Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Side 17
16
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
17
fþróttir
Guðmundur Torfason á leikvangi St. Mirren, Lowe Street. Guðmundur
gerir sér vonir um að leika gegn efsta liðinu, Hearts, á laugardaginn
kemur.
Stjarnan
féll í 2. deild
- eftir jafntefli í Eyjum, 1-1
Ómar Garðaisson, DV, Eyjunr
Eftir þriggja daga seinkun náðist
loks að ljúka leik ÍBV og Stjörnunnar
á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í
gærkvöldi og losnaði þar með um
mikinn hnút í 1. deildinni. Fram aö
þessum leik gat farið svo að sex lið
berðust fyrir lífi sínu í deildinni i
siðustu umferðinni, en úrslitin urðu
jafntefli sem þýöir að Stjarnan fellur
í 2. deild ásamt Víði.
Strax á fyrstu mínútu var ljóst að
bæði lið ætluðu sér sigur i þessum
leik og ekki voru liðnar nema ijórar
mínútur af leiknum þegar fyrsta
markið leit dagsins ljós og þar voru
Eyjamenn að verki. Friðrik Sæ-
bjömsson sendi boltann fyrir mark
Stjörnumanna og dansaði hann á
markslánni fyrir fætur Tómasar
Inga sem gaf boltann á Leif Geir sem
skoraði með skalla, 1-0.
Þá var eins og Stjörnumenn tækju
við sér og komu þeir meira inn í leik-
inn. Náðu tökum á miðjunni á meðan
Eyjamenn bökkuðu. Náðu þeir að
skapa sér nokkur tækifæri og jöfn-
uðu á 32. mínútu. Var það Ingólfur
Ingólfsson sem skallaði boltann í net
Eyjamanna eftir fyrirgjöf frá Ragnari
Gislasyni. Staðan 1-1 og urðu það
lokatölur leiksins.
Vestmannaeyingar komu tviefldir
til leiks í seinni hálfleik, en stórgóð
markvarsla Jóns Otta varð til þess
að Stjörnumenn fengu ekki fleiri
mörk á sig.
Sagan úr fyrri hálfleik eridurtók sig
því þegar líöa tók á síðari hálfleik
færðust þeir í aukana og börðust eins
og ljón fram á síðustu sekúndu, en
Eyjamenn lögðust í vörn, greinilega
sáttir við eitt stig.
Bragi Bergmann dómari þurfti að
lyfta gula spjaldinu fimm sinnum og
rétt fyrir leikslok var Heimi Erlings-
syni vikið af leikvelli eftir gróft brot
á Tómasi Inga.
„Þaö er frábært að þessu er lokiö
og við búnir að tryggja okkur í deild-
inni,“ sagði Heimir Hallgrímsson,
fyrirliði ÍBV, eftir leikinn. „Nú eigum
við bara eftir að velja hverjir verða
íslandsmeistarar." Hann sagði að
leikurinn hefði verið harður. „Og
dómarinn missti hann algjörlega úr
böndum. Hvorugt liðiö ætlaði að gefa
sig og svoleiðis leikir verða alltaf
erfiðir."
Sveinbjörn Hákonarson sagöi aö
þeir Stjörnumenn hefðu komið sof-
andi til leiksins. „En frá 15. mínútu
fyrri hálfleiks vorum við sterkari
aðilinn og héldum því út leikinn. En
dæmið gekk ekki upp eins og í þess-
um sex jafnteflisleikjum okkar í
sumar. Við áttum að vinna þá alla,
nema kannski einn, og þvi fór sem
fór,“ sagði Sveinbjörn sem verður
ásamt félögum sínum að bíta í það
súra epli að spila í 2. deild að ári eft-
ir tveggja ára dvöl í þeirru fyrstu, en
þeir komust í 1. deild árið 1989 ásamt
ÍBV.
Besti maður vallarins var Hlynur
Stefánsson, einnig voru Leifur Geir,
Tómas Ingi og Elías góðir hjá ÍBV.
Jón Otti var hetja Stjörnumanna og
Þór Ómar var oft stórhættulegur á
kantinum.
Guðmundur á
góðum batavegi
- leikur Hklega gegn Hearts
Atli Eðvaldsson býr sig undir að skjóta með hægri fæti og augnabliki síðar lá boltinn í markinu hjá Fram. Pétur Marteinsson Framari fékk engum vörnum við komið
og fyrir aftan Atla fylgist Bjarki Pétursson spenntur með. DV-mynd GS
íslandsmótið í knattspymu -1. deild:
Gunnar færði Víkingi
gullna möguleika
- jafnaði á elleftu stundu fyrir KR í 2-2 leik gegn Fram
Verður Gunnar Oddsson, KR-ingur,
gerður að heiðursfélaga í Víkingi að
þessu keppnistímabili loknu? Allavega
hljóta Víkingar að hugsa ákaflega hlýtt
til keflviska varnarmannsins í vestur-
bæjarliðinu - hann færði þeim í gær
gullna möguleika á íslandsmeistaratitl-
inum með því að skora jöfnunarmark
KR, 2-2, gegn Frömurum, keppinautum
Víkinga, á lokamínútunni í leik liöanna
á KR-vellinum.
Leiktíminn var að renna út þegar KR
fékk hornspyrnu. Boltinn barst um
vítateiginn þar til Gunnar henti sér
fram, einn og óvaldaður i markteign-
um, og skallaði boltann niður í hornið.
KR-ingar og Víkingar á áhorfendapöll-
unum fögnuðu í sameiningu - leikmenn
Fram stóðu eftir niðurlútir. Þeir höfðu
staðið með pálmann í höndunum eftir
að hafa náð 1-2 forskoti í leiknum -
með sigri hefðu þeir haft tveggja stiga
forskot á Víkinga fyrir lokaumferðina.
Nú þurfa þeir að vinna þremur mörk-
um stærri sigur á ÍBV en Víkingar
vinna á Víði á laugardaginn til að
hreppa titilinn, ellegar treysta á að Víð-
ir taki stig af Víkingi.
Fékk boltann í 70
sentímetra hæð
„Við ákváðum að breyta horninu og
taka það stutt. Rúnar átti skot, Siggi
náði að pota í boltann og ég fékk hann
allt í einu í 70 sentímetra hæð og henti
mér fram,“ sagði Gunnar Oddsson í
samtali við DV eftir leikinn.
„Við ætluðum okkur sigur og stefnd-
um á Evrópusætið en með þessum úr-
slitum er það því miður úr sögunni. Við
náðum að rífa okkur upp þegar Rúnar
kom inn á með góöan hreyfanleik og
spil, það er það sem hefur vantaö hjá
okkur undanfarið," sagði Gunnar.
Spiluðum bara
einn hálfleik
„Það var svekkjandi að fá þetta mark á
sig, en staðreyndin er sú að við spiluð-
um bara einn hálfleik í leiknum. Mark-
ið breytir stöðunni mikið, við verðum
að spila gegn ÍBV eins og í seinni hálf-
leiknum. Við þurfum aö sigra stórt en
það þýðir ekki að spila bara sóknarleik
gegn Eyjamönnum, viö verðum að
sækja af skynsemi á laugardaginn,"
sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram.
KR-ingar voru mun betri aðilinn í
fyrri hálfleik, spiluðu ágætlega og tóku
forystuna verðskuldað undir lok hans
þegar Atli Eðvaldsson skoraði með
góðu skoti úr vítateignum eftir fyrirgjöf
Sigurðar Arnar Jónssonar.
Ódýrt mark Ríkharðs
Fram náði undirtökunum í seinni hálf-
leik og sótti stíft og það skilaði sér að
lokum með tveimur mörkum á fimm
mínútum. Þó sluppu Framarar með
skrekkinn þegar Björn Rafnsson hikaði
í dauðafæri við mark þeirra.
Ríkharður Daðason lagði upp mark
fyrir Baldur Bjarnason, 1-1, og síðan
skoraði Ríkharður ódýrt mark með
skoti af 20 metra færi, Ólafur Gott-
skálksson, markvörður KR, misreikn-
aði boltann sem lá í netinu við hliö
hans. Synd fyrir Ólaf sem átti að öðru
leyti mjög góðan leik og hafði bjargað
tvíyegis frá Antoni Birni Markússyni
og Jóni Erling sem komust einir gegn
honum.
Kraftur með Rúnari
Átta mínútum fyrir leikslok kom Rúnar
Kristinsson inn á hjá KR, eftir að hafa
verið frá vegna meiðsla síðan liðin
mættust í fyrri umferðinni. Við það
kom aukinn kraftur í KR-inga, þeir
sóttu stíft í lokin og uppskáru mark sem
var eftir atvikum verðskuldað.
KR-ingar áttu í heildina ágætan leik.
Þeir misstu tökin á honum í síðari hálf-
leik en sýndu mikinn karakter með því
að ná að jafna í lokin. Sigurður Björg-
vinsson átti stórgóðan leik í vörninni
og Atli Eðvaldsson var skæður í sókn-
inni, ávallt hættulegur í og við vítateig
Fram.
Hjá Fram lék Kristján Jónsson mjög
vel í vörninni en að öðru leyti voru
Framarar samtaka í sínum aðgerðum,
allir undir getu í fyrri hálfleik og allir
virkiríþeimsíðari. -VS
Miklar líkur era á að Guðmund-
ur Torfason geti leikiö með
St.Mirren um næstu helgi en þá
leikur liðið á heimavelli sínum,
Love Street, gegn Hearts sem nú
er á toppi skosku úrvalsdeildarinn-
ar í knattspymu.
Eins og kunnugt er kjálkabrotn-
aði Guðmundur í æfingaleik með
St. Mirren rétt fyrir upphaf tíma-
bils og hefur ekkert leikið með fé-
laginu siðan.
„Ég fer í læknisskoðun í dag og
þá fær ég það á hreint hvort ég
geti leikið. Eg tel möguleikana vera
um 90%. Ég hef verið á séræfingum
og þannig haldið mér í góðu formi
og vonandi get ég leikið á laugar-
dagínn,“ sagöi Guðmundur í sam-
tali við DV.
St. Mirren hefur gengiö illa það
sem af er móti og í dag er liðiö i
næstneðsta sæti með aðeins 2 stig
og hefur enn ekki unniö leik í deild-
inni.
„Það hefur ótrúleg óheppni elt
okkur og sterkir leikmenn hafa
lent í meiðslum. Þýski leikmaður-
inn Thomas Stickroth sleit kross-
bönd í hné rétt fyrir mótið og mark-
vörður liðsins, Money, meiddist illa
í upphafi móts og þeir eru enn frá.
Hins vegar hefur liðið leikið ágæt-
lega og um síöustu helgi var liðið
óheppið aö leggja ekki Celtic að
velli. Viö erum með mun betri hóp
nú en i fyrra og það er bara tíma-
spursmál hvenær liðiö hrekkur i
gang,“ sagði Guömundur.
Guömundur var spurður hvernig
honum litist á ráðningu Ásgeirs
Elíassonar í stöðu landsliðsþjálfara
og hvort hann gæfi kost á sér í
landsliðið.
„Ég er mjög ánægður með ráðn-
ingu Ásgeirs og tel að ekki hafi
verið hægt að fá hæfari mann í
starfiö. Númer eitt hjá mér í dag
er aö ná mér af meiðslunum og
standa mig vel hérna úti en hvað
varðar landsliðið þá verður þaö
bara að koma í ljós,“ sagði Guð-
mundur.
-GH
Evrópukeppni 1 körfubolta:
KR-ingar
veittu harða
mótspyrnu
- SPI Wien skoraði sigurkörfuna á
síðustu sekúndunni og sigraði, 89-87
KR-ingar komu heldur betur á
óvart í fyrri leiknum gegn austur-
ríska liðinu SPI Wien í Evrópu-
keppni félagsliða í körfuknattleik.
Lokamínútur leiksins voru æsi-
spennandi og réðust úrslitin ekki
fyrr en á síðustu sekúndunum þegar
austurríska hðið skoraði sigurkörf-
una og sigraði með tveggja stiga
mun, 89-87. í hálfleik var staðan jöfn,
47-^7.
KR-ingar léku við sinn hvern flng-
ur í leiknum í Vínarborg í gærkvöldi
en austurríska liðið er eingöngu
skipað atvinnumönnum. KR-ingar
báru enga virðingu fyrir mótherjan-
um, baráttan var allsráðandi frá upp-
hafi til enda. Axel Nikulásson lék
ekki með vegna bakmeiðsla og varö
það til að þjappa mannskapnum enn
betur saman og tók Hermann Hauks-
son stöðuna og skilaði sínu hlutverki
frábærlega.
Liðin skiptust á að hafa forystu í
fyrri hálfleik en um tíma náðu KR-
ingar þó fimm stiga forskoti, 27-32.
Mótspyrna KR-inga kom Austurrík-
íslenska landsliðið í handknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
tapaði í gær fyrir Svíum, 19-21, á
heimsmeistaramótinu sem nú stend-
ur yfir í Aþenu. Þetta var fyrsti tap-
leikur íslenska liðsins á mótinu og
enn einu sinni urðu íslendingar að
láta í minni pokann fyrir Svium á
handknattleiksvellinum.
Svíar höfðu undirtökin lengst af í
leiknum. Þeir hófu leikinn með lát-
um og komust í 6-1 og höfðu þriggja
marka forskot í hálfleik, 11-8. íslend-
ingar léku með 6:0 í fyrri hálfleik en
í þeim síðari breytti Gunnar Einars-
son þjálfari um leikaöferð og strák-
arnir léku 5:1 vörn.
Dauðafæri fór forgörðum
þegar staðan var jöfn
íslendingar náðu betri tökum á
Sigurður Bjarnason, sem leikur með
þýska félaginu Grosswaldstadt í vet-
ur, átti góðan leik gegn Svíum og
skoraði fimm mörk. Sigurður er i
mjög góðu leikformi um þessar
mundir.
ismönnum algjöra í opna skjöldu og
1500 áhorfendur, sem troðfylltu
íþróttahöllina, stóðu á öndinni. Áður
en fyrri hálfleikur var allur náöu
heimamenn að jafna metin.
Seinni hálfleikur var í járnum all-
an tímann og það var ekki fyrr en
leiktíminn var að renna út að heima-
menn náöu að skora sigurkörfuna.
Páll Kolbeinsson lenti í villuvand-
ræðum í fyrri hálfleik og beitti sér
ekki sem skyldi en í þeim síðari sýndi
hann sínar bestu hliðar. Liðsheildin
var frábær í KR-liðinu því fáir áttu
von á því að KR-inga myndu standa
í þessu sterka liði.
Síðari leikur liðanna í keppninni
verður í Vínarborg á morgun,
fimmtudag.
Stig KR: John Bear 29, Guðni
Guðnason 22, Hermann Hauksson 18,
Páll Kolbeinsson 14, Matthías Ein-
arsson 4, Lárus Árnason 2.
Dómarar leiksins voru frá Tékkó-
slóvakíu og Ungverjalandi og dæmdu
mjög vel.
leiknum og þegar um 5 mínútur voru
til leiksloka hötðu íslendingar náð
að jafna metin, 19-19. Gústaf Bjarna-
son fékk stuttu síðar gullið tækifæri
til að koma íslendingum yfir í fyrsta
sinn í leiknum en honum brást boga-
listin úr dauðafæri, Svíar brunuðu
upp og komust yfir og tryggðu sér
tveggja marka sigur með öðru marki
í lokin.
„Við byrjuðum leikinn mjög illa og
það má segja að við höfum veriö nær
allan leikinn að vinna upp forskot
Svía sem þeir náðu í upphafi leiks.
Þá var sóknarleikurinn ekki nógu
góður og sömuleiðis markvarslan en
vörnin stóð fyrir sínu, sérstaklega
eftir að við lékum 5:1 vörn. Svíar eru
með sterkt lið en ég held að strákarn-
ir hafi ekki komið hræddir til leiks
gegn þeim þó svo að Svíar hafi verið
okkur erfiðir á handboltasviðinu,"
sagði Gunnar Einarsson, þjálfari ís-
lenska landsliðsins, í samtali við
DV.
ísland á enn möguleika
á verðlaunasæti
íslendingar eiga þó enn möguleika á
verðlaunasæti á mótinu. I síðasta
leik sínum í milliriðhnum mæta þeir
Þjóðverjum. Vinni ísland þann leik
og tapi Svíar fyrir Sovétmönnum þá
hafnar íslenska liðið í 2. sæti í milli-
riðlinum og leikur þá til úrslita um
þriöja sætið. Gunnar Andrésson,
leikstjórnandi íslenska liðsins, lék
mjög vel í leiknum gegn Svíum og
skoraði hann alls 8 mörk í leiknum.
Mörk íslenska liðsins skoruðu þess-
ir: Gunnar Andrésson 8, Sigurður
Bjarnason 5/1, Gústaf Bjarnason 2,
Björgvin Rúnarsson 2 og Patrekur
Jóhannesson 2.
Staðan í riðhnum er þannig:
Sovétríkin.....4 3 1 0 115-88 7
Svíþjóð........4 2 2 0 96-84 6
ísland.........4 2 1 1 88-84 5
Þýskaland......4 0 2 2 91-97 2
Danmörk........4 0 2 2 85-94 2
Kórea.........4 1 0 3 99-127 2
-GH
Jslandsmótið
o 1991
Samskipadeild
KR-Fram 2-2 (0-1)
1-0 Atli (39.), 1-1 Baldur (71.), 1-2
Ríkharður (76.), 2-2 Gunnar O.
(90.)
Lið KR: Ólafur, Sigurður B„ Sig-
urður Örn, Gunnar 0., Sigurður
Ó„ Björn (Óskar 61.), Ragnar,
Heimir, Gunnar S„ Bjarki (Rúnar
82.), Atli.
Lið Fram: Birkir, Pétur 0„ Pétur
M„ Kristján, Kristinn, Steinar,
Pétur A. (Asgeir 67.), Anton (Hauk-
ur 86.), Baldur, Jón Erling, Rík-
harður.
Gul spjöld: Engin.
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Þorvarður Björnsson,
var ákveðinn en gerði nokkuð af
mistökum.
Áhorfendur: 1.730.
Skilyrði: Ágætt veður, þó svöl
gola. Grasvöllurinn ágætur á könt-
unum, þungur á miðjunni og illa
farinn í syðri vítateignum.
ÍBV-Stjarnan 1-1 (1-1)
1-0 Leifur Geir (4.), 1-1 Ingólfur
(32.) .
Lið IBV: Þorsteinn, Friðrik,
Heimir, Jón Bragi, Elías (Martin
77.), Nökkvi, Hlynur, Arnljótur,
Ingi, Leifur Geir, Tómas Ingi (Sig-
urður 90.)
Lið Stjörnunnar: Jón Otti, Birg-
ir, Bjarni B„ Heimir, Bjarni J„
Valgeir, Ragnar, Sveinbjörn, Þór
Ómar, Ingólfur, Valdimar.
Gul spjöld: Friðrik (ÍBV), Leifur
(ÍBV), Ragnar (Stj.), Valdimar
(Stj.), Sveinbjötn (Stj.)
Rautt spjald: Heimir (Stj.)
Dómari: Bragi Bergmann. stóð
sig sæmilega.
Ahorfendur: 900.
Skilyrði: Veður var gott. Völlur-
inn þokkalegur en þungur.
Staðan
Víkingur....17 11 1 5 33-20 34
Fram..........17 10 4 3 26-15 34
KR............17 8 4 5 32-15 28
ÍBV...........17 7 3 7 28-33 24
Valur.........17 7 2 8 22-23 23
UBK...........17 6 5 6 25-27 23
FH............17 6 4 7 25-24 22
KA............17 6 4 7 18-21 22
Stjarnan....17 4 6 7 23-26 18
Víöir.......17 2 3 12 1844 9
Markahæstir:
Guðmundur Steinsson, Vík.....13
Hörður Magnússon, FH.........12
Leifur Hafsteinsson, ÍBV.....12
Jón E. Ragnarsson, Fram...... 9
SteindórElíson.UBK........... 9
Atli Eðvaldsson, KR.......... 9
Ingólfur Ingólfsson, Stjörnu. 7
Valdimar Kristófersson, Stjörnu 6
Steinar Ingimundarson, Víði.. 6
Sveinbjörn Hákonarson, Stjörnu 6
Stúfar úr 1. deild
Þrír leikmenn tóku út bönn í leik
Fram og KR í gær. Þorvaldur Ör-
lygsson og Jón Sveinsson léku ekki
með Fram og Þorsteinn Halldórs-
son ekki með KR.
Pétur Marteinsson (Geirssonar)
tók stöðu Jóns og var í fyrsta sinn
í byrjunarliði Fram í 1. deild.
Sigurður Örn Jónsson lék í vörn
KR og spilaði sinn fyrsta leik í 1.
deild, og jafnframt fyrsta leik með
meistaraflokki félagsins.
KR-ingar voru án varamark-
varðar, en Jóhann Lapas var til
taks á.bekknum ef eitthvað kæmi
fyrir Ólaf Gottskálksson.
Rúnar Kristinsson lék að nýju
með KR eftir að hafa síðast leikið
gegn Fram í fyrri umferðinni.
Hann missti af átta deildaleikjum,
en spilaði síöustu 8 mínúturnar.
„Það er í lagi með Rúnar en hann
verður að spila stutt til að byrja
meö,“ sagði Siguijón Sigurðsson
læknir.
Atli Eðvaldsson hefur nú skorað
í fjórum leikjum KR í röð, fimm
mörk, og níu alls í deildinni í sum-
ar.
Ríkharður Daðason gerði sitt
fyrsta mark fyrir Fram í 1. deild
síðan hann skoraði sigurmarkið
gegn KR í leik liðanna í fyrri um-
ferðinni.
. Enginn útsendari frá Torino á
Italíu var á leik KR og Fram. Tor-
inomenn sáu hins vegar leiki KR
við Stjörnuna og Breiðablik, og
verða á Akureyri á laugardaginn
þegar KR mætir KA. KR leikur við
I Torino í UEFA-bikarnum á Laug-
í ardalsvellinum 19. september.
! Stjaman var í gær án Kristins
i Lárussonar og Rúnars Sigmunds-
sonar, sem eru með unglinga-
landsliðinu á Bretlandseyjum.
Ósigur gegn Svíum
- ísland leikur um 3. eða 5. sætið
Leif ur Geir ekki markakóngur
- veröur í leikbanni í síðasta leik IBV á laugardaginn
Leifur Geir Hafsteinsson úr ÍBV var
í gærkvöldi úrskurðaður í leikbann
vegna fjögurra gulra spjalda og verður
því ekki meö Eyjamönnum gegn Fram
i lokaumferð 1. deildarinnar í knatt-
spymu á laugardaginn. Þar með er
Leifur úr leik í keppninni um marka-
kóngstith 1. deildar en hann hefur gert
12 mörk, einu minna en Guðmundur
Steinsson úr Víkingi.
Aganefnd kom tvisvar saman í gær,
fyrst á heföbundnum tíma og síðan að
loknum leikjunum í gærkvöldi. „Oklt-
ur þótti ekki stætt á öðru en að allir
sætu við sama borð fyrir lokaumferð-
ina, þar sem í gær voru spilaðir frest-
aðir leikir, og frestanirnar vora um-
dehdar,“ sagöi Jón Gunnlaugsson,
formaður aganefndar, við ÐV.
Auk Leifs, sem fékk sitt fjórða gula
spjald í gærkvöldi, verða þeir Erhngur
Kristjánsson úr KA og Stjörnuménn-
irnir Sveinbjöm Hákonarson og Heim-
ir Erlingsson í leikbanni á laugardag-
inn.
-VS
íþróttir_____________
Sport-
stúfar
Englendingar eiga í
nokkram vandræðum
með að stiha upp sínu
sterkasta liði í vináttu-
landsleik gegn heimsmeisturum
Þjóðverja í kvöld. Þeir sem ekki
geta leikið eru: Mark Wright, Stu-
art Pearce, Des Walker, Paul Cas-
coigne, John Barnes og Steve
McMahon. Byrjunarlið Englend-
inga í kvöld er skipað þessum
mönnum: Chris Woods, Lee Dix-
on, Tony Dorigo, David Batty,
Gary Pallister, Paul Parker,
David Platt, Trevor Steven, Alan
Smith, Gary Lineker og John Sal-
ako.
Guðjón keppti í
Bandaríkjunum
Guðjón Guðmundsson fimleika-
maður keppti á heimsmeistara-
mótinu í fimleikum í Indianapolis
í Bandaríkjunum. Guðjón fékk
þessar einkunnir í skylduæfing-
unum: í stökki 9,225, í hringjum
8,250, á svifrá 8,975, á tvíslá 6,975,
á bogahesti 7,125 og í æfingum á
gólfi 8,975. í frjálsu æfingunum
fékk Guðjón þessar einkunnir:
Stökk 8,875, hringir 7,975, svifrá
8,075, tvíslá 8,650, tvíslá 7,375 og
í gólfæfingum 8,725. Samtals fékk
því Guðjón 99,200 stig.
Frjálsíþróttasamband íslands
hefur valið eftirtaldar stúlkur til
að keppa í Evrópukeppni félags-
liða sem fram fer í París 14. sept-
ember. ísland og önnur smáríki
fá að senda landslið:
Halla Heimisdóttir.......Ármanni
Kristín Alfreðsdóttir.........ÍR
Kristín Ingvarsdóttir.........FH
Laufey Stefánsdóttir......Fjölni
Maríanna Hansen.............UMSE
Sigrún Jóhannsdóttir..........ÍR
Snjólaug Vilhelmsdóttir.....UMSE
Sólveig Bjömsdóttir...........KR
Sunna Gestsdóttir...........USAH
Sylvía Guömundsdóttir.........FH
Vigdís Guðjónsdóttir..........ÍR
Þorbjörg Jensdóttir...........ÍR
Þórhalla Magnúsdóttir........USÚ
Þuríður Ingvarsdóttir...Selfossi
Köln réð þjálfara
Þýska úrvalsdeildarliöiö Köln,
sem enn hefur ekki unniö leik á
tímabilinu, réð í gær nýjan þjálf-
ara Joerg Berger að nafni en
hann var rekinn frá Frankfurt í
fyrra. Berger tekur við stööunni
af Erich Rutemöller, sem vikið
var úr starfi fyrir tíu dögum síö-
an.
England vann Þjóðverja
England sigraði Þýskaland, 2-1, í
undankeppni Evrópukeppninnar
undir 21 árs og yngri í Scoun-
thorpe á Englandi í gærkvöldi. í
sömu keppni sigruðu Skotar lið
Sviss, 0-3, í Bulle. Portúgalir sigr-
uðu síðan Finna í Oporto, 2-0.
Grand Prix í Berlín
Burell vann 100 m
Leroy Burell frá Bandaríkjunum
vann sigur í 100 m hlaupi á Grand
Prix móti í Berlín í gærkvöldi á
10,04 sek. Carl Lewis tók ekki
þátt í hlaupinu. Steve Lewis sigr-
aði í 400 m hlaupi á 44,56 sek.
Kenýumenn unnu þrefaldan sig-
ur í 800 m hlaupi en sigurvegari
varö Billy Konchehah á 1:45,95
mín.
Taugastríðið byrjað
Þegar Katrin Krabbe, heimsmet-
hafi í 100 m hlaupi, frétti að Mar-
lene Ottey ætlaði að taka þátt í
100 m hlaupi í Berlín hætti hún
við þátttöku og skráði sig í 200 m
hlaup. Þetta er upphafið á tauga-
stríði á milli þeirra fyrir ólympíu-
leikana. Krabbe hljóp 200 m á
21,96 sek, sem er annar besti tími
í heiminum í ár. Ottey hljóp 100
m á 10,84 sek. Báðar unnu þær
örugga sigra.