Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991. 15 Fiskveiðistefnan „Hinir eiginlegu togarar eru orðnir 110 og meginhluti annarra veiðiskipa Mikill vandi er íslenskum sjávar- útvegi búinn um þessar mundir. Það er ekki nokkur vafi. Sterk fyr- irtæki í þessari grein um áratugi berjast fyrir lífl sínu og mörg hafa helst úr lestinni. Margar skýringar hafa fram komið á þessum vandkvæðum. Meginniðurstaða manna, sem um þetta hafa fjallað, er á þá leið að afkastageta fiskveiðiílotans sé of mikil miðað við afkastagetu fiski- stofnanna. En fyrst og fremst séu skipin of mörg. Áfellisdómur Til að ráða bót á þessum ókvæð- um eru settar hömlur á flotann með takmörkuðum veiðiheimild- um, „kvóta“. En takmarkið færist fjær, afkastageta fiskistofnanna minnkar frá ári til árs. í framhaldi af því minnkar kvótinn til skip- anna, þrengir að útgerð, afkomu fyrirtækja og launamanna hrakar, sem endar með tómahljóði í ríkis- kassanum. Ofantahð er áfellisdómur á fisk- veiðistefnu okkar íslendinga. Margir menn kenna veiöistjórnun- inni og verslun með heimildirnar um vandann. Um þaö tel ég að ekki þurfi að deila, að okkur íslendingum hefir mistekist hvað umrædda atvinnu- grein varðar, en stærð og fjölda veiðiskipa er ekki um að kenna eða aðferðum við veiðistjórnun. Þarna erum við að tala um afleiðingar en ekki orsakir og þar stendur hnífur- inn í kúnni. Þessum liðum má ekki blanda saman. Allra síst í þeirri grein sem framfærsla íslendinga byggist á. Straumhvörf verða í sjávarútvegi okkar í kringum 1970. Vert er að minnast þess að um þær mundir færðum við landhelgina út í 200 mílurnar og bundum við miklar KjaUarinn Oddbergur Eiríksson skipasmiður vonir við það og var það gott og blessað. En skuggahliðin á upphafi þess áratugar og tímabilinu siðan var að þá eflist togaraútgerð og sér ekki fyrir endann á þeirri sókn. Hinir eiginlegu togarar eru orðnir 110 og meginhluti annarra veiði- skipa fyrir utan trillur er orðinn togarar. Þetta er gifurleg breyting og er þó ekki allt talið. Vélaraflið hefir verið aukið svo hægt er að sækja dýpra. Veiðarfærin hafa ver- ið stækkuð og gerð tæknilegar úr garði og síðast í þessari upptaln- ingu nefni ég fiskileitartækin. Þau ganga nú orðið gcddratækjum næst. Það munar um minna Hvernig er svo allri þessari tækni beitt? í fyrsta lagi vita skipstjórar í meginatriðum hvar og hvenær veiði er von. í öðru lagi flýgur hún fljótt fiskisagan, nú sem fyrr. Um leið og neisti finnst þá þyrpast þangað skipin víðs vegar að, og eins og hendi sé veifað er neistinn þurrkaður upp. Sem dæmi veit ég um áttatíu togara á takmörkuðu svæði þar sem hrygningarfiskur var að ganga upp á grunnslóð. í ofangreindri breytingu á fiskveið- um er vandinn falinn. Ekki bara við ísland heldur um allan heim. Vitið þið, góðir hálsar; það er áhættusamt hlutskipti að vera flsk- ur á íslandsmiðum undir lok tutt- ugustu aldarinnar. „Hvaða þras er þetta í landkrabbanum?" Myndi ef til vill einhver segja. En þá er því til aö svara að þaö hefir sannast, að með sky nsamlegri sókn og sókn- araðferðum geta Islandsmið gefið 400 til 450 þúsund tonn af þorski á ári, og ekki bara stöku sinnum heldur stöðugt. Og aðrar tegundir af bolfiski í hlutfalli við það. Það munar um minna. En hvernig á að ná þessu marki? Oft hefir verið á það bent á prenti sem í töluðu máli af mönnum til fyrir utan trillur er orðinn togarar. sjós og lands, nú síðast í ágætri grein eftir Guðlaug Gíslason, fyrr- verandi alþingismann frá Vest- mannaeyjum, að friða skuli hrygn- ingarsvæði og uppvaxtarsvæði. Það er þetta, sem ég ætla að undir- strika með þessu greinarkorni, að- eins með öörum orðum og frá öðru sjónarhorni, þó tilgangurinn sé sá sami. Tillaga mín er þessi. Ekkert veiðarfæri væri í sjó frá Eystra- Horni að Látrabjargi í fimm vikur á útmánuðum meðan á hrygningu þorskins stendur. Einnig verði al- friðuð allt árið miklu stærri svæði en nú er gert á hitaskilunum fyrir suðaustan og norðvestan land, svæðum sem eru aðaluppvaxtar- svæði fiskanna. Annað andrúmsloft Eins og ég sagði hér aö framan, er þetta engan veginn ný hugmynd að friða hrygningu eða smáfiskinn í uppvexti. Margir myndu segja að þetta væru ekki hægt - hvorug aðgerðin. Við höfum alls ekki efni á þessu. Og sjálfsagt er það ekki nema satt og rétt að í fyrstunni muni tekjur skerðast, en hitt er jafnvíst að þessar aðgerðir væru fljótar að skila sér i auknum afla, og er það ekki deginum ljósara að það sé skynsamlegra markmið að stefna að auknum tekjum en minnkandi? Ein hlið er á þessu máli, sem mig langar til að fara um nokkrum orð- um. Ég ætla að taka það fram að það er sagt með fyrirvara. - Tímarnir og tæknin breytast svo hratt að varlegt er að slá neinu fóstu hvað framtíðina varðar. - En hér er um það að ræða að framan- greindar ráðstafnir gætu komiö í staðinn fyrir veiðistjórnun á hol- fiskveiðum að öðru leyti. Sem sagt: fella niöur útdeihngar veiðiheim- ilda með öllum þeim átökum og flokkadráttum, sem um þær standa. Hugum okkar breytinguna sem þessu væri samfara. - Öll veiðiskip frá trillum upp í togara, mættu sækja sjó eins og þeim sýnd- ist innan þessara takmarka sem að framan ér lýst. Ekkert brask með kvóta, allir kæmu með allt að landi sem aflaðist. Ég held að ekki færi milli mála aö annað andrúmsloft skapaðist. Áfram þarf að fylgjast með ástandi hafsins og viðgangi fiskistofnanna. Einnig þyrfti að gefa því gætur með öllu þessu frjálsræði að leikurinn æstist ekki um efni fram. Færi svo væri ekki annað að gera en að fjölga bann- dögum eða stækka friðunarsvæði. Ofureinfalt, málið leyst og þá verð- ur kátt i höllinni. Oddbergur Eiríksson „Ekkert veiðarfæri væri í sjó frá Eystra Horni að Látrabjargi í fimm vikur á útmánuðum meðan á hrygningu þorsksins stendur. Einnig verði alfrið- uð allt árið miklu stærri svæði en nú er gert á hitaskilunum ... Leyf ilegur ökuhraði, hvað er nú það? Leyfilegur ökuhraði í Hollandi — hámarkshraði var aukinn í 120 km/klst árið 1988 — Hraöbrautir Bílvegir Vegir utan byggðar Innan byggðar 30 km íbúðar- svæði Hám. © Hám. ® Ham. © Hám. S»! Hám. “Lágm. Hám. Öll ökutæki nema vöruflutninga- bifreiðar, almenningsvagnar og ökutæki án tengivagns. 120 70 100 80 50 30 o o= ra sJLlb rútur með tengivagni á einum öxli. 80 60 80 80 50 30 z o c X J3 > 111^^ Vöruflutningabifreiðar með tengi- vagni og rútur með öðrum en WQmmrQ\jsrQi^m*QlH ejns ÖX(J|S tengivagni fyrir farangur. 80 80 80 60 50 30 O „Hollenskur texti um leyfilegan hraða er aðeins sýnishorn." Allir sem hafa lesið blöðin, heyrt útvarp eða fylgst með sjónvarpi síðustu mánuði hafa greinilega fengið upplýsingar um að umferð- arslysin séu mörg og fiöldi þeirra fari vaxandi. Arinbjörn Kolbeins- son læknir, sem er formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, skrifaði nýlega um neyðarástand í þessu máli. Flestir vilja minnka þetta tap þjóðfélagsins, Allir sem vilja gefa sér tíma til að hugsa vita að umferðarhraði er algeng orsök slysa. Orsakir eru tvenns konar: a) hraði og hemlun- arvegalengd, b) ákeyrsluþyngdih. a) Til þess að hémla og fá ökutækið til að stansa eru ákveöinn tími og vegalengd nauðsynleg. 27 m við 50 km ökuhraða og 36 m við 60 km ökuhraða. b) Hvert barn veit að hætta er mis- munandi eftir hraða, t.d. ef steini er kastað á glugga o.fl. Ef t.d. 1 kg steini er kastað á glerglugga við lítinn hraða er skaði á glugganum lítill. En ef hraðinn eykst er eins og þyngri steini hafi verið kastað við lítinn hraða. Þetta er viðurkennt lögmál eðlis- fræðinnar og lögmálið kemur fram ef ökumaður og/eða farþegi kastast innan bíls á glugga ökutækis. Mað- ur sem vegur 75 kg fær 4 tonna högg sé ökuhraðinn 60 km en 3 tonna við 50 km hraða. Þetta lög- mál er einnig í gildi ef keyrt er á gangandi vegfaranda. Sé ökuhraði mikill verður slysið meira eða jafn- vel banvænt. Ökuhraði er því mik- ilvægt atriði fyrir ökumenn, far- þega og gangandi. Veitfólk hvað er leyfilegur ökuhraði? Því miður nei! 7.-9. ágúst var ég á norrænum fundi um umferðar- læknisfræði á Akureyri og þá byij- aði ég eftir fundinn að spyrja alla sem ég hitti og mjög fáir vissu hvað KjaUarinn Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur leyfilegur ökuhraði væri, jafnvel menn sem mikið óku vegna vinnu sinnar. Þeir vissu heldur ekki aö ökuhraðinn væri mismunandi eftir vegum utanbæjar, á götum innan- bæjar og byggingarsvæðum. Nú vildi svo til að ég var tvisvar í Hollandi, nánar tiltekið í Amst- erdam, á sl. ári. Umferðin í Hol- landi er mjög mikil og mjög traust. Ég fékk frá opinberri skrifstofu upplýsingablað sem sýnir 18 mis- munandi tegundir ökutækja og 6 tegundir gatna og vega, með upp- lýsingum um byggingarfyrirkomu- lag. í báðum tilfellum er eitt mikil- vægt atriði: Það er ekki nauðsyn- legt að menn séu læsir. Hvert öku- tæki er skýrt með mynd auk texta og vegir og götur eru á þann hátt skýrð með myndum. íslensk stúlka, sem hefur lengi búið í Hollandi, þýddi textann. Myndin fyrir neðan sýnir lítil stykki af plakati sem skrifstofa landlæknis gerði til að leggja fyrir norrænan fund á Akureyri. Plak- atið eða upplýsingablaðið er mjög nothæft. Ég tók 45 eintök með mér og var beðin um fleiri, enda eru þau mjög nothæf til kennslu. Nauðsyn- legt er hins vegar að hafa í huga að áríðandi er að gera plakötin, upplýsingablöð o.þ.h. í samræmi við gildandi lög á íslandi. Hollensk- ur texti um leyfilegan hraða er að- eins sýnishorn. Nýtt skólaár og vinnuár að byrja í september Mörg þúsund börn og margar þúsundir nema í menntaskólum og tilsvarandi skólum verða að fara daglega í skóla og þau verða öll að vita hvað er ökuhraði - til að ganga yfir götur. Annað og eins. áríðandi er að kenna ökumönnum hver hraðinn er í lögum. Eins og mér fannst í samtölum við þá er það orðin tíska að vera að staðaldri í hraðasam- keppni. Svörin, sem ég fékk, voru: „Ef ég keyri á leyfilegum hraða keyra öll fram fyrir mig.“ Jafnvel gangandi fólk svaraði: „Ég keyri ekki. Mér kemur ökuhraðinn ekki við. Já, já, svo er það nú.“ Til þess að fyrirbyggja slys langar mig að leggja til að nokkrum atrið- um verði bætt við umferðarlögin nú. 1) Þar sem ökumenn hugsa ekki með heilanum (annars myndu þeir hugsa um slys og töp) er nauðsyn- legt að taka til greina að flestir þeirra hugsa aðeins með peninga- veski eða hvort sektir verði mjög hækkaðar. Gefa mætti aðeins 10 km aukahraða ef sannað er að það sé nauðsynlegt en þar fyrir ofan láta greiða (staðgreiða) 1000 kr. fyr- ir hvern kílómetra. Sem dæmi vil ég benda á vin einn, sem keyrir helst innanbæjar - svo enginn fari fram úr honum - á 100 km hraða, að hann myndi greiða fyrir 100 -60 km, þ.e.a.s. 40.000 kr á staðnum, annars myndi bíll hans verða tek- inn til vörslu hjá lögreglu og leiga greidd fyrir bifreiðageymslu að auki. Mig langar að giska á að eftir aö nokkrir yrðu að greiða slíka upphæð myndi hraðaksturinn hverfa. 2. En eins og ég benti á vita fáir hvað leyfilegur hraði á öllum göt- um bæjar eöa á vegum utanbæjar er. Því vil ég fara fram á að upplýs- ingar og vegakort verði gefin út og tilsvarandi hollenskt upplýsinga- blað sýnt a.m.k. mánaðarlega í sjónvarpi. Eiríka A. Friðriksdóttir „Annaö og eins áríðandi er að kenna ökumönnum hver hraðinn er í lögum. Eins og mér fannst í samtölum við þá er það orðin tíska að vera að staðaldri í hraðasamkeppni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.