Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 13. JÚNl 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð i lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Þreföld ráðherraspilling Þegar Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra lét skattgreið- endur borga hálfrar milljónar króna veizlu, sem hann hélt körfuboltamönnum suður með sjó fjórum dögum fyrir síðustu kosningar, fór hann langt út fyrir alla ramma, sem gilt hafa um leyfilega spillingu ráðherra. í fyrsta lagi var málefni veizlunnar alls ekki á sviði iðnaðarráðuneytis hans. Ef einhver opinber aðili á að halda slíka veizlu, er það menntaráðherra, sem fer með íþróttamál í ríkisstjórninni og kemur fram fyrir hönd hins opinbera gagnvart íþróttahreyfingunni. í öðru lagi er ekki venja, að menntaráðuneyti eða iðnaðarráðuneyti haldi sigurliðum veizlur í tilefni loka íslandsmóts í körfubolta. Með því að halda veizluna fór Jón Sigurðsson ekki aðeins út fyrir verksvið sitt, heldur rauf þar á ofan hefðir um tilefni veizluhalda. Ef Jón Sigurðsson hefði verið menntaráðherra og ef venja hefði verið að halda slíkar veizlur fyrir sigurlið í körfubolta, er enn eftir þriðji mælikvarðinn á, hvort rétt hafi verið að halda slíka veizlu í kjördæmi ráðherr- ans fjórum dögum fyrir alþingiskosningar. Almenna siðferðisreglan er, að gráa svæðið milli góðra siða og siðleysis þrengist, þegar kringumstæður verða grunsamlegar, svo sem var í þessu tilviki, er veizlugestir voru kjósendur í kjördæmi ráðherrans og áttu eftir að ganga að kjörborðinu eftir fjóra daga. Iðnaðarráðherra gerðist með veizlu sinni brotlegur á þrefaldan hátt. Hann fór í fyrsta lagi út fyrir verksvið sitt sem ráðherra. Hann fór út í nýja tegund veizlu- halda, sem ekki er hefð fyrir. Og hann rauf í þriðja lagi r.eglur um meðferð slíkra mála í kosningaundirbúningi. Með því að láta skattgreiðendur borga veizluna gerði iðnaðarráðherra ekki greinarmun á sér sem umboðs- manni framkvæmdavaldsins og sem frambjóðanda Al- þýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. Það er ein algeng- asta tegund spillingar í þjóðfélaginu um þessar mundir. Hin tegund spillingar, sem ráðherrar detta stundum í, er að gera ekki greinarmun á sér sem umboðsmanni framkvæmdavaldsins og sem einstaklingi. Sami ráð- herra fór út af siðferðiskortinu, þegar hann bauð skóla- systkinum til freyðivínsveizlu á Breiðafirði í fyrra. í alvöruríkjunum umhverfis okkur er gerður greinar- munur á því, er menn gera sem ráðherrar, sem flokks- menn og sem einstaklingar. Ríkið borgar fyrir þá sem ráðherra, flokkurinn fyrir þá sem frambjóðendur og sjálfir borga þeir fyrir sig sem bekkjarbræður. Starfsmannasfjóri Bandaríkjaforseta fór út af sporinu eins og hinn íslenzki iðnaðarráðherra. Hann notaði flug- vélar hersins í þágu flokks síns og sjálfs sín. Nú hefur flokksreikningurinn verið sendur viðkomandi flokki og hertar hafa verið reglur um meðferð mála af þessu tagi. Ekkert slíkt gerist hér á landi, af því að íslenzka rík- inu er stjórnað af siðleysingjum. Þessir siðleysingjar eru valdir til áhrifa af siðlausum kjósendum, sem gera sér litla sem enga rellu út af þessu og dilla rófunni, ef ruð- ur af spillingunni falla þeim í skaut sem veizlugestum. Þegar upp kemst um ráðherraspillingu í nágranna- ríkjum okkar beggja vegna Atlantshafs, er gripið til gagnaðgerða til að treysta siðaramma og minnka gráu svæðin. Hér á landi láta menn sér fátt um fmnast, af því að hér ríkir þriðja heims siðferði hjá almenningi. Þegar almenningur og stjórnmálamenn líta á ríkis- sjóð sem herfang, er óhjákvæmilegt að flármálastjórn verður lakari en venja er hjá vestrænum þjóðum. Jónas Kristjánsson Norræn ráðstefna um umhverfismennt i Reykjavik 12.-14. júní 1991. Miljö 91: Umhverfis- mennt á íslandi Það er mikið ánægjuefni hvað við íslendingar erum farnir að hugsa til framtíðar og taka umhverfis- málin alvarlega. Flestum ber sam- an um að menntun og fræðsla gegni lykilhlutverki ef okkur á að takast að bæta umgengni okkar um móð- ur jörð og skila henni í þokkalegu ástandi til komandi kynslóða. Mikil vakning er í skólum, ekki síst leikskólum, og er víða verið að brydda upp á athyglisverðum nýj- ungum. Mikil umræða í fjölmiðl- um, stofnun umhverfisráðuneytis, öflugt starf ýmissa félaga, stofnana og fyrirtækja og norræna umhverf- isárið - en því verður formiega slit- ið á ráðstefnunni á morgun - allt á þetta sinn þátt í að hvetja fólk til dáða. Batnandi manni er best að lifa Margir stjórnmálamenn hafa haldið því fram að viö íslendingar ættum að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Það ættum viö að geta því okkar góða og strjálbýla land gefur forskot á mörgum svið- um. En viö höfum í mörgu verið slóðar og þurfum að taka sjálf okk- ur til bæna. Norðurlöndin hafa í 15 ár haft með sér samstarf um að efla um- hverfisfræðslu, fyrst samráð um námsefnisgerð en síðan með stór- um 1000 manna ráðstefnum á 2 ára fresti síðan 1983. Miljö 91, sem nú stendur yfir, er síðasta ráöstefnan af þessu tagi og er fyrirhugað ann- ars konar samstarf landanna næstu ár til að styrkja umhverfis- mennt, einkum í skólum. Aðalmarkmiðið með Miljö 91 er að efla umhverfismennt á íslandi og hinum Norðurlöndunnum þannig að viö skynjum að við erum gestir jarðar, aö við nýtum um- hverfi okkar og auðlindir á skyn- samlegan hátt, verðum ábyrg og hófsöm í einkaneyslu, lærum að njóta óspilltrar náttúru og varð- veitum hana fyrir komandi kyn- slóðir. Umhverfismennt miðar að því að fólk gefi umhverfi sínu gaum og beri umhyggju fyrir því. Leitast er viö að efla þekkingu, leikni og vilja til að leysa mál sem varða náttúru- legt og manngert umhverfi og að koma í veg fyrir ný vandamál. Leit- ast er við að tengja umhverfis- mennt sem flestu í starfi skóla, svo sem náttúrufræði, samfélagsfræði, íslensku, skapandi list - og sýning- ar Miljö 91 bera vott um hvernig það tekst - sjón er sögu ríkari. Aðsókn okkar að miljö-ráðstefn- Kjállarmn Þorvaldur Örn Árnason form. undirbúningsnefndar Miljö 91 unum sýnir að við erum að hress- ast. Enginn íslendingur (svo vitaö sé) sótti fyrstu ráðstefnuna í Stokk- hólmi 1983, í Ósló 1985 voru aðeins 3, í Helsinki 1987 voru 6, í Kaup- mannahöfn 1989 vorum við 13. Nú eru hins vegar 220 íslendingar full- gildir þátttakendur í slíkri ráð- stefnu í Reykjavík! Að auki hafa hundruð manna átt mikilvægan þátt í að undirbúa ráðstefnuna og ekki síst þær viðamiklu sýningar sem tengjast henni, beint eða óbeint. Sýning í Hagaskóla og Melaskóla Sýning ráðstefnunnar er opin eft- ir hádegi í dag, á morgun og á laug- ardag. Hún er opin öllum, jafnt for- eldrum og bömum sem fóstrum, kennurum og öðru fagfólki. Að- gangur er ókeypis. Sýning þessi er opinberun á því hvaö 70 ólíkir aðilar eiga við með umhverfismenntun og fræöslu. Hún ber vitni um það hvar við er- um stödd og hvert við viljum halda. Hér sést m.a. hvers unga kynslóðin er megnug undir handleiöslu áhugasamra fóstra og kennara, kynslóöin sem öðrum fremur mót- ar 21. öldina. Sýnendur eru 70 talsins, flestir frá íslandi. Þar eru leikskólar fjöl- mennastir, en einnig margir grunnskólar, framhaldsskólar, stofnanir og félög. Einnig er vegleg sýningardeild frá Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku og hefur hvert land 2-3 skólastofur til um- ráða. Aðallega er um að ræða kynningu á því hvernig unnið er að umhverfismennt en einnig verða kynnt ný námsgögn og ýmis söluvara sem tengist málefninu. Nokkur fyrirtæki leigja sýningar- bása og kynna þar framlag sitt til umhverfismenntar. Ljóst er að mörg þúsund manns á öllum aldri hafa skapað þessa sýningu. Skólasýningarnar eru t.d. sprottnar úr námsvinnu aragrúa nemenda sem kennarar og fóstrur hafa stýrt og flest af því sem hér er sýnt er hluti af viðameiri sýn- ingu í viðkomandi skóla sl. vetur. Aðeins lítið brot af því sem gert hefur verið kemst alla leið á þessa sýningu. Að baki sýningarbáss eins áhugafélags getur legiö áratugar þróunarstarf og veruleg kvöld- vinna valins hóps við að útbúa sýn- ingargögnin Hér eru stofnanir og fyrirtæki sem eiga með starfsemi sinni ríkan þátt í að móta umhverf- ið og líf okkar og sýna hér endur- vinnsluafurðir og notadrjúg náms- gögn, svo dæmi séu tekin. Umhverfiskvikmyndahátíð Norræna húsið í Reykjavík og aðstandendur Miljö 91 halda um- hverfiskvikmyndahátíð í Norræna húsinu og Háskólabíói og verða sýningar e.h. á laugardag og á sunnudagskvöld. Sýndar verða umhverfiskvikmyndir og kennslu- myndbönd frá Danmörku, Finn- landi, íslandi, Noregi, Svíþjóð og Eistlandi og verður tækifæri til umræðna í hléum á sýningu. Að- gangur er ókeypis í Norræna hús- inu og ódýrt í Háskólabíó. Þorvaldur Örn Árnason „Margir stjórnmálamenn hafa haldið því fram að við íslendingar ættum að vera til fyrirmyndar í umhverfismál- um. Það ættum við að geta því okkar góða og strjálbýla land gefur forskot á mörgum sviðum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.