Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1991, Side 19
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1991.
Menning
Málverk mín eru
unnin úr íslensk-
um efnivið
- seglr Haukur Dor, sem er í heimsókn í tilefni sýningar sinnar
í Gallerí Borg stendur nú yfir sýning á málverkum
eftir Hauk Dór, en hann hefur búiö erlendis um margra
ára skeið. Hann býr nú í Danmörku nánar tiltekiö í
bænum Farum sem er rétt fyrir utan Kaupmannahöfn
En áður hefur hann búið í Bandaríkjunum og á Spáni.
Þegar Haukur Dór flutti frá íslandi var hann aðal-
lega þekktur fyrir keramikverk sín, og fyrst vann
hann aðallega við keramik erlendis en málaði einnig.
Nokkur ár eru liðin síðan hann söðlaði alveg yfir í
málaralistina og hefur hann haldið sýningar á mál-
verkum sínum hér heima, í Danmörku og í Þýska-
landi. í tilefni af opnun sýningar sinnar í Gallerí Borg
er Haukur Dór í heimsókn hér á landi og var hann
spurður hvemær hann hélt síðast sýningu hér heima.
„Ég hélt stóra sýningu á Kjarvalsstöðum fyrir tveim-
ur árum, en hef síðan haft sýningar í Danmörku og
síðast í Arósum í janúar.
Þótt Haukur Dór búi ekki á íslandi bera verk hans
það með sér að ísland er honum kært og sækir hann
allan efnivið til íslands: „Mitt mottó er að öll mín
málverk séu unnin upp úr íslenskum efnivið," segir
Haukur Dór. „Ég bý ekki á íslandi og hef þá að að
sjálfsögðu ekki landið fyrir framan mig þegar ég er
að mála heldur vinn ég eftir minni og mála svo mínar
útfærslur á þeim minningum."
í umsögn Aðalsteins Ingólfssonar um verk Hauks
Dórs í sýningarskrá segir eitthvað á þessa leið: „í dag
eru málverk Hauks Dórs öðruvísi en áður, minna er
um innri baráttu einstaklingsins, en meira um sam-
band nútíma íslendings við gróía náttúru og dulúð
landsins. Út úr ókyrru landslagi málverka hans rísa
lifandi verur sem eru bæði einstaklega mannlegar og
gróflega ómannlegar. Á þróunarferli málverksins,
finnur Haukur Dór lausn á árekstri ólíkra frumefna
og sýnir okkur jafnvægi milli manns, dulúðar og frum-
legs landslags."
Myndir Hauks Dórs á sýningu hans í Gallerí Borg
Haukur Dór listmálari við eitt málverk sitt sem hann
nefnir Þing.
DV-mynd Brynjar Gauti.
eru allar málaðar á síðustu tveimur árum og eru mis-
stórar. Stærstu myndirnar eru 200x180 cm en þær
minnstueru 56x76 cm. -HK
0HITACHI |f
RÖNNING
...alveg Benz myndbandstœki! VTM 728
FAGURGRÆN - VATNSÞOUN
Henta á svalir - verandir og til útstíllinga.
Hagstætt verð! Breidd 200 cm og 400 cm
4 TEGUNDIR
Tennís velúr (2 og 4 m) kr. 790,-
Tennís velúr T (2 og 4 m) kr. 890,-
Grass Green (2 m) kr. 985,-
Pavitex-Luxus (2 m) kr. 1.590,-
Við sníðum eftir þínu máli.
Opið laugardaga kl. 10-14.
TEPPABCDIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950
Kjartan leikstýrir
eigin verki í Þjóð-
leikhúsinu
Hafnar eru í Þjóðleikhúsinu æfing-
ar á nýju leikriti, Gleðispili, eftir
Kjartan Ragnarsson og mun hann
leikstýra verkinu sjálfur. Er þetta
fyrsta leiksýningin sem Stefán Bald-
ursson, nýráðinn þjóðleikhússtjóri
mun hafa veg og vanda af. Þá er
þetta einnig í fyrsta skiptið sem
Kjartan leikstýrir í Þjóðleikhúsinu.
Á þriðja tug leikara tekur þátt í sýn-
ingunni en með helstu hlutverk fara
Sigurður Siguijónsson, Örn Ámason
og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Nú standa yfir í Borgarleikhúsinu
sýningar á Dampskipinu ísland eftir
Kjartan en það samdi hann fyrir
Nemendaleikhúsið. Það er því
skammt á milli stórra verkefna hjá
Kjartani. Eins og í Dampskipinu er
Kjartan í söguskoðun í Gleðispilinu.
Leikritið gerist í Kaupmannahöfn,
París og á íslandi á 18. öld. Aðalper-
sónan er Sigurður Pétursson, sýslu-
maður og leikskáld, en vinur hans
og verndari, Geir Vídalín, leikskáld
og síðar biskup, hefur einnig miklu
hlutverki að gegna. Upplýsingin er á
næsta leiti, nýjar hugmyndir eru að
festa rætur og evrópski aðallinn er
að missa tökin. Sigurður verður sem
ungur námsmaður fyrir sterkum
áhrifum af hugmyndaólgunni en
réttlætiskennd hans á enga samleið
með dönsku yfirvaldi þótt hann sé
umboðsmaður þess. Áætlaö er að
hefja sýningar á Gleðispili í lok sept-
ember.
Sýnir í
Stokk-
hólmi
Niðurstaða landkönnunar nefnist
málverkasýning sem verður opnuð í
Gallery Westlund í Stokkhólmi. Það
er Daníel Magnússon sem sýnir verk
sín á þessari sýningu. Daníel vinnur
verk í handteipað eldhúsfílabein, tré
og akríl með blandaðri tækni. Verkin
á sýningu Daníels eru öll unnin á
þessu ári.
0
Daníel Magnússon myndlistarmað
ur.
F0RELDRAR
ÁRA
KJ ARiyff H,J V(),
STvNGVM
Á sjöunda starfsári okkar bjóðum við upp á fjölbreytta og vandaða
dagskrá undir stjórn reyndra leiðbeinenda: Reiðnámskeið, íþróttir,
leiki, sveitastörf, siglingar, sund, kvöldvökur o.fl.
s
I tilefni þjóðarsáttar höldum við verðinu óbreyttu frá því í fyrra:
1 vika kr. 15.800, 2 vikur kr. 29.800.
Staðfestingargjald fyrir 1 viku kr. 5.800, fyrir 2 vikur kr. 9.800.
Systkinaafsláttur: 1 vika kr. 1.200, 2 vikur kr. 2.400.
2. júní - 8. júní, 1 vika
9. júní- 15. júní, 1 vika
16. júní - 22. júní, 1 vika
23. júní - 29. júní, 1-2 vikur
29. júní - 6. júlí, 1 vika
7. júlí - 13. júlí, 1 vika
TIMABIL:
14. júlí - 20. júlí, 1 vika
21. júlí - 27. júlí, 1-2 vikur
27. júlí - 2. ágúst, 1 vika
5. ágúst - 11. ágúst, 1 vika
11. ágúst - 17. ágúst, 1 vika
Innritun fer fram á skrifstofu SH.Verktaka, Stapahrauni 4, Hafnarfirði.
Samkort
SÍMI 65 22 21