Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Blaðsíða 36
 F R ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar»Ásk rift - Dreifing: Simi 27022 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1991. r * i i Ríkið hækkár vexti í dag ■ Vextir af ríkisvíxlum hækka í dag úr 11 prósent forvöxtum í 14,5 pró- sent forvexti á 60 daga víxlum. Friö- rik Sophusson íjármálaráðherra sagði í morgun að þótt vextir af spári- skírteinum ríkissjóðs hækkuðu ekki í dag væri augljóst að vextir af spari- skírteinum ættu eftir að hækka á næstunni. „Spariskírteinin eru ekki sam- keppnishæf vegna þess að markað- urinn heimtar meiri ávöxtunar- kröfu,“ segir Friðrik. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, sagði í morgun að hann hti svo á að vextir mundu hækka 11. maí. „Ég vil ekkert full- yrða en það er mín trú að vextir þok- ist verulega upp á næstunni.“ -JGH Yfirdrátturinn: Of snemmtað segja til um framhaldið - segir Friörik Sophusson „Á næstunni mun ég beita mér fyr- ir því að draga úr yfirdrætti ríkis- sjóðs hjá Seðlabankanum með inn- lendum lántökum. Yfirdrátturinn er hættulega mikiil og er í raun mjög stórt efnahagslegt vandamál. Það er hins vegar of snemmt að segja til um framhaldið," sagði Friörik Sophus- son fjármálaráðherra um hvort hann væri samþykkur því að dregið verði úr heimildum ríkissjóðs til yflrdrátt- ar hjá Seðlabankanum. Friðrik segir að í lok mars hafi yfir- dráttur ríkissjóðs hjá Seðlabankan- um numið 8,3 milljörðum. -kaa Nína fimmtánda _l^ Ægir Már Kárason, DV, Keflavik; „Ég er ánægður með frammistöðu íslenska hðsins, þetta var frábær hópur. En ég er mjög svekktur út í ríkissjónvarpið og ef íslendingar ætla að reyna að vinna þessa keppni þarf að laga margt,“ sagði Eyjólfur Kristjánsson, höfundur og annar flytjandi íslenska lagsins, Nínu, við heimkomuna frá Ítalíu eftir Euro- vision-keppnina. Nína lenti í 15. sæti. „Frammistaöa ítalanna var hka léleg, sérstaklega hvernig þeir stóðu að gistimálum. Við vorum látin vera á gistiheiniih sem var langt í burtu frá Sheratonhótehnu þar sem 14 þjóðir gistu og aht var að gerast. Hins vegar ætla ég ekki að láta þetta á mig fá og ég ætla að vera með í keppninni á næsta ári,“ sagði Eyj- ólfur. LOKI Já, fimmtánda sætiö er öllum öðrum að kenna en höfundinum! Jóhann Bogi Guömundsson sjómaður sem lenti i villu um helgina. DV-mynd S Hræddur um að ég hafi dottað - segir Jóhann Bogi Guðmundsson á Evu ÍS111 „Þar sem mér þykir ekkert verra en að fá ekki fisk ákvað ég að fara heim, leggja að bryggju í Garði og spyijast fyrir um hvar helst væri að fá fisk. Þar var mér tekið elskulega og þaðan hélt ég út fyrir Reykja- nesið. Þegar ég var orðinn sökkulaus ákvað ég að halda heim á leið. Þetta var seinnipartinn á laugar- daginn. Það var mikh þoka og bátur- inn mjakaðist rólega áfram í logninu en ég er hræddur um að ég hafi að- eins dottað, enda hafði ég varla sofið í tvo sólarhringa - allavega vissi ég ekki af mér fyrr en ég var kominn á ókunnar slóðir og hafði í raun ekki hugmynd um hvar ég var. Þokan var þykk og ég sá að ég var umlukinn skerjum. Eg ákvaö þá að senda út neyðarkall. Þegar ég hafði keyrt upp að strönd- inni var ég engu nær um hvar ég var. Þegar þeir komu frá Slysavarna- félaginu og sögðu mér að ég væri í Borgarfirði varð ég að sjálfsögðu al- veg steinhissa,“ sagði Jóhann Bogi Guömundsson, sjómaöur á trillunni Veðriðámorgun: Hlýnandi veður Vaxandi suðaustanátt og rign- ing suðvestan til á landinu en hæg breytileg átt og léttskýjað um landið norðanvert. Hlýnandi veður og verður hiti á bilinu 5-8 stig. Evu IS 111, við DV. Jóhann lenti í hrakningum á hættulegri siglingaleið í Borgarfirði. Þá taldi hann sig vera í Hvalfirði. Slysavarnafélag íslands fékk til- kynningu um klukkan átta á laugar- dagskvöldið frá sjómanni sem væri einn á báti vihtur einhvers staöar í Faxaflóa. Bátarnir Jón E. Bergsveinsson og Henry A. Hálfdansson fóru til leitar. Fljótlega var ljóst að neyðarkahið kom einhvers staðar úr Borgarfirð- inum. Þremur oghálfum klukkutíma seinna var búið að fmna bátinn þar sem hann var í skerjaklasa sem er hættulegur öllum skipum og aldrei er siglt um. Var bátnum fylgt til Reykjavíkur og gekk hann fyrst fyrir eigin vélarafh en þegar háífnuð var leiöin til Reykjavíkur varð Eva olíu- laus og þurfti þá að draga bátinn það sem eftir var leiðar. Komið var til hafnar á fjórða tímanum aðfaranótt sunnudagsins. -HK NEYÐARHNAPPUR FRA VARA fyrir heimabúandi sjúklinga og aldra^ða I f)91>29399 IIIMMM Alhliða IIRw öryggisþjónusta VARI síðan 1 969 i i i i i i i i i i i Mannbjörg er nýr vélbátur, Gummi 1 Nesi, sökk 1 nótt: Varð að kaf a út um dyr stýrishússins Reynir Traustasan, DV, Flateyii: „Eg var sofandi og vaknaði svo að segja við bleytuna. Þegar félagi minn kom að ræsa mig var bátur- inn kominn á hliðina. Þetta gerðist svo snöggt. Ég hugsaði fyrst af öllu um að kalla á hjálp. Sjórinn var kominn alveg að stýrishúsinu og báturinn stóð hreinlega upp á end- ann meðan ég var þar inni í loft- rúminu að ná sambandi. Til að komast út aftur varð ég sfðan að kafa út um dymar. Okkur var bjargað eftir um tíu mínútur en hálftíma síðar sökk báturinn," sagöi Sigurður H. Garðarsson, eig- andi Gumma í Nesi, í samtali við DV í morgun. Mannbjörg varð þegar vélbátur- inn Gummi í Nesi IS 59 sökk um 5 sjómílur út af Barða á Vestfjörðum um tvöleytið í nótt. Báturinn, sem er nýr, frambyggður plastbátur, um 6 rúmlestir að stærð, var að koma úr hnuróðri þegar hann fyllt- ist af sjó og sökk á skömmum tíma. Tveir menn voru á Gumma í Nesi, Sigurður og félagi hans. „Ég vissi strax hvar báturinn var og sá fljótt hvar hann maraði i hálfu kafi. Ég sá mann aftur á og uppblásinn gúmbjörgunarbátinn í sjónum. Maðurinn aftan á var ekki í flotgalla en ég vissi ekkert um hinn manninn. Á leiðinni að bátn- um þorði ég ekki annað en að fara ipjög varlega þar sem mikið brak var í sjónum í kring. Fljótlega sá ég mennina þó koma sér upp í gúm- björgunarbátinn. Renndum við þá strax upp að honum og náðum mönnunum um borð,“ sagði Kol- beinn Njálsson, skipstjóri á Hafdísí ÍS, í samtali við DV í morgun. Hafdis var á leiðinni i róður skammt fi-á slysstaðnum þegar hjálparbeiöni barst frá Gumma í Nesí. Kolbeinn sagði að þeir hefðu reyndar ekki verið langt frá bátn- um þegar hann sá að báturinn var orðinn óeðhlega siginn. Um 15 mín- útur liðu frá því hjálparbeiðni barst og þar til mönnunum haföi verið bjargað. Fleiri báta bar að enda margir á leið til veiöa í nótt. Hafdís hélt strax með mennina tvo, sem voru nokkuð þrekaðir, til Flat- eyrar þar sem skýrsla var tekin af þeimímorgun. -hlh Ætlaði til Reykjavikur en áttaði sig 1 Borgarfirði:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.