Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 28
36 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991. Menning___________________________ Stjömubíó - Avalon ★★★ lA Kjarni draumalandsins klofinn ....Ég kom til Ameríku 1914 og það var fallegasti staður sem ég hafði nokkum tíman séð... “ sagði aðal- persónan, Sam Kritchinsky, bömunum í ættinni með reglulegu milhbili áður en sjónvarpið fór að trekkja. Hann kom frá Póllandi til að upplifa ameríska draum- inn. En Avalon kýs að bregða ljósi á hvað hann kost- aði í raun og veru um leið og hún segir ættarsögu, sem spannar fjóra áratugi í Baltimore í Maryland-fylki. Avalon er þriðja og besta „Baltimore-mynd“ banda- ríska kvikmyndagerðarmannsins Barry Levinson. Heimabær hans og æskuslóðir hafa áður verið um- hveríl myndanna Diner og Tin Men. Avalon er per- sónulegasta myndin því hún er lauslega byggð á fjöl- skyldu Levinson og er hann sjálfur til staðar í mynd- inni sem átta ára strákur. Af útlitinu að dæma virðist Avalon vera dæmigerður óður heimamanns til hinnar fögm Ameríku sem var og ætti að vera en Barry Levinson er aht of góður kvikmyndagerðarmaður til að falla í þá gildru. I Rain Man tókst honum að forðast allar augljósu leiðirnar th þess kreista tár út úr ástandi bræðranna Raymond og Charlie Babitt og hér á hann ekki í vandræðum með að forðast fjölskyldusöguklisjur. Á léttan, gamansaman og nostalgískan hátt segir Avalon frá Sam Kritchinsky (Armin Mueller-Stahl), í raun afa Levinson, sem kemur til fyrirheitna landsins með lítið annað en drauma í farteskinu. Hann og fjór- ir bræður verða alhr veggfóðrarar og geta af sér næstu kynslóð. Hún er yngri, meira aðlöguð og mun kröfu- harðari og tekur að breyta gamla skipulaginu svo um munar. Sonur Sam, Jules (Aidan Quinn) og frændi koma með byltingakennar hugmyndir í viðskiptum og sölumennskan er að verða allsráðandi á fyrstu árum sjónvarpsins. Myndin tekur stakkaskiptum fyrir augunum á okkur og breytist úr ljúfri fjölskyldusögu í uppgjör Levinson við samtíð sína og hann er ekki hress með hana. Hvernig honum tekst að færa áherslumar smám sam- an yflr á meira gagnrýnið sjónarhorn er meistaralegt. Við sjáum það ekki strax því afinn er lífsglaður og ánægður með nýja heimalandið. Hann sér fortíðina rósrauðum augum en sér ekki hvers vegna gamla skipulagið riðlast svo mjög. Af því að sagan er sögð með ótal gleðilegum afturhvörfum þá heldur hún hfs- gleðinni meðan hann hefur hana. Þegar fer að haha undan fæti kemur gagnrýni Levinson bersýnhega í ljós. Afinn endar sem gamalmenni á elliheimih, fjöl- skyldan, sem allt snerist um, sundruð í tímans rás, fjölskyldunafnið að breytast í meðfærilegri Kirk og Kaye, fjölskyldumáltíðin hefur breyst í sjónvarpsmált- íðina. Með Avalon hefur Barry Levinson fest sig í sessi sem Armin Mueller-Stahl leikur ættföðurinn, Sam Kritchin- sky. Kvikmyndir Gísli Einarsson einn fremsti dramatíski kvikmyndagerðarmaður Bandaríkjanna. Stílhnn hans er íjarlægur, með víðum skotum og löngum pásum en hittir alltaf naglann á höfuðið. Hann meðhöndlar tilfinningaatriði á öðruvísi og óvægari hátt. Hann hefur gert eina bestu mynd ársins með því að fara ótroðinn stig um gamalkunnar slóðir. Þýski leikarinn Armin Mueller-Stahl leikur afann en þetta er önnur bandaríska myndin hans, á eftir hinni hérlendis ósýndu Music Box. Elijah Wood, sem hinn ungi Michael/Barry stelur öllum sínum atriðum og er oft verulega fyndinn. Á bak við tökuvélina er Ahen Daviau sem er einn sá allra færasti. Hér virðist eitthvað hefta hann, sér- staklega þegar þörf er á víðum myndum og hann er langt frá sínu besta. Tónhst Randy Newman er af- bragð og það er eftirtektarvert hve Levinson forðast að nota þekkta tónlist frá þessum tíma. Avalon gekk ekki vel í Bandaríkjunum og þegar að Óskarnum kom þá var hún sniðgengin. Akademían og reyndar þjóðin öll hefur aldrei tekið vel í myndir sem deila á drauminn, sjálfan kjarna draumalandsins. Avalon (Band.1990) Handrit og Leikstjórn: Barry Levinson (Good Morning, Vietnam) Leikarar: Armin Mueller-Stahl, Elizabeth Perkins, Joan Plowright, Aidan Quinn, Lou Jacobi, Leo Fuchs, Elijah Wood. Andlát Dóra Thorberg Þorsteinsdóttir er lát- in. Kristín Guðbrandsdóttir lést í sjúkrahúsi Suðurlands að morgni miðvikudagsins 12. júní. Ingibjörg Þorsteinsdóttir frá Aðal- bóli í Hrafnkelsdal, Snorrabraut 58, Reykjavík, andaðist 10. júní. Una Jónsdóttir, Hjarðarhaga 33, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 10. júní. Jarðarfarir Þórunn Gunnlaugsdóttir, Hjarðar- túni 3, Ólafsvík, sem andaðist 6. júní, verður jarösungin frá Ólafsvíkur- kirkju laugardaginn 15. júni-kl. 14. Yngvi Markússon, Oddsparti, sem lést 5. júní sl., verður jarðsunginn frá 'Þykkvabæjarkirkju laugardaginn 15. júní kl. 14. Hlutavelta Nýlega héldu þessir þrír krakkar sem heita Ágúst Flygenring, Sólveig Hlin Sig- urðardóttir og Sigurmann R. Sigur- mannsson hlutaveltu til styrktar Krabba- meinsfélagi íslands. Alls söfnuðu þau 4,500 krónum. Magnhildur Bender, Bólstaðarhlíð 46, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju á morgun, föstudaginn 14. júní, kl. 15. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, Fossheiði 62, Selfossi, fyrrum hús- freyja á Eystri-Loftsstöðum, verður jarðsungin frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 15. júní kl. 13.30. Útför Stefáns Björnssonar, fyrrum bónda á Grund í Svarfaðardal, til heimhis á Skíðabraut 7, Dalvík, verð- ur gerð frá Dalvíkurkirkju laugar- daginn 15. júní kl. 14. Hjörleifur Magnússon fv. bæjarfóg- etafuhtrúi, Siglufirði, sem lést í Borg- arspítalanum laugardaginn 8. júní sl., verður jarðsunginn frá Siglu- íjarðarkirkju laugardaginn 15. júní kl. 11. Ferðalög Útivist um helgina Öræfajökull: Gengin veröur Sandfells- leið sem er ein greiðfærasta leiðin á jök- ulinn og er enginn annar útbúnaður. nauðsynlegur en góðir og vatnsheldir gönguskór og hlý fót. Gangan á jökullinn tekur 12-14 tíma. Þann dag sem ekki verður gengið á jökulinn verður boðið upp á göngu á Kristínartinda. Einnig er hægt að slást í fór með Skaftafellshópn- mn inn í Morsárdal. Fararstjóri: Reynir Sigurðsson. Skaftafell - Öræfasveit: Hér er fjöl- breytni mikh í náttúrufari, fagrir fjalls- tindar, tignarlegir jöklar og gróðursæld. Nú er komin göngubrú yfir Morsá sem auðveldar gönguferðir í Bæjarstaðaskóg, í Kjós og að Skeiðarárútfalli. Fararstjóri: Kristinn Kristjánsson. Núpstaðarskógar: Náttúruvin í hlíðum Eystrafialls sunnan Skeiðarárjökuls. Undir Fálkatindi er mjög gott tjald- stæði og þar hefur Útvist komið upp ágætri hreinlætisaðstöðu. Gönguferð að Tvílitahyl, upp á bunka og á Súlu- tinda. Fararstjóri: Sigurður Einarsson. Básar: Fjögurra daga ferð á þennan frið- sæla og fagra stað á mjög hagstæðu verði. Gönguferðir um Goðaland og Þórsmörk við allra hæfi. Kvöldvaka viö varöeld. Fararstjóri: Eghl Pétursson. Ferðafélag íslands Ferðir til Þórsmerkur 14.-17. júní. Hægt verður að velja um þriggja daga og fjögurra daga ferðir th Þórsmerkur um næstu helgi. Brottför kl. 20 á fostu- dagskvöld og th baka er hægt aö koma á sunnudegi eða mánudegi. Gist í Skag- fjörðsskála, Langadal, og þar er allt sem þarf th þjónustu fyrir gesti. Gönguferðir skipulagðar um Mörkina í fylgd farar- stjóra. Þátttakendum í helgarferðinni gefst tækifæri th þess að gróðursetja tré í hlíðum Valahnúks. Dagsferðir th Þórs- merkur verða sunnudag 16. júní og mánudag 17. júní. Brottfór kl.08.. Mið- vikudagsferðir hefjast 19. júní. Brottfór kl. 08. Myndgáta r»v Merming Háskólabíó - Ástargildran ★★ Ástsjúkur læknir Læknirinn Max er myndarlegur maður og er giftur fagurri konu sem elskar hann út af lífinu. Vandinn sem Max á við að etja er sá að hann er ástsjúkur og finnst allar konur fallegar og girnilegar. Hann hikar ekki við að fylgja löngunum sínum eftir og því liggur slóð brostinna hjartna eftir hann. Ekki fer hjá því að eiginkona hans komist að þessu og verður ekki alveg ánægð. Hún og eiginmaður viðhalds Max snúa bökum saman Kvikmyndir Páll Ásgeirsson til þess að reyna að venja skötuhjúin af þessum ósið en það reynist erfið- ara en ætla mætti. í auglýsingum er þetta sögð vera erótísk gamanmynd og vissulega er erótískt að sjá fagrar konur striplast í ástarleikjum eins og þær gera nokkuð í þessari mynd. Hins vegar þótti mér fara minna fyrir gamninu, þýskættuð kímnigáfa framleiðenda fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér eins og fleiri bíógestum. En það er hægt að hafa nokkuð gaman af öllu saman þó ekki sætu allir undir myndinni til enda. Die Venuslalle - þýsk. Leikstjóri: Robert Van Ackeren. Aðalhlutverk: Myriem Roussel, Horst Gunter Marx og Sonja Kirchberger. Spennandi ferðir 14.-17. júní 1. Látrabjarg - fuglaskoðunarferð. Flug til og frá Patreksfirði. Gist í Breiöuvík. Gengið á Látrabjarg, komið við í Örlygs- höfn (Hnjóti) og víðar. 2. Öræfajökull Skaftafell. Gengin Virkisjökulleið, nauðsynlegt að hafa brodda og ísaxir. Upplýsingablaö á skrifstofunni um búnað þátttakenda. Gist í tjöldum. 3. Skaftafell - Ingólfshöföi Kjós. Gist í tjöldum við þjónustumiðstöðina í Skaftafehi. Gönguferðir um Þjóðgarðinn m.a. yfir nýja göngubrú á Morsá inn í Kjós og Bæjarstaðaskóg. Ekið í Ingólfs- höíða og víðar um Öræfasveit. 4. Hrútfjallstindar - Skaftafell. Gengin verður Hafrafehsleið. Fariö upp vesturhhðar Hafrafells og stefnt á Svelti- skarð og frá Sveltiskarði haldið upp á öxl sem gengur vestur frá Hrútfjallstindum og síðan eftir henni að Tindum. Gengið verður á hæsta tindinn, 1875 m. Gangan tekur um 14 klst. fram og til baka. Tilkyimingar Eldri borgarar Nokkur sæti laus í Hálandaferð um Skot- land dagana 9.-23. júlí. Upplýsingar í síma 26191. Félag eldri borg- ara, Kópavogi Spilað og dansað fóstudagskvöldið 14. júní kl. 20.30 að Auðbrekku 25. AUir vel- komnir. Kynningarbækli.ngur Verk- fræðingafélags íslands Verkfræðingafélag íslands hefur gefið út kynningarbækling. Meginthgangur með útgáfunni er að efla og styrkja félagasam- tök verkfræðinga og kynna þýðingu stétt- arinnar fyrir þjóðfélagið. Bæklingnum verður dreift víða svo sem th verkfræð- inga, verkfræðinema, menntaskólanema sem eru að vejja sér námsbraut, fjöl- miðla, stofnana og fyrirtækja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.