Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
Utlönd
Díana prinsessa sker upp
herör gegn stjúpu sinni
Hatramar deilur eru komnar upp
í íjölskyldu Díönu Bretaprinsessu.
Ástæðan er sú að faðir hennar,
Spencer jarl, hefur tekið upp á því
að selja dýrgripi úr eigu ættarinnar
sér til framfæris. Sá gamli á að baki
miður glæstan feril í fjármálum og
er á hausnum eina ferðina enn.
Spencer jarl býr á ættarsetrinu,
Althorp House. Því fylgja miklar
lendur og í höll jarlsins er eitt dýr-
mætasta safn listaverka og forngripa
á Englandi. Jarlinn er skilinn við
móður Díönu og þeirra systkina.
Núverandi kona hans er Raine, dótt-
ir Barböru Cartland, skáldkonunnar
góðkunnu. Börn jarlsins af fyrra
hjónabandi segja að stjúpmóðir
þeirra beri ábyrgð á ,að dýrgripirnir
eru nú að hverfa úr eigu ættarinnar.
Díana á þrjú systkin og eru þau
sammála um að faðir þeirra hafi ekki
rétt til að selja gripina. Spencer jarl
segir í viðtali við breska blaðið Daily
Mail að börn sín skilji ekki að hann
þurfi að hafa nokkra risnu í sam-
ræmi við stöðu sína sem heldri mað-
ur.
Spencer svarar ásökunum á hend-
ur konu sinni á þann veg að það sé
afskaplega heimskulegt að ætla sér
að spinna einu sinni enn upp söguna
um vondu sjúpuna þegar deilt sé um
fjármuni, enda eigi það ekki við rök
að styðjast að kenna henni um þótt
eitthvað verði að selja af eigum ætt-
arinnar til að standa straum af heim-
ilishaldinu.
Reuter
Díana Bretaprinsessa kennir sjúpu sinni um að faðir hennar verður að
selja dýrgripi úr eigu ættarinnar. Simamynd Reuter
Fíkniefnalögga
í 5 ára tugthús
Wayne Countryman, fyrrum liðs-
maður bandarísku fíkniefnalögregl-
unnar, DEA, var dæmdur í fimm ára
fangelsi á mánudag fyrir að stela og
selja eiturlyf, í stærsta hneykslismáli
sem komið hefur uppdnnan stofnun-
arinnar.
Terry Hatter dómari hefði getað
dæmt manninn til hámarksrefsingar
sem er sjö ára betrunarhúsdvöl en
hann sagðist hafa kveðið upp mildari
dóm vegna þess að hann hafði með-
aumkun með fíkniefnalögreglu-
manninum fyrrverandi.
Dómarinn sagðist hafa horft upp á
hár Countrymans skipta lit, úr dökk-
brúnu í mjallhvítt, á þeim tveim
árum sem liðin eru frá því hann var
ákæröur.
„Ég hef fylgst með hári þínu skipta
lit. Ég hef fylgst með því og ég veit
hvers vegna það hefur breyst," sagði
dómarinn þegar hann kvað upp refs-
inguna.
Countryman og tveir félagar hans
í fíknó ráUu biturlVfjahring sem velti
milljónum dollara. Þeir stálu bæði
eitri og peningum frá eiturlyíjasölum
og vinnuveitanda sínum og seldu síð-
an dópið.
Annar félaga Countrymans var
dæmdur í 80 ára fangelsi af sama
dómara í júlí en refsing Country-
mans var svona miklu vægari m.a.
vegna þess að hann var fyrstur þre-
menninganna til aö játa sekt sína og
féllst á að vera ákæruvaldinu innan-
handar.
Samkomulag Countrymans og
ákæruvaldsins kveður svo á um að
hann verði að sleppa hendinni af
meira en einni milljón dollara sem
hann á í svissneskum banka.
Reuter
Tölvuspá um
útlit krógans
Fyrst voru það últrahljóðbylgjur
sem gerðu væntanlegum foreldrum
kleift að komast að kynferði ófædds
barns síns. Og nú segist japanskt fyr-
irtæki geta spáð fyrir um hvernig
barnið komi til með að líta út.
Að sögn starfsmanna Matsushita
rafeindafyrirtækisins þarf ekki að
gera annað en mata nýja tölvu sem
það hefur smíðað með myndum af
foreldrunum, tilgreina síöan „dreng-
ur“ eða „stúlka“ og bingó. Út úr tölv-
unni spýtist mynd af barninu.
Fumio Maehara, leiðtogi vísinda-
mannanna sem fundu upp þetta
undratæki, segir að fljótlega verði
hafin sala á tölvunni. Hann segir að
þegar sé mikill áhugi á henni.
Þótt barnamyndirnar eigí sjálfsagt
eftir að verða helsta ástæðan fyrir
sölu tölvunnar, kemur hún þó að
öörum notum, að sögn vísinda-
mannsins. Lýtaskurðlæknar geta
m.a. sýnt sjúklingum sínum hvernig
þeir komi til með að líta út eftir að-
gerðina, áður en sjálf aðgerðin er
gerð. Þá geta rannsóknarlögreglu-
menn einnig matað hana á lýsingum
sjónarvotta á afbrotamönnum og
fengið út myndir af þeim.
Ekki má svo gleyma því að tölvan
getur sýnt manni hvernig maður
kemur til með að líta út á gamals-
aldri. Reuter
H^c?OTecH S ^cwrecH S^c?OTecH ^^csoTecH £2^o?orecH E ^ororecH S ^ororecH S^ojorecH ^^aarecH S^owpiecH
0
0
0
0
0
r
I
\
0
r
I
0
x
I
0
c
0
0
\
01
0
^C^OTeCH
Tölvur sem slógu í gegn
Acrotech tölvurnar hafa svo sannarlega fengið góðar viðtökur á íslandi, enda fara
þar saman gæði, falleg hönnun og einstakt verð.
Nú hefur Balti hf. gert nýjan magnkaupasamning við Acrotech fyrirtækið sem ger-
ir okkur mögulegt að bjóða þessar hágæðatölvur á hreint ótrúlega hagstæðu verði.
Acro 286 AT 12 Mhz. 1Mb. vinnsluminni.
Acro 386 SX 16 Mhz. 1Mb. vinnsluminni.
* Acro386C 25 MHz. 2Mb. vinnsluminni.
* Acro386C 33 MHz. 4Mb. vinnsluminni.
Kr. 95.480,
Kr. 119.655,
Kr. 174.500,
Kr. 196.500,
*MS-D0S 5.0
0!
Irtnifalið í verði: Ultra VGA litaskjár 1024x768 punktar og 40Mb. harður diskur.
Ath. Greiðslusamningar til allt að 24 mánaða.
Balti hf., Ármúla 1, sími (91) 812555,
8
k
0
0
□
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
£2^c3orecH S^cTOrecH S^oroTecH ^^aoTecH B^ororecH E^o?OTecH ^^c^OTecH P^jl^caarecHS^ogareCH S^ogorecH S