Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Page 20
20
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992.
Umdeild skýring Olivers
Stone á morðinu á Kennedy
Á sólríkum degi í Dallas, Texas,
þann 22. nóvember 1963 gerðist sá
atburður sem margir halda fram
að breytt hafl bandarískri sögu og
þjóðlífi, John F. Kennedy, forseti
Bandaríkjanna, var myrtur. Morð
þetta olli miklum heilabrotum á
sínum tíma og nú, rúmum 28 árum
seinna, er spumingin hver í raun-
inni hafi staðið að moröinu á
Kennedy enn brennandi á vörum
margra.
Warren skýrslan, sem átti að
kveða niður öll vafaatriði um hver
væri morðinginn, hefur ávalit ver-
ið umdeild og margt í henni stenst
ekki nánari rannsókn. Nýleg könn-
un meðal Bandaríkjamanna sýnir
að 73% Bandaríkjamanna líta svo
á að Warren skýrsla sé röng og trúa
því að um samsæri hafi verið að
ræða. í JFK, hinni nýju kvikmynd
Olivers Stone, sem fjallar um
morðið á Kennedy, er spumingin í
raun ekki hver myrti heldur hvers
vegna.
Með miklar upplýsingar úr eigin
rannsókn og tvær bækur í vega-
nesti, On the Trail of the Assassins
eftir Jim Garrison og Crossfire eft-
ir Jim Mars leggur Ohver Stone í
leit að skýringum á moröinu og fá
ýmsir einstakhngar og stofnanir
að kenna á harðri gagnrýni hans.
Oliver Stone og Kevin Costner ræða málin meðan á tökum stendur.
Saksóknari í New
Orleans aðalpersón-
an
Aðalpersóna myndarinnar er
saksóknarinn Jim Garrison og er
greinhegt að Oliver Stone styðst við
og trúir rannsóknum hans, en
Garrison var saksóknari í New
Orleans og sótti th saka fyrir aðild
að morðinu viðskiptamanninn
Clay Shaw sem síðar var sýknaður
í frægum réttarhöldum.
Strax eftir morðiö leit út fyrir að
auðvelt yrði að leysa máliö. Reið
og sorgmædd þjóðin fylgdist með
þegar Lee Harvey Oswald var
handtekinn tveimur klukkustund-
um eftir að morðið var framið og
einum sólarhring síðar er Jack
Ruby skaut Oswald þegar verið var
að flytja hann á lögreglustöðina í
Dahas.
Alveg frá því Oswald var hand-
tekinn þar th hann var myrtur
hélt hann fram sakleysi sínu og
sagði hvað eftir annað við lögregl-
una og blaðamenn: „Ég er aðeins
blóraböggull."
Fljótlega eftir morðið setti John-
son forseti á stofn Warren-nefndina
sem eftir árs starf, og aö sögn
nefndarinnar ítarlegar rannsóknir,
kom með þá niðurstöðu að Oswald
hefði einn framið morðið. Skýrsla
nefndarinnar varð strax mjög um-
dehd og hefur vakið með fræði- og
rannsóknarmönnum margar
spumingar en þeir hafa notað
skýrsluna sem upphaf viö rann-
sókn á morðinu á Kennedy.
Ohver Stone las fyrst bók Jim
Gary Oldham
leikur Lee Harv-
ey Oswald.
Jack Lemmon
lelkur einka-
spæjara sem
tengist morðinu.
Garrisons 1988 þegar hann var að
vinna að Bom on the Fourth of
July og þar meö var áhugi hans
kviknaður. Hann var ekkert að
bíða með hlutina heldur réð th sín
hð manna til að kanna máhð og
undirbúa áöur en handritið yrði
skrifað.
Jim Garrison er aðalpersóna
myndarinnar, en myndin er samt
ekki saga hans heldur er hann not-
aöur sem málsvari Stones svo hann
geti komið öllum þeim upplýsing-
um á framfæri sem hann og aðstoð-
armenn hans uppgötvuöu við
rannsókn málsins. Þegar Garrison
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
var að vinna að rannsókn sinni var
hann aðahega að leita aö morðingj-
anum og rannsaka hvemig forset-
inn var myrtur. í JFK leggur Stone
megináherslu á hvers vegna hann
var myrtur og skýring hans hefur
valdið þeim hörðu viðbrögðum sem
fræðimenn og aðrir hafa farið um
myndina.
Dómar um myndina hafa verið á
tvo vegu. Kvikmyndin sjálf er talin
mjög áhrifamikh og vel gerð og öh-
um þeim sem sáu Platoon, Born on
the Fourth of July og The Doors,
fyrri myndir Ohvers Stone sem
einnig gerast á sjöunda áratugnum,
kemur þaö ekki á óvart, en gagn-
rýnin er óvægin frá þeim sem telja
skýringar Stones yfirborðskennd-
ar og fljótfæmislegar Hér á eftir
verður vitnað í grein sem hinn
þekkti blaðamaöur Tom Wicker
skrifaði um JFK í New York Tim-
es, en á sínum tíma skrifaði hann
um morðið og eftirleikinn fyrir
New York Times.
Ósönnuö rök
verða að skýringu
Tim Wicker, sem skrifað hefur
bók um samband Johns F.
Kennedy og Lyndons B. Johnson,
segir í byriun greinar sinnar að
Ohver Stone sýni aðeins smábrot
úr þætti sem NBC sjónvarpsstöðin
gerði um Jim Garrison 1967, þar
sem sannað er að Garrison hafi
með hótunum og mútum fengið
fólk th að bera vitni í máh hans
gegn Clay Shaw. Wicker segir aö
þessi staðreynd geri það að verkum
að auglýsingatexti með myndinni
sé gróf fölsun, en í honum segir að
Garrison hafi hætt lífi sínu og fjöl-
skyldu sinnar vegna þess málstað-
ar sem honum þykir mest virði,
sannleikans. „í nærri þrjátíu ár
hafa margir rannsónarmenn kom-
ið fram á sjónarsviðið með skýring-
ar á morðinu á Kennedy og er
Garrison af fleshun talinn sá sem
ótrúverðugastur er. Það var ekki
aðeins þáttur NBC-stöðvarinnar
sem afhjúpaði hann heldur er
margt annað sem gerði rannsókn
hans vafasama. Þrátt fyrir að Stone
hljóti að hafa gert sér grein fyrir
þessu, kaus hann að hafa Jim
Garrison hetju myndarinnar.“
Wicker segir að ef rétt sé farið
með i JFK verði bandaríska þjóðin
að taka sem staðreynd að margar
þær stofnanir sem Bandaríkja-
menn bera hvað mesta virðingu
fyrir, forsetaembættið þar með tal-