Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1991. Mertning Myndgáta Pennavinir í gærkvöldi var fyrri sýningin af tveimur á dönskum gestaleik í Borgarleikhúsinu. Hann kemur frá Betty Nansen leikhúsinu í Kaupmannahöfn og viöfangsefnið er tiltölulega nýtt bandarískt leikrit, Loveletters, eða Kærestebreve, eins og það nefnist í dönsku þýðing- unni. Leikendurnir eru ekki af verri endanum. Alhr sem kynnst hafa dönsku leikhúsi þekkja þau Ebbe Rode og Bodil Kjær, en þau teljast bæöi meðal fremstu leik- ara í Danmörku og hafa farið með ótal eftirminnileg hlutverk í gegnum árin. í Kærestebreve leika þau hlutverk Andys og Melissu sem skrifast á allt frá bamsaldri og svo lengi sem bæði lifa. Verkið spannar þannig sögu heillar kynslóð- ar, fyrir utan það að vera persónusaga tveggja ein- staklinga, „anda, sem unnast...“ en er þó ekki skapað nema skilja. Kærestebreve er eins og fyrr sagði nýlegt leikrit. Það var frumsýnt í Bandaríkjunum í nóvember 1988 og í Danmörku ári síðar með sömu leikurunum, sem heim- sækja okkur nú. Sjálft leikritið er í léttum dúr og ristir ekki ýkja djúpt þó að höfundur leitist við að sýna ólíka skapgerð, þjóð- félagsstöðu og viðhorf þeirra Andys og Melissu sem lýsa út úr bréfaskiptum þeirra. Andy er lokaður og jarðbundinn og leggur hart að sér á framabrautinni, en Melissa er hins vegar íjörug og listræn og þarf ekki að hafa áhyggjur af framfærslunni. í gegnum sögu þeirra gægist fram svolítil þjóðfé- lagsádeUa og gagnrýni á lífsgæðakapphlaupið, þó að höfundur fari ekki mikinn í þeim sökum. Margt af því sem sagt er í verkinu er dálítið klisjukennt og fram- vindan samkvæmt formúlu sjónvarpsmynda. Eigin- lega er þetta alveg upplagt verk til þess að gera eftir því mynd fyrir sjónvarp. Uppsetningin er einfóld. Leikendurnir sitja hvort við sitt borð á sviðinu og lesa til skiptis upp úr bréfunum sem smám saman segja alla ævisögu þeirra Andys og Melissu. Það er bara verst að áhorfendur eru búnir að sjá sögu þeirra skötuhjúanna fyrir strax á ungl- ingsárum þeirra en sjálf eru þau ótrúlega sein að fatta að þarna er á ferðinni hin eina sanna ást. Og þvi fer sem fer. Eðli málsins samkvæmt byggist túlkun leikendanna fyrst og fremst á framsögninni og áhorfendur þurfa þar með að vera nokkuð vel færir í að skilja máhð. Gamansemin í textanum er spiluð upp en minna gert úr dapurlegri hliðum málsins. í fyrri hluta verksins eru þau Andy og Melissa ung að árum og bréfaskiptin snúast mest um skólagöngu, smáskot og sífellt flakk á mihi staða. Þessi hluti er Bodil Kjær og Ebbe Rode hafa lengi verið í fremstu röð leikara i Danmörku. DV-mynd GVA Leildist Auður Eydal dálítið langdreginn, en glettinn flutningur leikendanna bætir það upp. Bæði hafa fullt vald á því að sýna breyt- inguna sem verður á persónunum í áranna rás þó að Bodil Kjær hafi úr meiru að spila þar sem hlutverk Mehssu er opnara og þakklátara. Mehssa er fjörkálfur sem segir meiningu sína fuhum hálsi fram í rauðan dauðann. Andy tekur ekki eins miklum breytingum. Á ytra borðinu haggast hann lítið og Ebbe Rode vinnur örugg- lega úr hlutverkinu þó að túlkun hans í seinni hluta verksins næði mestri dýpt. í kvöld verður síðari sýningin á Kærestebreve í Borg- arleikhúsinu og þar með síðustu forvöð að sjá þessa ágætu hstamenn að sinni. Danskur gestaleikur i Borgarleikhúsinu (stóra sviö): KÆRESTEBREVE (Loveletters) Höfundur: A.R. Gurney Lelkstjóri: Morten Grunwald Þýðing: Jesper Kjær Ljós: John Aage Sörensen Andlát Björn Kristinn Kjartansson, Skipa- sundi 88, lést á Landakotsspítala fóstudaginn 3. maí. Ásdís Þórkatla Magnúsdóttir, Hörgatúni 7, Garöabæ, andaðist á heimih sínu að morgni fimmtudags- ins 2. maí. Herdís Magnúsdóttir, Reynimel 50, lést í Landakotsspítala fimmtudag- inn 2. mai. Gísli Ólafsson húsvörður, Hamrahlíð 17, andaðist á heimili sínu 2. maí. Margrét Sigurðardóttir frá Torf- garði, til heimilis í Lönguhlíö 3, Reykjavík, andaðist að kvöldi sunnu- dagsins 28. apríl á lyflækningadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Sigurbjörn Leifur Bjarnason, Jökla- seh 13, lést af slysfórum í Englandi aðfaranótt 2. maí. Guðbjörg Gróa Magnúsdóttir frá Fossi við Seyðisíjörð, áður til heimil- is á Langholtsvegi 10, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Reykjavík, 3. maí. Jarðarfarir Útfór Þórðar Kr. Jónssonar frá Hvammi í Dýrafirði fer fram frá Fossvogskirkju að ósk hins látna miðvikudaginn 8. maí kl. 15. Eyjólfur Vilmundsson, frá Löndum, Grindavík, Þórustíg 26, Njarðvík, lést á Landspítalanum 30. apríl. Jarðar- fórin fer fram frá Ytri-Njarðvíkur- kirkju föstudaginn 10. maí kl. 14. Ingunn Einarsdóttir, Lönguhlíð 9, verður jarðsungin frá Fossvogskap- ellu þriðjudaginn 7. maí kl. 13.30. Gislina Sæmundsdóttir, Gunnars- sundi 8, Hafnarfirði, sem lést 25. apríl sl., verður jarðsungin frá Hafnar- íjarðarkirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 13.30. Jóhann M. Kjartansson verslunar- maður, Hólmgarði 15, verður jarð- t Elskuleg sambýliskona min, móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma Þuríður Kristjánsdóttir Strandaseli 9 verður jarösungin (rá Fossvogskirkju þriðjudaginn, 7. maíkl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð. Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir um að láta Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess. Kristinn Jónsson Bragi Gunnarsson Sveinn Þröstur Gunnarsson Hjörtur Þ. Gunnarsson Kristján I. Gunnarsson Jóhann V. Gunnarsson Svanhildur H. Gunnarsdóttir Hrafnhildur Gunnarsdóttir Gunnar Þ. Gunnarsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn sunginn frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 7. maí kl. 13.30. Hartwig Toft, fyrrverandi kaup- maður, Baldursgötu 39, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 7. maí kl. 10.30. Þuríður Kristjánsdóttir, Strandaseli, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 15. Gísli Björnsson lögreglufulltrúi, Framnesvegi 61, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 15. Jón Anton Ingibergsson járnsmiður, Kleppsvegi 120, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju í dag, 6. maí, kl. 13.30. Lárus Jónatansson vélvirki verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 6. maí, kl. 13.30. Margrét Theodóra Gunnarsdóttir, Reykjahlíð 12, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 6. maí, kl. 15. Tilkyimingar Silfurlínan, þjónustu- sími aldraðra er tekin til starfa. Silfurlínan er opin alla mánudaga frá kl. 17-20. Sími 616262. Hringiö ef ykkur liggur eitthvað á hjarta. Að Silfurlínunni standa Rauði krossinn, Soroptimistar, Bandalag kvenna í Reykjavík og Félag eldri borgara. (/) 5Z + /ðá = -EVÞOR— Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Lausn gátu nr. 20: Einsdæmi. Kvenfélag Háteigssóknar Munið félagsfundinn þriðjudaginn 7. maí kl. 20.30 á lofti kirkjunnar. Rætt verður um sumarferðalagið. Kaffiveitingar. Kvenfélag Fríkirkjunnar I Reykjavík Síðasti fundur vetrarins verður haldinn í kvöld, 6. maí, kl. 20.30 í safnaöarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14. Spilað verður bingó. Kvenfélag Seljasóknar Félagsfundur verður þriðjudaginn 7. maí kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg fundarstörf - tískusýning. Hin ósýnilega hönd heildsalans Hagræðingarnefnd Félags íslenskra stór- kaupmanna efnir til umræðufundar þriðjudaignn 7. maí nk. í Hallargarðinum í Húsi verslunarinnar og hefst hann kl. 12 með hádegisverði. Gestur fundarins verður Hannes Hólmsteinn Gissurarson, lektor við Háskóla íslands, og mun hann flytja erindi er nefnist: „Hin ósýnilega hönd heildsalans". Hallargarðurinn býð- ur upp á léttan hádegisverð, súpu og fisk- rétt. Verð kr. 1.500. Vinsamlegast til- kynniö þátttöku í síma 678910. Freemans I nýtt húsnæði Laugardaginn 20. apríl sl. opnaði pöntun- ar- og verslunarfyrirtækiö Freemans nýja og betri verslun á 300 fermetrum í húsnæði sínu að Bæjarhrauni í Hafnar- firði. Verslunin hefur á boðstólum mikiö úrval af fatnaði á alla Qölskylduna. Meö stækkun húsnæðisins hefur vöruúrval verið aukið mikið og nýjar vörur eru teknar upp vikulega. Komið hefur veriö fyrir góðri aðstöðu fyrir þá viðskiptavini sem vilja setjast niður og skoða úrvalið og panta úr þeim vörulistum sem fyrir- tækið gefur út, en þeir innihalda geysi- legt úrval af fatnaði eða um 6000 mismun- andi tegundir. Afgreiðslutími pantana er mjög stuttur og fá viöskiptavinir vörur, sem pantaðar eru, aö jafnaði á um 14 dögum. Verslunin er opin virka daga kl. 9-18 og á laugardögum kl. 10-14. Á mynd- inni eru starfsmenn Freemans. Tónleikar Einleikaraprófstónleikar Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur þrenna einleikaraprófstónleika í ís- lensku óperunni. Fyrri tónleikarnir verða í kvöld, 6. maí, kl. 20.30. Þá leika Sigurbjöm Bernharðsson fiðluleikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleik- ari verk eftir A. Dvorák, J.S. Bach, H. Wieniáwski og L. van Beethoven, D. Sjos- takovitsj og Fr. Chopin. Þriðju tónleik- arnir verða miðvikudaginn 8. maí kl. 20.30. Unnur Vilhelmsdóttir píanóleikari leikur verk eftir J.S. Bach, L. van Beetho- ven, C. Debussy og R. Schumann. Tón- leikarnir eru síðari hluti einleikaraprófa Sigurbjarnar, Aðalheiðar og Unnar frá skólanum. Aðgangur er ókeypis. Djassfólk framtíðarinnar Tónlistarskóli FÍH stendur fyrir tónleik- um á Púlsinum, Vitastíg 3, þriðjudags- kvöldið 7. mai kl. 22. Þar koma fram 5 djasshljómsveitir skólans sem starfað hafa í vetur undir leiðsögn Tómasar R. Einarssonar, Sigurðar Flosasonar, Ed- wards Fredriksen og Stefáns Hjörleifs- sonar. Margir efnilegir djassspilarar koma fram á tónleikunum en aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan hús- rúm leyfir. Vortónleikar I Tónlistarskóla FÍH Tónlistarskóli FÍH heldur þrenna tón- leika á næstu dögum í tilefni af lokun 11. starfsárs skólans. Vortónleikar skólans verða háldnir laugardaginn 11. maí. Kl. 13.30 verða tónleikar sígildrar brautar, Að þeim loknum verður tónleikagestum boöið upp á kaffi og meðlæti, en kl. 15 verða tónleikar djass- og poppbrautar. í kvöld, 6. maí, kl. 21 verða útskriftatón- leikar Eðvarðs Lárussonar gítarleikara, en hann er 6. nemandinn sem útskrifast frá Tónlistarskóla FÍH. Eðvarð útskrifast af djassbraut. Efnisskrá tónleikanna samanstendur af nýjum og gömlum djassverkum auk eigin verka Eðvarðs. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill að tónleikunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.