Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. Viðskipti Veruleg aukning í nýjum innfluttum fólksbílum: Toyota og Mitsubishi eru í hörkuslag um toppsætið Veruleg aukning hefur oröiö í nýj- um innfluttum fólksbílum á þessu ári. Eins og oft áður á undanförnum árum eru það Toyota og Mitsubishi sem slást af hörku um toppsætið. Eftir fyrstu átta mánuðina slefar Mitsubishi í að hafa vinninginn. Þrátt fyrir aukinn bílainnflutning er hann aðeins um helmingur þess sem hann var á metárinu 1987 þegar fluttir voru inn yfir 18 þúsund nýir fólksbílar. Fyrstu átta mánuði þess árs var fluttur inn 6.841 nýr bíll á móti um 4.500 bílum á sama tíma í fyrra og hittifyrra. Miðað við reynslu síðustu þriggja ára spáir DV því að heildarinnflutn- ingur fólksbíla verði í kringum 9.300 bílar á öllu árinu eða um helmingur þess sem var á árinu 1987. Bilainnflutningur er að aukast en er samt minni en i meðalári ennþá. Innfluttir fólksbílar 1986-1991 18081 13352 □ Alltárið H Fyrstu 8 mán. 12206 '86 '87 '88 '89 '90 '91 Á landinu eru skráðir yfir 120 þús- und bílar. Miðað við að endingartími hvers bíls sé um 10 ár væru fluttir inn þetta 10-12 þúsund bilar á ári. Standist spá DV-um að innílutning- urinn á árinu verði í kringum 9.300 fólksbílar er ljóst að bílainnflutning- urinn er að nálgast jafnvægi. Miðað við endingartíma upp á 10 ár er bíla- innflutningurinn enn undir því sem er í meðalári. Fyrstu átta mánuðina voru fluttir inn 1.254 bílar af Mitsubishi, 1.228 af Toyotu, 680 bílar af Nissan, 721 bíll af Subaru og 478 bílar af Lödu. Þetta eru efstu fimm sætin. Þess má geta að fyrirtækið Ingvar Helgason hf. er með umboð fyrir Subaru og Nissan og hefur það því flutt inn flesta bílana á þessu ári. -JGH ÁTVR hættir með Eldur-ís - samnlngar viö Glenmore í Bandaríkjunum úr sögunni um áramótin ÁTVR, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, hyggst hætta allri fram- leiðslu á vodkanu Eldur-ís frá og með áramótum. Þar meö hverfur þessi vodkategund úr hillum bæði á ís- landi og í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að salan á vodkanu gekk ekki upp i Bandaríkjunum en þar hefur fyrirtækið Glenmore annast dreif- ingu og sölu. Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, segir að framleiðslan á Eld- ur-ís vodka hafi frá upphafi eingöngu veriö vegna markaðssetningarinnar í Bandarikjunum. Salan hér á landi hafi því byggst á framleiðslunni fyrir Bandarikjamarkað. „Niðurstaðan úr viðræðum okkar viö Glenmore í sumar varð sú að við hættum samvinnu við fyrirtækið um næstu áramót. Þar með hættum við líka allri framleiðslu á Eldur-ís," seg- ir Höskuldur. Hann segir að dæmið hafi einfald- lega ekki gengið upp með Eldur-ís í Bandaríkjunum. „Salan vestanhafs 7 prósent verðbólga: Matur lækkar Verðbólga er nú 7 prósent mið- að við hækkun framfærsluvísi- tölunnar í ágúst. Það vekur at- hygli að verðlækkun hefur orðiö á matvælum i búðum frá ágúst til september. Kauplagsnefnd hefur reiknað út vísitölu framfærslukostnaðar miðað viö verðlag í bytjun sept- ember og reynist hún vera 158,1 stig eða 0,6 prósent hærri en í ágúst Veröhækkanir á bensíni og áfengi í upphafi þessa mánaðar eiga drjúgan þátt í hækkuninni, auk hækkunar á öðrum vöru- og þjónustuliðum. Kauplagsnefnd finnur út að verðlækkun hafi orðið á matvæl- um á milli mánaða. Sú lækkun dró verulega úr hækkun fram- færsluvísitölunnar að þessu sinnt Síðastliðna tólf mánuði hefur framfærsluvisitalan hækkað um 7,7 prósent. Síðastllðna þijá mán- uði hefur hún hins vegar hækkað um 8,5 prósent. Verðbólgan er því núnaániðurleið. -JGH réttlætti ekki að henni yrði haldið áfram. Þetta er því búið dæmi frá og með áramótum." ÁTVR geröi á sínum tíma fimm ára samning við Glenmore um sölu á Eldur-ís í Bandaríkjunum. Sá samn- ingur rennur út um áramótin og verður ekki endurnýjaður. Glenmore fyrirtækið var i sumar selt til United Distillers sem er Guin- nes-hringurinn í Bandaríkjununm. Kaup United á Glenmore eru hins vegar ekki ástæðan fyrir því að sam- starfmu er lokið heldur lítil sala á Eldi-ís. Markaössetning Eldur-ís hefur fengið nokkra umfjöllun í DV á und- anfórnum árum og hefur rauði þráð- urinn verið nokkur bjartsýni Glen- more-manna um að Eldur-ís ætti eft- ir að slá í gegn vestra. Glenmore stíl- aði inn á svonefnda uppa, ríkt ungt fólk sem heldur oft matarboö og býð- ur upp á vodka að málsverði loknum. Glenmore eyddi milljónum í að auglýsa Eldur-ís upp vestra. Þannig Kristján Davíðsson, sölumaður hjá SÍF, sem nýkominn er frá Brasilíu, segir að SIF bjóði sínum framleið- endum mjög svipað verð fyrir verk- aða keilu til Brasilíu og Guðbergur Ingólfsson, fiskverkandi í Garðinum, getur fengið hjá norskum fiskútflytj- anda. Sá hyggst kaupa keiluna af Guðbergi og flytja hana til Brasilíu. DV sagði frá því á föstudag að Guð- bergur heföi haft samband við norska fiskútflytjendur eftir frétt DV í síðustu viku um að Norðmenn væru að kaupa óunna keilu af Jóni Ás- bjömssyni, fiskútflytjanda í Reykja- vík, á háu verði. Guðbergur spuröi sig þeirrar spumingar hvort Norömenn næðu fékk auglýsingaherferð um drykkinn verðlaun vestra fyrir um þremur árum. ÁTVR greiddi ekki krónu í auglýsingakostnaði Glenmore. Fari svo að til verði einhvert magn af glerflöskum merktum vodkanu um áramótin er mjög líklegt að ÁTVR fylli þær fyrir innanlands- markað og hætti svo framleiðslunni endanlega. Auk vodkans Eldur-ís hefur ÁTVR á undanförnum árum framleitt Tindavodka, Brennivín, Hvannarót- arbrennivín og Dillons-gin. Engin breyting verður á þeirri framleiðslu fyrirtækisins. Eldur-ís hefur ekki verið eina ís- lenska vodkað á Bandaríkjamarkaði. Fyrirtækiö Sproti, með Orra Vigfús- son laxveiðimann í fararbroddi, framleiðir Icy-vodka. Eftir áramót verður Icy eina ís- lenska vodkað í hillum bandariskra vínbúða. -JGH betrí samningum við Brasilíumenn við sölu á keilu en Sölusamband ís- lenskra fiskframleiðenda, SÍF. Kristján Davíðsson segir að nýr verðlisti hafi tekið gildi eftir 1. sept- ember enda sé verðið í Brasilíu nú að hækka nokkuð vegna aukinnar eftirspumar fyrir jólin. Verðiö hjá SÍF, sem Guðbergur vitnaði í, var á verðhsta sem gilti til mánaðamóta. „Saitfiskur er lúxusvafa í Brasiiiu. Mest er hann borðaður fyrir jól og páska og þess vegna em brasilískir salfiskkaupendur núna að kaupa saltfisk fyrir jólin. Við þaö hefur eft- irspumin aukist og verðið hækkað." Sem dæmi um veröhækkunina um mánaðamótin segir Kristján að þurrkuð keila, sem var á 2,9 ECU Salan á Eldur-ís brást í Bandarikjun- um og verður henni hætt um ára- mótin. Jafnframt hverfur Eldur-is úr hillum ÁTVR hér á landi. Þetta er búið dæmi. fyrir mánaðamótin, sé núna á 3,2 ECU. Jafnframt að keila, sem var á 3,2 ECU áður, sé núna á 3,6 ECU. Þetta eru aðeins dæmi um tvo stærð- arflokka. Kristján segir að saltfiskfram- leiðsla Norðmanna hafi dregist sam- an og þá vanti fisk til að ílytja út til Brasilíu núna fyrir jólin. Því leiti þeir til íslands. Keila er munaðar\7ara í Brasilíu. „Fyrir jólin er nautasteikin seld á þetta kringum 5 dollara á veitinga- húsum en saltfiskur, þorskur, í kringum 16 dollara. Þetta er því lúx- usvara sem aðeins lítið brot af þjóð- inni getur veitt sér.“ -JGH Kristján Davíðsson hjá SÍF: SÍF býður sama verð og Norðmenn fyrir keiluna - verðið í Brasilíu hefur hækkað að undanfórnu Peningainarkaður INNLÁNSVEXTIR INNLÁN ÓVERDTR. (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 5.5-7 Lb 3jamán. uppsögn 5,5-9 Sp 6mán. uppsögn 6,5-10 Sp Tékkareikningar, alm. 1-3 Sp Sértékkaréikningar VlSITÓLUB. REIKN. 5,5-7 Lb.lb 6mán. uppsögn 3-3.75 Sp 15-24 mán. 7-7,75 Sp Orlofsreikningar 5.5 Allir Gengisb. reikningar i SDR6.5-8 Lb Gengisb. reikningar i ECU 8,5-9 ÓBUNDNIRSÉRKJARAR. Lb Visitolub. kjor, óhreyföir. 3,25-4 Bb överðtr. kjör, hreyfðir SÉRST. VERÐBÆTUR 12-13.5 Lb.Sp (innan tímabils) Visitölubundnirreikn. 6-10,8 Bb Gengisbundir reikningar 6-10,8 Bb BUNDNIR SKIPTIKJARAR Visitolubundin kjör 6,25-7 Bb Överðtr. kjór 15-16 Bb INNL. GJALDEYRISR Bandaríkjadalir 4,5-5 Lb Sterlingspund 9-9,6 SP Vestur-þýsk mork 7,5-9,25 Lb Danskarkrónur 7,5-8,1 Sp ÚTLÁNSVEXTIR útlAnóverðtr. (%) lægst Almennir víxlar(forv.) 20,5-21 Allirnema LB Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 21 22 Sp.íb Vidskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) útlAn verðtr. 23.75-24 Bb Skuldabréf afurðalAn 9.75-10.25 Bb Isl. krónur 18.25-20,5 Lb SDR 9,5-9,75 Ib.Sp Bandarikjadalir 7.8-8,5 Sp Sterlingspund 12,8-13,5 Sp Vestur-þýsk mork 10,5-10,75 Bb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 4.9 5-9 Dráttarvextir 27.0 MEÐALVEXTIR Alm. skuldabréf júlí Verðtr. lán júlí 18,9 9.8 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 3185 stig Lánskjaravisitala ágúst 3158 stig Byggingavísitala sept. 596 stig Byggingavísitala sept. 186.4 stig Framfærsluvisitala ágúst 157,2 stig H úsaleigu visítala 2.6% hækkun 1. júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,908 Einingabréf 2 3,161 Einingabréf 3 3,874 Skammtímabréf 1,970 Kjarabréf 5,526 Markbréf 2,961 Tekjubréf 2,129 Skyndibréf 1,722 Sjóðsbréf 1 2,826 Sjóðsbréf 2 1,917 Sjóðsbréf 3 1,955 Sjóðsbréf 4 1,713 Sjóðsbréf 5 1,171 Vaxtarbréf 1,9959 Valbréf 1.8708 islandsbréf 1,232 Fjórðungsbréf 1,138 Þingbréf 1,230 Öndvegisbréf 1,213 Sýslubréf 1,248 Reiðubréf 1,199 Heimsbréf 1,082 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6.40 Ármannsfell hf. 2,33 2,45 Eimskip 5,70 5,95 Flugleiðir 2,30 2,40 Hampiðjan 1,80 1,90 Hlutabréfasjóður VlB 1,06 1.11 Hlutabréfasjóðurinn 1.67 1.75 Islandsbanki hf. 1,66 1.74 Eignfél. Alþýðub. 1,68 1.76 Eignfél. Iðnaðarb. 2,45 2,55 Eignfél. Verslb. 1.75 1,83 Grandi hf. 2.75 2,85 Olíufélagið hf. 5,20 5,50 Olís 2,10 2,20 Skeljungur hf. 5,75 6,05 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Sæplast 7,33 7.65 Tollvorugeymslan hf. 1.01 1,06 Utgerðarfélag Ak 4,70 4.90 Fjárfestingarfélagið 1,35 1.42 Almenni hlutabréfasj. 1.12 1.17 Auðlindarbréf 1,03 1,08 islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Sildarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuidabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn, lb= Islandsbanki Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.