Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991. FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991. 25 íþróttir____________________ Sport- stúfar Magni tapaði fyrir Reyni frá Árskógs- strönd, 2-3, í 3. deild- inni í knattspyrnu á Grenivík í fyrrakvöld. Sverrir Heimisson og Jón S. Ingólfsson skoruðu fyrir Magna en Siguróli Kristjánsson, Júlíus Guðmunds- son og Þorvaldur Kristiánsson fyrir Reyni. Staðan eftir tvær umferðir í 3. deild er þá þannig: Leiftur.....2 2 0 0 &-l 6 BÍ..........2 110 6-2 4 Reynir, Á...2 1 1 0 6-5 4 Skallagrímur.2 110 4-3 4 KS..........2 10 12-4 3 ÍK..........2 0 2 0 2-2 2 Ðalvík......2 0 112-3 1 Þróttur.N..2 0 111-21 Völsungur...2 0 112-6 1 Magni.......2 0 0 2 3-8 0 Þriðja umferð verður um helg- ina, Dalvík mætir ÍK og Leiftur Völsungi á föstudagskvöldið en á laugardag leika BÍ og Þróttur N., Reynir Á. og KS og loks Skalla- grimur og Magní. Lineker með fjögur mörk gegn Malasíu Gary Lineker bætti heldur betur við markareikning sinn með enska landsliðinu í knattspymu í gær þegar hann skoraði öll íjög- ur mörkin í 2-4 sigri Englendinga á Malasíu í Kuala Lumpur. Hann skoraði þrjú mörk á fyrsta hálf- tímanum og kom Bnglandi síðan í 1-4 í síðari hálfleik. Matlan gerði bæði mörk heimamanna í síðari hálíleik, lagaði stöðuna i 1-3 og 2-4. Englendingar unnu því alla leiki sína í ferðinni en áður höfðu þeir sigrað Ný-Sjálendinga tvisv- ar og Ástrali einu sinni. Áhorf- endur á leiknum i gær vom 45 þúsund. Birgir ekki með Stjörnunni í kvöld Birgir Sigfússon úr Stjömunni verður ekki með Garðabæjarlið- inu í kvöld þega þaö tekur á móti Víöi í l. deildar keppninni í knatt- spyrnu. Birgir var rekinn af v.elli gegn KA á sunnudaginn og þarf að taka út eins leiks bann. Fiórir leikmenn úr 4. deild vom úr- skurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar í fyrrakvöld, Sævar Sigurösson úr UMSE-b, Gunnar Larsson úr Leikni F., Gisli Eínarsson úr Þrym og Pétur Arason úr Hvöt. Þeir áttu allir að taka út bannið í leikjum í gær- kvöldi. Þá var einn leikmaður úr 2. flokki ÍR, Halldór Hjartarson, úrskurðaður í fjögurra leikja bann. Valsmenn leika víð Hugin á Seyðisfirði Föstudagskvöldið 21. júní verður mikið um dýrðir á Seyðisfirði því að þá leikur 4. deildar lið Hugis við sjálfa bikarmeistara Vals á Seyðisfjaröarvelli. Valsmennfara austur á föstudaginn og dveljast þar til laugardagskvölds og er viðamikil dagskrá meö þátttöku þeirra fyrirhuguð á laugardegin- um. Þar gefst Seyöfirðingum meðal annars kostur á að fylgjast meðæfinguhjá 1. deildarliðinu. Fellibylurinn af stað í ágúst Alex Higgins, „Fellibylurinn", má byrja að keppa f snóker á nýjan leik í ágúst eftir eins árs bann. Fyrsti leikur hans hefur verið ákveðinn og verður gegn Stacey Hillyard, fyrmm heims- meistara í kvennaflokki. Higgins, sem varö heimsmeistari karla 1972 og 1982, var dæmdur í bann í fyrra eftir að hafa verið kærður fjóram sinnum, meðal annars fyrir að hóta að láta skjóta einn af mótheijum sínum! Leikur Higgins og Hillyard verður i und- ankeppni fyrir Dubai-Classic mótið sem fram fer í Stoke á Eng- landi. • Vialli skoraði siðara mark ítala gegn Dönum í gær. Ítalía vann Danmörku ítalir sigruðu Dani, 2-0, í fjögurra landa móti í knattspyrnu sem hófst í Svíþjóð í gær. Hinar tvær þjóðirn- ar, sem leika á mótinu, eru Svíþjóð og Sovétríkin og leika liöin í kvöld. Staðan eftir venjulegan leiktíma í leik var 0-0 en í framlengingunni skoruðu ítalir tvisvar, Ruggiero Rizzitelli á 107. mínútu og Gianluca Vialli á 108. mínútu en þeir komu báðir inn á sem varamenn í leiknum. Það er því ljóst að ítalir leika til úr- shta á þessu móti gegn sigurvegaran- um í leik Svía og Sovétríkjanna. Danska liðið var skipaö nær ein- göngu leikmönnum úr dönsku 1. deildinni og gáfu þeir hinum frægu leikmönnum ítala ekkert eftir en It- alir léku með sitt sterkasta lið. -GH Landshlaup FRÍ hefst á mánudag Mánudaginn 17. júní hefst svokall- að Landshlaup FRÍ. Þetta er í annað skipti sem það er skipulagt en 1979 framkvæmdi Frjálsíþróttasamband- ið slíkt verkefni. Þetta er nokkurs konar boðhlaup þar sem félagar í héraðssamböndum eða aðildarfélög- um leika aðalhlutverkið. Hlaupið hefst eins og áður sagði á mánudaginn í Reykjavík, nánar til- tekið í Hljómskálagarðinum, þaðan er hlaupið suður í Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð, þá verður Krísuvík- urleið farin, eftir það fylgt meginleið- um austur suðurlandið og áfram all- an hringinn. Hlaupið verður allan sólarhringinn og reiknað er með að komið verði aftur til Reykjavíkur 27. júní en hlaupinu lýkur á Laugardals- velli. í hlaupinu árið 1979 tóku um það bil 6 þúsund manns þátt og þá voru hlaupnir 2500 kílómetrar. Nú verða kílómetramir um 2900 og vonast for- svarsmenn hlaupsins til þess að minnsta kosti sami fjöldi og fyrir 12 árum verði með. -GH Siglingar: Dögun sigldi á besta tímanum Dögun, með Steinar Gunnarsson sem skipstjóra, varð sigurvegari í þriðju þriðjudagskeppninni í sigling- um sem fram fór á vegum Brokeyjar í Reykjavík sl. þriðjudag. Siglt var í kringum Engey að venju og fékk Dögun tímann 1:23,37 klst. en umreiknaður tími Dögunar var 43,44 mín. í öðm sæti varð Flóin, skipstjóri Jón Hjaltalín Ólafsson, á 1:24,32 klst. og umreiknaður tími var 45,26 mín. Urta, skipstjóri Niels Chr. Nielsen, varð í þriðja sæti á 1:29,20 klst. og umreiknaður tími 46,06 mín. Eins og áður sagði var þetta þriðja þriðjudagskeppnin í sumar en Svala haföi sigrað í tveimur þeim fyrstu. -SK Toppslagur á Hlíðarenda - þegar Valur tekur á móti KR Það verður mikið í húfi á Hlíðar- enda í kvöld þegar tvö af toppliðum 1. deildarinnar 1 knattspyrnu og gamlir erkiíjendur, Valur og KR, mætast þar í 4. umferð deildarinnar. Bæði lið hafa byrjað vel, einkum þó Valsmenn, sem eru búnir að vinna þrjá fyrstu leiki sína og hafa enn ekki fengiö á sig mark. Bjarni Sig- urðsson landsliðsmarkvörður sótti síðast boltann í netið í lokaleik Vals- ara í 1. deildinni í fyrrasumar og hefur „haldið hreinu“ samfellt í 277 mínútur. KR-ingar hafa unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli og markvörður þeirra, Ólafur Gottskálksson, hefur einungis verið sigraður með einni vitaspymu til þessa í deildinni. Úr- slitin í kvöld hafa geysilega mikla þýðingu fyrir þróun toppbaráttunn- ar í sumar. Ekki verður spenningurinn mikið síðri í Garðabænum á sama tíma þegar þar mætast Stjarnan og Víðir. Það er þó af öðrum ástæðum því að bæði lið hafa byrjað heldur illa, Stjarnan sigraði þó meistara Fram en hefur tapað hinum tveimur leikj- unum og nýliðar Víðis hafa tapað öllum þremur leikjum sínum. Liðin eiga það sameiginlegt að hafa aðeins skorað eitt mark hvort til þessa og spurningin er hvort þeim tekst að bæta úr því. Báðir leikirnir hefjast klukkan 20. Fjórðu umferð lýkur síðan annað kvöld þegar Breiðablik og FH leika í Kópavogi og Fram mætirKA á Laug- ardalsvellinum. -VS • Guðmundur Steinsson skoraði annað mark Víkinga gegn IBV í gær og er orðinn markahæstur í deildinni ásamt Stein- dóri Elissyni, UBK. Hér er Guðmundur að skora gegn FH-ingum í fyrsta leik íslandsmótins. DV-mynd Brynjar Gauti Sanngjarn sigur hjá Víkingum - þegar liöiö sigraöi ÍBV, 1-3, í Eyjum í gær • Michael Jordan treður knettinum með tunguna á réttum stað. Jordan var frábær í úrslitakeppninni og í nótt skoraði hann 30 stig gegn Lakers. - Berglind Ómarsd., DV, Vestmannaeyjum; „Þaö var nauðsynlegt fyrir okkur að vinna þennan leik. Við komum hingað alveg dýrvitlausir og vomm ákveðnir í að sigra. Við misstum nið- ur tveggja marka forystu hér í fyrra og fengum líka rautt spjald en við vorum ákveðnir í að endurtaka ekki leikinn,“ sagði Atli Helgason, fyrir- liði Víkings, við DV eftir sigur á ÍBV í gærkvöldi. Víkingar stóðu svo sannalega und- ir nafni í Vestmannaeyjum í gær- kvöldi. í hálfleik höfðu þeir skorað 3 mörk gegn 1 marki Eyjamenna en í síðari hálfleik spiluðu þeir einum leikmanni færri og tókst að halda jöfnu með frábærri baráttu og upp- Chicago sigraði - LA Lakers 101-108 í nótt og vann NBA-deildina í fyrsta skipti „Þetta hefur verið mikil barátta í sjö ár. Ég hef fylgst með þessu hjá okkar liöi, smátt og smátt hefur okkur farið fram og ég missti aldr- ei trúna á að okkur tækist að lokum að vinna meistraratitil," sagði Mic- hael Jordan eftir að Chicago Bulls varð í nótt meistari í NBA-deildinni í körfuknattleik í fyrsta skipti. Bulls sigraði Lakers 101-108, 4-1, og var þetta þriðji sigur Chicago í röð á heimavelli Lakers. Magic Johnson, sem fimm sinn- um hefur orðið meistari, sagði eftir leikinn í nótt: „Við gerðum hvað við gátum en komumst ekki alla leið. Það var hins vegar okkar lukka að fá að leika í úrslitunum. Það er jú það sem þetta snýst um að hafa möguleika á að sigra og það er aðeins hægt með því að leika til úrslita. Okkur tókst þetta ekki núna en betra og heilbrigðara liðið sigraði." Um Jordan sagði Magic: „Hann hefur átt ótrúlegt keppnis- tímabil og var besti leikmaður úr- slitakeppninnar. Hann hafði nú tækifæri til að vinna titilinn og stóð undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar." Leikur liðanna var í einu orði sagt frábær og er einhver besti körfuboltaleikur sem lengi hefur verið leikinn. Hann var hnífjafn svo til allan tímann og þegar tæpar sex mínútur voru eftir var staðan 93-90 Lakers í vil. Þá var komið að John Paxon hjá Chicago og hann skoraöi hverja körfuna á fætur annarri með langskotum og tryggði Chicago titilinn eftirsótta. Annars voru þeir Michael Jordan og Scottie Pippen langbestu menn leiksins. Pippen skoraði 32 stig, Jordan 30 og Paxon 20. í liö LA Lakers vantaði tvo leik- menn úr byrjunarliðinu, þá James Worthy og Byron Scott. Nýhðamir Elden Campbell og Tony Smith fylltu skörð þeirra vel og sér í lagi Campbell sem skoraöi 21 stig. Að- eins Sam Perkins skoraði meira fyrir Lakers, 22 stig. Magic John- son skoraði 16 stig og Tony Smith 11. -SK skáru því sanngjarnan sigur, 1-3. Víkingar fengu sannkallaða óskabyrjun í leiknum og skoruðu strax á 3. mínútu leiksins. Tomislav Bosjnek skoraði þá eftir góðan sam- leik við Atla Einarsson. Komst hann einn inn fyrir vörn Eyjamanna og var eftirleikurinn auðveldur. Eftir markið skiptust liðin á sóknum og áttu bæði lið ágæt marktækifæri. Annað mark Víkinga kom á 17. mínútu og var það maðurinn á bakvið sigur Víkings Atli Ein- arsson sem vann knöttinn á miðjunni, lék upp allan völlinn gaf á Guðmund Inga Magnúson og fékk boltann aftur og skoraöi Atli glæsilegt mark, 0-2. Á 26. mínútu leit þriðja mark Víkings dagsins ljós. Atli Einarsson átti þá sendingu á Guðmund Steinsson sem var vel staðsettur og átti hann ekki í erfiðleikum meö að skora með skoti 'efst í markhornið, 0-3. Aðeins einni mínútu síðar náöu Eyjamenn að minnka muninn þegar Elías Friðriksson skoraði ágætt skallamark eftir góða sendingu Hlyns Stefánssonar. Fleiri urðu mörkin ekki í þessum leik en það sem eftir lifði fyrri hálfleiks var mikil barátta og fátt markvert gerðist þar til 4. mínútur voru til leikhlés en þá fékk Víkingurinn Janni Zilnik að líta rauða spjaldið eftir að hafa brotið illa á Elíasi Friðikssyni en hann hafði áður fengið gula kortið í leiknum. í síðari hálfleik sýndu Víkingar frábæru bar- áttu og tókst þeim að brjóta niður sóknir Eyja- manna sem voru ekki nógu sannfærandi. Vík- ingar komu mjög ákveðnir til leiksins^og áttu Eyjamenn í miklum vandræðum með eldfljóta framherja liðsins. Atli Einarson var yfirburða- maður í Víkingsliðinu og þá áttu Guðmundur Steinsson og Helgi Björgvinson góðan leik. í liði Eyjamanna var Nökkvi Sveinsson bestur og þeir Heimir Hallgrímsson og Hlynur Stefáns- son áttu báðir ágætan leik en víst er að hðið getur leikið mun betur en það gerði í þessum leik. „Þetta var alveg hörmung og ekkert annað. Það khkkaði allt, leikur okkar var baráttulaus og við nýttum færin illa. Það vantar baráttuna sem einkenndi liöið í fyrra,“ sagði Heimir HaU- grímsson, fyrirhði ÍBV, við DV eftir leikinn. Samskipadeild ÍBV-Víkingur 0-1 Bosnjak (5.), 0-2 Atli Ein. (18.), 0-3 Guðmundur S (26.), 1-3 Elías- (27.). . Lið IBV: Þorsteinn, Heimir, Frið- rik, Sigurður (Ingi 45.), Elías, Hlynur, Nökkvi, Sigurlás, Amljót- ur (Bergur 67.), Leifur, Sindri. Lið Víkings: Guðmundur H., Helgi Bj., Helgi B., Þorsteinn, Ziln- ik, Guömundur Ingi, Atli H., Bosnjak (Björn 60.), Atli Ein., Guð- mundur, Hólmsteinn (Ólafur 60.). Gul spjöld: Zilnik (Vík.), Guð- mundur Ingi (Vík.), Bjöm (Vík.), Guðmundur S.(Vík.), Heimir (ÍBV), Nökkvi (ÍBV), Friðrik (ÍBV), Rauð spjöld: Zilnik (Vík.) Áhorfendur: 900. Dómari: Sveinn Sveinsson, dæmdi vel. Skilyrði: gott veður og góður gra- svöllur. Staðan Valur..... KR........ UBK....... ÍBV....... Víkingur.. KA........ Stjarnan.. FH........ Fram...... Víðir..... Markahæstir: Steindór Ehson, UBK...........4 Guðmundur Steinsson, Vík......4 Leifur Hafsteinsson, ÍBV......3 Anthony K. Gregory, Val.......2 Grétar Steindórsson, UBK......2 Hörður Magnússon, FH..........2 Ragnar Margeirsson, KR........2 Tomislav Bosqjek, Vík.........2 íþróttir Belgíska félagið FC Uege er nú Ekki er þó öh von úti fyrir Borde- að henni verður, og fullyrða að á höttunum eftir Arnóri aux. Félagið kærði úrskurðinn Bordeaux eigi enn eftir aö gera Guðjohnsen og vilja forráöamenn og þann 25. júní veröur endanleg upp allt kaupverðið en Amór lék hðsins ólmir krækja í hann frá ákvörðun tekin um hvort Borde- með Anderlecht áöur en hann franska félaginu Bordeaux. Am- aux verði dæmt niöur eða ekki gekk til hðs við Bordeaux. ór er staddur í Belgíu og hefur og því ætlar Arnór ekki að semja Club Liege gekk ekki vel í deild- átt í viðræöum við forráöamenn við neitt annað félag fyrr en eftir arkeppninni í vetur og hafnaöi FC Liege síðustu daga en engin 25. júní. fyrir neðan miðja dehd. Á dögun- ákvörðun hefur veriö tekin um Dagblöð í Belgíu sögðu frá því um seldi félagiö þrjá af sínum félagaskipti. á íþróttasíöum í gær að Arnór bestu mönnum, allt landshös- Amór leikur með Bordeaux í væri líklega á leið til FC Liege og menn, til Anderlecht og kom sú Frakklandi en félagjö hefur verið það eina sem gæti komið 1 veg sala nokkuö á óvart. Skagamenn dæmttilaðleikaí2.deildánæsta fyrir félagaskiptin væra félögin léku gegn Club Liege í Evrópu- keppnistímabili.HeftirArnórlýst Anderlecht og Bordeaux. For- keppni félagsliða áriö 1989 og því yfir að hann hafi ekki áhuga ráðamenn Anderlecht segjast voru slegnir út í 1. umferð. á að leika með liðinu í 2. deild. vilja fá hluta af sölu Amórs, ef -GH/KB f D-riöli 4. deildar tapaði Neisti á heimavelli fyrir liöi Kormáks, 1-3. Ólafur Ólafsson skoraði mark Neista en Rúnar Guðmundsson 2 og Albert Jónsson mörk Kormáks. • Hvöt vann UMSE-b, 6-2. Bjarni Sigurðsson 3, Páll Jónsson 2 og Gunnar Jónsson skoraðu mörk Hvatar en Guðmundur Jónsson og Sigurður Bjarkarsson mörk UMSE. • HSÞ vann Þrym, 9-1. Mörk HSÞ: Viðar Sigurjónsson, 2, Stefán Guð- mundsson 2, Skúli Hallgrímsson 2, Ari Hallgrímsson, Erlingur Guð- mundsson og eitt sjálfsmark en Garðar Jónsson skoraði eina mark Þryms. • í E-riðli voru þrír leikir. Valur sigraði Leikni, 2-0, með mörkum frá Ingvari Jónssyni og Þórarni Stefáns- syni. • Huginn vann sigur á Austra, 3-1. Sveinbjörn Jóhannsson 2 og Halldór Róbertsson skoruðu mörk Hugins en mark Austramanna gerði Eiríkur Bjarnason úr víti. • Á Vopnafirði skildu Einherji og KSH jöfn, 2-2. Einar Kristbergsson og Hallgrímur Guðmundsson skor- uðu fyrir Einherja en Páll Björnsson og Hlynur Ármannsson fyrir KSH. -KH/MJ/GH Útivístarparadísín Hvammsvík - Kjós OPIN GOLFMÓT FYRIR BYRJENDUR Vinsælu háforgjafarmótin fyrir byrjendur á golfvell- inum í Hvammsvík í sumar hegast sunnudagínn 16. júní nk. Kylfingar þurfa ekkí að vera félagar í golf- klúbbum. Mótaskrá sumarsíns: forgjöf 24 og hærrí. Sunnudagur 16. júní Laugardagur 29. júní Sunnudagur 7. júlí Laugardagur 13. júlí Sunnudagur 28. júni Laugardagur 10. ágúst Laugardagur 17. ágúst Laugardagur 31. ágúst Laugardagur 7. sept. Laugardagur 21. sept. 18 holur m/án forgj. 18 holur m/án forgj. 18 holur m/án forgj. 18 holur m/án forgj. Meistaramót byrjenda 18 holur m/án forgj. 18 holur m/án forgj. Framfarabíkarinn 18 holur m/án forgj. 18 holur m/án forgj. Mótin hefjast kl. 10. Skráning keppenda i síma 667023. Ath.: Sumarkort á golfvöll- ínn kr. 9.000. Afsláttur fVrír starfsmannafélög og hópa. Pantið í síma 91-667023. Ath.: Hægt er að leika til forgjafar í Hvammsvik. HVAMMSVIK Geymið aaglýsinguna VHIDI • COLl • HhSTALKICA • UTIVKRA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.