Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1992, Síða 32
44 LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992. Fulltrúi DV á stærstu hundasýningu heims: Um 21 þúsund hundar af öllum stærðum og gerðum voru sýndir á stærstu hundasýningu heims, Crufts-hundasýningunni, sem fram fór í Birmingham í Englandi 9.-12. janúar síðastliðinn. Mikill áhugi er á þessari sýningu en hana sækir fólk alls staðar úr heiminum. Tahð er að samtals um 65 þúsund manns hafi sótt sýninguna. Full- trúi DV, Ragnar Siguijónsson, var á staðnum alla dagana auk um tíu íslendinga. Sýningin skiptist í nokkra flokka. Fyrsta daginn voru sýndir byssu- hundar, hundar sem veiðimenn nota. Annan daginn voru meðal annars sýndir gæluhundar, þriðja daginn terrier-hundar og fjórða daginn vinnuhundar, þar á meðal lögreglu- og vakthundar. Alla dagana fór fram mikil dag- skrá þar sem keppt var í hinum ýmsu greinum, meðal annars hundaflmi og hlýðni, sem er geysi- lega vinsæl keppnisgrein í Bret- landi. Það eru tískusveiflur í hunda- rækt eins og á öðrum áhugasviðum manna og mátti sjá það á aðsókn- inni að mismunandi dómhringium þegar verið var að dæma. Meðal mjög vinsælla tegunda eru labrad- or og golden retriever ásamt írsk- um setter. Besti hundur sýningarinnar var valinn tveggja ára whippet ch. pencloe dutch gold sem hefur verið mjög sigursæll á ræktunarsýning- um undanfarið ár. Margir hundar voru kallaðir en fáir útvaldir en sá háttur er hafður á að einungis einn hundur stendur uppi sem besti hundur allrar sýningarinnar. -hlh Það er margt likt með skyldum en dæmi nú hver fyrir sig. Hundarnir foru fluttir á milli i alls kyns farartækjum. Þeim fylgir alls kyns snyrti- og hreinsidót sem liggur ofan ð búrvagninum. Besti hundur Crufts-hundasýningarinnar 1992 sem fram fór nú í janúar. Þessi hundur kallast whippet. A myndinni er hróðugur eigandinn, fröken Morag frá Bolton. DV-myndir Rasi Hundafimi er geysivinsæl á hundasýningum og mikil og skemmtileg keppni í gangi. Á myndinni er golden retriever hundur aö stökkva yfir slá. Dómari á hundasýningunni skoðar upp í rottweilar-hund. Þessir hundar eru geta verið afar ákveðnir og þykir dómurum ráðlegast að biðja eig- andann um að sýna sér tennur hundsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.