40
Eimskip 5,45 5,67
Flugleiöir 2,30 2,39
Hampiðjan 1.72
Hlutabréfasjóðurinn 1,58
Eignfél. Iðnaðarb. 2,32
Eignfél. Alþýðub. 1,62 1,70
Skagstrendingur hf. 3,86
Islandsbanki hf. 1,55
Eignfél. Verslb. 1.73
Olíufélagið hf. 5,45 5,70
Grandi hf. 2,45 2,55
Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05
Skeljungur hf. 5.77
Ármannsfell hf. 2,35
Fjárfestingarfélagið 1,35
Útgerðarfélag Ak. 4,20
Olís 2,15
Hlutabréfasjóður VlB 1,00 1,05
Almenni hlutabréfasj. 1.05
Auðlindarbréf 0,995 1,047 1.11
Islenski hlutabréfasj. 1,06
Síldarvinnslan, Neskaup. 2.52 2,65
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb = íslandsbanki Lb = Landsbankinn!
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.