Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
3
Fréttir
Sjö tilboð 1 togarann Elínu Þorbjamardóttur:
Urðum fyrir vonbrigðum
- erfiðleikar óumflýjanlegir á Suðureyri, segir stjómarformaður Freyju
Sjö tilboð bárust í togarann Elínu
Þorbjarnardóttur frá Suðureyri en
hann var nýverið auglýstur til sölu.
Samkvæmt heimildum DV komu til-
boðin frá útgerðaraðilum víðsvegar
af landinu. Enn er ekki ljóst hvort
einhveiju tilboðanna veröur tekið.
Samkvæmt heimildum DV fólu ein-
hver þeirra í sér möguleikann á að
togarinn yrði áfram gerður út frá
Suðureyri og að viðkomandi aðilar
kæmu inn í reksturinn þar.
Togarinn Elín Þorbjarnardóttir er
í eigu Hlaðsvíkur sem aftur er að
mestu í eigu Fiskiðjunnar Freyju.
Freyju á Byggðastofnun meirihluta
í og er stjórnarformaðurinn, Helgi
Þórðarson, tilnefndur af henni.
Að sögn Helga urðu menn nokkuð
fyrir vonbrigðum með þau tilboð sem
bárust í skipið. Þau hefðu verið lægri
en gert hefði verið ráð fyrir. Hann
segir kvótaskerðinguna á næsta ári
vera líklegustu skýringuna.
„Salan var auglýst þannig að með
skipinu fylgja 75 prósent af kvóta
þess. í sölunni fylgir síðan eitt íbúð-
arhús á Suðureyri. Verðið á þessum
eignum er miklum vafa undirorpið
og því alls ekki ljóst hvort það er
heppilegasti kosturinn að selja skipið
burt.“
Aðspurður um horfur í atvinnulífi
á Suðureyri og framtíð fiskvinnsl-
unnar Freyju verði togarinn seldur
sagði hann mikla erfiðleika óumflýj-
anlega. Útgerðin væri hins vegar
orðin svo skuldsett að ekki yrði hald-
ið áfram að öðru óbreyttu. Skuld-
breyting væri ekki lengur kostur þar
sem of miklir fjármunir væru í spil-
inu.
„Freyja fer ekki á hausinn. Hitt er
annað mál hvort hægt er að halda
henni gangandi þannig að hún lifi til
frambúðar. Það er vandséð að hægt
sé að koma rekstrinum þannig fyrir
að hann stefni ekki í þrot aftur.“
Guömundur Malmquist, forstöðu-
maður Byggðastofnunar, kvaðst
ekkert hafa um málefni Suðureyrar
að segja að svo komnu máli. Fyrst
yrði að sjá hvort togarinn yrði seldur ráðstöfunum til að efla atvinnulífiö
áður en hugað yrði að sérstökum þar. -kaa
Allir bílar á staðgreiðsluverði, frá kr. 489.500,-
Aðeins kr. 150.000,- út eða bíll uppí -eftirstöðvar til allt að þriggja ára
»
□
ið
z avorit er góður fjölskyldubíll. Fallega hannaður fimm dyra
a
h U ogfimmgíra,framhjóladrifinn,rúmgóður,létturístýriog
<
s eyðslugrannur. Favorit hefur hlotið lof bílagagnrýnenda víða
um heim og verið tilnefndur sem hagkvœmasti bíllinn, „bestu
kaupin' o. sv.fr.
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • S: 42600