Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1991, Síða 32
w Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskríft - Dreifing: Slmi 27022 Minna fram- boðaf húsbréfum Mikil afFólI húsbréfa, sem skila sér í 8,8 prósent ávöxtun kaupenda bréf- anna, eru nú farin að hafa veruleg áhrif á framboð húsbréfa á fjár- magnsmakaðnum. Á sama tíma og framboð hefur minnkað hefur ásókn fjárfesta, spariíjáreigenda, aukist í bréfm. Svo virðist því sem gott jafnvægi sé að nást á milli framboðs og eftirspurnar og að ávöxtunarkrafan sé í hámarki. Sigurbjörn Gunnarsson hjá Lands- bréfum segir að Landsbréf séu að kaupa húsbréf á hverjum einasta degi og selji einnig mikið af bréfum. „Það hefur verið mjög góða sala í húsbréfum í júní.“ -JGH Reykjanesbraut: Kindur miklir slysavaldar Mikill fjöldi íjár gengur laus meö- fram Reykjanesbrautinni við. Straumsvík og hefur á undanfornum árum valdið mörgum slysum. Það eru sauðfjáreigendur í Lónakoti, Ótt- arsstöðum og fleiri bæjum sem eiga féð en hafa ekki hirt um að girða það af. Að sögn lögreglunnar í Hafnarflrði er þetta stórkostlegt vandamál og hefur lögreglan mörgum sinnum kvartað við bæjaryfirvöld vegna þessa. Talað hefur verið um að Hafn- arfjarðarbær kaupi þessi lönd og lög- reglan segir að þegar það gengur í gegn muni þessari áþján loks ljúka. -ns Istess hættir Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri: Hluthafafundur í fóðurvöruverk- smiðjunni ístess hf. á Akureyri sam- þykkti í gær að fyrirtækið hætti störfum og yrði gert upp „með gjald- þrotaskiptum eða einhverjum öðrum hætti“, eins og þaö var orðað. Eftir að norska fyrirtækið Skrett- ing dró sig út úr fyrirtækinu þar sem Skretting var stærsti hluthafinn eru ístess allar bjargir bannaðar vegna þess aö ákvæði í samningi segja að Istess megi ekki fara í samkeppni við Skretting. Hins vegar er stofnun nýs fyrirtækis í burðarliðnum og er ætl- unin að það fyrirtæki taki á leigu framleiðslu ístess sem allra fyrst. Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1991. LOKI Verða ekki hinir grennstu fremstir? 1« Telur árásarmennina stunda skipulagt of beldi „Eg var heima hjá fólki sem ég þekki. Seint um kvöldið komu þrjú vöðvatröll inn og drógu mig út á hárínu. Félaga minum var haldið og skipað að skipta sér ekki af þessu, Þetta horfðu lítil börn upp á. Síðan var ég tekinn út og barinn. Kvöldið áöur hafði ég í lent í rifr- ildi og ryskingum við pilt sem síðan var vísað út úr húsinu. Þegar hann fór lýsti hann því yflr að ég skyldi fá að blæða fyrir þetta,“ sagði karl- maður um þrítugt sem segir að þrír menn hafl ráðist á sig síðastlið- ið fóstudagskvöld og misþyrmt sér. Maöurinn telur að þarna hafi verið um skipulagðar hefhdarað- gerðir að ræða og hafi árásarmenn- imir hugsanlega verið „leigðir" til verksins. Maðurinn slapp við bein- brot en er illa útleikinn í andliti. Hann hefur lagt frám kæru á hend- ur árásarmönnunum. Rannsókna- deild lögreglunnar í Reykjavík hef- ur málið til meðferðar. „Þegar mennimir komu með mig út stóö pilturinn frá kvöldinu áður og sagði til um hvernig ætti að berja mig. Þeir drógu mig út alveg eins og þeir væru að sýna honum að þeir væru að vinna fýrir launun- um sínum. Þeir gengu í skrokk á mér, börðu mig í andlitið, stönguðu í nefið, skelltu mér í götuna og spörkuöu meðal annars í nýrun sem er mjög sársaukafullt. Þeir vissu greinilega hvað þeír voru að gera,“ sagði maðurinn. Hann segir að sér sé kunnugt um að „gengi“ sem þessi tíðkist hér á landi - sem sjá aðallega um að inn- heimta skuldir eða ef einhver vill láta jafna um fólk. Mér er kunnugt um að sama kvöld tóku þremenn- ingarnir annan mann fyrir. Að sögn yfirmanns rannsókna- deildar lögreglunnar er það ekkert nýtt að sögur hafi farið að skipu- lögðu ofbeldi á höfuðborgarsvæð- inu. Hins vegar hefur slíkt að miklu leyti tíðkast innan „fíkniefna- heimsins". Slík mál eru sjaldnasi kærð til lögreglu þar sem fórn- arlömbin hafá óttast hefndarað- gerðir að hálfu árásaraðilanna. DV er ekki kunnugt um að fram- angreind árás tengist fíkniefhum. -ÓTT Slæmt ástand á Vestíjörðum: Lögreglan klippir og löng bið eftir skoðun g 2mt ástand hefur skaDast varð- laaðri áætlun. Þetta býðir að Vest- r andi skoðunarmál bifreiða á Vest- flörðum, þó einkum á ísafirði. Vegna vanrækslu á aðalskoðun hefur lög- reglan á ísafirði klippt skráningar- númer af um 40 bifreiðum að undan- fómu. Óánægju hefur gætt hjá þess- um bíleigendum þar sem að minnsta kosti þarf að bíða í viku eftir að fá bílinn skoðaðan. Þessir bfleigeigend- ur hafa eigi að síður fengið að minnsta kosti 2 mánaða frest til að færa bíl sinn til aðalskoðunar. Aðeins einn maður annast bifreiða- 'skoðun fyrir Vestfirði. Hann hefur aðstöðu á ísafirði en flytur sig á milli flarða samkvæmt fyrirfram skipu- firskir bfleigendur verða að bíða frá nokkrum dögum og upp í vikur eða | mánuði eftir skoðunarmanninum. Ástandið á ísafirði hefur versnað mjög á síðustu vikum. Álagið er orð- ið þannig að skoðunarmaðurinn hef- ur ekki við. Að sögn Jónasar Eyjólfssonar, yfir- lögregluþjóns á ísafirði, er verið að , byggja nýja skoðunarstöð þar í bæ. j Mun þá aðstaðan skoðunarmannsins I batna. Engu að síður hefur ekkert verið gefið út um flölgun í skoðunar-1 manna. Ekki náðist í Karl Ragnars j hjá Bifreiðaskoðun íslands í morg ^rgun. -ÓTT Sláturfélagið vill skaðabætur Það er mikið um að vera í Nauthólsvikinni þessa dagana. Bátur við bát á vikinni enda besti timi ársins til að stunda þetta skemmtilega sport. DV-mynd Brynjar Gauti Sláturfélag Suðurlands hefur stefnt Goða hf. fyrir að nota vígorðið „grennstir fyrir bragðið" í auglýsing- um. Vígorðið telja forsvarsmenn SS vera of keimlíkt vígorðinu „fremstir fyrir bragðið" sem þeir hafa notað síðastliðin tvö ár. SS krefst þess að Goða verði dæmt óheimilt að nota umrætt slagorð. Einnig vilja þeir hálfa milljón í skaðabætur og að Goði borgi málskostnað. Að sögn Árna S. Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Goða, er hann sannfærður um að SS muni tapa málinu. Ekki sé um að ræða neina samsvörun milli þessara slagorða. Því muni Goði nota sitt áfram. „Þetta er nú frekar spaugilegt mál. Lundin hjá þeim myndi sjálfsagt létt- ast ef þeir fengju sér eitthvað af létt- bylsunum okkar. Fyrir okkur er þetta góð auglýsing," segir Árni. Að sögn Steinþórs Skúlasonar, for- stjóra SS, hefur hann ekkert á móti1 heiðarlegri samkeppni við Goða. Með eftiröpun á slagorði SS hafi Goði hins | vegar brotið ríkjandi siðareglur. „Þetta er svo augljós eftiröpun og ’ ber vott um að þeir séu búnir að gef- ast upp á samkeppninni við okkur. [ Því grípa þeir til þess ráðs að reyna I að blekkja neytendur en því unum við ekki,“ segir Steinþór. -kaa | Veðrið á morgun: Þurrt og víð- ast léttskýj- að syðra Á morgun verður norðaustan- átt um allt land, 4-5 vindstig verða norðanlands en hægari syðra. Skýjað og kalsarigning .verður norðanlands en þurrt og víðast léttskýjað syðra. Hiti 3-7 stig norðanlands en 8-16 stig syðra. tB»LASrö( ÞRðSTIIR 68-50-60 VANIR MENN * i i * i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.