Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Qupperneq 26
26
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991.
Menning
Ný kynslóð kvikmyndagerðar-
manna á þýskri kvikmyndahátíð
- þrir leikstjórar veröa gestir á hátíöinni sem haldin er í Regnboganum
Wallers letzer Gang (Síðasta ganga Wallers) verður sýnd strax á laugardagskvöld að viðstöddum leikstjóra mynd-
arinnar, Christian Wagner.
Tuttugu ár eru síöan þýsk kvik-
myndagerö byrjaði aö rétta úr kútn-
um eftir mikla lægð, þar sem væmn-
ar rómantískar sveitamyndir voru
upþistaðan. Þá komu fram á sjónar-
sviðiö ungir leikstjórar, uppfullir af
hugmyndum og frumleika. Má þar
nefna Rainer Wemer Fassbinder,
Werner Herzog, Volker Schlöndorff
og Wim Wenders sem allir urðu
heimsfrægir og mörgum öðrum fyr-
irmynd í kvikmyndagerð. Fassbind-
.er er látinn en hinir þrír enn að þótt
lítið hafi spurst til Herzog undanfar-
in misseri.
Nú eru tímarnir breyttir í Þýska-
landi og nýir leikstjórar að koma
fram á sjónarsviðið, leikstjórar með
nýjar og athyglisverðar hugmyndir
og láta fátt afskiptalaust. A þýskri
kvikmyndahátíð, sem haldin veröur
í Regnboganum 14.-22.-september,
verður hægt að sjá það athyglisverð-
asta sem gert hefur verið á síðast-
liðnum árum í Þýskalandi en eins
og kunnugt er hafa umbreytingar
verið miklar í þjóðmálum með sam-
einingu Austur- og Vestur-Þýska-
lands.
Tuttuguog sex
kvikmyndir
Á hátíðinni verða sýndar tuttugu
og sex kvimyndir, stuttmyndir sem
og kvikmyndir í fullri lengd. Sú
stysta er aðeins íjórar mínútur en sú
lengsta hátt í tvo klukkutíma. Þrír
kvikmyndaleikstjórar munu heim-
sækja landið meðan á hátíðinni
stendur, Christian Wagner, Andreas
Voight og Christoph Schlingensief.
Verða þeir viðstaddir allar sýningar
mynda sinna og svara spurningum
um þær, um þýskar kvikmyndir og
framleiðslu þeirra. í dag sækja þýsk-
ir kvikmyndaleikstjórar ekki pen-
inga eingöngu í þýska kvikmynda-
sjóði heldur líka í kvikmyndasjóði
annarrra landa Evrópubandalags-
ins.
Christian Wagner á eina kvikmynd
á hátíðinni, Wallers letzer Gang (Síð-
asta gönguferð Wallers), og er hún
margverðlaunuð. Meðal annars hef-
ur hún fengið flestöll verölaun sem
hægt er að fá í Þýskalandi og var hún
framlag Þjóðverja til Felix verðlaun-
anna 1989. Wagner leikstýrir mynd-
inni, skrifar handritiö og framleiðir
sjálfur.
Andreas Voigt kemur frá þeim
hluta Þýskalands þar sem áður var
Austur-Þýskaland. Voigt gerir heim-
ildarmyndir og hefur hann fest á
filmu nákvæmlega og af mikilli
hnyttni atburði og stemmninguna í
Austur-Þýskalandi eftir fall múrsins.
Tvær myndir eftir hann vera sýndar,
Leipzig im Herbst (Leipzig að hausti)
og Letztes Jahr Titanic (Síðasta árið
um borð í Titanic), báðar mjög per-
sónulegar og gefa glögga mynd af
væntingum og örvæntingu hinna
óþolinmóðu og hrjáðu Austur-Þjóð-
veija.
Christoph Schlingensief hefur ver-
ið kallaður vandræðagemhngur í
þýskri kvikmyndgerð. Hafa hægri-
sinnuð blöð einkum hamast gegn
honum og er það vegna kvikmynda-
gerðar hans. Tvær þeirra verða
sýndar hér, 100 Jahre Adolf Hitler
(Adolf Hitler í 100 ár) og Das
Deutsche Kettenságenmassaker - die
erste Stunde der Wiedervereinigung
(Þýska keðjusagarfjöldamorðið -
I fyrstu stundir sameinaðs Þýska-
lands) sem báðar snerta á mjög
ágengan og brjálaöan hátt yngstu
sögu Þýskalands og neikvæð þýsk
þjóðareinkenni.
Ein óskars-
verðlaunamynd
Aðrar kvikmyndir á þýsku kvik-
myndahátíðinni, sem vert er að
nefna, eru Balance (Jafnvægið) sem
er stutt teiknimynd. Mynd þessi
hlaut óskarsverðlaunin sem besta
stuttmyndin, en höfundar hennar,
tvíburabræðurnir Wolfgang og Chri-
stoph Lauenstein, eru enn í kvik-
myndagerðarnámi og unnu myndina
í skólaleyfum á tveimur árum í kjall-
ara á heimili foreldra sinna.
Önnur verölaunamynd er Hoch-
zeitsgaste (Brúðkaupsgestirnir) eftir
Niko Brúcher. Niko er fatlaður, nán-
ar tiltekið handalaus. Hann var lengi
aðstoðarmaður Fassbinders, Peters
Patzak og fleiri. Niko sótti um inn-
göngu í alla kvikmyndaskóla í
Þýskalandi en var alls staðar hafnað
á þeim forsendum að ekki var hægt
að ímynda sé.r að handalaus maður
gæti búið til kvikmyndir. Hann sótti
þá um kvikmyndaskóla í Póllandi og
komst þar inn.
Eftir Michael Klier verða sýndar
tvær verðlaunamyndir, Osterkreuz
(Á mörkum austurs og vesturs) og
Úberall ist es besser, wo wir nicht
sind (Það er alls staðar betra að vera
en þar sem við erum). Myndirnar
fjalla um bitran raunveruleika Aust-
ur-Þjóðveria og Pólveria sem eiga
almennt erfitt í Þýskalandi.
Hér hefur aðeins verið getir fárra
mynda, en margar aðrar athyglis-
verðar kvikmyndir eru einnig á há-
tíðinni. Ætlunin er að sýna hverja
mynd tvisvar sinnum og stuttmynd-
irnar á undan lengri myndum.
Nokkrar myndanna eru með enskum
texta. Aðrar eru eingöngu á frum-
málinu. Kvikmyndahúsgestir fá í
hendur þýðingartæki sem fyrir verk-
an infra-rauðra geisla þýðir texta-
lausu myndirnar beint í eyru hvers
áhorfanda. Þessi tækni hefur ekki
verið notuð hér áður en er víða notuð
erlendis og kominn tími til að ís-
lenskir kvikmyndaáhugamenn sitji á
sama bekk og erlendir og geti notiö
kvikmyndasýninga á eigin tungu-
máli. _uií
Balance (Jafnvægi) er víðfræg stuttmynd sem meðal annars hefur fengið
óskarsverðlaun.
Væntanleg bók fyrir jólin:
Lífshlaup Ladda ásamt viðtölum
við persónur sem hann hef ur skapað
Eins og landslýður veit hefur
þekktasti grínisti þjóðarinnar, Laddi
(Þórhallur Sigurðsson), skapað
margar eftirminnilegar persónur á
starfsferli sínum sem spannar mörg
ár. Persónur þessar eru þekktar og
einstök tilsvör þeirra oft notuð í sam-
ræðum manna á milli.
Laddi á viðburðaríka ævi aö baki
og nú hefur Þráinn Bertelsson, kvik-
myndagerðarmaður og rithöfundur,
skráð lífshlaup Ladda og einnig tekiö
viðtöl við þekktustu persónur hans.
Mun bókin koma út fyrir jólin hjá
bókaforlaginu Líf og sag?..
Þráinn sagði í stuttu spjalli að þaö
heföi ekki verið átakalaust að ná við-
tah við sumar persónurnar „Þetta
er fleiri tugir persóna sem Laddi hef-
ur skapað en aðalviöfangsefnið í bók-
inni er samt Laddi sjálfur og vegna
þess getur oröið leiðindamál út úr
þessu öllu þegar bókin kemur út því
að ýmsar af persónunum eru alls
ekki sáttar við formið á bókinni og
telja ástæðulaust að vera að skrifa
mikiö um d>wiginn og vilja sjálfar
fá meiri rými og er ég hálfhræddur
um að fá lögbann á bókina þegar hún
kemur út,“ sagði Þráinn.
Hann sagði að bókinni hefði ekki
verið gefið nafn en hann notaði
vinnuheitið „Ævisögur Ladda“. „Það
er mikið af myndum í bókinni. Þótt
Laddi sé ekki gamall þá spannar fer-
ill hans langt og merkilegt tímabil
og hann kemur víða við, sem
skemmtikraftur, kvikmyndaleikari,
sviðsmaður og síðast en ekki síst er
Laddi tónlistarmaður.
Þráinn Bertelsson er þekktastur
sem kvikmyndagerðarmaður en áð-
ur en hann gerði kvikmyndir að aðal-
starfi sínu gaf hann út skáldverk.
Aðspurður um hvenær síðasta bók
eftir hann hefði komið sagði Þráinn
að það væri ekki svo langt síðan.
„Fyrir fjórum eða fimm árum kom
út bók eftir mig undir dulnefninu
Tómas Davíðsson. Hét hún Tungu-
mál fuglanna. Ég var þá að vinna á
Þjóðviljanum og þar sem bókin gerist
í blaðaheiminum og pólitíkinni vildi
ég ekki vera að tengja bókina við
vinnuna. í dag er ég hvorki tengdur
blöðum né pólitík og get því gengist
við bókinni.
-HK
Gisp:
Teiknimyvtda-
sögur,fréttir
ogviðtöl
Þriðja tölublað myndasögu-
blaðsins Gisp er komið út. Að
venju er meginefni blaðsins
myndasögur eftir ýmsa höfunda,
en viðtöl og fréttasíður auka nú
fjölbreytnina. Einnig hefur út-
söluverö blaðsins verið lækkað
um tæplega þriöjung án þess að
blaðsíðuljöldi eða frágangur hafi
breyst. Þeir sem eiga efni í Gisp
að þessu sinni eru Bjarni Hin-
riksson, Bragi Ólafsson, Freydís
Kristjánsdóttir, Gunnar Hjálm-
arsson, Halldór Baldursson,
Helgi Sigurðsson, Jóhann L.
Torfason, Kristín María Ingi-
marsdóttir, Ólafur J. Engilberts-
son og Þorri Hringsson.
Norrænn
bræðingur
Yggdrasil er norræn hljómsveit
sem leikur í Púlsinum í kvöld.
Hljómsveitin sem er sextett er
stjórnuö af píanóleikaranum og
tónskáldinu Kristian Blak sem er
danskur en hefur aUt frá 1974
búið í Færeyjum. Yggdrasil hélt
sína fyrstu tónleika í Færeyjum
1981 og lék þá tónlist Blak við
kvæði eftir William Heinesen.
Síðan hefur hljómsveitin leikið
víða á Norðurlöndum. Þeir sem
skipa sveitina í dag eru flestir
djassmenn. Anders Hagberg leik-
ur á ílautu og saxófóna, Tore
Brunborg á tenór- og sópransaxó-
fón, Lelle Kullgren spilar á gítar
og jóðlar, Anders Jormin er á
kontrabassa og Karin Korpelain-
en á trommur. Kunnastir þessara
eru Norðmaðurinn Tore Brum-
borg sem áöur hefur leikið hér á
landi og Sviinn Anders Jormain
sem er nú meðlimur í kvartett
bandaríska saxófónleikarans
Charles Lloyd.
Sporíbók-
menntafræði
20. aldar
Eftir hlé á útgáfu ritraðarinnar
Fræðirit um nokkurra ára skeið
gefur Bókmenntafræðistofnun
Háskóla íslands út þrjár bækur í
þeirri röö á þessu ári. Ritstjórar
Fræðirita eru nú þeir Ástráður
Eysteinsson og Matthías Viðar
Sæmundsson. Fyrsta ritið á
þessu ári er Spor í bókmennta-
■ fræði 20. aldar, Frá Shklovskij til
Foucault, í ritstjórn Garðars
Baldvinssonar. Er þar að fmna
þýöingar á tíu ritgerðum sem tíð-
indum hafa sætt í vestrænni bók-
menntaumræðu. í greinasafninu
eiga þessir höfundar ritgerðir:
Viktor Shklovskíj, T.S. Ehot,
Claude Lévi-Strauss, Roman Jak-
obson, Julia Kristeva, Jacques
Derrida, Umberto Eco, Roland
Barthes og Michael Foucault og
ræða þau í ritgerðunum margvís-
leg vandamál, allt frá „bók-
menntaleika" bókmenntanna til
formgeröa goðsagna, frá málstoli
til frumsetninga höfundarins og
frá rökvísi skáldskaparmálsins
til þverbresta formgerðarinnar.
Næsta bók í ritrööinni er bók eft-
ir Matthías Viðar Sæmundsson
sem hefur aö geyma greinar um
bókmenntir og menningará-
stand.