Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1991, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1991, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 281 ÁGÚST 1991. Fréttir Óprúttinn skotmaður drap friðaða fugla á Kili: Álft hraktist með tvo unga undan skothríðinni hópur erlendra ferðamanna horfði upp á á aðfarirnar „Útlendingarnir voru svo sjokker- aöir aö viö sáum okkur ekki annað fært en að halda áfram með þá, án þess aö ræða viö skotmanninn," sagði Áslaug Marinósdóttir farar- stjóri viö DV í gær. Áslaug varð vitni aö ljótum atburöi þar sem hún var á ferð með nítján franska ferðamenn á Kili um síðustu helgi. Henni segist svo frá: „Viö vorum stödd á nýja veginum sunnan við stífluna hjá Blöndu þegar þetta gerðist. Tveim bílum, fólksbíl og jeppa, hafði veriö lagt við veginn. Allt í einu kom ég auga á álftahjón með tvo unga, líklega ófleyga. Við hægöum ferðina og ég fór að segja ferðafólkinu deili á þessum fuglum. Ég sneri mér reyndar öfugt og var að tala við fólkið meðan rútan var að stoppa. Þá sáu farþegarnir allt í einu að maður stökk út úr öðrum bílnum og fleyði sér í grasið. Það skipti engum togum að hann skaut á fuglana. Þeir hröktust undan skot- hríðinni og komust hvergi í var. Ég var raunar nýbúin að segja að þessir fuglar væru alfriðaðir hér þegar ég sá þrjá þeirra falla. Það var fullorðni fuglinn og báðir ungarnir. Hins veg- ar sá ég manninn ekki að ganga úr skuggn u;n að þeir væru dauðir. Hins vegar stökk maður út úr hinum bíln- um og talaði eitthvað við skotmann- inn. Ég vissi ekki hvort þeir voru sarnan." Áslaug vildi fara út úr rútunni og ræða við skotmanninn. Bílstjórinn vildi hins vegar aka áfram vegna þess að farþegarnir voru mjög miður sín eftir þennan atburð. Úr varð að bílstjórinn hringdi í lögregluna á Blönduósi og gaf henni upp númer bílsins og lýsingu á honum. Kvaðst lögreglan mundu taka málið í sínar hendur. „Við þurftum að aka um klukku- stund í áttina að Blönduósi en aldrei mættum við lögreglunni. Þá fór okk- ur að gruna að hún hefði ekki sinnt þessu. Við hringdum því aftur í morgun til þess að hreka þetta. Ég ætla að gefa skýrslu um leið og ég kem til byggða. Ég fer að öllum lík- indum á lögreglustöðina á Vopna- firði en ég er á leiðinni þangað núna.“ -JSS Hér sýnir ungur og hreykinn veiðimaður afla sinn eftir veiðar í Hvammsvík, sfóra og fallega regnbogasilunga. DV-mynd Anna Þj óðhagsstofnun: Útgerðin stendur vel - segirÁsgeirDaníelssonhagfræðingur „Ég tel að útgerðin standi nokkuð vel um þessar mundir. Þjóðhags- stofnun hefur ekki metið stöðu veið- anna síðan um mánaðamótin mars/apríl og þá stóöu þær mjög vel. Hagnaðurinn af botnfiskveiöunum var þá um 4,5 prósent," segir Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Þjóð- hagsstofnun. í grein, sem Jónas Haraldsson, skrifstofustjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, ritar í Morg- unblaðið fyrir skemmstu, kemst hann svo að orði: „Aíkoma útgerðarinnar hefur á síðustu misserum verið almennt all- þokkaleg. Þetta hefur leitt til þess aö einstaka útgerðir sjá fram á að geta myndað sæmilega eiginfjárstöðu, sem er grundvallarforsenda hag- ræðingar í rekstri." „Þeir þættir sem ráða aíkomuþátt- um veiðanna eru olíuverð sem hefur verið hagstætt á þessu ári og raunar allar götur síðan 1986, utan smátíma í kringum Persaflóastríðið. Síðan er þaö afurðaverðið sem er búið að vera mjög hagstætt síðan haustið 1989. Það má segja að það hafi stöðugt orð- ið hagstæðara og hagstæðara þótt þaö hafl örlítið lækkað síðustu mán- uði en það hefur þó ekki verið nema brot af verðhækkun undangenginna tveggja ára. Fiskverð ákveður hvernig skipt- ingin verður á milli veiða og vinnslu og stofnunin hefur ekki haft svo miklar áhyggjur af því þó vinnslan fái minna en veiðarnar miðað við meðaltalsfyrirtæki eða öfugt á ein- hverjum ákveðnum tímapunkti því mörg þessara fyrirtæja eru meö blandaðan rekstur. ísfiskútflutningurinn hefur minnkað á þessu ári sem þýðir að aíkoma útgerðarinnar verður betri en vinnslunnar. Það er fiskverðið sem ræður mestu í skiptingunni. Aíkoma útgerðarinnar er því að öðru jöfnu betri en vinnslunnar, því hljóta botnfiskveiðar og vinnsla að vera með sæmilega afkomu nú, þrátt fyrir aflasamdrátt, sem segir einnig að skiptingin milli veiða og vinnslu sé veiðunum í hag.“ -J.Mar Fuglarnir á bak og burt - og skotmaðurinn fannst hvergi „Það verður rætt við þann eða þá sem voru þarna að verki um leið og skýrsla liggur fyrir um málið. Farar- stjórinn mun gefa hana á næstu lög- reglustöð í dag eða á morgun,“ sagði Gunnar Sigurðsson, lögregluþjónn á Blönduósi. Gunnar sagöi að lögreglan á Blönduósi hefði farið á staðinn þar sem álftirnar voru drepnar. Þeir hefðu ekki fundið skotmanninn og fuglarnir hefðu einnig verið á bak og burt. „En málið er sumsé í þeim farvegi að við bíðum eftir skýrslunni og hefj- umst svo handa. Þarna er náttúrlega um að ræða brot á friöunarlögum og það verður væntanlega tekið á því sem slíku.“ -JSS Skemmdarverk á Fljótsdalslínu: Hælar rifnir upp á 15 kílómetra kaf la - hundruð þúsunda króna tjón „Við héldum nú kannski ekki að þetta væri svo umdeilt svæði, það er nú frekar þar sem komið er vestar," sagði Þorgeir J. Andrésson, yfirverk- fræðingur hjá Landsvirkjun, en það geröu sér einhverjir lítið fyrir í síð- ustu viku og rifu upp hæla sem mælingamenn Landsvirkjunar höfðu mælt út fyrir á 10-15 kílómetra löngu svæði á Brúaröræfum, fyrir ofan Jökulsá á Brú. „Þetta eiu miklir heiöursmenn. Þeir komu hælunum snyrtilega fyrir við hús þar sem mælingamennirnir hafa aðsetur við Þríhyrningsvatn svo hælarnir eru til og fara bara á sinn stað aftur,“ sagði Þorgeir. Aðspurður sagðist Þorgeir ekki hafa hugmynd um hver hér var að verki. Hann taldi fremur ólíklegt að nokkuð yrði gert í málinu annað en að koma hælunum á sinn stað aftur þegar tími ynnist til. „Þetta er ekki óbætanlegur skaði fyrir okkur, kannski tjón upp á nokk- ur hundruð þúsund. Við verðum fyr- ir þessu annað slagið því það eru ekki allir sáttir við það sem við erum að gera.“ Mælingamennirnir vinna í þriggja manna hópum og Þorgeir taldi það taka um það bil eina viku að mæla 10-15 kílómetra kafla eins og þennan, þetta er því augljóslega töluvert vinnutap fyrir fyrirtækið. Þorgeir sagði að þó þetta hefði gerst áður hefði það aldrei verið gert eins skipulega og nú, en hælunum var safnað mjög snyrtilega saman, og heldur ekki í eins miklum mæli. „Þetta er nú ekki fjölfariö svæði svo það er ekkert skrýtið þó enginn hafi séð til mannanna. Svo er þetta ekki nema kannski svona klukku- tíma verk ef þeir hafa notað bifreið við að keyra á milli og bara kippt hælunum upp á bílinn," sagði Þor- geir. -ingo Landssmiðjan og Sindra- Stál í eina sæng Útgerðarfélagið Freyr hefur . af ríkissjóði. Árið 1984 seldi ríkið keypt 85% hlutabréfa I Lands- srniðjunni hf. Freyr er eignarhalds- félag sem á Sindra-Stál hf. „Reyndar keypti Sindra-Stál hlutabréfin fyrst, en þau hafa verið seld inn í Frey sem verður með eignarhaldið," sagði Bergþór Konr- áðsson, framkvæmdastjóri Sindra, í viðtali við DV. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig um hve miklar upphæö- ir væri að ræða. „Rekstur Sindra og Landssmiðj- unnar verður algjörlega aðskilinn og veröur hann óbreyttur," sagði Berg- þór enn fremur. „Bæði fyrirtækin munu verða undir stjórn Freys.“ Landssmiöjan var stofnuð 1930 starfsmönnum svo vélsmiðjuna. Fyrir rúmu ári komu inn í fyrir- tækið nokkrar síldarverksmiðjur og loðnubræðslur og þar á meðal Síldarverksmiðjur ríkisins sem keyptu 32% í því. Sindra-Stál keypti síöar hlutinn af SR. Að sögn Bergþórs var síðan ákveðið aö bjóöa öðrum hluthöfum í Lands- smiðjunni að ganga inn í samning- inn og selja hlutabréf sín, sem flest- ir þeirra gerðu. „Landssmiðjan og Sindra-Stál eru ekki í neinni samkeppni. Bæði fyrirtækin eru aö vísu tengd málm- iðnaði, en þau eru sitt á hvoru sviði," sagði Bergþór. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.