Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Page 11
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991. 11 Utlönd NewYork: Hmburmenn eftir skrúðgönguna miklu „Móðir allra skrúðgangiia" og veisluhöldin sem henni fylgdu í New York um siðustu helgi heyra nú sög- unni til. Það eina sem eftir stendur eru timburmennirnir. Borgin er aft- ur komin í sitt fyrra horf þar sem menn rífast meira að segja um hversu margir létu sjá sig og hvers vegna öll lætin skildu eftir sig svona lítið rusl. Lögregluyfirvöld borgarinnar halda því fram að 4,7 milljónir borg- arbúa hafi fyllt götugljúfrin á suður- hluta Manhattaneyju til að fylgjast með 24 þúsund þátttakendum í skrúðgöngunni og þar við situr þótt ýmsum þyki það hljóma afkáralega. Talsmaður lögreglunnar sagði í gær að þeir sem vildu bera brigður á þá tölu ættu bara að fara út á götu næst og telja. Maður skyldi ætla að svona mann- fjöldi skildi eftir sig óhemju magn af rusli. Á sjálfum skrúðgöngudegin- um tilkynntu embættismenn að tæp- um sex þúsund tonnum af pappírs- strimlum og gulum borðum hefði verið hent út um glugga húsanna á leið göngunnar. Svo var þó ekki. Búið er að vigta allt rushð sem sorp- hreinsunardeildin hirti og það reyndist ekki vera nema 87 tonn. Samkvæmt New York Times kæmist gangan því ekki einu sinni i hóp tutt- ugu stærstu skrúðgangna hvað rusl varðar. En hvers vegna þessi munur? Jú, ruslið eftir fyrri göngur var aldrei vigtað nákvæmlega heldur aðeins beitt ágiskunaraðferðinni. Hvað um það, David Dinkins borg- arstjóri verður nú að halda áfram að glíma við vandair|ál borgarinnar eins og hvernig eigi að stoppa upp í fjárlagagat upp á 3,5 milljaröa doll- ara. Reuter Þetta þykir New York-búum ekki mikið rusl eftir skrúðgöngu. Borgaryfir- völd bjuggust við sex þúsund tonnum eftir „móður allra skrúðgangna" en fengu bara 87 tonn. Simamynd Reuter London: Dýragarðinum lokað Dýragarðinum í London, þeim elsta í heiminum, verður lokað í september vegna fjárhagsöröug- leika þar sem rikisstjómin neitar að koma honum til bjargar. Breska dagblaðið The Ðaily Te- legraph skýrði frá þvi morgun að stjórnendur dýragarðsins hefðu sent ríkisstjórninni áætlun um að koma þeim átta þúsund dýrum sem þar em fyrir annars staðar á næstu þremur árum. Þegar það var tilkynnt í apríl að dýragarðurinn þyrfti 13 milljónir punda til að halda rekstrinum áfram, ella yrði að farga dýrunum, varð uppi fótur og fit meðal al- mennings. Efnt var til fjársöfnunar en ekki kom inn nema hálf miiljón punda. Meðal vinsælla dýra í garðinum eru pandan Chi Chi og Gæi górilla. Reuter Norskir tollverðir grandalausastir Norskir tollverðir eru granda- lausastir allra tollvarða á Norður- löndum. Þetta er niðurstaða nýrrar sænskrar rannsóknar sem einnig sýnir fram á aö hvert Norðurland- anna missir af nær tveimur til fjór- um milljörðum íslenskra króna vegna rangra eða falsaðra toll- skýrslna. Samkvæmt rannsókninni, sem gerð var að beiðni ráðherra- nefndar Norðurlandaráðs, er um helmingur allra innflutnings- skýrslna á Norðurlöndum rangt út- fylltur. Þær vörur, sem norskir innflutn- ingsaðilar reyna helst að komast hjá aö greiða tolla af, eru hljóðfæri og hljóðsnældur en einnig vefnaðarvör- ur og fatnaður. Algengt er að ekið sé með varning- inn yfir landamærin án þess að stöðva við tollstöð. Minna tolleftirlit er í Noregi en á hinum Norðurlönd- unum. ntb Suzuki Swift Sedau MINNI MENGUN Fullkomnasti mengunar- útbúnaður sem völ er á Aflmikill - bein innspýting Lipur í akstri Beinskiptur/sjálfskiptur Eyðsla frá 4 I á 100 km Til afgreiðslu strax. Verð frá 878.000 kr. V m SUZUKIBÍLAR HF SKEIFUNNI 17 SlMI 685100 SKÓVERSLUN KÓPAVOGS Hamraborg 3, sími 4 17 54 KangaROOS- SKÓR I GÆÐI - ENDING LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! $= Allt að 30% afsláttur af notuðum lada bifreiðum Lada Sport ’87, 5 g., ek. 47.000. V. áður 460.000, v. nú 330.000. Lada Sport '88, 5 g., ek. 50.000. V. áður 550.000, v. nú 380.000. Lada Sport ’89,4ra g., ek. 32.000. V. áður 600.000, v. nú 450.000. Lada Sport '88, 4ra g., ek. 58.000. V. áður 490.000, v. nú 330.000. Lada Sport '87, 5 g., ek. 60.000. V. áður 460.000, v. nú 320.000. Lada Sport ’85, ek. 42.000. V. áður 300.000, v. nú 210.000. Góð greiðslukjör. Opið vlrka daga 9-18 og laugardaga 10-14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.