Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1991, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1991.
Lífsstni
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Mikill verðmun-
ur milli tegunda
- verðmunur á ódýrustu og dýrustu kartöflum nær tífaldur
Að þessu sinni kannaði Neytenda-
síða DV grænmetisverð í eftirtöldum
verslunum; Bónusi, Hafnarflrði,
Fjarðarkaupi, Hafnarfirði, Hag-
kaupi, Skeifunni, Kjötstööinni í
Glæsibæ og Miklagarði Kaupstað í
Mjódd.
Bónusbúðirnar selja sitt grænemti
í stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanirnar selja eftir vigt.
Til þess að fá samanburð þar á milli
er grænmeti í Bónusi vigtað og síðan
umreiknað eftir meðalþyngd yflr í
kílóverð. Verðið á suirium grænmet-
istegundanna hjá Fjarðarkaupi er
fimmtudagstilboð sem gildir einung-
is þann dag. Það gildir um tómata,
gúrkur, græn vínber og græna papr-
iku.
Mikil verðsamkeppni virðist vera
í gangi milli verslana á einstaka teg-
undum. Það má ráða af því að munur
á hæsta og lægsta verði er í flestum
tilfellum mjög mikill, auk þess sem
meðalverð er á niöurleið á öllum teg-
undum nema þremur í könnuninni.
Meðalverð á tómötum er nú 198
krónur sem er 20% lægra en í síð-
ustu viku. Tómatar voru á lægsta
verðinu í Bónusi þar sem þeir kost-
uðu 51 kr. Næst á eftir kemur Fjarö-
arkaupi 85 kr., Miklagarði 275, Hag-
kaupi 279 og Kjötstöðinni 298. Munur
á hæsta og lægsta verðinu er geysi-
mikill, 484%.
Meðalverð á gúrkum lækkar um
11% og það er nú 133 krónur. Gúrkur
voru á hagstæðasta verðinu í Bónusi
á 34 en síðan koma Fjarðarkaup 45,
Hagkaup 189, Kjötstöðin 198 og 199 í
Miklagarði. Munur á hæsta og lægsta
verði er einnig mikill á gúrkum eða
485%.
Meðalverð á sveppum lækkar einn-
ig um 11% og er nú 409 krónur.
Sveppir eru mjög ódýrir í Bónusi 197
og Fjarðarkaupi 270 en síðan koma
verðin í Kjötstöðinni 495, Hagkaupi
539 og Miklagarði 545. Munur á
hæsta og lægst,a verði á sveppum er
177%.
Meðalverð á grænum vínberjum
hækkar um 13 af hundraði frá í síð-
ustu viku og er nú 169 krónur kílóið.
Lægsta verðið var að finna í Bónusi
þar sem kílóið var á 47 kr. Næst koma
í röð Fjaröarkaup 55, Mikligarður 99,
Hagkaup 248 og Kjötstöðin 398. eins
og gefur að skilja er munur á hæsta
og lægsta verði mj ög mikill eða 743%.
Meðalverð á grænni papriku lækk-
ar um 9% frá í síðustu viku og er nú
210 krónur. Verðið er áberandi lægst
Töluvert stríö er í gangi milli verslana í verði einstakra grænmetistegunda.
í Fjarðarkaupi 85 og Bónusi 87,50 en
á eftir fylgja Hagkaup 285, Mikligarð-
ur og Kjötstöðin 297 krónur. Munur
á hæsta og lægsta verði er 249%.
Meðalverö á kartöflum hækkar um
heil 18% frá síðustu könnun og er
skýringanna að leita í því aö kíló-
verðið snarhækkar í Fjarðarkaupi
frá í síðustu viku. Verðiö er lang-
lægst í Bónusi þar sem það var 10
krónur á kíló sem er gjafverö. Hinar
verslanirnar eru með svipað verð,
84,50 í Miklagarði, 91,50 í Kjötstöð-
inni, 94,50 í Hagkaupi og 105 í Fjarð-
arkaupi. Munur á hæsta og lægsta
verði er þarafleiðandi ótrúlega mikill
eða 950%. Það táknar það aö 9 'A kart-
afla fæst fyrir hverja eina ef verslað
er á ódýrasta stað í stað þess dýrasta.
Blómkál lækkar í meðalverði um
6% milli vikna og þaö er nú 129 krón-
ur. Blómkál fæst ekki í Bónusi en
lægsta verðið var að finna í Kjötstöð-
inni 99 krónur. í röð á eftir koma
Fjarðarkaup 127, Hagkaup 139 og
Mikligarður 149. Munur á hæsta og
lægsta veröi á blómkáli er 51%.
Meðalverð hvítkáls lækkar um
tæpan tíunda hluta og stendur nú í
93 krónum. Lægsta verðið var að
DV-mynd Hanna
finna í Bónusi 70 krónur en í hnapp
á eftir koma Kjötstöðin 97, Hagkaup
98 og Fjarðarkaup og Mikligarður 99.
Munur á hæsta og lægsta verði er
41 af hundraöi.
Meðalverð gulróta hækkar um 13
af hundraði frá síðustu könnun og
er nú 250 krónur. Gulrætur eru ódýr-
astar í Bónusi 127, næstódýrastar í
Hagkaupi 189 en síðan koma Fjarðar-
kaup 275, Kjötstööin 298 og Mikli-
garður 359 krónur. Munur á hæsta
og lægsta verði er talsveröur eða
183%.
-ÍS
Neytendur
Sértilboð og afsláttur:
Ódýrir bamasvampar
I Bónusi voru í loftþéttum umbúð-
um til sölu sérlega ódýrir barna-
svampar, 75 stykki í pakka, á 199
krónur. Meðal annarra vara á sértil-
boðsverði hjá þeim voru bakaðar
baunir frá PNK, 425 g, á 43 kr., D-
eldhúsrúllur, 4 stk. saman, á 158 og
danskt rúgbrauð, 500 g niðurskorið,
á 99 krónur pakkinn.
Á sértilboðstorgi Fjarðarkaups vár
hægt aö gera góð kaup í Easy Off
gluggahreinsi. 651 ml úðabrúsi kost-
aði 270 kr., 3 kg Prik Compakt þvotta-
efni 341 kr., Slotts Chili sósa, 500 g,
157. Town House rúsínur, 680
gramma pakki, kostaði 184 krónur.
í Hagkaupi eru 2 lítrar af kóki seld-
ir þesa dagana á 159 kr., gular melón-
ur eru á kílóverðinu 119 kr. og vatns-
melónur 109 kr. Einnig fæst Kelloggs
Sultana Bran morgunkom, 500
gramma pakki, á 219 kr. og nektarín-
ur kostuðu aðeins 299 krónur kílóið.
í kjötborði Kjötstöðvarinnar var aö
koma nýveiddur vatnasilungur úr
Frostastaðavatni sem seldur er á 590
krónur kílóið en í kjötborðinu var
einnig hægt að fá danska medister-
pylsu eða danskan svikinn héra.
Kraft grillsósur, 3 tegundir, voru á
sértilboösverðinu 139 krónur, hver
300 ml flaska.
í Miklagarði, Kaupstað í Mjódd, eru
til sölu í hádeginu heitir málsverðir
og sömuleiðis á föstudgskvöldum. í
kjötborðinu var veriö að taka upp
lambakjöt af nýslátruðu og nýjan
lunda sem kostar 98 krónur stykkið.
Einnig eru á sértilboði hjá þeim Ultr-
as Hy Top bleiur, 32-44 stykki, á 799
krónurpakkinn. -ÍS
JFMAMJJÁ
+18%
Bónus
105 1ÖÍÖ0
600
Paprika
Vínber
Tómatar
500
300
100
Gúrkur
JFMAMJJÁ
^dOSEILrn