Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991. Utlönd - handtökur í tengslum við Gandhi-morðið Framkvæmdastjóri ríkissjón- varpsins á Indlandi, Shiv Sharma, særðist alvarlega í skotárás í Nýju Delhi í morgun. Talsmaður ind- versku lögreglunnar sagði að fjórir óþekktir byssumenn hefðu skotið á bíl Sharma úr ööru farartæki á fjöl- förnum gatnamótum nálægt virðu- legasta golfklúbbi Nýju Delhi. Sharma var á leið til vinnu sinnar er hann var skotinn. Bílstjóri Sharma beið bana í skotárásinni en lífvörður hans slapp meö skotsár. Bæði herskáir sjíkar, sem krefjast Þátttakan á öðrum kjördegi indversku kosninganna, sem var í gær, var dræm og hefur því dregið úr vonum Kongressflokksins um fjölda samúðar- atkvæða. Simamynd Reuter sjálfstæðis Punjab, og aðskilnaðar- sinnar í Kasmír, hafa áður beint árásum sjnum gegn stjómendum ríkissjónvarpsins. Saka þeir sjón- varpið um að reka áróður gegn bar- áttu þeirra. Að minnsta kosti átta manns létu lífið í gær í átökum á öðrum kjördegi indversku kosninganna. Þátttaka í kosningunum var dræm vegna mik- illa monsúnrigninga og ofbeldi var miklu minna en á fyrsta kjördegi kosninganna, þann 20. maí þegar nær hundrað manns biðu bana. Þessi dræma kosningaþátttaka dró úr vonum Kongressflokksins um flölda samúðaratkvæða vegna morðsins á Rajiv Gandhi, fyrrum leiðtoga flokksins. Þar með jukust einnig horfumar á sigri helsta keppi- nautar Kongressflokksins, Bharati- ya Janata flokksins. Síðasti kjördag- ur kosninganna verður á laugardag- inn en talning hefst á sunnudag. Sér- fræðingar telja samsteypustjórn nær óumflýjanlega. Tveir indverskir tamílar, 48 ára gömul kona og 25 ára gamall sonur hennar, voru handteknir í gær í Madras, sökuð um að hafa veitt morðingja Gandhis húsaskjól. Lög- reglan telur nú sannað að konan sem bar sprengjuna er grandaði Gandhi hafi verið tamíh frá Sri Lanka. Reuter Indland: Sjónvarpsstjóri særist í skotárás Móðir Teresa er komin til íraks aö hjálpa bágstöddum. Símamynd Reuter Móðir Teresa komin til íraks Móðir Teresa er komin til íraks til að kanna á hvern hátt hún geti að- stoðað þær fjölskyldur í landinu sem eiga um sárt að binda. Hún kom til Bagdad á þriðjudagskvöld og í för með henni voru tvær aðrar nunnur og einn prestur. „Tilgangur heimsóknarinnar er að víkka út starfssvið hennar og koma til móts við þá sem minna mega sín, hina fátækustu allra fátækra, eins og hún kallar þá,“ sagði séra Kevin Doheny í samtali við Reutersfrétta- stofuna. Hann sagði að móðir Teresa yrði allt að eina viku í írak. Séra Doheny sagði að móðir Teresa væri gestur írösku ríkisstjórnarinn- ar og að hún mundi hafa samvinnu við heilbrigðisráöuneytið. Hjálparstofnanir segja að alvarleg- ur niðurgangur, vannæring og aðrir sjúkdómar færist í aukana meðal barna í írak og barnadeildir sjúkra- húsa utan höfuðborgarinnar væru að verða yfirfullar. í lok síðustu viku var tilkynnt um 64 ný kólerutilfelli á ýmsum stöðum í landinu, þar á meðal Bagdad. Heild- arfjöldi þeirra er nú kominn upp í 172. Nefnd sú innan öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna sem fer með við- skiptaþvinganir ákvað í gær að 31 landi væri heimilt að afhenda íraks- stjórn tæplega fjóra milljarða dollara sem höfðu verið frystir í bönkum þeirra til að hægt yrði að kaupa matvæli, lyf og aðrar nauðsynjar. Reuter 20-35% AFSLÁTTUR Á 40 BÍLUM SEM TEKNIR HAFA VERIÐ UPP í NÝJA ÞETTA EINSTAKA TILBOÐ STENDUR AÐEINS í FÁA DAGA OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-17 SÆVARHÖFDA 2 ® 674848 i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.