Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. Útlönd Hungraðar kengúrur éta hveiti Hungraðar kengúrur í Astralíu hafa orðiö að yfirgefa heimkynni sín úti í eyðimörkinni vegna þurrka og leita fæðu á hveitiökrum. „Kengúrumar koma um langan veg í leit að grænum akri,“ sagði Alex Nicol, talsmaður ástralskra hveitiframleiðenda. „Þetta er sérstaklega slæmt inni í landi þar sem þurrkar haía herjað. Kengúrurnar koma utan af auðninni í grenndinni og inn á akrana." Þurrkar, sem taidir eru vera fyrsta teikn um að veðurfyrirbærið el Nino sé á leiðinni, hafa farið ilia með grösugar jarðir í Queenslandfylki. Búist er við að hveitiuppskeran þar í ár veröi aðeins um 400þúsund tonn, sú lélegasta frá 1971. í síðustu viku var lýst yfir neyðarástandi vegna þurrka á 60 prósentum landsvæöis Nýja Suður Wales, næststærsta hveitiræktarhéraðs Ástralíu. Navratilova neitar öllu Tennisstjarnan Martina Navratilova neitar því að hafa samið við fyrrum ástkonu sina um greiðsiur. Simamynd Reuter Tennisstjaman Martina Navratilova sagði grátandi fyrir rétti í Fort Worth í Texas í gær að henni hefði veriö hótað að lesbískt ástarsamband hennar við Judy Nelson, fráskilda konu frá Texas, yrði gert opinbert nema hún féllist á að skipta eigum sínum með konunni. Navratilova var þreytuleg að sjá í réttinum en hún keppti í opna banda- ríska meistaramótinu í tennis um helgina. Hún brast nokkrum sinnum í grát í vitnastúkunni. Martina las úr bréfi frá lögfræðingi Judy þar sem taldar eru upp ástæð- ur fyrir því að hún ætti ekki að láta málið koma fyrir rétt. Þar á meðal er talað um missi á auglýsingatekjum vegna siðgæðisklásúlu í samningi hennar. Navratilova neitaöi að semja viö Nelson sem síðan höfðaði mál gegn tennissfjörnunni í júní og fór fram á helming þess sem Martina vann sér inn eftir að þær hófu að búa saman í júlí 1984. Prakkaramirflækja málið Þegar tveir breskir prakkarar staðhæfðu það í gær að þeir hefðu gert stóru hringina sem hafa sést í breskum kornökrum á undanfómum ámm virtist máhð vera leyst. En Adam var þó ekki lengi í Paradis. Breskir sérfræöingar vom ekki seinir á sér aö vísa staöhæfingum mann- anna tveggja, sem báðir eru á sjötugsaldri, á bug. Þeir höfðu sagt dagblað- inu Today að þeir hefðu notað fjalir, snæri og tæki nokkurt sem þeir festu á hornaboltahúfu. Blaðið sýndi myndir af þeim félögum, David Chorley og Doug Bower, þar sem þeir vom að búa til hring á kornakri í Kentsýslu og sagði að þar með hefði það flett ofan af kornhringjunum og þeir væm bara gabb. En sérfræöingamir Patrick Delgado og Colin Andrews, sem hafa skrif- að tvær bækur um málið, rannsökuðu hring mannanna og lýstu því yfir að hann sannaði aðeins aö fyrri hringir væm ekki gabb. Sérfræðingarnir sögðu að hinir sjálfskipuöu gabbarar væru sjálfir hiuti af gabbi. Mike Tyson ákærður fyrir nauðgun Mike Tyson, fyrrum heimsmeist- ari í hnefaieikum, sem þekktur er fyrir að gera andstæðinga sína óvirka í fyrstu lotu á nú fyrir hönd- um erfiðustu baráttu lífsins. Ekki þó í hringnum heldur fyrir dóm- stólum þar sem kappinn hefur ver- ið ákærður fyrir nauðgun. Það var kviðdómur í borginni Indianapolis sem ákærði boxarann í gær fyrir meinta líkamsárás á 18 ára feguröardís. Konan, sem ekki hefur verið nafngreind en kcmur frá Rhode Island fylki, sagði lögreglunni aö henni hefði verið nauðgaö eftir að hún tók þátt í samkeppni um feg- Mike Tyson, fyrrum heimsmeistari urstu blökkustúlkuna í Ameríku í i hnefaleikum, á fyrir höndum júlí. Hún hafði farið heim á hótel langa og stranga baráftu fyrir meðTysoníglæsikerruhans. dómstólum vestra. Símamynd Reuter Reuter Eyðn'rfaraldur á Grænlandi Á Grænlandi hafa nú fundist þijátíu og tveir einstaklingar sem smitað- ir eru af eyöniveirunni. Danskir læknar segja að það jafhgildi því að eyðnifaraldur sé í landinu. Á þessu ári hafa komiö upp átta ný tilfelli smitaðra og þar af þijú á síðustu tveimur vikum. Nýjustu tilfelhn eru lyá konum sem hafa smitast við kynmök við karlmenn. Samtals hafa þrjátíu prósent smitaöra fengið veiruna í gegnum kynmök við gagnstætt kyn. í Danmörku er sú tala fimmtán prósent. Tveir danskir sérfræðingar, sem hafa fylgst með eyðnismiti á Græn- landi, segja ástæðu til að vera áhyggjufullur um framtíðina þar sem kyn- makaaldur grænlenskra ungmenna lækkar stöðugt. Ritzau Mikil ofbeldisalda reið yfir Suður-Afríku um helgina. Hér sést lögreglan flytja iik eins þeirra 57 manna, sem létust i bardögum stuöningsmanna Afriska þjóðarráðsins og Inkathahreyfingar zulúmanna. Símamynd Reuter Suður-Afrlka: Vopnaburður ógn- ar friðarráðstef nu - 69 manns létu lifið í innbyrðis átökum blökkumanna Stríðandi fylkingar blökkumanna í Suður-Afríku hafa heitíð því að undirrita friðarsamning þrátt fyrir aukið ofbeldi í blökkumannabyggð- um en spenna er mikil vegna ágrein- ings um tillögur að afvopnun sveit- anna. Nelson Mandela, forsetí Afríska þjóðarráðsins, og Mangosuthu But- helezi, leiötogi Inkathahreyfingar zúlúmanna, ítrekuðu í gær að þeir mundu sækja friðarráðstefnu þó svo að 69 manns hefðu látið lífið í ofbeld- isaðgerðum stuöningsmanna þeirra frá því á sunnudag. Leiðtogarnir tveir sögðu að blóð- baðinu sem hófst þegar tuttugu og fjórir stuðningsmenn Inkatha voru myrtir með köldu blóði virtist hafa verið ætlað að gera að engu bestu vonir manna til þessa um að sætta andstæöar fylkingar. Mandela sagði að hann fagnaði yf- irlýsingu Buthelezis þess efnis að zúlúhreyfing hans mundi undirrita friðarsamninginn sem lengi hefur verið beðið eftir og á að binda enda á bardaga sem hafa orðið tvö þúsund manns að bana á einu ári. En hann bentí á að algert bann við hefðbundnum afrískum vopnum eins og spjótum, prikum og kylfum, hefði verið tekið út úr nýjasta upp- kasti samkomulagsins og í staðinn sett klásúla um að deiluaðilar mundu ræða málið. Ríkisstjóm de Klerks forseta, Af- ríska þjóðarráöið og Inkathahreyf- ingin eiga að undirrita friðarsam- komulagið á ráðstefnu sem haldin er á vegum kirkjunnar á laugardag- inn kemur. Deilan um vopnaburðinn hefur gert margar fyrri tílraunir tíl að koma á friði að engu. Afríska þjóðar- ráðið hefur sakað inkathamenn um að nota slík vopn til að drépa og lim- lesta fólk. Inkathahreyfingin hefur neitað að falla frá því sem hún kallar hefðbundið skraut sem alhr zúlú- menn verða að bera. Ríkisstjómin hafði fyrr á árinu bannað ýmsar tegundir vopna í blökkumannabyggðum við Jóhann- esarhorg en nokkrar tegundir vopna eru enn leyfðar á „menningarsam- komum“. Manndrápin um helgina byrjuðu eftír að þrír ókunnir menn sátu fyrir 300 stuðningsmönnum Inkatha- hreyfingarinnar og hófu skothríð á þá úr öflugum byssum. Bandaríkjastjórn hefur hvatt stjórnvöld í Suður-Afríku til að rann- saka til fulls ofheldisaðgerðirnar um helgina. Talsmaður bandaríska ut- anríkisráðuneytisins sagði í gær að stjórnin í Washington hefði hvatt leiðtoga Afríska þjóðarráðsins og Inkathahreyfmgarinnar til að vinna saman og vinna með stjórn Suður- Afríku til að tryggja að hægt yrði að bindaendaáofbeldið. Reuter Skæruliðar Kúrda hand- sömuðu íraska hermenn Skæruliðar Kúrda handsömuðu nokkur hundruð íraska hermenn í bardögum yfir helgina í Norður-írak, að því er vestrænir heforingjar skýrðu frá í gær. „Við teljum ekki að atburðirnir hafi orðiö vegna ögrunar af hálfu íraka,“ sagði Richard Naab, höfuðs- maður í bandaríska hemum, yfir- maður herafla bandamanna í tyrk- neska bænum Silopi. Einn herforingi bandamanna lýsti bardögunum á sunnudag í Kuys- anjag, suöaustur af Irbil, sem sigri fyrir Kúrda. Bardögum við Kuyak fyrir norðvestan Kirkuk á laugardag lauk með vopnahléssamkomulagi og fangaskiptum. Sadruddin Aga Khan prins, sem er framkvæmdastjóri hjálparaðgerða Sameinuöu þjóðanna á svæðinu, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem sagt var frá bardögum í norður- hluta íraks og hann hvatti menn til að sýna stillingu. Talsmaður kúrdíska ættjaröar- sambandsins í London sakaði her- sveitir íraka um að hafa ráðist á sjö þorp og bæi Kúrda og í einni árá- sinni að minnsta kosti hefði veriö beitt þyrlum, stórskotaliði og skrið- drekum. Bardagarnir bratust út á sama tíma og samningaviðræður milli stjórnar Saddams Hussein og leið- toga kúrdískra skæruhða eru á við- kvæmu stigi. Fram er komin tíllaga um sjálfsstjóm fyrir Kúrda sem mundi veita þeim margvísleg póhtísk réttindi. Kúrdar geta hins vegar ekki komið sér saman um hvort þeir eigi að fahast á tillögmia. Yfirmenn herafla bandamanna telja að bardagarnir á laugardag hafi brotist út þegar skæruhðar fóra inn á svæði undir stjórn íraskra her- sveita sem handóku og afvopnuðu nokkra þeirra. Harðir bardagar fylgdu í kjöifarið þegar skæruhðar sendu liðsafla til aðleysafanganaúrhaldi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.