Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 8
8
Komum heil heim
Frá því að lögleidd var notkun öryggisbelta hér á
landi hefur notkun þeirra stóraukist. Samfara auk-
inni notkun hefurdregið mjög úráverkum í umferð-
aróhöppum.
Hvað nú? Snögg viðbrögð, nauðhem'lað? Ófyrir-
séðar aðstæður koma skyndilega upp.
í þessum bíl eru allir viðbúnir.
i___________- __________r -
Reiður yfir glannaskapnum lemur pabbinn í mæla-
borðið og formælir. Formælingarstoða lítið.
Mamma gleðst yfir að ekki varð slys. „Enn einu
sinni hafa beltin bjargað," segir hún glöð og pabbi
hættirformælingunum. „Guði sé lof."
Ert þútilbúinn
að mæta óvæntum aðstæðum?
Ert þú ef til vill
einn þeirra sem ekkert hendir?
I
Útlönd
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991.
Boris Jeltsín, líklegur sigurvegari í rússnesku forsetakosningunum, fær rósir frá stuðningsmanni á leið á kjörstað
í gær. Simamynd Reuter
Forsetakosningamar í Rússlandi:
Jeltsín sigrar
í f lestum borgum
Samkvæmt fyrstu tölum frá 27
borgum í Rússiandi vann umbóta-
sinninn Boris Jeltsín í öllum nema
einni í fyrstu beinu forsetakosning-
unum í íandinu. í flestum borganna
hlaut Jeltsín 60 til 70 prósent at-
kvæöa. Snemma í morgun höföu töl-
ur ekki borist frá landsbyggðinni þar
sem stuðningurinn við Nikolai Ryz-
hkov, fyrrum forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, er hvað mestur. Því var
enn óljóst hvort Jeltsín hlyti hreinan
meirihluta í fyrstu umferð.
Með hreinum meirihluta yrði staða
Jeltsíns gagnvart Gorbatsjov, forseta
Sovétríkjanna, sterkari, að mati sér-
fræðinga. Jeltsín ætti þá auðveldar
með að þrýsta á Gorbatsjov um að
flýta efnahagsumbótum og færslu
valds til sovésku lýðveldanna ílmm-
tán.
Samkvæmt óháðu fréttastofunni
Interfax hlaut Jeltsín 70 til 75 prósent
atkvæða í Moskvu og 85 prósent í
Leningrad. í heimabæ sínum
Sverdlovsk, í vesturhluta Síberíu,
hlaut Jeltsín 90 prósent atkvæða. Það
var í bænum Kyzyl í héraði nálægt
landamærum Kína þar sem Ryzhkov
bar sigurorð af Jeltsín.
í kosningabaráttunni hefur Ryz-
hkov haldið því fram að þær hröðu
umbætur senfJeltsín vill gera í efna-
hagsmálum geti leitt til öngþveitis.
Um 105 milljónir manna voru á
kjörskrá. Fréttir hafa borist af því
að sums staöar hafi eftirlitsmönnum
ekki verið hleypt inn í herstöðvar til
að fylgjast með kosningu hermanna
og starfsliðs þar.
Reuter
Leníngrad:
íbúarnir vilja gamla naf nið
Meirihluti íbúa Leníngrad vill að
fyrra nafn borgarinnar, Sankti Pét-
ursborg, verði tekið upp að nýju sam-
kvæmt fyrstu óopinberu tölum úr
kosningunum sem fram fóru í gær.
Reutersfréttastofan hafði samband
við 14 af 21 kjördeild í borginni
snemma í morgun og alls staðar var
skýr meirihluti fyrir því að fara að
nota aftur nafnið sem Pétur mikli
Rússakeisari gaf henni.
Gorbatjov Sovétforseti hvatti íbúa
Leníngrad til að halda núverandi
nafni borgarinnar til minningar um
Lenín og hetjulega vörn borgarbúa í
900 daga umsátri nasista í síðari
heimsstyrjöldinni. Kjósendur voru
þó á öðru máli og hunsuðu fyrir-
mæli forsetans.
Reuter
Eduard Sévardnadze:
Hræðist ekki rannsókn
kommúnistaflokksins
Fyrrum utanríkisráöherra Sovét-
ríkjanna, Eduard Sévardnadze, læt-
ur sér fátt um fmnast um fyrirhug-
aða rannsókn sovéska kommúnista-
flokksins á meintu agabroti hans.
Rannsóknin var fyrirskipuð í gær
vegna ummæla hans um aö stofna
beri nýjan flokk lýðræðissinna í Sov-
étríkjunum.
„Þetta voru viðbrögð sem ég bjóst
viö. Að vissu marki er þetta aftur-
hvarf til hins gamla,“ sagði Sé-
vardnadze í gær. „Þeir mega gera
sína rannsókn. Ég hef rétt til að láta
skoðanir mínar í ljós og er ekki
hræddur við rannsókn þeirra."
Sévardnadze hélt í gær fyrirlestur
í Vín í Austurríki þar sem hann
Eduard Sévardnadze, fyrrum utan-
rikisráðherra Sovétríkjanna.
Simamynd Reuter
hvatti í annað sinn á þremur dögum
til þess að settur yrði á laggimar
flokkur lýðræðissinna. Sévardnadze,
sem enn situr í miðstjórn sovéska
kommúnistaílokksins, neitaði að
segja hvort hann myndi segja sig úr
kommúnistaflokknum til aö aðstoöa
við myndun nýs flokks. Sovéskir
fréttaskýrendur telja að ef tilraun
verður gerð til að hegna Sévardnadze
muni hann segja sig úr kommúnista-
flokknum og þar meö valda miklum
klofningi.
Sévardnadze sagði af sér embætti
utanríkisráðherra Sovétríkjanna í
desember síðasthðnum og varaði þá
um leið við hættunni á að einræðis-
öflkæmusttilvalda. Reuter