Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991.
3
Fréttir
Leikskólar Reykjavíkurborgar:
Breytingar á sumar-
leyf unum til umræðu
„Besta lausnin væri auðvitaö sú
að starfsfólk og foreldrar barna á
leikskólunum veldu sér sumarleyfis-
tíma með lengri fyrirvara en nú tíðk-
ast. Þá væri hægt að stýra því þann-
ig að hluti starfsfólks og foreldra
færi í frí á sama tíma. Meö þessu
móti yrði aðeins dregið úr starfsem-
inni en ekki kæmi til lokunar leik-
skólanna eins og nú tíðkast. Breyt-
ingar á fyrirkomulagi sumarleyfa
eru raunar alltaf til umræðu en ég
get engu lofað um niðurstöður,"
sagði Bergur Felixson, forstöðumað-
ur dagvistunar Reykjavikurborgar.
Nú fer senn að líða að því að leik-
skólum borgarinnar verði lokað
hverjum á fætur öðrum vegna sum-
arleyfa starfsfólks. Flestir eru þeir
lokaðir um fjögurra vikna skeið. í
tveim tilvikum varir þó lokunin í
fimm vikur. Ástæðan er sú að verið
er að gera gagngerar endurbætur á
húsnæðinu.
Bergur var spurður að því hvort
ekki væri unnt að fá skólafólk í
afleysingar til þess að ekki þyrfti að
koma til lokunar. Hann sagði að sú
leið hefði verið athuguð en þætti ekki
fær.
„Börnin þurfa umönnun starfs-
fólks sem þau þekkja og hafa vanist.
Áreiðanlega myndi skólafólk rekast
ágætlega með góðri verkstjórn en
það dugir bara ekki til. Okkur myndi
hugnast hin leiðin, það er að dreifa
sumarleyfum starfsfólk betur. Það
yrði að vísu aðeins dýrara fyrir borg-
ina en við myndum taka því fagn-
andi ef það tækist. Hins vegar myndu
þær öru breytingar á starfsmanna-
haldi, sem við þurfum alltaf að glíma
við, gera okkur erfitt fyrir.
Það má svo sem segja að við séum
að ráðskast svolítiö með sumarleyfis-
tíma þeirra foreldra sem eiga börm
hjá okkur þegar leikskólunum er
lokað eins og nú tíðkast. En ég vil
benda á að það er ætlast til þess aö
börnin fái hvíld frá leikskólunum að
minnsta kosti einn mánuð á ári og
séu þá heima hjá foreldrum. Húsin
þurfa einnig að fá sinn hvíldartíma
því að hann er notaður til þess að
mála og dytta að því sem aflaga hefur
fariö. Það er því margt sem þarf að
athuga áður en farið er að blása til
gagngerðra breytinga á sumarleyf-
um starfsfólksins."
-JSS
Nýr samningur milli Noröurlandanna:
Jaf n námsréttur í öllum löndunum
Á næstunni gengur í gildi samn-
ingur milli Norðurlandanna sem
veitir framhaldsskólanemum rétt til
þess að stunda nám í hverju land-
anna sem er. Tekur þessi samningur
til framhaldsskólanáms, svo og
starfsmenntunar. Þetta þýðir til
dæmis að íslendingar skuldbinda sig
til þess aö veita framhaldsskólanem-
um annars staöar á Norðurlöndun-
um aðgang að öllum framhaldsskól-
um hér með sömu skilyrðum og væri
um íslenska ríkisborgara að ræða,
án sérstakrar greiðslu fyrir náms-
vistina. íslenskir framhaldsskóla-
nemar njóta að sjálfsögðu sömu rétt-
inda annars staðar á Norðurlöndun-
um.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra sagði að norræna ráðherra-
nefndin hefði lagt tillögu þessa efnis
fyrir þing Norðurlandaráðs sem
haldið var í Kaupmannahöfn í vetur.
Þar hefði hún verið samþykkt. Ráð-
herranefndin hefði síðan heimilað
staöfestingu á fundi sínum þann 13.
maí sl. Finnski menntamálaráðherr-
ann væri formaður nefndarinnar og
myndi hann væntanlega undirrita
samninginn fyrstur. Síðan myndu
sendiherrar viðkomandi ríkja undir-
rita hann. Tæki hann gildi 30 dögum
eftir að fulltrúar allra ríkjanna hefðu
undirritað.
„Mér er ekki kunnugt um hvar
þetta mál er nákvæmlega statt
núna,“ sagði Ólafur, „en ég veit að
það er unnið að staðfestingu þess.
Þetta er talsvert merkilegur samn-
ingur að mínu mati.“
Þau lönd, sem aðilar eru að þessum
samningi, eru: ísland, Noregur, Dan-
mörk, Svíþjóð, Færeyjar, Grænland
og Álandseyjar.
-JSS
Þeir eru hreyknir á svipinn, þessir snáðar, og það ekki að ástæðulausu.
Þeir eiga nefnilega verk á sýningu sem nú stendur yfir í sal Birkiborgar.
Það eru börn á leikskóium Borgarspitalans sem unnið hafa verkin á sýning-
unni sem stendur yfir til 15. júni. DV-mynd BG
NÚ FUOKKUM
VIÐ ÚRGANGINN
/sumarbyrjun tók SORPA, fullkomin flokk-
unar- og móttökustöö úrgangs, til starfa.
Til þess aö stööin geti gegnt hlutverki sínu er
nauðsynlegt aö allir temji sér nýjar venjur í
umgengni við sorp og flokki heimilissorp og
úrgang frá atvinnuhúsnæði eftir settum reglum.
PETTA FER Á GÁMASTÖÐVAR
EN ALLS EKKI í SORPTUNNUNA:
• Málmhlutir
• Grjót og steinefni (smærri farmar, stærri farmar fara
á “tippa”)
• Spilliefni hvers konar (þau má einnig afhenda í efna-
móttöku og á öörum viðurkenndum stööum s.s. lyf hjá
apótekum og rafhlööur á bensínstöðvar)
ÞETTA MÁ AFHENDA Á GÁMASTÖÐVUM
EN ER ÓÆSKILEGT í SORPTUNNUNA:
• Prentpappír
• Garðaúrgangur sem ekki er notaöur í heimagaröi
• Timbur (smærri farmar)
Kiö höfum skyldum aö gegna gagnvart lífríkinu
og komandi kynslóðum.
• Sýnum ábyrgö á umhverfinu í verki
- notum gámastöðvarnar,
SVEITARFÉLÖGIN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU 1
RBA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs.
Gufunesi, 112 Reykjavík, sími 676677