Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. Fréttir Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar: Eftirlifandi eiginmenn f á bara greitt í 2 ár - brot á jafnrétti, segir Ragna Bergmann, formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar „Við teljum þetta brot á jafnrétti og það er skýr afstaða félagsins. Það er búiö að halda um þetta fulltrúa- ráðsfundi í mörg ár. Máliö var sent til Sambands almennra lífeyrissjóða sem afgreiddi það þannig aö sjóður- inn væri svo stór að það væri of dýrt fyrir hann að greiða eftirlifandi eig- inmönnum eins og eiginkonum. Okkur fannst það svolítið hart að SAL skyldi afgreiða málið þannig,“ segir Ragna Bergmann, formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar. Ef kona, sem greitt hefur í lífeyris- sjóö Dagsbrúnar og Framsóknar, fellur frá fær eftirlifandi eiginmaður hennar einungis greitt úr sjóðnum í 2 ár en ef karlmaður, sem greitt hef- ur í sjóðinn, fellur frá fær eftirlifandi eiginkona hans fullar greiðslur, svo fremi hún gifti sig ekki aftur. Karl Benediktsson, framkvæmda- stjóri lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar, segir að ef sýnt sé að eiginkonan hafl verið aðalfyrirvinna heimilisins eða eiginmaðurinn sé öryrki sé heimildarákvæði í lögum að eftirlifandi eiginmaður fái fullar greiðslur. „Þetta hefur verið svona síðan líf- eyrissjóðimir voru settir á laggirnar 1970. Aður þurfti að greiða í lífeyris- sjóðina í 10 ár til að öðlast rétt til makalífeyris en nú eru þaö 6 mánuð- ir en að vísu var fullt jafnrétti í því. En þegar þessir sjóðir voru settir á laggirnar var ákveðið að gera eftirlif- andi konu hærra undir höfði en eftir- lifandi karli. Það er aftur á móti ver- ið að endurskoða þetta mál núna,“ segir Karl. Ragna Bergmann segir að konur í Verkakvennafélaginu Framsókn séu mjög sárar vegna þe'ssa ójafnréttis. „En nú er þetta í umræðu og það á að breyta þessu. Við höfum gagn- rýnt þetta mjög mikið því að við er- um náttúrlega eigendur að sjóðnum. Ég er til dæmis búin að borga í sjóð- inn frá byijun en maðurinn minn er ekki í lífeyrissjóði og hann myndi bara fá greitt í tvö ár. Þetta getur hreinlega ekki gengiö svona þegar flestallar konur eru útivinnandi," segir Ragna. -ns Innflutt grjót á götur ísa- fjarðar og Bolungarvíkur Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirdi: Undanfarið hefur vegagerðin unn- ið að lagningu nýs slitlags á ýmsar götur á ísafirði, bæöi á húsgötur og einnig á Skutulsfjarðarbraut inn í Fjörð og veginn um Eyrarhlíð milli Skutulsfjarðareyrar og Hnífsdals. Slitlag þetta er úr möluðu norsku djúpbergi, sem er mun harðara og slitþolnara en íslenskt grjót, þannig að þegar upp er staðið á það að vera ódýrara en heimafengiö efni. Það hefur auk þess þann kost að það er mjög Ijóst á lit og gleypir ekki götu- ljós og bílljós í dimmviðri og rigningu eins og kolsvart malbik eða venjulegt dökkt shtlag af íslensku bergi brotið. Nú mun lagningu þessa norska slit- lags að mestu eða öllu leyti lokið á ísafirði en þá tekur við lagning á ýmsar götur og plön i Bolungarvík. Nýja slitlagið hefur m.a. verið lagt á vegarkafla frá flugvallarafleggjaranum og spottakorn suður fyrir Kirkjubæ. Hér má glögglega sjá litamuninn á gamla slitlaginu og þvi nýja norska og Ijósa. Ekki vitum við hvernig á aö mála linur á götur með þessu Ijósa grjóti. Kannski þær verði svartar eða jafnvel rauðar og grænar? DV-mynd Hlynur Reykjavíkurmaraþonið: sendir út eftir helgi ihsföngum fólksins út frá skrán- „Þeir sem luku skemmtiskokk- inu en hafa ekki enn fengiö verð- launapeningana sina í hendumar fá þá væntanlega í pósti eftir helg- ina því að þeir komu til landsins í gær,“ sagði Katrín Atladóttir, gjaldkeri Fijálsíþróttasambands Islands. Nokkuð hefur borið á óánægju þeirra sem tóku þátt í Reykjavíkur- maraþoninu þann 19. águst síöast- liðinn þvi að verðlaunapeningamir gengu til þurrðar og þvi urðu sum- ir útundan. „Þeir hafa verið að leita að heim- íngarseðlunum og það eru um 140 manns sem eiga von á þessum pen- ingi í pósti,“ sagði Katrín. Katrín sagði að allt væri þetta fólk sem tekið hefði þátt í skemmti- skokkinu því að mun fleiri komu í mark á þeirri vegalengd en í fyrra, eða um 900 fleiri. Peningarnir dugðu þvi ekki svo að panta þurfti aðra sendingu frá Bretlandi. Sökum anna hjá fyrir- tækinu tafðist sendingin en er nú sem sagt komin til landsins. -ingo „Atvihnuferill“ Heiðarstapaður „Ég lánaði fyrir um það bil þremur áram tvær plastmöppur í A4 stærð sem í vora myndir af mér í starfi erlendis og hér á landi við fórðun. Einnig voru þar alls kyns módel- myndir og fleira. Þetta er i raun minn atvinnuferill,“ sagði Heiðar Jónsson snyrtir sem leitar nú myndamapp- anna sinna logandi ljósi. Ef einhver blaðamaður eða annar kann að vita um afdrif mappanna er hann beðinn að hringja í Heiðar í síma 623160 eða 75148. -ELA í dag mælir Dagfari Bönnum, bönnum, bönnum Formaðurinn í samtökum fisk- verkenda og fiskvinnsluhúsa hefur lagt til að banna útflutning á þorski og ýsu. Þessi tillaga mun stafa af því að fiskiskipin hafa verið uppvís að því að sigla með aflann í tíma og ótíma vegna þess að ytra fæst meira verð fyrir fiskinn. Fisk- vinnsluhúsin á íslandi borga minna og fá þar af leiðandi minni fisk til verkunar, nema þau borgi til jafns við fiskmarkaðina erlend- is. Þetta er auðvitað ótækt fyrir fisk- vinnsluna og þá er ráðið einfalt: banna mönnum að sigla. Banna sjómönnum að selja aflann fyrir hæsta verð. Ef sett verður bann á að sigla með fiskinn neyðist útgerð- in til að selja hér heima og þá geta fiskvinnsluhúsin verið nokkurn veginn öragg með að greiða nógu lágt verð til að það borgi sig að taka við aflanum. Það þarf nefnilega varla að taka það fram að eftir því sem meira fæst fyrir sjávarafla því hærri veröa þjóðartekjurnar. Með því að halda fiskverðinu niðri tekst mönnum að halda lífskjöranum niðri. Þar að auki fæst ekki nokkur innfæddur maöur í fiskvinnslu lengur og fiskvinnsluhúsin verða að flytja inn erlendan starfskraft til að hafa undan að vinna þann fisk sem berst í húsin. Kosturinn við útlenda verka- menn í fiskvinnslunni er sá að ekki þarf að borga þvi fólki önnur laun en duga til að draga fram lífið með- an íslendingar heimta sífellt hærri laun og rífa kjaft. Útlendinga má alltaf senda úr landi ef þeir rífa kjaft en sama verður ekki sagt um landann sem aldrei skilur þá hags- muni fiskvinnsluhúsanna að þeirra hagur og þjóðarhagur er undir því kominn að borga sem minnst. Ef farið verður eftir tillögu for- manns fiskvinnsluhúsanna kemst það fyrirkomulag á að útflutningur á helstu fiskistofnum verður bann- aður en innflutningur gefinn frjáls á vinnuafli til að gera að fiskinum sem bannað er að flytja út. Er þetta vissulega göfugur hugsunarháttur, því staðreyndin er sú að atvinnu- leysi er mikið í Póllandi og öðram fátækum löndum og það hlýtur að vera forgangsverkefni hjá höfuðat- vinnuvegi landsmanna að draga úr lífskjörum íslendinga með boðum og bönnum til að geta útvegað út- lendingum vinnu. Slíkt bann verður og í samræmi við aöra atvinnustefnu hér á landi. Viö leyfum til að mynda fijálsan útflutning á kindakjöti, enda borg- ar þjóðin með hverju kílói af kjöti sem sent er til útlanda. Það er í góðu lagi að hafa frelsi í slikum útflutningi, enda og í þágu erlendra neytenda að fá sem ódýrast hráefni frá íslandi eftir að íslendingar era búnir að niðurgreiða framleiðsluna ofan í þær þjóðir sem hafa betri lífskjör heldur en við. Innflutningur á iandbúnaðarvör- um er aftur á móti stranglega bann- aður, enda eru alla líkur á því aö grænmeti og aðrar landbúnaöaraf- urðir muni snarlækka í verði á neytendamarkaðnum ef mögulegt væri að kaupa slíkar vörar frá öðr- um löndum. Þetta er yfirvofandi hætta sem íslenskir stjórnmála- flokkar hafa verið mjög á verði gegn því lífskjör mundu snarbatna með ftjálsum innflutningi. Reyndar virðist þessi stefna vera afar útbreidd og eiga miklu fylgi að fagna því að hér á landi hafa nýverið verið stofnuð sérstök sam- tök til að standa vörð um lakari lífskjör ogbeita sér þess vegna fyrir því að sem minnst samstarf sé haft við erlendar þjóðir. Það kemur ekki til greina að stuðla að tollfijálsum markaði fyrir íslenskar sjávarvör- ur vegna þess að þá fæst meira fyr- ir fiskinn og þá skapast ekki lengur atvinna fyrir erlenda atvinnuleys- ingja. Þannig ber allt að sama brunni. Banna ber innflutning á vörum sem lækka framfærslukostnað og banna skal útflutning á vörum sem bæta þjóðarhag. Þegar sú óvænta staða kemur upp að þorskurinn og ýsan seljast fyrir hærra verð á er- lendum mörkuðum skal umsvifa- laust banna mönnum að selja fisk- inn á þann markað. Þess í stað skal flytja inn útlendinga til að vinna fiskinn sem keyptur er á lægsta fáanlegu verði. Með þeim hætti og þeim hætti einum er mögulegt að skapa hér stöðugt efnahagslíf og draga úr þeim sveiflum sem betra verð og auknar þjóðartekjur kunna að hafa í för með sér. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.