Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991.
25
Fréttir
Ævintýri útilegustóls
Sagan af leöurstólnum sem gisti á flöllum í þrjú ár, átta mánuði og tvo daga
Þarna fannst stóllinn I urðinni. DV-mynd Hlynur Þór
Hlyirnr Þór Magnússon, DV, fsafiröi:
Nú er loksins kominn aftur í hús á
ísafiröi forláta leðurstóll frá Hús-
gagnaloftinu, eftir að hafa húrrað
ofan af bílpalli og legið úti uppi á
heiði hátt á fjóröa ár. Á þeim tíma
hefur stóllinn ferðast með veðri og
vindum eina 4 km, aðallega um stór-
grýtisurð. Hann er lítið skemmdur,
naer ekkert sér á leðrinu en grindin
er lítUsháttar löskuð á einu horninu.
Málsatvik eru þau, að rétt fyrir jól-
in áriö 1987, hinn 22. desmeber, komu
þau Skúli, bóndi á GemlufaUi í Dýra-
firði, og Ragnhildur húsfreyja í versl-
unina Húsgagnalofið inni í Ljóninu
á ísafirði og festu kaup á leðursófa-
setti, sem síðan átti að senda heim
til þeirra. Sófasettið lagði von bráðar
af stað á opnum vörubíl og var bund-
ið yfir það. Þegar Steinþór bílstjóri
var kominn í Önundarfjörð komst
hann að raun um að stólUnn úr sett-
inu var horfmn af bílnum. Hann
hringdi að Gemlufalli og lét vita, en
fór svo aftur upp á Breiðadalsheiði
að leita þar sem hann taldi líklegast
að stóUinn heföi farið af bílnum.
Þau GemlufaUshjón hringdu aftur
á móti í Heiðar Sigurðsson, eiganda
Húsgagnalofstins, en hann fór þegar
í stað upp á heiði og gekk mestan
hluta leiðarinnar tU baka-, án þess
að finna stólinn. Næsta dag (Þorláks-
messu) var farið til leitar á vélsleða,
en án árangurs. Eftir þetta höfðu
menn jafnan augun hjá sér þegar
þeir fóru þessa leið.
En það var ekki fyrr en haustið
1990, fyrir réttu ári, sem stóllinn kom
í leitirnar. Það voru göngugarpar í
fjaUaferð sem gengu fram á hann í
stórgrýtisurð í dalverpi nokkru á
Breiðadalsheiði, um fjóra kólómetra
frá þjóðveginum. Einn mannanna
hafði heyrt um stólinn sem hvarf og
létu þeir Húsgagnalofið vita. Grétar
verslunarstjóri fór upp eftir og tók
myndir en ekki varö af því að sinni
að flytja stólinn til byggöa enda um
torleiði að fara og stóllinn verklegur.
Það var loksins nú um fyrri helgi
sem gerður var út leiðangur til að
sækja stóhnn og var hann fluttur
áleiðis til byggða á kviktrjám. Hann
hafði þá legið úti í þrjú ár, átta mán-
uði og tvo daga. Telja má með óUk-
indum hversu Utið sér á honum eftir
frosthörkur þriggja vetra og a.m.k.
fjögurra kólómetra ferðalag um urö-
ir og grjót í stórviðrum vestfirskra
heiða.
Það Uggur fyrir að stóUinn góði fer
ekki að GemlufalU, eins og tU stóð í
Hann lítur ekki sem verst út, stólinn, ettir volkið ó heiðinni.
DV-mynd Hlynur Þór
fyrstu. Á næstunni verður hann til ur um þýska framleiðslu eins og hún
sýnis á Húsgagnaloftinu, vitnisburð- gerist endingarbest.
Viða eru miklar stæður af rúlluböggum eins og þessi mynd, sem tekin
er við bæinn Ysta-Mó í Fljótum, ber með sér. DV-mynd Örn
Rúllubagginn
stöðugt í sókn
DV-mynd Örn
Unnið við að stilla Roaldsbrakka af á grunninum í siðustu viku.
öm Þóraiinsson, DV, Fljótuiru
Heyskap er nú nær alls staðar
lokið í Fljótum og gekk hann mjög
vel í sumar. Þurrkur var með allra
besta móti þar til um miðjan ágúst
að breytti um tíðarfar. Heyfengur
er nokkuð misjafn að vöxtum milli
bæja en víðast ágætur.
Þó töfðu miklir þurrkar fyrir
sprettu framan af sumrinu en ágæt
háarspretta bætti það að nokkru
leyti upp og vonast menn til að
fóðrið sé með besta móti. í sumar
var meira hey verkað í rúllubagga
í Fljótum en nokkru sinni fyrr og
eru nokkrir bændur með allt sitt
hey þannig verkað. Rúllubagga-
heyskapur þykir talsvert fljótlegri
en sá heföbundni og fóðrið í flestum
tilfellum betra en þurrkað hey.
Stórbætt orgel í
Selfosskirkju
Kristján Einaisson, DV, Selfossi:
Orgehð í Selfosskirkju hefur fengið
algera gegnumtekningu og hljómar
nú eins og bestu orgel eiga að gera.
Bætt hefur verið við orgelið 38 rödd-
um og að sögn Glúms Gylfasonar,
orgeUeikara kirkjunnar, er um stór- ■
kostlega endurbót að ræða. í tílefni
£if þessu verða orgeltónleikar öll
þriðjudagskvöld í september. Margir
þekktir orgelleikarar víðsvegar að
úr heiminum koma og spUa á þessum
tónleikum.
Sigluflörður:
Roaldsbrakki end-
urreistur
Öm Þóiarinsson, DV, Fljótum:
Nokkrar skemmdir urðu á Roalds-
brakka á Siglufirði fyrir skömmu
þegar hann fauk og hafnaði á hliö-
inni. Verið var aö koma þessu gamla
timburhúsi fyrir á steyptum grunni
þegar óhappið varð. Menn, sem að
verkinu unnu, áttu lítið eftir við að
stiUa húsið af á grunninum þegar
skyndilega hvessti á Siglufirði og í
einni hviðunni fauk bragginn um
fjóra metra tU norðurs.
Menn létu þetta óhapp hins vegar
ekki stöðva sig og nú er unnið af
kappi við að festa húsið tryggUega á
grunninn þar sem því er æUað að
vera í framtíðinni.
Roaldsbrakki er norskur sUdar-
braggi sem byggður var 1907. Hópur
áhugafólks á Siglufiröi hefur bundist
samtökum um að varðveita þetta hús
með það fyrir augum aö í því verði
síldarminjasafn. Siglfirðingar hafa
um árabU varðveitt ýmsa muni sem
tengdust síldarárunum og þar er nú
þegar tU allmikið safn áhalda frá
þessum tíma.
Meðan verið er að búa Roalds-
brakka undir að hýsa safnmuni eru
þeir í geymslu í húsi SUdarútvegs-
nefndar á Siglufiröi og þar hefur fólki
gefist kostur á að skoða safniö í sum-
ar.