Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991.
5
Fréttir
Jarðvegi f rá jarðganga-
gerð rutt út í Langá
- laxinnflýturdauðurniðurána
Jón Víðir, DV, Suðureyit
Þegar byijaö var á framkvæmdum
við jarðgangagerð á Botnsdal í Súg-
andafirði virðist allt benda til þess
að verktakar hafi vaiið ódýrustu leið-
ina fyrir sig, en kannski ekki fyrir
vegagerðina, við að koma jarðvegi
frá gangamunnanum.
Að sögn sjónarvotta, sem fréttarit-
ari DV ræddi við, var staðið mjög
einkennilega að þessum jarðvegs-
flutningum. Langá, sem er upp af
Laxalóninu í Botni, var bókstaflega
notuð í staðinn fyrir flutningstæki
og var öllum jarðvegi af stóru svæði
rutt beint í ána og áin þannig látin
flytja mold og annan jarðveg til sjáv-
ar. Við þessa framkvæmd voru að-
eins notaðar beltagrafa og jarðýta
svo ljóst má vera að jarðvegurinn
átti aldrei að fara annað en í ána.
Ekki stóð á afleiðingum þessa
verknaðar því mold og leir settist í
botn árinnar og laxinn fór að fljóta
dauður niður ána. Nú er Langá og
Lónið eins og kolmórauður drullu-
pollur á að líta og ekkert hefur veiðst
síðan þessar framkvæmdir hófust.
Mjög góð veiði hafði verið þar á und-
an. Veiðimenm. sem urðu að hætta
eftir tvo og hálfan dag þegar áin
mengaðist svona, voru búnir að fá
37 laxa á aðeins tvær stangir. Ekki
er hægt að meta allt það tjón sem af
þessu hlýst nú en ljóst að það er veru-
legt. Laxeldi hér í Botni hófst fyrir
25 árum og hafa síðustu þrjú árin
komið sérstaklega vel út.
Litill bergvatnslækur rennur i kolmórauða bergvatnsána Langá í Súganda-
firði eftir mengun verktaka við jarðgangagerö i Botnsdal.
DV-mynd Jón Víðir
Allir vilja hér í Súgandafiröi fá mn á norðanverðum Vestfjörðum og um en svona nokkuð má ekki endur-
jarðgöng tíl að tengjast byggðarlög- rjúfa þá einangrun sem hér er á vetr- taka sig.
GLASG0VL11®
FERÐATILBOÐ MÁNAÐARINS
Dagsferðir til Glasgow 20. og 21. september - endanlegt staðgreiðsluverð án flugvalla-
skatta og forfallatryggingar
aðeins kr. 11.900,-
Brottför kl. 7.00 að morgni - komið aftur til Keflavikur kl. 11.00 að kvöldi.
Flugtími aðeins ein klukkustund og fjörutiu og fimm mínútur.
Tilvalið tækifæri til að eiga góðan dag i stórborginni, skoða sig um og heimsækja stórversl-
anir og útsölur.
Innifalið i verði: flug, ferðir frá flugvelli í Glasgow inn i borgina
og til baka og islensk leiðsögn.
ALLTAF MEÐ LÆGSTA VERÐIÐ
— Fl IIHFERDIR
= SGLRRFLUG
VESTURGÖTU 12, SÍMAR 620066, 10661 OG 15331
xampox
/ skófatnaðui\
HAUSTSKORNIR
KOMNIR
xampox
/ skófatnaður\
Mjög sterkur og þægilegur
hversdagsskór. Nabuc leður.
Reimaður. Litur - dökk
grænn. St. 36-41.
%tira*n**u
Stílhreinn og glæsilegur kvenskór úr
nabuc-leðri. Allur leðurfóðraður.
Leðursóli. Litur - svartur. St. 36-41.
Sterkur og vandaður leðurskór
með sóla sem þolir m.a. olíu,
bensín, síru ofl. Litur - svartur.
St. 36-41.
Nánast sami skór og 7990,
nema hvað saumur er yfir
ristina.
3>ér gengur betur á góðum skóm...
SKÓS4LAN
LAUGAVEGI 1 - SÍMI 1-65-84
Loðfóðraður kuldaskór úr
rúskinni. Hefur margsannað sig
við íslenskar aðstæður
undanfarin ár. Litir - brúnt og
svart. St. 41-46. (36-41 vænt.l.)
^tiramryu
Sérlega þægilegur kvenskór úr
rúskinni. Allur leðurfóðraður.
Litur - svart. St. 36-41.