Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991.
11
Utlönd
Kóknærfót-
festu í Eystra-
saltsríkjunum
Fáum dögum eftir að Sovétstjómin
viðurkenndi sjálfstæði Eystrasalts-
ríkjanna þriggja náði sjálft tákn vest-
ræns kapítalisma fótfestu í löndun-
um. Þetta er að sjálfsögðu Coka Cola
sem hér eftir verður til sölu á hverju
götuhorni.
Það er Norðurlandadeild kókverk-
smiðjanna bandarísku sem annast
framleiðslu og dreifingu á drykknum
í Eystrasaltslöndunum. í framtíðinni
er ætlunin að koma upp átöppunar-
verksmiðjum fyrir austan Eystra-
saltið. Til þessa hefur Norðurlanda-
deildin haft yfirumsjón með fram-
leiðslunni í Noregi, Svíþjóð, Finn-
landi og íslandi.
Kók var fyrst boðið til sölu í
Moskvu og Leníngrad, nú Péturs-
borg, árið 1979. Nú í mánuðinum á
einnig að færa út kvíarnar til Úkra-
ínu og hefja sölu á kóki í höfuðbog-
inni Kænugarði.
NTB
Norðmaður
kyrkti unnustu
sína
Norðmaður á fertugsaldí hefur ver-
ið handtekinn í Kaupmannahöfn fyr-
ir að hafa kyrkt unnustu sína. Mað-
urinn gaf sig sjálfur fram við lögregl-
un og sagði frá hvernig komið var.
Hann hefur nú verið úrskurðaður í
25 daga gæsluvarðhald. Unnusta
hans var 27 ára gömul.
Maðurinn kom á lögreglustöð í
Kaupmannahöfn síðdegis á sunnu-
daginn og sagði að hann hefði myrt
unnustu sína í íbúð þeirra á
Nörrebro. Lögreglan fór á staðinn og
fann konuna þar sem hún lá önduð
í hjónarúminu og hafði líkinu verið
misþyrmt. Vitað er að Norðmaður-
inn var mjög drukkinn kvöldið áður
en verknaðurinn var framinn.
Ritzau
Færeyingar
björguðu
langreyði
Færeyingar geta nú kraflst viður-
kenningar frá umheiminum á að þeir
láti sér mjög annt um hvali. Fær-
eyska gæsluskipið Ólafur Helgi var
fyrir síðustu helgi sent til að bjarga
langreyði þar sem hún lá strönduð á
suðurodda Austureyjar. Skipverjar
höfðu snör handtök við verkið og
björguðu hvalnum frá bráðum bana
þar á ströndinni.
Það voru nokkur skólabörn sem
fyrst sáu hvalinn þar sem hann var
landfastur á oddanum. Um var að
ræða unga langreyði sem var orðin
nokkuð sár eftir að hafa legið í fjöru-
grjótinu en ekki lífshættulega. Lang-
reyður er friðuð tegund.
Fjöldi fólks fylgdist með björgun-
inni og skólahaldi var aflýst í skóla
eyjarinnar þennan dag. Færeyingum
þykir sem með þessu sé sannað að
þeir láti sér annt um hvali hvað sem
grænfriðungar og aðrir hvalavernd-
unarmenn segja.
Ritzau
Skotar brugga
græntviskí
Skoskir bruggarar í Springbank
brugghúsinu hafa uppgötvað að þeir
eiga tvær ámur af grænu viskíi. Ætl-
unin er að selja áfengið á almennum
markaði og sjá hvort það reynist
nokkuð síðri söluvara en hefðbundið
ljósbrúnt viskí.
Venja er að láta viskí eldast í eikar-
ámum sem áður hafa verið notaðar
undir sérrí en fyrir 18 árum var viskí
í brugghúsinu sett á ámur undan
rommi. Þegar farið var að skoða í
ámurnar nú á dögunum kom í ljós
að innihaldið var ljósgrænt. Bragðið
er alveg nýtt en að sögn sérfræðinga
prýðisgott. Reuter
Allt bendir nú tíl að leit eftir,
gulli á austurströnd Grænlands
verði til einskis. Grænlendingar
hafa undanfarið ár bundið nokkrar
vonir við að þar fmnist guU í vinn-
anlegu magni og að það eigi eftir
að létta nokkuð á skuldum lands-
sjóðsins. Niðurstöður rannsókna í
sumar benda hins vegar til að lítið
sé af gulli á þessum slóðum.
Borað hefur verið á þremur stöð-
um á svæðinu frá Ammassalik að
Scoresbysundi en sáralítið hefur
fundist af hinum dýra málmi. Von-
ir stóðu einnig til að þar væri plat-
ínu að finna en hún hefur ekki
heldur komið í leitirnar.
Það er kanadíska fyrirtækið Plat-
inova sem hefur annast boranirn-
ar. Eftir frumrannsóknir síðasta
sumar töldu forráðamenn fyrir-
tækisins að gnægð væri af dýrum
málnum á Austur-Grænlandi og
fengu heimild til að rannsaka mál-
ið. Rannsóknum hefur nú verið
hætt í bili og enn er óákveðið hvort
hafist veröur handa að nýju næsta
sumar.
Auk Platinova hafa námafyrir-
tæki frá Bandaríkiunum og Eng-
landi tekið þátt í rannsóknunum.
Ef af gulivinnslu hefði orðið var
talið hentugast að hafa bækistöðv-
ar á íslandi.
Ritzau
DUNDURUTSALA - FRABÆRT VERÐ
Aspen 599 krumpug.
Fjólubl., S-M-L-XL.
Verð kr. 3.280,-
Keflavík krumug. Madonna krumpug.
Sinnepsg/fjólubl. S-M-L-XL. Grátt/grænt.
Fjólubl/sinnepsg. S-M-L-XL. S-M-L-XL. Verð kr. 3.280,-
Verð kr. 2.880,-
Anna
Gult/hvítt/bleikt.
S-M-L-XL. Verð kr.
2.880,-
Pony
Gult. M-L-XL-XXL.
Verð kr. 2.660,-
IIUIIIC
nc
of Iceland
VERSLUN
SKIPHOLTI 37
SÍMAR 31515
Linda Helsingborg
Joggingefni. Bleikt. S-M-L-XL. M-L-XL.
Verð kr. 1.960,- Verð kr. 2.660,-
Mexico
Lilla/grænt. S-M-L-XL.
Verð kr. 2.880,-
Super
M-L. Verð kr. 3.280,-
ATH.: EINNIG BARNAGALLAR
OPIÐ VIRKA DAGA 10-18, LAUGARDAGA 10-16
m tmsnouMN
^dT^nda. SKILAR BETRI ÁRANGRI
hverjum tíma
REYKJAVIK:
FÓSTBRÆÐRAHEIMILIÐ,
LANGHOLTSVEGI109-111
(EKKI í SÍMA)
Njarðvík - Stokkseyri - Þorlákshöfn
HAFNARFJÖRÐUR:
Reykjavíkurvegi 72,
Sími 65-22-85
Raðgreiðslur
~-J
KENNSLA HEFST
14. SEPT.
Barnadansar
Gömludansarnir
Samkvæmisdansar
Suðuramerískir
(standard, latin)
Félagar í FÍD og DÍ
Bjóðum einkatíma eftir samkomulagi
Lokaðir tímar fyrir félagasamtök og aðra hópa
LANDSBYGGÐIN: AUGLYST VERÐUR I VIÐKOMANDI BYGGÐARLAGI.