Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. 15 Martröð niðurskurðarins „Hverjir munu þá mennta sig í framtíðinni? Verða það eingöngu úrvals- nemendur?" Það glymur nú sem aldrei fyrr, þvílíkur barlómur núverandi ríkis- stjórnar að það nálgast heilaþvott. Skyldi það vera tilviljun ein að vart er talað um annað en hinn mikla Qárlagahalla sem öllum virð- ist koma á óvart, einnig þeim er sátu í fyrrverandi ríkisstjórn og sitja enn viö stjórnvöl? Eða getur ástæðan hugsanlega verið sú að nú eru lausir kjarasamningar? Hvernig stendur á því að allt í einu kemur í ljós að allir sjóðir sem til eru í landinu eru galtómir? Það læðist að manni sá grunur aö ekki sé notuö sama formúlan við út- reikning á þeim, heldur sú sem hagstæðust er hverju sinni. Það er oröið erfitt að treysta stjórnmála- mönnum nú til dags, enda trúlega fáir sem enn gera það. Framtíðin og breiðu bökin Þegar þjóðarsáttarsamningarnir voru undirritaðir, trúðu launþegar því að þeir væru að leggja grunn að ákveðnum stöðugleika sem þeir myndu uppskera síðar. Um þetta voru flestir sammála, einnig þáver- andi ríkisstjórn. Nú er það krafa okkar að kaupmáttur verði aukinn og hann tryggður. Hagur hinna lægstlaunuðu verði bættur sér- staklega í stað þess að vega að þeim með þeim hætti sem nú er fyrirhug- aður. Það er einnig krafa okkar að það velferðarkerfi, sem við höfum byggt upp, verði ekki rifiö niður. Sú krafa er ekki úr lausu lofti grip- in heldur til komin vegna þess að stöðugt er þjarmað að okkur með ótrúlegasta hætti. Ráðist er að þeim er síst skyldi. Hver man ekki eftir kosningalof- orðunum? Allir stjórnmálaílokk- arnir höfðu það á stefnuskrá sinni að hækka lægstu launin og töldu slíka hækkun brýna nauðsyn. Nú- verandi ríkisstjórn hefur hvorki KjáUarinn Jóhanna Júlíusdóttir formaður Starfsmannafélags Akureyrarbæjar sýnt það í verkum né orðum að hún hafi hug á þvf að efna slík loforð, samanber orð fjármálaráðherra í Morgunblaðinu 28/8 sl. Aðgerða er þörf. segir ríkisstjórn- in. Nýjustu slagorð hennar eru: „Við skrifum ekki reikninga á framtíðina." Þessum orðum vil ég breyta og segja: „Látið breiðu bökin axla þaö sem þeim ber." Breiðu bökin eru ekki börn, sjúklingar og aldraðir. Sífelldar hækkanir og hótanir um frekári hækkanir hellast nú yfir okkur. Ein þeirra leiða sem ræddar voru til niöurskurðar var sú aö færa ellilífeyrisaldurinn úr 67 ára í 68 ára. Hér á landi ríkir talsvert atvinnuleysi og margir spá því aö það eigi enn eftir að aukast. Hefur ríkisstjórnin gert ráðstafanir til að mæta þeirri þenslu á atvinnumark- aðinum sem ráðstöfun sem þessi hefði í för með sér? Er þetta það ísiand ... ? Hér ríkir okurvaxtastefna, búið er að hæk';a lytjakostnað svo um munar og bitnar það á þeim sem höllustum fæti standa. Ekki nóg með það heldur stendur til að inn- heimta meira af hinum sjúku. Það er nú til umræðu hjá ríkisstjórn- inni að greiða verði inngangseyri á sjúkrahús. Þó að þeir háu herrar, sem að þessari umræðu standa, séu komn- ir það langt frá raunveruleikanum að þeir geri sér ekki lengur grein fyrir honum vil ég upplýsa þá um að hér er örugglega til fólk sem ekki hefði ráð á sjúkrahúsdvöl, því miður. Ekki er öll sagan sögð. Hækkun skólagjalda stendur nú fyrir dyr- um. A framhaldsskólastigi hækki gjöld úr 5 þús. í 15 þús. og gjöld á háskólastigi úr 8 þús. í 20-30 þús. Erfltt er að sjá hvernig tekjulágir foreldrar hafa þá efni.á að senda börn sín í framhaldsskóla ef þessar fyrirætlanir verða að raunveru- leika. Sérstaklega verður þetta erfitt barnmörgum foreldrum eða ein- stæðum. Þaö hlýtur að verða þung- bær reynsla þegar þeir neyðast til að segja börnum sínum að íjárhag- ur þeirra leyfi ekki frekari skóla- göngu. Hverjir munu þá mennta sig í framtíðinni? Verða það ein- göngu úrvalsnemendur? Nei, það verða börn efnaðra foreldra, svo einfalt er það. Hingað til hefur það verið stefna okkar íslendinga að allir ættu að hafa jafna möguleika til menntunar. Þeirri stefnu eigum við að halda, annaö er eins ósann- gjarnt og hugsast getur. Er þetta það ísland sem við viljum, ef fram heldur sem horfir? Það má satt vera að niðurskurðar sé þörf. En niðurskurður af þeim toga sem ríkisstjórnin nú ræðir er líkastur martröð. Tökum nú hönd- um saman og látum martröðina ekki ná- til okkar. Það fólk sem ykkur kaus í vor gaf ykkur ekki atkvæði sitt til þess að rífa niður velferðarkerfi okkar. Þetta er held- ur ekki sú uppskera sem launþegar áttu von á nú. Mín skilaboð til núverandi ríkis- stjórnar eru þessi: Hættið að ráðast að þeim sem síst skyldi. annað er ykkur til ævarandi skammar. Beit- ið niðurskurðarhnífnum hjá þeim sem mega við því, þeir eru nefni- lega til. Jóhanna Júlíusdóttir „Hver man ekki eftir kosningaloforö- unum? Allir stjórnmálaflokkarnir höföu það á stefnuskrá sinni að hækka lægstu launin og töldu slíka hækkun brýna nauðsyn.“ Vér mótmælum allir „Nú er hins vegar komið í ljós að Aust- urríki, Svíþjóð og jafnvel Noregur og Finnland muni sækja um aðild að EB. - Þá eru bara Sviss og ísland eftir. Mig langar í þessari grein að víkja að því máli sem ég tel að brenni heitast á íslensku þjóðinni nú en það er samningamakk Jóns Baldvins og Davíðs Oddssonar um stofnun og inngöngu í EES-svæðið. - Að mínu áliti er það mál komið í stórhættulegan farveg. í síðustu ríkisstjórn var unnið mjög að undirbúningi þessa máls en þá voru settir margir fyrirvarar um inngöngu íslands í þetta efna- hagssvæði. Þá lá ekki fyrir að flest þessara ríkja, sem stóðu í EFTA- viðræðunum við Evrópubandalag- ið, myndu sækja um aðild að því. Nú er hins vegar komið í ljós að Austurríki, Svíþjóð og jafnvel Nor- egur og Finnland muni sækja um aðild að EB. - Þá eru bara Sviss og ísland eftir. Bakdyramegin í EB Ég hygg að í ákafa sínum við að koma íslandi bakdyramegin inn í EB séu Jón Baldvin og Davíð búnir að falla frá flestum eða öllum fyrir- vörum og gott betur, þar sem þeir ljá máls á að Spánverjar og jafnvel fleiri þjóðir fái að veiða einhvern fisk í íslenskri fiskveiðilögsögu. Slíkt finnst mér furðuleg óskamm- feilni, ekki síst þegar tekið er tillit til nýjustu rannsókna flskifræð- inga um að nauðsynlegur sé mikill samdráttur í veiöum íslendinga sjálfra. Og hver ætti að fylgjast með því hvort þessar þjóðir veiddu ekki meira en leyft væri? Landhelgis- gæslan er á engan hátt í stakk búin til þess. Ég tel að innganga íslands í .Evrópubandalagið sé hrein og bein landráð við þjóöina. í yfir 300 KjáUarinn Sigurður Lárusson fyrrverandí bóndi á Gilsá i Breiðdal milljón manna hópi í a.m.k. 16 þjóð- löndum hafl íslendingar ekkert að segja. Hverjum dettur í hug i al- vöru að nokkurt mark yrði tekið á því þó 250 þúsund manna þjóð væri eitthvað að röfla. í mínum augum þýðir það að ís- land yrði algerlega þurrkað út af landakortinu sem sjálfstætt ríki. Til hvers höfum viö barist fyrir frelsi og fullveldi í nær 700 ár og áratugi fyrir útfærslu landhelginn- ar í 200 sjómilur og sigrað í báðum tilfellum? Ef við glutrum þessum réttindum okkar niður á fáeinum árum fyrir manndómsskort nokkurra misvit- urra stjórnmálamanna, svo að ekki sé fastar að orði kveðið, þá erum við verr settir en nokkurn mann hér á landi hefur grunað undanfar- in ár. Örlagaríkt skref Þetta mál hefur aldrei verið kynnt opinberlega hér á landi og er það óforsvaranlegt. Góðir íslendingar, kynnið ykkur þetta stórmál miklu betur. Því hef- ur verið haldið fram af talsmönn- um þeirra, sem vilja stíga þetta örlagaríka skref, að íslendingar myndu hagnast um einn til tvo milljarða á ári. En hvað er það á móti því að af- sala frelsi og sjálfstæði þjóðarinn- ar? Því verður varla trúað að þeir sem telja sig sjálfstæðismenn styðji þetta valdaafsal. Fullveldi dýrmætara en tollaeftirgjöf Ég skora á alla þjóðholla íslend- inga að minnast nú frelsishetjunn- ar góðu sem sagði: „Vér mótmæl- um allir." Munið að það er ekki víst að ykk- ur geflst aftur slíkt tækifæri. Ég leyfi mér því að segja: „Við mótmælum öll." Guð blessi ísland og íslensku þjóðina og veiti henni þann styrk að forða sér frá þeirri smán aö þiggja þessa tollaeftirgjöf í skiptum fyrir sjálfstæði og fullveldi íslands. Sigurður Lárusson „Og hver ætti að fylgjast með því hvort þessar þjóðir veiddu ekki meira en leyft væri?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.