Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Side 2
Fréttir FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991. Áhrif lyfl areglugerðarinnar: Enn samdráttur hjá apótekunum í ágúst ..Viö höfum fengið tölur f\TÍr f>Tri liluta ágústmánaöar. Samkvæmt þeim er áframhaldandi samdráttur í veltu apótekanna. Þessar tölur hafa htiö breyst frá því sem var í júlímán- uði.” sagði Jón Sæmundur Sigur- jónsson hjá heilbrigðisráðunejhinu \*ið DV. í júlí síðastiiðnum dróst velta apó- tekanna mjög mikið saman. allt að helmingi sums staðar á landinu. Þessi samdráttur var í kjölfar n>Trar reglugeröar um lyfsölu. „Þessar tölur frá fyrri hluta ágúst- mánaðar komu okkur satt að segja svolítið á óvart, því við héldum aö hægt yrði að merkja breytingu strax á milli mánaða," sagði Jón Sæmund- ur. „En kannski er málið það aö þetta hamstur. sem átti sér stað í júní. komi úl með vara þar til í september því fólk hefur keypt sér þriggja mán- aða skammta.” Jón Sæmundur sagði það eftirtekt- arvert að í einstökum apótekum væri aukin framvísun skírteina þannig að hlutur sjúklingsins, sem reiknaður hefði verið 225-250 krón- ur, hefði örugglega farið eitthvað lækkandi. „Við höfum ekki fengið frekari ábendingar um vandkvæði vegna reglugerðarinnar. En við gerum ráð fyrir að hittast í hópnum í næstu viku og þá verða kannski einstakir nefndarmenn með einhver atriði sem safnast hafa fyrir hjá þeim. Það sem einkum hefur borið á í þessu efni er eldra fólk með hreyfi- hömlun sem hefur haft áhyggjur út af hægðalyfjunum. Við höfum getað greitt úr þvi. Við ákváðum á sínum tíma að taka það lyf inn á skirteini þegar þannig stæði á og það hefur leyst vandann.“ -JSS Mauno Koivisto, forseti Finnlands, kom í óopinbera heimsókn til íslands í gær og hér sést Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, taka á móti honum á Reykjavíkurflugvelli. Koivisto mun dvelja hér fram á mánudag og skoða landið en einnig ræða við forráðamenn þjóðarinnar. í för með finnska for- setanum eru eiginkona hans, dóttir og tengdasonur. Álftadrápið: Leiðsögumaður gefur skýrslu - erfitt að komast í samband við lögreglu Lögreglan á Eskifirði hefur nú fengið í hendur skýrslu um álfta- drápið sem átti sér stað á Kili um síðustu helgi. Verður skýrslan væntanlega send lögreglunni á Blönduósi sem mun fylgja henni eftir. „Við vorum að enda við að gefa skýrslu," sagði Áslaug Marinós- dóttir leiösögumaður við DV um þrjúleytiö í gær. Hún var þá stödd á Eskifirði. Raunar haföi Áslaug ætlað aö gefa skýrslu í fyrradag en kom þá aö lokuðum dyrum lög- reglustöðvarinnar á Vopnafirði. Klukkan var þá rúmlega fimm síö- degis. í gærmorgun gerði hún svo aöra tilraun á Egilsstööum, en þar var enginn lögregluþjónn viö. Það var þvi ekki fyrr en á Eskifirði sem Áslaugu tókst að gefa skýrsluna. „Þetta er vissulega viöburöarík ferð fyrir Frakkana nítján sem ég er með í bílnum. Þeim er auövitað álftadrápið enn í fersku minni. Svo þykir þeim hálfskrýtið hve seint það getur gengið að komast í sam- band við lögreglu úti á landsbyggð- inni. Það hefur ekki farið fram hjá þeim hvað til hefur staðið og þau eru til dæmis búin að bíöa eftir okkur síöan á hádegi því að skýrsl- ugjöfin hefur tekið talsverðan tíma.“ -JSS Hitaveita Reykjavíkur: Utfellinga- vandinn hefur verið leystur - kostnaður vegna útfellinga síðasta vetrar um 80 milljónir „Vegna nýrra upplýsinga úr til- raunum, sem við höfum gert í vetur og sumar, keyrum við kerfið núna aðskilið þannig að það er engin blöndun. Kerfmu er því skipt í tvo aðskilda hluta. Við vitum heilmikið núna sem við vissum ekki í fyrra og ég á ekki von á að íbúar höfuðborgar- svæöisins þurfi að vera í köldum húsum í vetur,“ segir Hreinn Frí- mannsson, yfirverkfræðingur hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Eins og margir muna eflaust frá síðastliðnum vetri urðu heilu hverf- in heitavatnslaus vegna magnesíum- silíkat-útfellinga sem settust í pípur og síur og stífluðu rennsli i hús. Þess- ar útfellingar mynduðust þegar vatni frá Nesjavallavirkjun var blandað saman við lághitavatn. Hreinn segir að bráðabirgðaniður- stöður úr tilraunum, sem gerðar voru í vetur og sumar, hafi ekki gef- ið sömu niðurstöður og tilraunir sem gerðar voru áður en veitan var byggð. Þessar nýju niðurstöður gefi til kynna meiri hættu á útfellingu en þær sem voru gerðar á hönnunar- stigi og því hafi kerfmu nú verið breytt. „Við virkjun jarðhita er aldrei hægt aö fullyrða neitt því við erum alltaf að læra. Núna teljum við hins vegar að útfellingar eigi ekki að verða í vetur. Við höfum hreinsað útfellingarnar á tvennan hátt - ann- ars vegar farið í tæplega 4000 hús, aðallega í miðbæ Reykjavíkur, og hreinsað hvert hús fyrir sig og hins vegar höfum við hreinsað aðalflutn- ingsæðar með sérstöku tæki.“ Kostnaður vegna viðgerða í vetur og svo hreinsana í vor og sumar nem- ur um það bil 80 milljónum króna. „Þessar hreinsunaraðgerðir kost- uðu nálægt 20 milljónum en hita- veitustjóri hefur sagt að þegar allt hefur verið lagt saman sé kostnaður- inn um 80 milljónir. Mér finnst það raunhæf tala,“ segir Hreinn Frí- mannsson. -ns Landgræðslustjóri: Stendur til að f riða Hólsfjöll á næsta ári - samkomulaghefurnáðstviðbændur „Það hefur verið unnið að þvi að ná víðtæku samkomulagi viö bænd- ur um að friöa Hólsfjöll í Norður- Þingeyjasýslu og nú hefur það tekist. Svæöið veröur þó líklega ekki friðað fyrr en á næsta ári þegar búið verður að ljúka girðingum og öðru þess hátt- ar,“ sagði Sveinn Runólfsson land- græðslustjóri í samtali við DV. Sveinn sagði að girðingafram- kvæmdir væru um það bil að hefjast en hingað til hefur engin land- græðsla átt sér stað á svæðinu þar sem það hefur ekki veriö friðað. „Reyndar gerðum við tilraun með aö sá lúpínu í einn hektara þarna í sumar en það kemur ekki í ljós fyrr en á næsta ári hvort það hefur tek- ist.“ Sveinn sagði að almennt talað hefðu þeir haft af því miklar áhyggj- ur fyrri hluta sumars að landgræðsl- an mistækist vegna þurrka. „En vegna einstaklega góðrar tíðar í júlí og ágúst sýnist okkur að sáning frá því í vor hafi alls staðar tekist mjög vel. En þær byrjuðu hins vegar ekki að spretta fyrr en það fór að rigna, svo það var áhyggjuefni um tíma,“ sagði Sveinn. -ingo Lögreglan tók þjóðf ána við Farf uglaheimilið Lögreglan í Reykjavík tók tvo ís- lenska fána niður sem blöktu á flagg- stöngum við Farfuglaheimilið í Laugardal um klukkan tvö í fyrri nótt. Fánarnir voru teknir í geymslu á lögreglustöðinni og verða forsvars- menn heimilisins kallaöir fyrir vegna þessa. Ólöglegt er að láta þjóð- fánann vera uppi eftir vissan tíma á kvöldin. „Við höfum verið nokkuð strangir með að framfylgja lögunum í þessu sambandi. Þetta kemur stundum fyr- ir, að fólk vanrækir að taka fánann niður á kvöldin,“ sagði talsmaður lög- reglunnar í samtali við DV. -ÓTT Helgi Ólafsson, sem hefur haft forystu frá byrjun, djúpt hugsi í skák sinni við Jón Loft i gær. DV-mynd Jóhann Skákþing íslands: stigahæsta skákmanni landsins Þau óvæntu úrslit urðu í 7. umferðinni á Skákþingi íslands í gær að Halldór Grétar Einarsson vann Jóhann Hjartarson. Fyrsta tapskák Jóhanns, stigahæsta skákmanns landsins, á mótinu og eftir það eru möguleikar hans á íslandsmeistaratitlinum ekki rniklir. Helgi Ólafsson, sem hefur haft forustu frá byrjun, gerði þriðja jafnteflið í röð. Nú við Jón L. Árnason. Helgi heldur samt enn einn forustunni þar sem Karli Þorsteins tókst ekki að sigra Héð- in Steingrímsson í gær. Jafntefli varð hjá þeim. Hinn 14 ára Helgi Áss Grétarsson vann Snorra Bergsson og er með 50% vinn- ingshlutfall. Jafnteflí varð í gær hjá Róbert Harðarsyni og Sigurði Daða Sigfússyni en biðskák hjá Margeiri Péturssyni og Þresti Þórhallssyni. Staðan eftir 7 umferðir er þann- ig: 1. Helgi, 5 Vi v. 2.-3. Jón Loftur og Karl, 5 v. 4. Jóhann, 4% v., 5. Margeir, 4 og biðskák, 6. Þröstur, 3% og biðskák, 7. Helgi Áss, 3% v„ 8.-9. Halldór og Róbert, 2 'A v„ 10. Héðinn, 2 v„ 11.-12. Siguröur Daði og Snorri, 1 'A v. -hsím Lukkulykillinn: Hver á rétta lykilinn? - ogekurheimáPiat? Á morgun er komið að stóru' stundinni f leiknum um Lukku- lykilinn sem staðið hefur vfír í mánuð hér á síðum DV og’á út- varpsstöðinni FM957 í samvinnu víð Fiatumboðið. AIls hafa heppnir þátttakendur í leiknum krækt sér í eitt þúsund Fiatlykla og á morgun geta þeir komið á fjölskylduhátíð við Borg- arkringluna og reynt hvort þeirra lykill gengur að öðrum hvorum þeirra tveggja Fiat Uno- bíla sem eru aðalvinningar í þess- um leik. Ef lykillinn passar þá mega þeir aka heim á bílnum. Fjölskylduhátíðin hefst klukk- an tólf á morgun, laugardag, með þvi að Brúðubíllinn mætir og skemmtir ungum sem öldnum. Klukkan hálfeitt geta lyklaeig- endur byrjað að prófa hvör þeirra lykill passar. Hljómsveitin Síðan skein sól skemmtir klukkan eitt og hálftíma síöar er txskusýning, þá skemmtir hljómsveitin aftur. Gestum er boðið upp á veitingar frá Nasli hf. og Pepsi. Auk vinningsbílanna tveggja verða einnig Fiat Tempra og Tipo til sýnis. Hægt er að fylgjast með hátíðinni í beinni útsendingu á FM957.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.