Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991.
íþróttir unglinga_____________________________
íslandsmótiö, knattspyrna 4. flokks:
Enn tapar
KRfyrir
Breiðabliki
- beiö aftur lægri hlut 1 úrslitaleik, 2-1
„Ekkert við þessu að segja“
Andri Sigþórsson, fyrirliði 4. flokks
KR, kvað völlinn hafa verið mjög
erfiðan og hefði það spillt mjög fyrir:
„Við náðum aldrei að sýna hvað í
okkur býr enda erfitt að spila við
þessar vallaraðstæður. Leikurinn
var jafn og gat sigurinn allt eins orð-
ið okkar - en við nýttum illa mark-
tækifærin," sagði Andri.
„KR-ingarnir erfiðir“
„Þetta var mjög erfiður leikur því að
KR-ingar eru með mjög gott lið. Við
vissum að við yrðum að berjast vel
ef við ætluðum okkur að sigra og það
tókst. Vissulega erum við með frá-
bæran þjálfara, og skiptir það að
sjálfsögðu miklu máli. Völlurinn var
ömurlegur og ómögulegt að ná upp
almennilegu spili. - Þetta er í fyrsta
skipti sem ég verð íslandsmeistari í
knattspyrnu utanhúss og er það stór-
kostleg tilfinning," sagði Grétar Már
Sveinsson, fyrirliði 4. flokks Breiða-
bliks.
Erfiður völlur
Leikmenn beggja liða kvörtuðu mjög
yfir vallaraðstæðum enda var Val-
bjarnarvöllur nánast allur á floti og
því mjög erfitt að leika knattspyrnu.
Það þótti viö hæfi að fresta meist-
araflokksleik Fram og KR á KR-velli
af sömu ástæðu. Að sjálfsögðu þarf
einnig að taka tillit til þeirra yngri
og hefði í engu breytt þótt þessi leik-
ur hefði farið fram síðar í vikunni.
Grétar Már Sveinsson, fyrirliði 4. Þrátt fyrir það var með ólíkindum
flokks Breiðabliks, fagnar íslands- hvað drengjunum tókst oft vel við
meistaratitli. DV-mynd Hson þessar bágu aðstæður. -Hson
Þeim ætlar að ganga erfiðlega í 4.
tlokki KR að sigra Blikana í úrslita-
leik í íslandsmótinu. Þessi sömu fé-
lög léku til úrslita í mótinu í fyrra
og urðu KR-ingar þá að lúta í lægra
haldi, 2-1, og nú skeði það aftur og
meira að segja með sömu markatölu.
Andri Sigþórsson, fyrirliöi KR-
liðsins, skoraði fyrsta mark leiksins
í fyrri hálfleik en harin lék einnig
úrslitaleikinn í fyrra. Blikarnir náðu
að jafna, 1-1, og var þar að verki
Atli Kristjánsson. Staðan í hálfleik
var 1-1. Það var svo undir lok leiks-
ins að Kjartan Ásmundsson skoraði
sigurmark Breiðabliks.
Leikur liðanna var mjög jafn og
spennandi allan tímann.
íslandsmótiö, knattspyma 3. flokks:
Jaf nt hjá Val og KR
eftir framlengingu
- annar úrslitaleikur á morgun kl. 17.30
Úrslitaleikur 3. flokks Vals og KR
í íslandsmótinu fór fram á Valbjarn-
arvelli sl. laugardag. Leiknum lauk
með jafntefli, 1-1, eftir framlengingu.
Annar leikur verður á morgun á
Valbjarnarvelli og hefst hann klukk-
an 17.30.
Valsmenn nærsigri
Valsstrákarnir voru nær sigri í leikn-
um gegn KR en það var við erfiðan
að eiga í marki KR þar sem Atli
Knútsson varði eins og berserkur.
KR-liðið náði sér aldrei verulega á
strik í leiknum á laugardaginn. Mark
Vals gerði Geir Brynjólfsson á 12.
mínútu - og 2 mínútum síðar jafnaði
Andri Sveinsson fyrir KR með fostu
skoti úr aukaspyrnu af um 25 metra
færi og hafnaði boltinn í vinklinum
- sérlega glæsilegt mark.
Vert er að hvetja knattspyrnuunn-
endur til aö koma og fylgjast með
leik strákanna á morgun. Það er vel
þess virði því bæði þessi lið eru mjög
góð. -Hson
Frá leik Vals og KR i 3. flokki. KR-ingar sækja að marki Vals. Liðin mæt-
ast öðru sinni annað kvöld kl. 17.30 á Valbjárnarvelli. DV-mynd Hson
íslandsmeistarar Breiðabliks i 4. ilokki 1991. - Liðið er þannig skipað: Freyr Brynjarsson, Ingi Guðlaugsson, Ey-
þór Sverrisson, Kjartan Ásmundsson, Davíð Guðjónsson, Snorri Viðarsson, Hjalti Kristjánsson, Atli Kristjánsson,
Grétar Már Sveinsson fyrirliði, Bjarni Jónsson, Guðmundur Guðmundsson, Magnús Blöndal, Jón S. Sveinsson,
Guðjón Gústafsson, Jón Emil Sigurgeirsson, Gunnar Jónsson, Bergur Sigfússon og Björn Freyr Ingólfsson. - Þjálf-
ari strákanna er Einar Sveinn Árnason, liðsstjórar eru Sighvatur Blöndal, Sveinn Ingvason og Jón Bjarni Bjarna-
son. Lukkutröllið litla er Ágúst Leó Sveinsson. DV-mynd Hson
íslandsmeistarar Fram í knattspyrnu 5. flokks 1991. Liðin eru skipuð eftirtöldum leikmönnum: A-lið: Daníel
Bjarnason, Jón Kristinn Valsson, Eggert Stefánsson fyrirliði, Egili Skúlason, Davíð Gunnarsson, Þorri Björn
Gunnarsson, Andrés Jónsson, Haukur Hauksson, Finnur Bjarnason, Björn Þór Pétursson, Björn Blöndal,
Freyr Karlsson og Sigurður Óli Sigurðsson. B-liðlð: Simon Gísli Símonarson, Baldur Karlsson, Vilhelm Sig-
urðsson fyrirliði, Þórir Hall Stefánsson, Viðar Guðjónsson, Baldur Knútsson, Daði Guðmundsson, Birgir Guð-
mundsson, Garðar Sveinn Hannesson, Ómar Örn Ólafsson, ívar Jónasson og Daníel Traustason. Þjálfari
þeirra er Lárus Grétarsson. Liðsstjórar eru Helga ívarsdóttir og Pétur Guðlaugsson. DV-mynd Hson
Knattspyma - 5, flokkur:
Fram íslandsmeistari
- Haukur Hauksson, Fram, skoraði þrennu
Úrslitaleikurmn í íslandsmóti 5.
flokks í knattspymu fór fram á
ÍR-vellinum sl. sunnudag. Til úr-
slita léku Fram og Keflavík. Báðir
leikirnir vom mjög spennandi og
knattspyman góð hjá strákunum.
Leikirnir voru mjög jafnir framan
af en Framarar sigruðu á enda-
sprettinum í þeim báöum, í B-liði
2-1 og A-liði 6-4.
B-lið: Fram-Keflavík 2-1
Fyrri hálfleikur hjá B-liðunum var
eldfiörugur þótt svo ekkert mark
yrði skorað. Framarar gerðu 1.
mark leiksins í upphafi siðari hálf-
leiks. Þar var að verki Baldur
Knútsson sem skoraði með föstu
skoti i bláhornið. - Hjörtur
Fjeldsted jafnaði skömmu síðar
með þrumuskoti af um 20 metra
færi og færðist nú heldur betur fjör
í leikinn og sköpuðust góð færi á
báða bóga, en markverðir beggja
liða voru vandanum vaxnir. Fram-
arar áttu betri endasprett og á loka-
mínútunni skoraði Omar Örn Óm-
arsson sigurmarkið, við mikilfagn-
aðarlæti félaga sinna.
A-lið: Fram Keflavík, 6-4
Leikur A-liðanna var mjögtvísýnn
lengi vel og komst Keflavík í 3-1
en Framstrákamir létu það ekkert
trufla ásetninginn og sigu fram úr
undir lokin og unnu, eins og áður
segir, 6-4. - Haukur Hauksson var
í miklum ham og skoraði 3 fyrstu
mörk Fram, Finnur Bjarnason
gerði 5. markið og Björn Blöndal
skoraði 2 síðustu mörkin og inn-
siglaði góðan sigur Framara. -
Guðmundur Steinarsson skoraði 2
fyrstu mörk Keflavíkur, Ágúst Ax-
elsson það 3. og Kristján Helgi Jó-
hannsson það fjóröa. - Þetta vom
góðir leikir tveggja sterkra liöa.
„Erfiður leikur"
Eggert StefánSson, fyrirliði A-liðs
Fram var að vonum ánægður með
titilinn en kvað leikinn hafa verið
erfiðan:
„Ég hélt um tiraa að við værum
að tapa leiknum þegar við vomm
undir 1-3. En við byijuðum aftur
að spila okkar fótbolta og þá gengu
hlutimir upp. Við sóttum meir og
finnst mér úrslitin vera réttlát. -
Við em með góðan þjálfara og hef-
ur þaö sitt að segja,“ sagði Egg-
ert.
„Mistókst að dekka“
Guðmundur Steinarsson, fyrirliöi
A-liðs Keflavíkur:
„Ég var alls ekkert viss með sígur
þegar staðan var 3-1 okkur í hag,
því þaö var svo mikiö eftir af leik-
tímanum. Okkur mistókst að
dekka þá. Þeir vom of lausir undir
lokin og því fór sem fór,“ sagði
Guðmundur. -Hson
Eggert Stefánsson, fyrirliöi Fram,
harnpar bikarnum.