Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991
Útlönd
Serbar segja Króata
egna herinn til átaka
Sókn serbneskra skæruliða á hend-
ur Króötum heldur áfram þrátt fyrir
að vopnahlé eigi að heita í gildi í land-
inu og útgöngubann hafl gilt í alla
nótt. Nú er viðurkennt af yfirvöldum
í Zagreb, höfuðborg Króatíu, að 58
Króatar hafi látið lífið í átökum síð-
asta sólarhinginn og er það meira
mannfall en veriö hefur undanfarið
í átökunum í landinu.
Serbar hafa nú náð verulegum
hluta Króatíu á sitt vald og stefna
nú markvisst að því að ná þjóðvegin-
um til Zagreb á sitt vald. Við það
myndu Króatar verða fyrir verulegu
áfalh og landi þeirra væri þá endan-
lega skipt í tvent.
Útgöngubannið í nótt náði til þeirra
29 bæja sem hvað verst hafa orðið
úti í átökum síðustu daga. Stjórn
Króatíu stóð fyrir banninu í von um
að það gæti komið í veg fyrir að al-
mennir borgarar yrðu fyrir skotum
í átökum skæruhða þjóðabrotanna.
Eftirlitsmenn Evrópubandalagsins
eru á átakasvæðunum en þeir hafa
ekki náð að koma í veg fyrir átök.
Þeir munu þó í dag halda áfram til-
raunum sínum til að fá báða aðha til
að virða vopnahléið.
Yfirstjórn sambandshers Júgóslav-
íu sakar skæruhða Króata um að
brjóta vopnahléið markvisst með því
aö gera árásir á búðir hermanna.
Þetta er hluti af áróðursstríðinu milli
Serba og Króata en Króatar saka
sambandsherinn um að taka virka
afstöðu með Serbum.
Serbum hefur vegnað betur í bar-
áttunni vegna þess að þeir eru betur
vopnum búnir og njóta stuðnings
hersins. Stipe Mesic, forseti Júgó-
slavíu og æðsti yfirmaður hersins,
segir að hermenn láti ekki lengur að
stjórn en forsetinn er Króati. í gær
bættist Makedónía í hóp þeirra lýð-
velda Júgóslavíu sem hafa lýst yfir
sjálfstæði. Áður hafa Króatía og Sló-
venía lýst yfir sjálfstæði. Reuter
Skæruliðar Serba hafa náð sjónvarpssendi i Króatíu á sitt vald og senda þaðan út áróður málstað sinum til stuðn-
ings. Króatar fara halloka í átökunum og hafa orðið fyrir miklu mannfalli. Símamynd Reuter
Genscher vill nánari tengsl við Sovétlýðveldin
Hans-Dietrich Genseher, utanrík-
isráöherra Þýskalands, hét því í gær
að eiga náið samstarf með sífellt
valdameiri lýðveldum Sovétríkjanna
en hann tók það skýrt fram að hann
hefði ekki afskrifað Míkhaíl Gorba-
tsjov Sovétforseta.
Eftir fund með Gorbatsjov í Kreml
sagði Genscher á fundi með frétta-
mönnum að það væri hans skoðun
að sovéski forsetinn tæki fullt tillit
til þeirra valda sem lýðveldin hefðu
tekið frá honum en bætti svo við:
„Það verður að taka hann með í
reikninginn."
Genscher og nokkrir aðrir ráðherr-
ar, þar á meðal James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, nota
sér ráðstefnu um mannréttindamál
á vegum RÖSE, ráðstefnunnar um
öryggi og samvinnu í Evrópu, sem á
að hefjast í Moskvu í dag, til að hitta
ekki bara Gorbatsjov heldur einnig
nýja valdamenn Sovétríkjanna, leið-
toga lýðveldanna. Genschér hittir
Borís Jeltsín, forseta Rússlands, að
máli í dag.
Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland,
Lettland og Litháen, taka sín fyrstu
skref sem sjálfstæð ríki á alþjóða-
vettvangi þegar þau verða aðilar að
RÖSE.
Þjóðverjar hafa þegar komið upp
sendiráðum í Eystrasaltslöndunum
og Genscher sagði að Þýskaland
mundi opna ræðismannsskrifstofur
í öllum hinum tólf lýðveldum Sovét-
ríkjanna og vinna með þeim á þeim
sviðum þar sem ábyrgðin er þeirra,
eins og í efnahagsmálum.
Genscher fór þess á leit við Vestur-
lönd að þau nýttu sér stöðuna eftir
valdaránstilraunina og veittu meiri
aðstoð í að koma á lýðræði og mark-
aðshagkerfi.
Reuter
Andstæðingar Evrópumálanna sigruðu í norsku kosningunum:
Kínverjar
sleppa and-
ófsmanni
Lou Haixing við komuna til Hong
Kong í morgun.
Símamynd Reuter
Yfirvöld í Kína hafa sleppt úr
haldi kaupmanninum Lou Haix-
ing og er hann nú kominn til
Hong Kong. Haixing var handtek-
inn fyiir tveimur árum grunaður
um að hafa aðstoðað lýðræðis-
sinna, eftir að andóf þeirra var
brotiö á bak aftur með vopna-
valdi á Torgi hins himneska frið-
ar.
Haixing var gefið að sök að hafa
„leynt gagnbyltingarsinnum".
Hann var hafður í fangelsi í Kant-
on í Suður-Kína. Tahð er að ferð
Johns Major, forsætisráðherra
Breta, til Kina á dögunum hafi
orðið þess valdandi að yfirvöld
létu Haixing lausan. Hann var
efstur á lista yfir þá menn sem
Major ræddi um við kínversk yf-
irvöld.
VeitKGBallt
um morðið á
Kennedy?
Vladimír Bukovskíj, einn
þekktasti andófsmaðurinn í Sov-
étríkjunum á síðari árum, hefur
skorað á Vadim Bakatín, nýjan
yfirmann sovésku öryggislög-
reglunnar KGB, að leysa frá
skjóðunni um morðið á John F.
Kennedy Bandarikjaforseta og
fleiri óleyst glæpamál.
í viðtah sem Bukovskíj átti í
sjónvarpi við Bakatín sagði hann
að i skjöium KGB væri ef til vill
að finna sannleikann um morðið
á Kennedy árið 1963 og einnig til-
raunina til að ráða Jóhannes Pál
páfa af dögum í Róm árið 1981.
Bukovskij sagði að einnig væri
að fmna í söfnum KGB mikla
vitneskju um hreinsanir Stalíns
og morð á mörgum af áhrifa-
mönnum í Sovétríkjunum á hðn-
um árum. Bakatín sagði að hann
væri sammála þvi að opna ætti
skjalasöfn KGB en tók ekki undir
hugmyndina um að þar væri að
fmna skýringar á morðinu á
Kennedy.
Kúbustjórn
viðurkennir
Eysfrasalts-
ríkin
Stjórn kommúnista á Kúbu hef-
ur ákveðíð aö viðurkenna sjálf-
stæði Eystrasaltsríkjanna. Með
þessu þykir stjórnin hafa tekið
raunsæi i utanrikismálum fram
yflr sína gömlu hugmyndafræöi
en Kúbustjórn hefur fýlgt harð-
línumönnum í Sovétríkjunum að
málum og leiðtoginn Fidel Castro
fagnaði valdaráninu i Moskvu í
síðasta mánuöi.
í tilkynningu frá utanríkis-
ráöuneyti Kúbu sagöi að stjórnin
væri reiðubúin til að taka upp
stjórnmálasamband við Eystra-
saltsríkin og vonaðist til aö eiga
góð samskipti við þau. Rcuter
Mikið áfall fyrir Brundtland
- flokkar bænda og vinstrimanna bættu við sig miklu fylgi
„Þótt kosið hafi verið um fleiri mál
en hugsanlega aðild að Evrópu-
bandalaginu þá réð það úrshtum.
Miðflokkurinn hefur rekið harðan
áróður á landsbyggðinni og tengt
framtíð landbúnaðarins og frum-
vinnslugreinanna við Evrópumálin.
Flokknum hefur tekist að finna með
þessu móti hljómgrunn fyrir and-
stöðu við stefnu stjórnarinnar í við-
ræðum við Evrópubandalagið,"
sagði Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs og formaður
Verkamannaflokksins, þegar niöur-
stöður noskru sveitarstjórnarkosn-
inganna lágu ljósar fyrir í nótt.
Brundtland varð fyrir alvarlegu
áfalli í kosningunum og flokkur
hennar tapaði ríflega fimm prósent-
um atkvæða. Sigurvegarar kosning-
Gro Harlem Brundtland og Verka-
mannaflokkurinn guldu afhroó i
sveitarstjórnarkosningunum í gær.
anna eru á hinn bóginn Miðfiokkur-
inn og Sósíalíski vinstriflokkurinn.
Miðflokkurinn sækir fylgi sitt eink-
um til bænda og bæti hann við sig
álíka miklu fylgi og Verkamanna-
fiokkurinn tapaði. Sósíalíski vinstri-
flokkurinn vann enn meira á og tvö-
faldaði fylgi sitt.
Verkamannaflokkurinn er nú með
rúm 30% atkvæða á bak við sig og
hefur ekki farið svo illa út úr sveitar-
stjórnarkosningum í áraraðir. At-
hygli vekur að Hægri flokkurinn
stendur einnig höllum fæti eftir
kosningarnar og er nú með tæp 22%
fylgi. Flokkurinn tvpaði tvemur pró-
sentum atkvæða frá því í síðustu
kosningum.
Kaci Kullman Five, formaður
Hægri flokksins, hefur sömu skýr-
ingum á úrshtunum og Brundtland.
Barátta Miðflokkisns og Sósílaíska
vinstrifiokksins gegn Evrópubanda-
laginu og viðræðunum um evrópska
efnahagssvæðið skilaði þeim drjúgri
fylgisaukningu.
Framfaraflokkur Carls I. Hagen
galt afhroð í kosningunum og missti
helming atkvæða sinna frá því síð-
ast. Flokkurinn hefur nú rúm sjö
prósent atkvæða.
Margir kjósendur sátu heima og er
það einnig túlkað á þann veg aö
óánægðir kjósendur hafi viljað refsa
stóru flokkunum fyrir makk þeirra
í Evrópumálunum með því að sitja
heima fremur en að kjósa andstæð-
ingana.
NTB