Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1991, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1991. íþróttir Sport- stúfar Staða 10 efstu manna á heimsafrekalistunum í golfi er þannig: 1. lan Woosnam. .Bretl. 2. Jose M. Olazabal...Spáni 3. Nick Faldo.....Bretlandi 4. GregNorman......Ástralíu 5. Severiano Ballesteros.Spáni 6. Payne Stewart .Bandaríkjunum 7. Pal Azinger.Bandarikjunum 8. Fred Couples ...Bandaríkjunum 9. Bemhard Langer ....Þýskalandi 10. MarkMcNulty....Zimbabwe Edberg og Seies sigurvegarar Svíinn Stefan Edberg sigraði á opna banda- ríska meistaramótinu í tennis sem lauk um nýliðna helgi. Edberg vann Bandaríkjamanninn Jim Couríer frekar auðveldlega, 6-2,6-4 og 6-0. Með þessum sigri skaust Edberg á topp heimsafrekalistans en í öðru sæti er Þjóðverjinn Boris Becker. í einliðaleik kvenna fór Monica Seles frá Júgóslavíu með sigur af hólmi. Seles sigaröi Mart- inu Navratilovu frá Bandaríkjun- um í úrslitum, 7-6 og 6-1. innritun hjá Borðtennisdeild Vikings Vetrarstarf hjá Borðtennisdeild Víkings er hafið. Innritun ungl- inga er í símum 35935, 36717 á daginn og á kvöldin í síma 36862 (Pétur) og 43077 (Krístján Viöar). Grindavík vann Hauka Ægir Már Kárason, DV, Sudumeajum; Grindvíkingar sigruðu Hauka, 86-80, á Reykjanesmótinu í körfuknattleik um helgina. Eftir venjulegan leik- tíma var staðan jöfn, 74-74, en í framlengingunni voru Grindvík- ingar sterkari aðilinn. Dan Krebbs var í miklu stuði og skor- aði 35 stig fyrir Grindvíkinga. Njarðvík vann Keflavík, 94-78, Haukar sigruðu Breiöablik, 119-97, og Breiðablik tapaði fyrir Njarðvik, 80-116. Einn leikur fer frara í kvöld á Reykjanesmótinu. Grindvíkingar taka þá á móti Keflvíkingum og hefst leikurinn klukkan 20. Metþátttaka í Reykjalundarhlaupinu Þátttaka í Reykjalund- arhlaupinu, sem fram fór í fjórða skipti um fyrri helgi, sló öll met en um sjö hundruð manns voru með að þessu sinni. Boðið var upp á nokkrar vegalengdir, lengst 14 kílómetra, og þar bætti Toby Tanzer metið í karlaflokki meö því aö hlaupa á 49,47 mínútum. í kvennaflokki fékk Ursula June- mann besta tímann, 65,49 mínút- ur. Margir fóru sína vegalengd með aðstoð hjálpartækja og náðu afbragðs árangri. Kiinsmann á bekknum Berti Vogts, þjálfari Þjóðverja i knatt- spyrnu, hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Englendingum á Wembley á mið- vikudaginn kemur og er Ijóst að Jtirgen Klinsmann þarf að byrja leikinn á bekknum. Bytjunarlið- iö verður þannig: Illgner, Reuter, Kohler, Buchwald, Hássler, Eff- enberg, Mattháus, Möller, Brehme, Doll, Riedle. Njósnað um Valsmenn Þjálfári og framkvæmdastjóri svissneska liðsins Sion, sem mætir Val í Evrópukeppni bikar- hafa í næstu víku, fylgdust með Valsliðinu gegn Breiöabliki í Kópavogi á sunnudaginn var. Yfirlýsing frá stjóm Knattspymusambands íslands: Grein Pressunnar upp- full af rangfærslum í síðasta tölublaði Pressunnar, sem út kom þann 5. september sl., var grein þar sem mjög ómaklega er vegið að formanni KSÍ, Eggert Magnússyni, og reyndar einnig að sambandinu sem slíku. Þar sem umrædd grein er uppfull af rangfærslum og hreinum ósann- indum þykir rétt að koma á fram- færi eftirtöldum athugasemdum: 1. ÁforsíðuPressunnarerfullyrt að laun og ferðalög formanns KSÍ séu falin í reikningum sambands- ins. Þetta er rangt! KSÍ hefur ekkert að fela. Eggert Magnússon er ekki á launum hjá KSI sem formaður. Hins vegar fékk hann greiddar á árinu 1990 kr. 600.000 frá KSÍ vegna vinnu við auglýsingasöfnun. Þetta kemur fram í reikningum sambandsins sem lagðir voru fyrir síðasta árs- þing endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda KSÍ, Gunnari Erni Kristjánssyni, og samþykktir á þinginu. Á þessu ári hefur formaður KSÍ fengið greiddar kr. 450.000 af sama tilefni Nú nýverið lagði gjaldkeri sam- bandsins, Elías Hergeirsson, fram uppgjör fyrir fyrstu 8 mánuöi árs- ins og þar kom þessi tala fram. Að því er varðar ferðalög for- mannsins á vegum KSÍ þá er því til að svara að allar tölur þar að lútandi liggja fyrir í reikningum sambandsins. Vert er að geta þess að fjárhagur KSÍ er traustur og var sambandið rekið með 25 milljón króna hagnaði sl. ár. 2. í greininni inni í blaðinu er því haldið fram að KSÍ hafi greitt kr. 400.000 vegna ferðar formannsins og sonar hans á úrslitaleik heims- meistarakeppninnar á Ítalíu sum- arið 1990. Þetta er rangt! Eins og þeir vita sem til þekkja er ársfundur FIFA, Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, ávallt hald- inn í tenglsum við úrslitakeppni heimsmeistarakeppninnar. Eins og tíðkast hefur um árabil sótti formaður KSÍ fundinn ásamt Sveini Sveinssyni stjórnarmanni og greiddi KSl feröina fyrir þá, annað ekki. 3. Fullyrt er að Eggert Magnús- son hafi fengið umboðslaun vegna sölu KSÍ á sjónvarpsréttindum heimaleikja íslands í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu. Þetta er rangt! Samningur sá er hér um ræðir var tímamótasamningur sem for- maðurinn á allan heiður af. Samn- ingurinn var undirritaður og frá honum gengið endanlega á skrif- stofu lögfræðings KSÍ, Sigurðar G. Guðjónssonar hrl., og undirrituðu formaður og gjaldkeri KSÍ samn- inginn fyrir hönd KSÍ og hefur hver einasta króna samkvæmt honum verið greidd til sambands- ins. 4. Talað er um aukin ferðalög formanns KSÍ. Þetta er rangt! KSÍ er aðili að FIFA og UEFA, einnig hafa annars vegar Norður- löndin og hins vegar Noröurlöndin og Bretlandseyjar svokallaðar NorthWest hópur með sér náið samstarf. Þessi þátttaka í alþjóðasamstarfi hefur óhjákvæmilega í fór með sér töluverð ferðalög, en stjórn KSÍ tel- ur hins vegar aö þessi þátttaka sé tvímælalaust af hinu góða og nauð- synleg íslenskri knattspymu. Hér hefur engin breyting orðið á í tíð núverandi formanns. 5. Hvað varðar ferð eiginkonu Eggerts Magnússonar, Guðlaugar Ólafsdóttur, til Englands og Wales nú sl. vor skal upplýst að KSÍ greið- ir ekki fyrir Guðlaugu Ólafsdóttur. Að lokum skal tekið fram að stjórn KSÍ lýsir yfir fyllsta stuðn- ingi við formann sinn sem að mati stjórnarinnar hefur unnið mikið og gott starf fyrir knattspyrnu- hreyfinguna í landinu. Stjórnin harmar að jafnómaklega hafi verið vegið að honum á opinberum vett- vangi eins og raun ber vitni. Reykjavík 9. september 1991 Stjórn KSÍ Evrópukeppni félagsliða í handknattleik: „Víkingur og ÍBV eiga erfiða leiki fyrir höndum“ segir Jakob Jónsson sem leikur handbolta 1 Noregi „Víkingur og ÍBV eiga mjög erfiða leiki fyrir höndum í Evrópukeppn- inni því Stavanger og Runar eru sterk um þessar mundir og tvö af þremur bestu liðum Noregs,“ sagði Jakob Jónsson, handknattleiksmað- ur hjá Viking í Noregi, í samtali við DV. „Stavanger sigraði á geysisterku móti í Svíþjóð á dögunum þar sem meöal þátttökuliöa voru Neva frá Sovétríkjunum og Atletico Madríd frá Spáni, og liðið er mjög öflugt. Víkingar ættu þó að eiga möguleika, en ef ég ætti að leggja undir um úr- slit myndi ég veðja á Stavanger. Run- ar hefur styrkt lið sitt talsvert og Eyjamenn munu eiga erfitt uppdrátt- ar í þeim leikjum," sagði Jakob. Víkingar mæta Stavanger í 1. um- ferð IHF-keppninnar og ÍBV leikur við Runar í Evrópukeppni bikarhafa, en leikirnir fara fram síðar í þessum mánuöi. Norskur ríkisborgari Jakob er nú að hefja sitt þriðja tíma- bil með Viking en hann spilaði í tvö ár með Stavanger. Hann verður norskur ríkisborgari á næstu dögum en fyrir nokkru gerðu norsk blöð nokkuð úr því að þá ætti hann mögu- leika á að leika með norska landslið- inu. „Ég er ekki að spá í landsliðssæti, það var ekki tilgangurinn með þessu. Viking er búið að fá tvo Rússa fyrir komandi tímabil og því er mikilvægt fyrir mig að vera ekki talinn útlend- ingur. Það verður svo bara að koma í ljós hvort ég eigi einhverja mögu- leika á að komast í norska landslið- ið,“ sagði Jakob. Hann lék á síðasta tímabili sem hornamaður vinstra megin, en hér heima lék hann ávallt sem skytta vinstra megin, með KA og KR. „Það er allt í lagi að vera í hominu ef skytt- an við hliðina á manni er ekki blind! Ég býst við því að leika til skiptis sem hornamaður og skytta í vetur. Okkar markmið er að komast í ijögurra liða úrslitin í deildinni, Stavanger, Runar og Sandeford eru langbestu liðin en við stefnum að því að ná íjórða sæt- inu,“ sagði Jakob Jónsson. -VS ísland nær sigri - gerði jafntefli gegn Wales, 1-1 Helgi Sigurösson skoraöi mark ís- lenska liösins í gærkvöldi. Lið íslands og Wales, skipuð leik- mönnum 18 ára og yngri, gerðu jafn- tefli, 1-1, í undankepnni Evrópu- mótsins í knattspyrnu í Wales í gær- kvöldi. Helgi Sigurðsson kom íslend- ingum yfir á 6. mínútu eftir góða sendingu frá Þórði Guðjónssyni. Walesbúar jöfnuðu á 27. mínútu á miklu heppnismarki. íslensku strákarnir voru mun frískari í síðari hálfleik og áttu þá aila möguieika að bæta við mörkum en heppnin var ekki með okkar mönnum. Helgi Sigurðsson komst eitt sinn einn inn fyrir en markvörð- ur Wales varði vel með úthlaupi „Við áttum að vinna sigur en okkar strákar voru mun betri aðilinn í leiknum. Auðunn Helgason úr FH var yfirburðamaður á vellinum og einnig komust þeir Rúnar Sigmunds- son og Kristinn Lárusson vel frá leiknum," sagði Helgi Þorvaldsson, formaður unglinganefndar KSÍ, í samtali við DV eftir leikinn í gær- kvöldi. íslendingar eiga að leika gegn Eng- lendingum í sömu keppni í London á fimmtudaginn kemur og verður leikurinn á Selhurst Park, heima- velli Crystal Palace. ísland hefur hlotið þrjú stig í riðlinum en Eng- lendingar hafa svo gott sem er tryggt sér sigur í riðlinum. Síðasti leikur íslands verður gegn Belgum 19. sept- ember hér á landi. - JKS Franska kn Bordeaux Arnór Guðjonhsen og félagar hans í franska liðinu Bordeaux sigruðu Grenoble, 0-2, í 2. deildinni um helgina. Þegar átta umferðum er lokið hefur Bordeaux hlotið 13 stig en Strassborg er í efsta sætinu í riðlinum með 14 stig. „2. deildin mun erfiðari en ég bjóst við“ „Okkur hefur gengið ágætlega til þessa ef undan er skilinn leikurinn gegn Strass- borg. Ég er einn frammi í útileikjum og er mest í því að leggja upp mörk og lagði meðal annars upp annað markið í leiknum Hásteins- völlur endurbyggður ÍBV mun leika heimaleiki sína 11. deildinni í knattspyrnu á næsta ári á Helgafellsvelli, grasvellinum sem stendur við rætur Helgafells í Vest- mannaeyjum. Hásteinsvöllurinn, að- alleikvangur Eyjamanna, verður endurbyggður og tekinn í notkun á ný sumarið 1993. „Tilboð í verkiö verða opnuð um næstu mánaðamót og eftir þessa breytingu verður Hásteinsvöllurinn glæsilegur. Hann verður stækkaður i 110x72 metra og vandað vel til verka. Völlurinn verður tyrfður í vor og ætti því að vera tilbúinn til notk- unar ári síöar,“ sagði Jóhannes Ól- afsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, í samtali við DV. -VS Gunnar hljóp nærri metinu Gunnar Guðmundsson úr FH hjó nærri íslandsmetinu í 300 metra hlaupi karla á haustmóti ÍR á fimmtudagskvöldið. Hann hljóp á 34,29 sekúndum en met Odds Sig- urðssonar er 34,0 sekúndur með handtímatöku. Gunnar er á fórum til Noregs þar sem hann tekur þátt í tveimur alþjóð- legum mótum og keppir í 400 metra hlaupi. -VS M hi bi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.