Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991.
Fréttir
33
Efnahagstillögur ríkisstjómarinnar:
Loka verður sjúkra-
stofnunum
- nái þessar tillögur fram að ganga, segir Guðmundur Bjamason alþingismaður
„Varöandi þessar efnahagstillög-
ur, sem komu fram með mjög stutt-
um fyrirvara fyrir 2. umræðu fjár-
laga, er það að segja að hér er farin
leið sem oft hefur áður verið reynd
en aldrei tekist. Þar á ég við flatan
niðurskurð á ríkisútgjöldum sem nú
er reynt í mun meira mæh en áður
hefur verið reynt, einkum á launa-
hðnum. Takist þetta aftur á móti
þýðir þessi aðgerð aðeins eitt, þaö
verður dregið stórlega úr þjónustu
stofnana. Það blasir þá við lokum
heilbrigðisstofnana og að draga verð-
ur úr kennslumagni í skólum. Þá er
alveg ljóst að niðurskurðurinn mun
bitna stórlega á málefnum fatlaðra.
Þetta eru stærstu og jafnframt við-
kvæmustu málaílokkarnir," sagði
Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra og fuhtrúi Fram-
sóknarflokksins í fjárlaganefnd Al-
þingis.
„Annað sem er mjög róttækt í þess-
um tillögum eru breytingar á yerka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Ann-
ars vegar er þar um að ræða tilflutn-
ing á málefnum fatlaðra frá ríkinu
yfir á sveitarfélögih og hins vegar
breytingar á greiðslum í jöfnunar-
sjóð sveitarfélaganna. Við höfum set-
ið árum saman við að semja við sveit-
arfélögin um skiptinguna og breyt-
ingar á tekjustofnum því samhhða.
Nú dettur mönnum í hug að hægt sé
að gera þetta á einni nóttu án nokk-
urs samráðs viö sveitarfélögin. Égtel
alveg útilokað að hægt sé að gera
þetta með svo skömmum fyrirvara.
Að fresta jarögangagerð aftur á móti
er bara stjómvaldsákvörðun sem
hægt er að taka án samráðs við nokk-
um annan aðila. Það á ekkert skylt
við þær breytingar sem ég nefndi hér
að framan,“ sagði Guðmundur.
Hann sagðist vilja sjá nánari út-
færslu á skerðingu barnabótanna og
á sjómannaafslættinum en hann
hefði fengiö áöur en hann tjáði sig
um þau atriði. Það sem hann hefði
séð af því Utist sér Ula á.
-S.dór
ORION
ORION COLOR 520 VT/TEXT
5ÁRA
ÁBYRGÐ
0 Fjarstýring # Flatur skjár____________
0 Skjátexti 0 "Scart" tengi_____________
• Textavarp • 90 min "sleep timer"
Efnahagstillögur ríkLsstjómarinnar:
Lendir harðast á skóla-
og heilbrigðiskerf inu
- segir JónaValgeröurKristjánsdóttiralþingismaður
„I fyrsta lagi vil ég nefna að þama
kemur fram niðurskurður á marga
málaflokka og er lagður fram á síð-
ustirstundu. Þarna er lagður til nið-
urskurður launa opinberra starfs-
manna upp á 1,5 milljarða króna. Við
í fjárlaganefndinni höfum enn ekki
fengið neinar tiUögur rnn það hvem-
ig á að standa að þessum launaniður-
skurði. Ég fæ ekki séð hvemig hægt
er að framkvæma þetta nema með
uppsögnum sem ég tel mjög alvarlegt
mál ogveit ekki hvar það á að koma
niður. í tUlögunni er þetta bara sett
á fjármálaráðuneytið og því getur
það snert marga málaflokka. Sér-
staklega óttast ég að þetta lendi á
sjúkrahúsum og skólum,“ sagði Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, alþingis-
kona og fuUtrúi Kvennahstans í fjár-
laganefnd Alþingis, um niðurskurö-
artUlögur ríkisstjómarinnar.
Hún nefndi einnig auknar álögur á
sveitarfélögin sem hún sagði að
myndu nema um 800 miUjónum
króna og sveitarfélögin hafi ekkert
fengið um þessar álögur að fjaUa,
enda ekkert samráð við þau haft.
Jóna sagðist ekki sjá að sveitarfélög-
in fengju neina tekjustofna á móti
álögunum.
»„Þá er einnig ljóst að stórir mála-
flokkar eru óútkljáðir ennþá. Þar er
um að ræða tekjuhlið fjárlagafram-
varpsins. Okkur voru kynntir þeir í
gær en umræðum um þessa mála-
flokka á að fresta til 3. umræðu um
fjárlögin. Það er því ekki tímabært
að ræða um þá fyrr en þeir hafa ver-
ið lagðir fram,“ sagði Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir.
-S.dór
A Ð E I N S
kr. 37.900.- sfor.
Einnig á alvöru jólatilboðsverði
fjölmörg önnur sjónvarpstæki, hljómtæki,
myndbandstæki, leiktölvur, símar, reiknivélar,
útvarpsklukkur og ótal margt fleira.
DjúpfiskurM:
Rúmlega
22 milQ-
óna
gjaldþrot
-þrotabúið eignalaust
Lýstar kröfur í fiskverkim-
arfyrirtækiö Djúpfisk hf.
nema samtals 22 mUljónum
króna. Er þá eftir að taka af-
stöðu til tveggja lýstra krafna
sem em samtals um tvær
mUljónir króna. Engar eignir
em í búinu.
Fyrirtækið Djúpfiskur hf.,
sem er í Örfirisey, var lýst
gjaldþrota í ágústmánuði síð-
astliðnum. Einn skiptafundur
hefur verið haldinn í þrotabú-
inu.
Stærstu kröfuhafar em
ToUstjóraembættið í Reykja-
vík með rúmlega 4 mUljónir,
Búnaðarbankinn með 3,5
mUljónir og bæjarfógetinn í
Hafnarfirði með 3,2 mUljónir.
Aðrar kröfur em undir 3
milljónum. Um er að ræöa
almennar kröfur, nema þær
tvær sem ekki hefur verið
tekin afstaða til. í báðum til-
vikum er um að ræða for-
gangskröfur.
. ... . .... - . » •*. *.
, , , 4 ♦ ' ' ’ . * * \ V ^ '
* ' ’ • . 1 *
& * V* * * -
Umboðsmenn um allt land
-JSS