Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGÖR 13. JÚNÍ 1991.
13
DV
Regnboginn - Stál í stál ★ '/2
Nýliða-
raunir
Þaö eru sjálfsagt ekki margir á
fyrsta degi í götulögreglunni sem
lenda í þeirri aðstöðu að þurfa
að drepa þjóf í sjálfsvörn. Þetta
hendir þó nýliðann Megan Turn-
er (Jamie Lee Curtis) í Stál í stál
(Blue Steel) þegar hún stendur
þjóf að verki í stórri kjörbúð.
Ekki fær hún þakklæti frá yfir-
mönnum sínum fyrir verknað-
inn. Kemur þar til að byssan sem
hún segir þjófinn hafa miðað á
hana finnst ekki. Hún er ásökuð
um gáleysi í starfi og rekin tíma-
bundið.
Skýringin á hvarfi byssunnar
er sú að verðbréfasali einn, sem
í kjörbúðinni var, hefur tekið
byssuna og fljótlega komast
áhorfendur að því að sá er ekki
alveg eins og fólk er flest. Ekki
nóg með að hann hrífist af því
valdi sem byssan gefur honum
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
og byrjar að drepa fólk í tíma og
ótíma, heldur skrifar hann nafn
Megan á kúlurnar sem gerir það
að verkum að lögreglan telur að
morðinginn viti hver Megan er.
Hún er því ráðin aftur í lögregl-
una og nú til morðdeildarinnar.
Morðinginn hefur samt ekki til
lengdar áhuga á hverjum sem er,
heldur beinist nú sjúkur hugur
hans að Megan...
Byrjunin á Stál í stál er alls
ekki slæm, hugmyndin um
áhugasama nýliðann sem lendir
í ónáð strax á fyrsta degi er ekki
svo galin og myndin heldur vel
dampi meðan á ráninu í kjörbúð-
inni stendur. Einnig er ágæt hug-
myndin um geðveika morðingj-
ann sem heldur sig guð um leið
og hann kemst yfir skotvopn. En
nýjabrumið er fljótt að fara af og
eftir því sem líður á myndina
verður söguþráöurinn rughngs-
legri og ósennilegri. Að sama
skapi missir leikstjórinn, Kat-
hryn Biglow, öll tök á atburðarás-
inni sem tekur hverja „óvæntu"
stefnuna eftir aðra án þess að
koma áhorfandanum á óvart.
Jamie Lee Curtis leikur Megan
Turner oft meira af vilja en getu
og ekki verður Stál í stál til að
auka á fallandi stjörnu þessarar
ágætu leikkonu. Curtis er samt
nokkur vorkunn. Persónan sem
hún leikur er látin snúast í of
mörgu og verður of flókin fyrir
mynd af þessu tagi. Það er ekki
nóg með aö allir erfiðleikar sem
hugsast getur steðji að henni í
vinnunni, heldur er samband
hennar við hennar nánustu
þvingað og lítt upplífgandi. Þó á
Curtis sínar góðu stundir inni á
milli en það er meira en hægt er
að segja um Ron Silver í hlut-
verki morðingjans. Þessi ágæti
leikari, sem bæði í Enemies, A
Love Story og Reversal of Fort-
une sýndi góðan leik er alveg ut-
an gátta og leikur hans mjög
þvingaður og fráhindrandi.
Mikið er um óþarfa subbuskap
í myndinni sem er keyrður upp í
hægum tökum, má nefna upp-
gjörið milli Mergan Turners og
fjöldamorðingjans sem allt er
sýnt í „slow motion“ greinilega
til að auka áhrifín, en í þessu til-
felli hefur það öfug áhrif og mað-
ur er þeirri stundu fegnastur þeg-
ar myndinni lýkur.
STÁL í STÁL (BLUE STEEL)
Leikstjóri: Kathryn Biglow.
Aðalhlutverk: Jamie Lee Curtis, Ron
Silver, Clancy Brown, Elisabeth Pena
og Louise Fletcher.
Menning
Bíóhöllin - Með tvo í takinu ★★
Kona á barmi
taugaáfalls
Með tvo í takinu er nýjasta gamanmynd hins tæp-
lega sjötuga leikstjóra Carls Reiner. Hann hefur verið
þekktur fyrir dálítið sérstakan og beinskeyttan húmor
sem sást best á þeim fjórum myndum sem hann gerði
með Steve Martin í aðalhlutverki. Síðustu árin hefur
hann verið að róast eilítið, en það leynist enn í honum
talsverður galsi, eins og sést í nokkrum atriðum í þess-
ari mynd.
Kirstie Alley leikur húsmóður, gifta inn í yfir-
gangsmikla læknafjölskyldu. Maður hennar (Scott
Bakula) er vægast sagt dauflegur og að eggjan yngri
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
og villtari systur sinnar (Jamie Gertz) heldur hún fram
hjá manni sínum með sjarmör (Sam Elliot) sem hún
hlttir úti í búð. Ekki fer nú betur en svo að ástarleik-
irnir ganga af honum dauðum á hótelherbergi og hún
flýr í ofvæni. Misheppnaður sölumaður (Bill Pulman)
flækist inn í málið þegar hann ætlar að setja upp gard-
ínu í herberginu en missir hana óvart á líkið og held-
ur um leið að hann eigi sökina. En þetta er aðeins
byrjunin á flækjunni.
Þessari léttu gamanmynd er haldið saman af mjög
góðum leikhópi, með hina efnilegu Kirstie Alley í far-
arbroddi. Hún virðist vera að sérhæfa sig í konum sem
sigla hraðbyri í átt að einhvers konar taugaveiklun
og gerir það á skemmtilegan hátt.
Sagan er rétt mátulega sennileg til að leyfa dálitla
dramatík og smápælingar í sambandi við femínisma
og fær hver persóna að lenda í svo sem einum mann-
bætandi átökum við sjálfa sig og aðra. Dramað vegur
ágætlega upp á móti gamanseminni þó að það risti
ekki djúpt.
Scott Bakula, sem sló í gegn sem tímaflakkarinn í
Quantum Leap, fer hér með sitt fyrsta kvikmyndahlut-
verk og það hefði verið óskandi að hann hefði fengið
eitthvað betra við hæfi. En það er jú ákveðinn brand-
Kirstie Alley leikur húsmóður sem lendir i miklum
vanda þegar hún ákveður framhjáhald.
ari í sjálfu sér að láta þenna fjölhæfa leikara og söngv-
ara í hlutverk rólynds meltingarsérfræðings.
Þess má til gamans geta að Carl Reiner er faðir leik-
stjórans Rob Reiner, sem gerði Princess Bride og Mis-
ery. Það er fyrirtæki Rob Reiner og Stephen King,
Castle Rock Entertainment, sem gerir myndina.
Sibling Rivalry (band. 1990). Leikstjóri: Carl Reiner (The Jerk,
All of Me, Summer School). Leikarar: Kirstie Alley (Mad-
house, Look Who’s Talking), Bill Pullman (Spaceballs, Accid-
ental Tourist), Jamie Gertz (Don’t Tell Her It’s Me), Sam Elll-
ot (Fatal Beauty), Carrie Fisher (When Harry met Sally), Ed
O’Neil (Married, with Children), Scott Bakula (Quantum Leap).
K :
i
bloqd h unt
itður
phfr c.rffnaway
PATHE
V/DEQ
BRIMBORG
BÍLAGALLERÍ
Faxafeni 8
Simi 91-685870
Opiö virka daga 9-18.
Laugardaga 10-16.
Escort LX ’85, hvitur, 5 g„ vél 1600,
útv./segulb., ek. 48.000. V. 395.000.
sjálfsk., vökvast., álfelgur, rafdr.
rúður, samiæs., ek. 65.000. V.
1.470.000, einn eigandi.
Charade GTi ’88, svartur, 5 g„ 101
ha„ útv./segulb., aukadekk, álfetg-
ur, mjög fallegur bill, ek. 38.000.
V. 750.000.
MMC Pajero Wagon '84, siifur, 4ra
g„ vökvast., útv./segulb., breið
dekk, ek. 103.000. V. 985.000.
AMC Wagoneer limited 87, vin-
rauður, sjálfsk., vökvast., álfelgur,
allt raidr., ek. 35.000 m. V.
2.150.000, skipti.
Feroza EFi Special '90, hvítur, 5 g„
vökvast., útv./segulb., framgrindar-
kúla, ek. 11.000, sem nýr bíll. V.
1.290.000.
Charade CX ’88, grár met„ sjálfsk.,
útv./segulb., aukadekk, ek. 26.000.
V. 620.000, fallegur bill.
MMC Lancer 4WD st. ’88, beige, 5
g„ vökvast., samlæs., útv./segulb.,
ek. 44.000. V. 965.000, skipti.
Volvo 740 GL ’86, grár met„ sjálfsk.,
vökvast., útv./segulb., ek. 103.000.
V. 950.000, skipti.
BRIMBORG