Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Page 25
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992.
25
Sviðsljós
Allar fyrirsætur Módel 79 gáfu vinnu sina og lögðu hart að sér. Hér sjáum við stúlkurnar gantast í búnings-
herberginu.
Ein stærsta og dýrasta auglýsing til þessa:
90 fyrirsætur
komu við sögu
Tískusasmtökin Módel 79 hafa í
samvinnu við Frost film og fleiri
gert það sem talsmenn samtakanna
kalla lengstu og dýrustu auglýs-
ingu sem enn hefur verið gerð hér
á landi. Alls koma 90 módel frá
samtökunum við sögu í auglýsing-
unni en hún er þijár og hálf mín-
úta að lengd.
Það var Magnús Scheving sem
átti hugmyndina að þessari auglýs-
ingu og var potturinn og pannan í
gerð hennar. Hugmyndin var fyrst
og fremst að vekja athygli á fyrir-
sætum Módels 79.
„Það er mjög dýrt að gera svona
mynd. Við leituðum því að aðilum
sem vildu styrkja gerð hennar. Það
gekk ágætlega. Gosan hf. er aðal-
styrktaraðih og auglýsum við
framleiðslu þeirra. Krakkarnir
unnu kauplaust að gerð auglýsing-
arinnar allan tímann og lögðu al-
veg geysilega hart að sér. Þetta var
mjög umfangsmikil framkvæmd
þar sem tökur fóru fram á einum
tíu stöðum í bænum og á tíu dög-
um. Hins vegar fóru þrír mánuðir
í vinnsluna. Ég geri ráð fyrir að
auglýsingin hafi kostað 7-8 milljón-
ir en það græða allir á þessu þar
sem öll vinna við gerð hennar er
gefin,“ sagði Magnús Scheving í
spjalli við DV.
Auglýsingin hefur aðeins verið
sýnd í bíó. Gerðar voru tvær útgáf-
ur, önnur í bannárastíl en hin í
nútímastíl.
-hlh
Frá auglýsingamynd Módel 79 sem höfð var í bannárastíl a la Capone. Þetta mun vera dýrasta auglýsing
sem gerð hefur verið hérlendis.
i ÁSKRIFTARGETRAUN DV
verða dregnir út 13 bílar
EINN BÍLL Á MÁNUÐI FRÁDES. 1991 TILDES. 1992.
Allir skuldlausir áskrifendur (bæði nýir og gamlir) eru sjálfkrafa með í
pottinum hverju sinni. Ef þú ert svo heppinn að nafnið þitt sé dregið út, þarftu
einungis að svara laufléttri spurningú í fyllingu tímans - og þú hefur
eignast nýjanbíl.
ÁSKRIFTARSÍMI 2 70 22 GRÆNT NÚMER 99 62 70