Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
Andlát
Myndgáta
Hannibal Valdimarsson
Hannibal Valdimarsson, fyrrv.
ráöherra, Bogahlíð 8, Reykjavík,
lést 1.9. sl. en hann verður jarö-
sunginn frá Dómkirkjunni í dag
klukkan 13.30.
Starfsferill
Hannibal fæddist í Fremri-Am-
ardal í Skutulsfirði 13.1.1903. Hann
stundaði sjósókn og almenna verka-
mannavinnu á unghngsárunum en
að loknu gagnfræðaprófi á Akureyri
1922 hélt hann til Danmerkur og
lauk prófi frá kennaraskólanum í
Jonstrup 1927.
Hannibal hélt smábamaskóla á
ísafirði 1927-28, var kennari á Akra-
nesi 1928-29, var skólastjóri í Súða-
vík 1929-31, stundaðiskrifstofustörf
hjá Samvinnufélagi ísfirðinga og
kenndi 1931-38 og var skólastjóri
Gagnfræðaskólans á ísafirði 1938-54.
Hannibal var formaður Verka-
lýðsfélags Álftfirðinga 1930-31,
formaður Verkalýðsfélagsins Bald-
urs á ísafirði 1932-39, forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða frá
1934-54 og forseti ASI frá 1954-71.
Hann var bæjarfulltrúi á ísafirði
frá 1933-49, alþingismaður 1946-73,
heilbrigðis- og félagsmálaráðherra
1956-58 og félagsmála- og samgöngu-
ráðherra 1971-73.
Hannibal var formaður Alþýðu-
flokksins og ritstjóri Alþýöublaðs-
ins frá 1952-54, formaður Alþýðu-
bandalagsins frá 1956-68 og formað-
ur Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna frá 1969-74.
Fjölskylda
Eftirlifandi kona Hannibals er Sól-
veig Sigríður, f. 24.2.1904, dóttir
Ólafs, b. á Strandseljum í Ögur-
sveit, Þórðarsonar, og konu hans,
Guðríðar Hafliðadóttur.
Böm Hannibals og Sólveigar eru:
Arnór, f. 24.3.1934, prófessor í heim-
speki við HÍ, kvæntur Nínu Sveins-
dóttur viðskiptafræðingi, og eiga
þau fimm börn; Ólafur Kristján, f.
6.11.1935, blaðamaður í Reykjavík,
var áður kvæntur Önnu Kristjáns-
dóttur en seinni kona hans er Guð-
rún Pétursdóttir og eiga þau eina
dóttur auk þess sem hann á þrjú
böm frá fyrra hjónabandi; Ehn, f.
15.11.1936, kennari á Flúðum í
Hrunamannahreppi, var gift Kjart-
ani Júlíussyni en þau skildu og á hún
flögur börn; Guðríður, f. 15.12.1937,
fyrrv. bankastarfsmaður, og hún á
tvö böm; Jón Baldvin, f. 21.2.1939,
utanríkisráðherra og formaður Al-
þýðuflokksins, kvæntur Bryndísi
Schram, og eiga þau fjögur böm.
Sonur Hannibals er Ingjaldur,
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Systkini Hannibals, sem upp kom-
ust, vora fimm talsins: Guðrún, f.
1897, d. 1989 ljósmóðir síðast í
Reykjavík; Jón, f. 1900, d. 1988, vél-
smiður á ísafirði; Sigríður, f. 1904,
var lengst af símaritari í Reykjavík;
Finnbogi Rútur, f. 1906, d. 1989, al-
þingismaður, ritstjóri og bæjarstjóri
í Kópavogi; Arnór, f. 1907, d. 1928,
loftskeytamaður.
Foreldrar Hannibals vora Valdi-
mar Jónsson, b. í Fremri-Arnardal,
f. 29.3.1866, d. 29.3.1922, og kona
hans, Elín Hannibalsdóttir, f. 4.8.
1866, d. 18.12.1953, húsfreyja.
Ætt
Faðir Valdimars var Jón, hákarla-
formaður í Litlu-Ávík á Ströndum
Jónsson, b. á Melum í Víkursveit
Hannibal Valdimarsson.
Guðmundssonar. Móðir Valdimars
var Helga Guðmundsdóttir, b. á
Kjörvogi í Reykjarfirði, Jónssonar.
Faðir Elínar var Hannibal, b. á
Neðri-Bakka í Langadal, Jóhannes-
son, b. á Kleifum í Skötufirði, Guð-
mundssonar sterka á Kleifum, Sig-
urðssonar, forfóður Ólafs Þ. Þórðar-
sonar og Sverris Hermannssonar.
Móðir Elínar var Sigríður Arnórs-
dóttir, prófasts í Vatnsfirði, Jóns-
sonar, bróður Auðuns, langafa
Jóns, fóður Auðar Auðuns, fyrrv.
ráðherra, og Jóns Auðuns dómpróf-
asts. Móðir Sigríðar var Guðrún
Magnúsdóttir „eymdarskrokkur",
Jónssonar. Móðir Magnúsar var
Guðrún Magnúsdóttir, b. í Súðavík,
bróður Ingibjargar, ömmu Jóns for-
seta og Jens rektors, langafa Jó-
hannesar Nordal. Magnús var son-
ur Ólafs lögsagnara á Eyri, ættföður
Eyrarættarinnar en meðal afkpm-
enda hans má nefna Matthías Á.
Mathiesen, Geir Hallgrímsson og
ValArnþórsson.
AII* Bílalelgau
auglýsir
ERUM AÐ SELJA
Á FRÁBÆRU VERÐI
nokkra notaða bílaleigubíla í
mjög góðu ásigkomulagi.
Til sýnis við afgreiðslu ALP
við Umferðarmiðstöðina.
Upplýsingar í símum
43300 og 17570.
HREINLÆTISTÆKIA G0ÐU VERÐI
Sértilboð:
Salerni með þrýstihnapp
og harðri setu
+ vegghandlaug, 55x43,5
+ baðker, 170x73, super
(extra þykkt)
Allt þetta á kr. 29.900,-
Auk þess baðinnrétting með
25% afslætti
VATNSVIRKINN/f
Ármúla 21, símar 686455 - 685966
Andlát
Ingibjörg Stefánsdóttir, dvalarheim-
hinu Heiðarbæ, Kirkjúbæjar-
klaustri, andaðist í Sjúkrahúsi Suð-
urlands aðfaranótt 10. september.
Guðmundur Guðmundsson, Holts-
götu 19, Hafnarfirði, lést þann 9. sept-
ember.
Sigurður Þórðarson, Bjarkarholti 3,
Mosfehsbæ, útvegsbóndi frá Vest-
mannaeyjum, lést af slysfórum 9.
september.
Jarðarfarir
Unnur Aðalheiður Jónsdóttir frá
Stóru-Ávík, andaðist í Sjúkrahúsi
Akraness sunnudaginn 8. september.
Minningarathöfn fer fram í Akranes-
kirkju fimmtudaginn 12. september
kl. 14. Jarðsett verður í Árnesi laug-
ardaginn 14. september kl. 14.
Guðmundur Þorvarðsson múrari,
Snorrabrauf 22, Reykjavík, er látinn.
Jarðarfórin hefur farið fram í kyrr-
þey.
Sigrún Aðalheiður Kærnested, Háa-
leitisbraut 23, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni föstudaginn 13. sept-
ember kl. 15.
Óttar Hermann Guðlaugsson, verður
jarðsunginn í Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 12. sept-
ember kl. 10.30 árdegis.
Gunngeir Pétursson, Álfheimum 68,
sem lést 5. september, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju fóstu-
daginn 13. september kl. 13.30.
Elínborg (Dúlla) Guðjónsdóttir,
Skólabraut 5, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fóstudaginn 13. sept-
ember kl. 15.
Hermann Jónsson, áður Vesturbraut
24, lést á Sólvangi 31. ágúst sl. Jarðar-
íórin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Jóhannes Hjaltason, verður jarð-
sunginn frá Bústaðákirkju fimmtu-
daginn 12. september kl. 13.30.
Unnur Erlendsdóttir lést 30. ágúst.
Hún fæddist í Hafnarfirði 14. nóv-
ember 1917. Foreldrar hennar voru
Erlendur Jónsson og Ólöf Einars-
dóttir. Unnur giftist Bergþóri Smára,
en þau slitu samvistum eftir 10 ára
sambúð. Þau eignuðust tvö börn. Síð-
ustu starfsár sín vann Unnur í bóka-
búðinni á Njálsgötu 64 og Laugavegi
100. Útfór Unnar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Tilkyimingar
Hjálpræðisherinn
Flóamarkaður í Hjálpræðishemum,
Kirkjustræti 2, í dag kl. 10-17. Mikið af
góöum fatnaði.
Félagsstarf aldraðra
Gerðubergi
Miðvikud. 11. sept: kl. 12 hádegishress-
ing, e.h. spilamennska, upplestur, kl. 15
kafíi. Fimmtud. 12. sept: Hádegishress-
ing, spilað og spjallað, kl. 15 kaffitími.
Nánari upplýsingar í síma 79020.
Argentínskur tangó á
Hótel Borg
í kvöld, miðvikudagmn 11. sept., verður
á Hótel Borg, á þess vegum og Kramhúss-
ins, einstæð sýning argentínsku dansar-
anna Dinielu Areuri og Armando Orzuza
frá Buones Aires. Þau eru í hópi bestu
TILBOÐ
30%
AFSLÁTTUR
AF SÓLARHRINGS-
FRAMKÖLLUN
Verð með 30% afslætti,
stærð 10x15.
36 myndir = 1075
24 myndir = 773
Opið 9-19 virka daga.
Póstkröfuþjónusta.
HOFÐABAKKA M12 • REYKJAVIK • S: 677150
Komið á Höðfabakka 1, Rvík, og reynið viðskiptin.
tangódansara þar um slóðir. A sýning-
unni rekja þau sögu og þróun tangódans-
ins í Argentínu. En dansinn hófst 1 lok
síðustu aldar og var í upphafi dansaöur
af körlum, þar sem konum leyfðist ekki
að dansa. Auk þess munu hljóðfæraleik-
ararnir Reynir Jónasson og Símon Kuran
leika á harmóníku og fiölu. Kynnir
kvöldsins verður Kolbrún Halldórsdóttir.
Að sýningunni lokinni geta gestir stigið
dans undir argentínskri og suðrænni
tónlist sem tónlistarmaðurinn Abdou
mun velja. Kl. 19.30-21 kenna þau Diniela
og Armando grunnspor í argentinskum
tangó. Sýningin hefst kl. 22.
Tónleikar
Blús og djags á
Blúsbarnum
Lifandi djass og blús á Blúsbarnum alla
daga nema mánudaga og þriðjudaga. í
kvöld, 11. september, leika Gunnlaugur
Guömundsson, Einar Valur Scheving,
Jóel Pálsson og félagar. Aðgangur ókeyp-
is.
Yggdrasill á Púlsinum
Norræni sextettinn Yggdrasil heldur tón-
leika á Púlsinum, Vitastíg, í kvöld, 11.
september. Sveitina skipa: Kristian Blak,
Anders Hagberg á flautu og saxófóna,
Tore Brunborg á tenór og sópransaxófón,
Lelle Kullgren spilar á gítar og jóðlar,
Anders Jormin ér á kontrabassa og Kar-
in Korpelainen á trommur. Yggdrasill er
nú á tveggja vikna ferðalagi um Norður-
lönd og verða þetta einu tónleikar hljóm-
sveitarinnar hér á landi. Tónleikarnir
heijast kl. 22.
Djasskvartett Björns Thor-
oddsens
á Kringlukránni
í kvöld, 11. september, leikur djasskvart-
ett Bjöms Thoroddsen á Kringlukránni.
Tónlist eftir A. C. Jobim verður helsta
uppistaða kvöldsins. Sérstakur gestur
þetta kvöld verður gítarleikarinn Ómar
Einarsson sem nýkominn er frá námi
vestanhafs. Ásamt þeim Bimi og Ómari,
sem leika á gítara, leika þeir Guðmundur
Steingrímsson, trommur, og Bjami
Sveinbjömsson á kontrabassa. Kvartett-
inn hefur leik sinn kl. 22 og er aðgangur
ókeypis.
Fundir
ITC deildin Gerður
Fyrsti fundur deildarinnar verður hald-
inn í kvöld, miðvikudag, í Skútunni,
Dalshrauni 15, Hafnarfirði. Mæting kl.
19, fundur hefst kl. 19.45, matarfundur.
Verð kr. 1500. Gestir velkomnir. Upplýs-
ingar gefur Marta Pálsdóttir s. 656154 og
Kristín Bjömsdóttir s. 812913.
ITC deildin Melkorka
heldur sinn fyrsta fund í dag, 11. septemb-
er, í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Fundurinn er öllum opinn.