Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992. 3 „Öllum hraðbönkum í borginni er lokað Mukkan 16.15 virka daga og eru þeír lokaðir í 20 til 30 mínút- ur. Á þessum tíma eru bankamir gerðir upp. Á nóttunni, þegar búið er að keyra daginn hjá okkur, þarf að koma fyrír varaupplýsingum inn í tölvukerfið sem hraðbankam- ir tengjast. Það tekur 10 til 15 min- utur og er venjulega milli Mukkan 4 og 5 á morgnana. Auk þess þarf að loka kerfinu einu sinni í mánuði í tvo tima vegna viðhalds á því. Það er enginn fastur mánaðardagur sem við notum til þess en við til- kynnum bönkunum meðfyrirvara hvenær þaö gerist,“ segir Þórður Sígurðsson, forstöðumaður Reikni- stofnunar bankamta, en nokkuð hefur borið á því að undanfómu að fólk komi að hraðbönkunum lokuðum. „Fyrir utan þessar fóstu frátafir þá var tengilími á hraðbönkunum 96,4 prósent í október, 96,3 prósent í nóvember og 95,6 prósent í des- ember. Þetta svarar tíl þess að allir hraðbankarnir á höfuðborgar- svæðínu, sem eru 25, séu lokaðir í Mukkutíma á dag. Það vora 98 lokanir á einstökum hraðbönkum í október, i nóvember voru þær 69 og 76 lokanir i desemb- er. Hins vegar er ekM ljóst af hvaða orsökum þessar lokanir vom, hvort það hafa veriö bilanir í kerf- mu eða annað. ; Við erurn nýbyrjaðir að halda Hver hraðbanki er að meðaltaii lokaður i um kiukkustund á dag af óþekktum orsökum. DV-mynd GVA saman upplýsingum um lokun hraöbankanna. Astæðan fyrir því að við fórum að fylgjast með þess- um málum er su að íslandsbanM stofnaði unglingaMúbb síðastliðiö haust og allir meðlimir hans fengu hraðbankakort Þaö hefur auMð notkun á hraðbönkunum talsvert Það þarf hins vegar að vara fólk við því að ef traffiMn er mikil i móður- tölvunni hjá okkur dettur banMnn tímabundið út og virkar hann þá eins og hann sé lokaður. í slíkum tilfellum þarf fólk að bíða svolitla stundogreynasvoaftur.“ -J.Mar Fréttir Fjórar erlendar stofnanir vilja sækja líífæri hingað: Mikil eftirspurn efftir líffærum úr íslendingum „Það hafa komið tilboð frá stofnun- um í fiórum löndum um að sækja hingað líffæri. Þarna er um að ræða stofnanir í Danmörku, Svíþjóð, Npr- egi og Bretlandi," sagði Páll Ás- mundsson, yfirlæknir á Landspítal- anum. Hópur lækna á sjúkrahúsunum hefur sent frá sér álitsgerð um sam- starf við ígræðslustöðvar í ná- grannalöndunum. Álitsgerðin er nú til athugimar hjá formönnum læknaráða sjúkrahús- anna. Hún verður síðan væntanlega send heilbrigðisráðherra til endan- legrar umsagnar. Munu læknamir mæla með að samningur verði gerð- ur við eina tiltekna stofnun. í álits- gerðinni benda þeir á fiórar sem þeir telja aö komi helst til greina að semja við. „Við mælum helst með því að sMpt Hún biður eftir nýju hjarta og lung- um: Anna Mary Snorradóttir ásamt dætrunum Tinnu Björk og örnu Þöll. veröi við einhverja ígræðslustofnun á Noröurlöndum,“ sagði Páll. „Við höfum haft mest samstarf við þær stofnanir til þessa. Okkur virðist sem þau líffæri sem til falla hér á landi muni verða heldur fleiri en þörf er fyrir. Við munum því heldur leggja til með okkur þegar þar að kemur.“ Einn þeirra aðila sem boðist hafa til að sækja líffæri til íslands er lækn- ir á Brompton-sjúkrahúsinu í Lon- don, doktor Yacoub. Á því sjúkra- húsi dvelur einmitt íslensk kona, Anna Mary Snorradóttir. Hún er haldin sjaldgæfum sjúkdómi og bíð- ur eftir lungum og hjarta. Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra kvaðst bíða eftir tillögun- um frá læknunum. Hann sagðist myndu hraða ákvarðanatöku um máhð eftir fóngum. -JSS NISSAN SUNNY SLX 1.6 STÓRSKEMMTILEGUR OG GLÆSILEGUR Nissan Sunny SLX 1.6 16 ventla hlaðinn aukahlutum s.s. rafdrifnum rúðum, rafstillanlegum speglum, upphituðum sætum, vökvastýri, samlæstum hurðum og m.fl. Fáanlegur í ýmsum útfærslum. Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700. Nissan Sunny SLX 1,6, 3ja dyra. Verð kr. 880.000 stgr. 4ra dyra stallbakur. Verð kr. 961.000 stgr. 5 dyra hlaðbakur. Verð kr. 956.000 stgr. Ingvar Helgason hf. Sævarhöföa 2 sími 91-674000 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.