Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
5
Fréttir
Sigríður Kristinsdóttir, formaður SFR:
Rauntekjur og dagvinnu
laun eru ekki það sama
- er sannfærð um að hún deili réttlætisskilningi með Einari Oddi
„Rauntekjur og dagvinnulaun
eru ekki þaö sama. Það er löngu
tímabært aö menn hætti aö blanda
þessu saman. Það getur ekki talist
sanngjarnt að fólk þurfi að vinna
rúma aukaviku í mánuði til að ná
100 þúsund króna heildarlaunum á
mánuði. Þá er nú lítill tími orðinn
eftir fyrir fjölskylduna og áhuga-
málin. Ég trúi ekki öðru en að Ein-
ar Oddur sé sammála mér um það
réttlætismál að laun þeirra lægst
launuöu verði bætt verulega í kom-
andi kjarasamningum," segir Sig-
ríður Kristinsdóttir, formaður
Starfsmannafélags ríkisstofnana.
í síðustu viku lét Einar Oddur
Kristjánsson, formaður VSÍ, hafa
eftir sér í DV að ítrekaðar kannan-
ir VSÍ hefðu leitt í ljós að félags-
menn BSRB og ASÍ hefðu að meðal-
tali yfir 100 þúsund krónur í laun
á mánuði. Kvaðst hann ekki vera
handhafi réttlætisins og lýsti mikl-
um efasemdum á allar tilraunir til
að hækka laun þeirra lægst laun-
uðu sérstaklega.
Tilefnið var nýsamþykkt kröfu-
gerð SFR vegna komandi kjara-
samninga. Fer félagið fram á að
lágmarkslaun félagsmanna sinna
verði 70 þúsund krónur á mánuði
sem þýðir 30 prósent hækkun
lægstu launa.
„Innan SFR er stór hópur fólks,
meðal annars þeir ófaglærðu innan
umhyggjugeirans, sem hefur mjög
takmarkaða möguleika á yfir-
vinnu. Þar er óréttlætið hvað mest
enda hljóða lægstu taxtarnir upp á
einungis 53 þúsund krónur," segir
Sigríður.
Hún segist í sjálfu sér ekkert ef-
ast um þá fullyrðingu að raunlaun
félagsmanna sinna séu að meðal-
tali um 100 þúsund krónur á mán-
uði. Að baki þvi liggi hins vegar
mikil yfirvinna hjá þeim sem hana
fá, að meðaltali ríflega 42 stundir.
Dagvinnulaun séu hins vegar að
meðaltali tæplega 68 þúsund krón-
ur. -kaa
Læknislaust
á Djúpavogi
Hafdis Erla Bogadóttir, DV, Djúpavogi:
Læknislaust er nú í Djúpavogs-
læknisumdæmi og allar hkur á að
svo verði áfram. Þó kemur læknir
1. október og verður í einn mánuð.
Staða héraðslæknis á Djúpavogi hef-
ur verið auglýst í Læknablaðinu í
allt sumar en það hefur ekki skilað
árangri.
Það eru mikil viðbrigði fyrir íbúa
að hafa ekki lækni eftir að hafa haft
sama lækninn með fasta búsetu hér
í níu ár. Guðrún Kristjánsdóttir
læknir, sem hér starfaði með miklum
ágætum, lét af störfum 30. mars síð-
astliðinn.
í ársbyijun var tekin í notkun ný
heilsugæslustöð á Djúpavogi.
íslensku strák-
arnir unnu
Skáksveit úr Æfingaskóla KHÍ,
skipuð fimm efnilegum, ungum.
skákmönnum, vann um helgina
Norðurlandamót barnaskólasveita í
skák, þrettán ára og yngri, sem hald-
ið var í Kaupmannahöfn.
Fulltrúar Islands í keppninni voru
þeir Arnar E. Gunnarsson, Bragi
Þorfinnsson, Björn Þorfinnsson,
Freyr Karlsson og Oddur Ingimars-
son sem mætti sem varamaður.
Alls fengu strákarnir 13 'A vinning
en næstir á eftir þeim komu Svíar
með 12 /i vinning. -ingo
HEIMILIS-
píano
ea aí-íljb
IIIIH'IIV
A
AÐEINS
W 139.000 stgr.
VIÐURKENND AF
FAGMÖNNUM
INNIFALIÐ:
TVÆR STILLINGAR
EGILSSTOÐUM
SÍMI 9712020
Einstakt tekifen
Jr
I dag og næstu daga seljum við TOLVUR OG
PREIMTARA með altt að 50% afslætti
Nýjar og notaðar tölvur,
PC/XT, AT 286,386 og ferðavélar.
Til viðbótar bjóðum við ýmiss konar fylgihluti fyrir tölv- jur aðe»ns
ur, skjástanda, mýs, leiki o.fl. á mjög hagstæðu verði. TWtooðið
Góðir greiðsluskilmálar.
raðgreiðslur
Brautarholti 8, 105 Reykjavík
'»4 dSu9ardags.
^iðvikudag h"a 9
Opið kl. 9'18-
Sími 615833, fax 621531.
SAMEIND